Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Interim / Quarterly Report 2019

Aug 27, 2019

2203_rns_2019-08-27_fee1986b-aedc-4c6e-bc38-1d1ea6650849.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

img-0.jpeg

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu

  1. janúar til 30. júní 2019

Síminn hf.
Ármúla 25
108 Reykjavík
Kt. 460207-0880


Efnisyfirlit

Bls.

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra... 2
Rekstrarreikningur... 3
Efnahagsreikningur... 4
Eiginfjáryfirlit... 5
Sjóðstreymisyflit... 6
Skýringar... 7 - 12
Ársfjórðungsyflit... 13

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2019


Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning Símans hf. og dótturfélaga hans. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34 eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu. Breyting var gerð á reikningsskilaaðferð vegna sjónvarpsréta félagsins. Vísað er í skýringu 3 til nánari útskýringar. Árshlutareikningurinn er hvorki endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.

Heildartekjur samstæðunnar á tímabilinu 1. janúar til 30. júní voru 14.077 m.kr. samkvæmt rekstrarreikningi samanborið við 14.027 m.kr. á sama tímabili árið 2018. Hagnaður var af rekstri samstæðunnar sem nam 1.413 m.kr. samanborið við hagnað að fjárhæð 1.740 m.kr. á sama tímabili 2018. Eignir samstæðunnar námu 64.475 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Eigið fé nam 36.285 m.kr. og var eiginfjárhlutfallið 56,4%. Síminn hf. greiddi arð á tímabilinu að fjárhæð 330 m.kr. til hluthafa sinna. Að öðru leyti vísast til árshlutareiknings um breytingar á eigin fé samstæðunnar.

Á aðalfundi Símans hf. þann 21. mars 2019 var sambykkt tillaga stjórnar félagsins um endurkaupaáætlun á bréfum félagsins að hámarki 1.310 m.kr. að kaupverði. Framkvæmd áætlunarinnar hófst á 3. ársfjórðungi þessa árs.

Yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er árshlutareikningur samstæðunnar í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið staðfestur af Evrópusambandinu. Er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af rekstrarafkomu samstæðunnar á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2019, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu hennar 30. júní 2019 og breytingu á handbæru fé á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2019. Jafnframt er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn gefi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri samstæðunnar og stöðu hennar og lýsi helstu áhættuþáttum og óvissu sem samstæðan býr við.

Stjórn og forstjóri Símans hf. hafa í dag fjallað um árshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2019 og staðfesta hann með undirritun sinni.

Reykjavík, 27. ágúst 2019

Stjórn

Bertrand B. Kan, formaður

Helga Valfells, varaformaður

Bjarni Þorvarðarson

Ksenia Nekrasova

Sylvía Kristín Ólafsdóttir

Forstjóri

Orri Hauksson

Síminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2019


Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu

  1. janúar til 30. júní 2019
Skýr. 2019 2018 2019 2018
1.4.-30.6. 1.4.-30.6. 1.1.-30.6. 1.1.-30.6.
Sala 5 6.808 6.921 13.581 13.677
Kostnaðarverð sólú 6 ( 3.591) ( 3.610) ( 7.016) ( 6.912)
Framlegð 3.217 3.311 6.565 6.765
Aðrar rekstrartekjur 307 232 496 350
Rekstrarkostnaður 7 ( 2.246) ( 2.280) ( 4.676) ( 4.555)
Rekstrarhagnaður 1.278 1.263 2.385 2.560
Fjármunatekjur 46 52 96 104
Fjármagnsgjöld ( 301) ( 240) ( 657) ( 481)
Gengismunur ( 14) ( 2) ( 21) 5
Hrein fjármagnsgjöld 8 ( 269) ( 190) ( 582) ( 372)
Hagnaður fyrir tekjuskatt 1.009 1.073 1.803 2.188
Reiknaðir skattar ( 211) ( 220) ( 390) ( 448)
Hagnaður tímabilsins 798 853 1.413 1.740
Heildarhagnaður tímabilsins 798 853 1.413 1.740
EBITDA* 2.602 2.386 4.971 4.790
Hagnaður á hlut
Grunnhagnaður á hlut 0,09 0,09 0,16 0,19

*Endurgert, sjá nánar í skýringu 3.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2019

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Efnahagsreikningur 30. júní 2019

Skýr. 30.6.2019 31.12.2018 Endurgert*
Eignir
Fastafjármunir
Rekstrarfjármunir 23.795 18.059
Óefnislegar eignir 32.662 32.473
Aðrar eignir 9 496 424
Fastafjármunir 56.953 50.956
Veltufjármunir
Birgðir 10 1.618 1.437
Viðskiptakrófur 11 3.465 4.313
Aðrar skammtímakrófur 12 1.929 882
Handbært fé 510 1.246
Veltufjármunir 7.522 7.878
Eignir alls 64.475 58.834
Eigið fé
Hlutafé 9.033 9.033
Yfirverðsreikningur 15.552 15.552
Annað eigið fé 154 154
Annað bundið eigið fé 462 456
Óráðstafað eigið fé 11.084 10.007
Eigið fé samtals 36.285 35.202
Skuldir
Langtímaskuldir
Skuldabréfalán 15.046 15.631
Leiguskuldbindingar 3 4.868 0
Tekjuskattsskuldbinding 13 818 898
Langtímaskuldir 20.732 16.529
Skammtímaskuldir
Skuldir við lánastofnanir 277 450
Viðskiptaskuldir 2.556 2.997
Næsta árs afborganir langtímaskulda 1.150 1.150
Næsta árs afborganir leiguskuldbindinga 3 546 0
Skattar til greiðslu 1.060 766
Aðrar skammtímaskuldir 14 1.869 1.740
Skammtímaskuldir 7.458 7.103
Skuldir samtals 28.190 23.632
Eigið fé og skuldir alls 64.475 58.834

*Endurgert, sjá nánar í skýringu 3.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2019

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Eiginfjáryfirlit 30. júní 2019

Hlutafé Yfirverðs-reikningur Annað eigið fé Annað bundið eigið fé Óráðstafað eigið fé Eigið fé samtals
Eigið fé 1.1.2018 9.247 16.406 201 1.041 9.386 36.281
Hagnaður tímabilsins 497 1.243 1.740
Greiddur arður (0,033588 á hlut) ( 311) ( 311)
Keypt eigin bréf ( 280) ( 962) ( 1.242)
Fært á bundið eigið fé ( 188) 188 0
Áfallinn kostnaður vegna kaupréttarsamninga 12 12
Eigið fé 30.6.2018 8.967 15.444 213 1.350 10.506 36.480
Eigið fé 1.1.2019 9.033 15.552 154 456 10.007 35.202
Hagnaður tímabilsins 1.413 1.413
Greiddur arður (0,036534 á hlut) ( 330) ( 330)
Fært á bundið eigið fé 6 ( 6) 0
Eigið fé 30.6.2019 9.033 15.552 154 462 11.084 36.285

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2019

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Sjóðstreymisyflrit 1. janúar til 30. júní 2019

Skýr. 2019 2018 2019 2018
1.4.-30.6. 1.4.-30.6. Endurgert* 1.1.-30.6. 1.1.-30.6. Endurgert*
Rekstrarhreyfingar
Rekstrarhagnaður samkvæmt rekstrarreikningi 1.278 1.263 2.385 2.560
Rekstrarliðir sem ekki hafa áhrif á fjárstreymi:
Afskriftir 1.324 1.123 2.586 2.230
Söluhagnaður varanlegra rekstrarfjármuna ( 165) ( 104) ( 165) ( 104)
Aðrir liðir sem ekki hafa áhrif á fjárstreymi 0 6 0 12
2.437 2.288 4.806 4.698
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum:
Birgðir, lækkun (hækkun) 52 543 ( 124) 368
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, lækkun (hækkun) 268 ( 205) ( 130) 162
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir, (lækkun) hækkun ( 670) ( 188) ( 403) ( 400)
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum ( 350) 150 ( 657) 130
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta 2.087 2.438 4.149 4.828
Innborgaðir vextir 44 48 91 103
Greiddir vextir ( 309) ( 241) ( 619) ( 487)
Greiddir skattar ( 87) ( 157) ( 175) ( 313)
Handbært fé frá rekstri 1.735 2.088 3.446 4.131
Fjárfestingarhreýfingar
Fjárfesting í rekstrarfjármunum ( 1.187) ( 1.129) ( 2.185) ( 2.202)
Fjárfesting í óefnislegum eignum ( 537) ( 423) ( 717) ( 533)
Söluverð rekstrarfjármuna 2 126 3 127
Skuldabréfaeign, breyting 0 0 28 28
Kaup á eignarhlutum í dótturfélögum, að frádregnu handbæru fé 0 ( 26) 0 ( 26)
Aðrar fjárfestingar 0 0 2 0
Fjárfestingarhreýfingar ( 1.722) ( 1.452) ( 2.869) ( 2.606)
Fjármögnunarhreýfingar
Greiddur arður ( 330) ( 311) ( 330) ( 311)
Kaup eigin bréfa 0 ( 1.242) 0 ( 1.242)
Afborganir langtímalána ( 288) ( 288) ( 575) ( 575)
Afborganir leiguskuldbindinga ( 133) 0 ( 264) 0
Skammtímalán, breyting 277 575 ( 173) 75
Fjármögnunarhreýfingar ( 474) ( 1.266) ( 1.342) ( 2.053)
Lækkun á handbæru fé ( 461) ( 630) ( 765) ( 528)
Áhrif gengisbreytinga á handbært fé 5 8 29 ( 7)
Handbært fé í byrjun tímabilsins 966 805 1.246 718
Handbært fé í lok tímabilsins 510 183 510 183

*Endurgert, sjá nánar í skýringu 3.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2019

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

1. Starfsemi

Síminn hf. er hlutafélag og starfar á grundvelli laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Höfuðstöðvar félagsins eru að Ármúla 25 í Reykjavík. Samstæðuárs hlutareikningur fyrir tímabilið janúar til júní 2019 hefur að geyma árs hlutareikning félagsins og dótturfélaga þess sem vísað er til í heild sem "félagsins" og til einstakra félaga sem "dótturfélaga". Meginstarfsemi félagsins er á sviði fjarskipta, afbreyingar og upplýsingatækni.

2. Grundvöllur reikningsskilanna

Yfirlýsing um að alþjóðlegum reikningsskilastöðlum sé fylgt

Árs hlutareikningur félagsins er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árs hlutareikninga, IAS 34. Samandreginn árs hlutareikningur Símans hf. inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning félagsins fyrir árið 2018. Valdar skýringar eru með árs hlutareikningnum til að skýra og upplýsa um rekstur félagsins á tímabilinu og breytingar á fjárhagslegri stöðu frá síðasta ársreikningi.

Hægt er að nálgast ársreikninginn á vef félagsins, www. siminn.is og á vef Kauphallar Íslands: www. nasdaqomxnordic.com.

Félagið hefur innleitt reikningsskilastaðal IFRS 16 fyrir reikningsár sem hófst 1. janúar 2019. Breytingum á reikningsskilaðferðum er lýst í skýringu 3.

Stjórn og forstjóri félagsins samþykktu árs hlutareikninginn og heimiluðu birtingu hans á stjórnarfundi þann 27. ágúst 2019.

Grundvöllur matsaðferða

Samstæðuárs hlutareikningurinn er gerður samkvæmt kostnaðarverðsaðferð.

Starfrækslugjaldmiðill og framsetningargjaldmiðill

Árs hlutareikningurinn er gerður í íslenskum krónum sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins og eru fjárhæðir birtar í milljónum króna nema annað sé tekið fram.

Mat og ákvarðanir

Gerð samstæðuárs hlutareikningins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaðferða og birtar fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að verða frábrugðnar þessu mati.

3. Breytingar á reikningsskilaðferðum

Við gerð árs hlutareikningins er beitt sömu reikningsskilaðferðum og beitt var við gerð ársreiknings félagsins fyrir árið 2018 að undanskildum breytingum sem lýst er hér að neðan.

Félagið hefur innleitt reikningsskilastaðal IFRS 16 fyrir reikningsár sem hófst 1. janúar 2019. Breyting er einnig gerð við meðferð sjónvarpsréttar. Sjónvarpsréttur hefur hingað til verið færður til eignar sem birgðir samkvæmt IAS 2 og gjaldfærður sem efniskostnaður. Vegna mikilla breytinga á umhverfi og viðskiptamódeli sjónvarps undanfarin ár er sjónvarpsréttur félagsins færður frá 1. janúar 2019 sem óefnisleg eign samkvæmt IAS 38 og afskrifaður á samningstíma.

IFRS 16 Leigusamningar

IFRS 16 kynnir heildstætt líkan sem felur í sér færslu leigusamninga í efnahagsreikning. Félagið, sem leigutaki, hefur fært til eignar nýtingarrétt sem endurspeglar rétt félagsins til notkunar eigna og á móti skuld vegna framtíðarleigugreiðslna. Samkvæmt staðlinum þarf ekki að færa í efnahagsreikning leigusamninga til skemmri tíma en eins árs og leigu á ódýrum eignum. Ákvæði um leigusala munu ekki breytast verulega frá gildandi staðli sem áfram flokkar leigusamninga í fjármögnunarleigusamninga eða rekstrarleigusamninga.

Félagið hefur innleitt IFRS 16 miðað við aðferð uppsafnaðra áhrifa (e. modified retrospective approach), þar sem leigueignir eru jafnar leiguskuldum á upptökudegi 1.1.2019. Samkvæmt þeirri aðferð hefur samanburðartölum fyrir árið 2018 ekki verið breytt, þ.e. þær eru færðar samkvæmt IAS 17 og öðrum tengdum stöðlum. Breytingarnar eru skýrðar út hér að neðan.

Siminn hf. - Samandreginn árs hlutareikningur samstæðu 30. júní 2019
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

3. Breytingar á reikningsskilaaðferðum, frh.:

Leigusamningar þar sem samstæðan er leigutaki

Félagið hefur fært eignir og skuldir vegna leigusamninga um húsnæði, aðstöðuleigu, bifreiða og ljósleiðara. Eðli kostnaðar tengdum þessum leigusamningum hefur breyst þannig að félagið afskrifar nýtingarrétt og færir vaxtagjöld af leiguskuld en áður voru leigugreiðslur færðar meðal rekstrargjalda.

Áður voru leigugreiðslur færðar til gjalda línulega yfir leigutíma og einvörðungu færðar eignir eða skuldir ef tímamunur myndáðist milli greiðslu leigu og gjaldfærslu kostnaðar.

Leigueignir sem færðar eru inn í efnahagsreikning vegna innleiðingar IFRS 16 eru færðar í rekstrarfjármuni, og flokkast þar með sambærilegum eignum sem félagið á fyrir. Bókfært verð leigueigna er eftirfarandi:

Fjarskipta-búnaður Fasteignir og lóðir Bifreiðar Samtals
Staða 1.1.2019 156 5.350 61 5.567
Staða 30.6.2019 151 5.127 58 5.336

Í efnahagsreikningi er skuldbinding vegna leigusamninga flokkuð sem langtímaskuld að frádreginni næsta árs afborgun.

Leigusamningar þar sem samstæðan er leigusali

Innleiðing IFRS 16 hefur ekki áhrif á samninga þar sem félagið er leigusali.

Áhrif innleiðingar á uppgjörstímabilinu

Vegna innleiðingar IFRS 16 er bókfærð staða leigueignar 5.336 m.kr. og leiguskuldar 5.414 m.kr. þann 30. júní 2019.

Sömuleiðis er færð afskrift af leigueign og vaxtagjöld af leiguskuldbindingu. Á tímabilinu 1. janúar til 30. júní er gjaldfærð afskrift undir rekstrarkostnaði vegna leigueigna 333 m.kr. og 137 m.kr. í vaxtagjöld vegna leiguskuldbindinga. Afborgun af leiguskuldbindingu er 264 m.kr.

Sjónvarpsréttur, breyting á reikningsskilaaðferð

Sjónvarpsréttur félagsins er nú færður sem óefnisleg eign í fastafjármunum en var áður færður sem birgðir í veltufjármunum. Vegna þessarar breytingar hefur samanburðarfjárhæðum í efnahagsreikningi 31.12.2018 verið breytt. 763 m.kr. eru nú færðar sem óefnisleg eign en voru áður færðar í birgðum og 150 m.kr. eru nú færðar sem fyrirframgreiddur kostnaður en voru áður færðar í birgðum. Breytingin hefur engin áhrif á eigið fé.

Einnig er gerð breyting á framsetningu innan kostnaðarverðs sölu fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2018. Kostnaðarverð seldrar þjónustu, þ.e. efniskostnaður, lækkar um 343 m.kr. og afskriftir hækka um sömu fjárhæð. Sjá skýringu 6.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2019

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

4. Starfsþáttayfirlit

Yfirlit um starfsþætti veitir upplýsingar um einstaka þætti í rekstri félagsins og er sett fram með sama hætti og regluleg skýrslugjóf til stjórnar félagsins.

Starfsemi félagsins skiptist í sjö starfsþætti sem selja vörur og þjónustu á mismunandi mörkuðum. Starfsþættirnir eru:

Starfsþáttur Lýsing
Farsímapjónusta: Farsímapjónusta innanlands og erlendis, hvort sem heldur er hefðbundin GSM þjónusta, gervihnattapjónusta eða önnur farsímapjónusta.
Talsímapjónusta: Talsímapjónusta fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
Gagnaflutningur: Gagnaflutningsþjónusta, þ.m.t. xDSL þjónusta, GPON, Internet, IP net, stofnnet, heimtaugar og aðgangsnet.
Sjónvarpsþjónusta: Dreifing á sjónvarpsefni, áskrift, notkun og auglýsingar á miðlum félagsins.
Upplýsingatækni: Upplýsingatækniþjónusta, þ.m.t. mánaðargjöld, útseld þjónusta og vörusala.
Vörusala búnðar: Sala á fjarskiptabúnaði og fylgihlutum.
Annað: Útseld vinna vegna fjarskipta, þ.m.t. vettvangþjónusta og aðstöðuleiga.

Starfsþættir 1.1.-30.6.2019

Farsíma-þjónusta Talsíma-þjónusta Gagna-flutningur Sjónvarps-þjónusta Upplýsingatækni Vörusala búnðar Annað Samtals
Rekstrartekjur 2.785 924 4.278 2.631 1.872 865 722 14.077
Óskipt rekstrargjöld ( 9.106)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta 4.971
Afskriftir ( 2.586)
Hrein fjármagnsgjöld ( 582)
Skattar ( 390)
Hagnaður tímabilsins 1.413
Fjárfestingar ( 2.899)
Óskiptar eignir 30.6.2019 64.475
Óskiptar skuldir 30.6.2019 28.190

Starfsþættir 1.1.-30.6.2018

Farsíma-þjónusta Talsíma-þjónusta Gagna-flutningur Sjónvarps-þjónusta Upplýsingatækni Vörusala búnðar Annað Samtals
Rekstrartekjur 3.038 961 4.624 2.309 1.582 976 537 14.027
Óskipt rekstrargjöld ( 9.237)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta 4.790
Afskriftir ( 2.230)
Hrein fjármagnsgjöld ( 372)
Skattar ( 448)
Hagnaður tímabilsins 1.740
Fjárfestingar ( 2.608)
Óskiptar eignir 30.6.2018 60.042
Óskiptar skuldir 30.6.2018 23.562

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2019

Fjárhæðir eru í miðjónum króna


Skýringar

5. Sala

Seld bjónusta og vörur greinast bannig: 1.1.-30.6. 1.1.-30.6.
Sala á bjónustu 11.742 11.967
Vörusala upplýsingatækni og fjarskipta 1.839 1.710
13.581 13.677

Enginn einstakur viðskiptavinur er með meira en 10% af sölu félagsins.

6. Kostnaðarverð sölu

Kostnaðarverð sölu greinist bannig:

Laun og launatengd gjöld 1.773 1.742
Kostnaðarverð seldrar bjónustu 1.720 1.754
Samtengijöld 365 461
Kostnaðarverð seldra vara 1.706 1.537
Eignfærð vinna ( 424) ( 459)
Afskriftir 1.876 1.877
7.016 6.912

Kostnaðarverð seldrar bjónustu samanstendur af; efnis kostnaði, bjónustusamningum, leyfis gjöldum, aðkeyptri bjónustu og fjarskiptakostnaði.

7. Rekstrarkostnaður

Rekstrarkostnaður greinist bannig:

Laun og launatengd gjöld 2.292 2.286
Markaðs- og sölukostnaður 289 261
Húsnaðis- og bifreiðakostnaður 364 714
Tölvu- og hugbúnaðarkostnaður 455 479
Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður 566 464
Afskriftir 710 351
4.676 4.555

8. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld

Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld greinast bannig:

Fjármunatekjur
Vaxtatekjur af bankainnistæðum og kröfum 92 102
Fenginn arður og söluhagnaður af eignarhlutum 4 2
96 104
Fjármagnsgjöld
Vaxtagjöld ( 456) ( 472)
Vaxtagjöld vegna leiguskuldbindinga ( 137) 0
Önnur fjármagnsgjöld ( 64) ( 9)
( 657) ( 481)
Gengismunur ( 21) 5
Hrein fjármagnsgjöld ( 582) ( 372)

Síminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2019

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

9. Aðrar eignir 30.6.2019 31.12.2018
Aðrar eignir greinast þannig:
Fjárfesting í öðrum félögum 47 46
Sjónvarpsefni til sýningar 241 149
Fyrirframgreiddur kostnaður 14 15
Langtímakröfur 194 214
Aðrar eignir samtals 496 424
10. Birgðir
Birgðir greinast þannig:
Vörur til endursölu og rekstrarvörubirgðir 1.230 1.333
Sjónvarpsefni til sýningar 388 104
Birgðir samtals 1.618 1.437
11. Viðskiptakröfur
Viðskiptakröfur greinast þannig:
Viðskiptakröfur 3.622 4.508
Niðurfærsla viðskiptakrafna ( 157) ( 195)
Viðskiptakröfur samtals 3.465 4.313
12. Aðrar skammtímakröfur
Aðrar skammtímakröfur greinast þannig:
Fyrirframgreiddur kostnaður 1.510 767
Aðrar skammtímakröfur 419 115
Aðrar skammtímakröfur samtals 1.929 882
13. Tekjuskattsskuldbinding
Hreyfingar á reiknaðri tekjuskattsskuldbindingu greinast á eftirfarandi hátt:
Reiknuð tekjuskattsskuldbinding í ársbyrjun 898 817
Tekjuskattur tímabilsins 380 825
Skattar til greiðslu á næsta ári ( 460) ( 744)
Tekjuskattsskuldbinding samtals 818 898
14. Aðrar skammtímaskuldir
Aðrar skammtímaskuldir greinast þannig:
Áfallinn kostnaður 974 836
Ögreidd laun og launatengd gjöld 362 330
Ögreiddur virðisaukaskattur 517 562
Aðrar skammtímaskuldir 16 12
Aðrar skammtímaskuldir samtals 1.869 1.740

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2019

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

15. Óvissa

Félagið stendur í málarekstri vegna mála sem snúa að tülkunum á fjarskipta, fjölmiðla- og samkeppnislögum. Sýn hf. (Vodafone) hefur stefnt félaginu til greiðslu skaðabóta vegna meints ólögmæts verðþrýstings. Nemur stefnufjárhæð í málinu riflega níu hundruð milljónum króna. Inter, sem eru samtök aðila er veita internetþjónustu, sendu Símanum kröfu árið 2015 og kröfðust skaðabóta að fjárhæð allt að þremur milljörðum króna vegna meintra brota á samkeppnislögum. Þrjú félög innan samtakanna óskuðu eftir dómkvaðningu matsmanna og sendu í kjólfarið breyttar kröfur sem nema rúmlega 300 milljónum króna og hafa í kjólfarið höföðð mál fyrir héraðsdómi. TSC ehf. höföðði mál gegir Símanum til greiðslu skaðabóta vegna meintra brota á ákvörðun samkeppnisráðs nr. 10/2015. Nam stefnufjárhæðin rúmlega hundrað milljónum króna, auk kostnaðar og vaxta. Héraðsdómur komast að þeirri niðurstöðu að Símanum bæri að greiða 50 milljónir króna auk kostnaðar, vaxta og dráttarvaxta. Félagið hefur hafnað málatilbúnaði gagnaðila í öllum málunum og gagnstefnt Vodafone. Í málí Vodafone gegir Símanum og gagnstefnu Símans gegir Vodafone sýknaði Héraðsdómur Reykjavíkur bæði félög af kröfum hvors annars en málinu hefur verið áfrýjað til Landsréttar. Síminn hefur einnig áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í málí TSC ehf. gegir Símanum til Landsréttar og hefur TSC einnig gagnstefnt málinu.

Síminn og Vodafone hafa átt í ágreiningi í tengslum við dreifingu á sjónvarpsefni. Póst- og fjarskiptastofnun komst að þeirri niðurstöðu að Síminn hefði farið gegir fjölmiðlalögum sbr. ákvörðun PFS nr. 10/2018. Lagði stofnun á sekt að fjárhæð 9 milljónir króna sem félagið hefur þegar greitt. Síminn telur háttsemi félagsins sé í fullu samræmi við ákvæði fjölmiðlalaga og hefur höföðð mál til ógildingar ákvörðunar Póst- og fjarskiptastofnunar. Í kjólfarið sendi Vodafone kröfu til Símans um greiðslu skaðabóta að fjárhæð 1,9 milljarðar króna. Síminn hafnaði kröfunni og benti á að það mætti hvorki ráða af erindi Vodafone að skilyrði skaðabótaskyldu væri fyrir hendi né heldur væri gerð tilraun til að færa sönnur á ætlað tjón Vodafone. Að mati Símans var um tilhæfulausa kröfu að ræða og vísaði Héraðsdómur Reykjavíkur kröfu Vodafone frá dómi vegna vanreifunar. Vodafone lagði fram beiðni um dómkvaðningu matsmanna. Þá hefur Gagnaveita Reykjavíkur sent Símanum kröfu um greiðslu að fjárhæð 1,3 milljarða króna. Síminn hafnaði kröfunni og benti á að það mætti ekki ráða af erindi Gagnaveitunnar að skilyrði skaðabótaskyldu væri fyrir hendi. Að mati Símans er um tilhæfulausa kröfu að ræða. Vodafone lagði fram kvörtun til Samkeppniseftirlitsins vegna fyrirkomulags við sölu á útsendingum frá ensku úrvalsdeildinni og gerði kröfu um heildsölúaðgang að SíminnSport. Samkeppniseftirlitið birti frummat sitt í júli og taldi að ákveðið fyrirkomulag gæti farið í bága við samkeppinslög og afleiddar ákvarðanir. Stofnun undirstrikaði að um frummat væri að ræða sem gæti breyst og kallaði samhliða eftir frekari gögnum. Síminn telur að afstaða Samkeppniseftirlitsins sé í andstöðu við fyrri framkvæmd og án stuðnings til viðhlitandi gagna. Félagið er þeirrar skoðunar að fyrirkomulag um sölu á þjónustu félagsins sé fyllilega í samræmi við samkeppnislög.

Í desember 2015 samþykkti Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu kröfu félagsins um að lagt yrði lögbann á Vodafone vegna dreifingar á myndefni með ólínulegum hætti. Félagið höföðði í kjólfarið staðfestingarmál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur en dómurinn samþykkti kröfu Símans þann 28. apríl 2018. Vodafone áfrýjaði málinu til Hæstaréttar en með dómi dags. 18. október 2018 staðfesti Hæstiréttur dóm Héraðsdóms. Í dómi Hæstaréttar kom fram að Síminn hefði sýnt nægilega fram á að fjárhagslegt tjón kunni að hafa hlotist af háttsemi Vodafone. Síminn stefndi Vodafone fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur vegna málsins og gert kröfu um greiðslu skaðabóta að fjárhæð 555 milljónir króna.

Þrátt fyrir að óvissa sé um niðurstöður þessara mála er það mat stjórnenda að ekki komi til verulegra fjárútláta vegna þeirra. Í þeim tilvikum sem talið er að félagið geti þurft að greiða bætur vegna málareksturs á hendur þess er sá kostnaður áætlaður af stjórnendum félagsins og færður í reikningsskil þess.

16. Atburðir eftir reikningsskiladag

Engir atburðir hafa átt sér stað eftir lok reikningsskiladags sem hööðu áhrif á árshlutareikninginn eða veita þarf upplysingar um.

Síminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2019

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Ársfjórðungsyfirlit

1 F 2019 2 F 2019 Samtals
Sala 6.773 6.808 13.581
Kostnaðarverð sól ( 3.425) ( 3.591) ( 7.016)
Framlegð 3.348 3.217 6.565
Aðrar rekstrartekjur 189 307 496
Rekstrarkostnaður ( 2.430) ( 2.246) ( 4.676)
Rekstrarhagnaður 1.107 1.278 2.385
Hrein fjármagnsgjöld ( 313) ( 269) ( 582)
Hagnaður fyrir tekjuskatt 794 1.009 1.803
Tekjuskattur ( 179) ( 211) ( 390)
Hagnaður tímabilsins 615 798 1.413
EBITDA 2.369 2.602 4.971
1 F 2018 2 F 2018 3 F 2018
--- --- --- ---
Sala 6.756 6.921 6.828
Kostnaðarverð sól ( 3.302) ( 3.610) ( 3.371)
Framlegð 3.454 3.311 3.457
Aðrar rekstrartekjur 118 232 141
Rekstrarkostnaður ( 2.275) ( 2.280) ( 2.156)
Virðisrýrnun 0 0 0
Rekstrarhagnaður 1.297 1.263 1.442
Hrein fjármagnsgjöld ( 182) ( 190) ( 211)
Hagnaður fyrir tekjuskatt 1.115 1.073 1.231
Tekjuskattur ( 228) ( 220) ( 253)
Hagnaður tímabilsins 887 853 978
EBITDA* 2.404 2.386 2.607

*Endurgert, sjá nánar í skýringu 3.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2019

Fjórhæðir eru í milljónum króna