AI assistant
Síminn — Annual Report 2024
Feb 18, 2025
2203_rns_2025-02-18_ecb0aeb7-2468-4a8a-b3c5-8bdd3984ef27.pdf
Annual Report
Open in viewerOpens in your device viewer
Ársreikningur
samstæðu 2024
Síminn
Síminn hf. - Ármúla 25 - 108 Reykjavík - Kt. 460207-0880
Efnisyfirlit
Bls.
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra... 2-5
Áritun óháðs endurskoðanda... 6-9
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu... 10
Efnahagsreikningur... 11
Eiginfjáryfirlit... 12
Sjóðstreymisyfirlit... 13
Skýringar... 14-38
Óendurskoðuð fylgiskjól:
Stjórnarháttayfirlýsing... 39 - 42
Ófjárhagslegar upplýsingar... 43 - 50
Ársfjórðungsyfirlit... 51
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra
Sögu Símans hf. má rekja til ársins 1906 og hefur félagið allar götur síðan verið grunnstoð í fjarskiptabjónustu á Íslandi. Síminn býður fyrirtækjum, einstaklingum og opinberum aðilum upp á breitt framboð öruggra fjarskiptalausna sem uppfylla nýjustu kröfur hverju sinni. Þá hefur dótturfélagið Radíómiðun um árabil verið leiðandi í þróun fjarskiptalausna fyrir sjávarútveg og sérhæfðra lausna á sviði hlutaneta (e. IoT) fyrir aðrar atvinnugreinar, til að mynda fiskeldi, iðnað og flutninga.
Miðlun afbreyingarefnis og auglýsinga er annar mikilvægur þáttur í starfsemi félagsins og hefur efnisveitan Sjónvarp Símans Premium vaxið hratt á undanförnum árum. Vinsældir veitunnar má rekja til hágæða dagskrárgerðar, þar sem vönduð íslensk dagskrárgerð og mikið úrval af vinsælu erlemdu efni kemur saman. Vegna vinsælda veitunnar, hefur sjónvarpsbjónusta Símans fest sig í sessi sem mikilvægur auglýsingamiðill á innlendum markaði. Með tilkomu Billboard (Billboard ehf. og BBI ehf.), sem bættist við samstæðuna árið 2024, hefur staða félagsins á auglýsingamarkaði styrkst enn frekar, en Billboard hefur verið leiðandi fyrirtæki á sviði umhverfismiðla.
Fjártækni er nýjasta tekjustoð Símans, en dótturfélagið Síminn Pay hefur á síðustu árum þróað fjölbreyttar lausnir á sviði fjártækni, sem spanna allt frá vörukaupalánum fyrir einstaklinga, til kreditkorta og rafrænna beiðna fyrir fyrirtæki. Þá gengu kaup Símans á Noona Iceland ehf. í gegn í desember 2024, en með því breikkar vóruframboð félagsins á sviði fjártækni enn frekar með lausnum á borð við tíma- og borðabókunarkerfi og afgreiðslulausnir fyrir fyrirtæki.
Síminn er bjónustufyrirtæki í fremstu röð, og framtíðarsýn félagsins er að skapa stafrænt samfélag sem auðgar lífið, en í því felst metnaður félagsins til þess að þróa stafrænt vistkerfi snjallra lausna sem skapa virði fyrir fólk og fyrirtæki. Hlutverk Símans er að skapa verðmætar tengingar og gildi félagsins eru að vera skapandi, fagleg og árangursdrifin. Sjálfbærni og góðir stjórnarhættir eru hornsteinn í rekstri félagsins. Árangur Símans endurspeglast í ánægju viðskiptavina, stoltu starfsfólki og sterkri fyrirtækjamenningu, og arðbærum rekstri sem gerir félagið að eftirsóknarverðum fjárfestingarkosti.
Ársreikningurinn hefur að geyma samstæðureikning Símans hf. og dótturfélaga hans, samanber skýringu 16, fyrir árið 2024. Megin starfssvæði félagsins er á Íslandi.
Rekstur ársins 2024
Heildartekjur félagsins árið 2024 námu 27.832 m.kr. (2023: 25.741 m.kr). Líkt og undanfarin ár var góður vöxtur í kjarnavörum félagsins. Viðskiptavinum fjölgaði á árinu og þá einkum í farsíma- og sjónvarpsbjónustu. Ágætlega gekk að hafa stjórn á kostnaði þrátt fyrir að verðbölga hafi verið þrálát. Launakostnaður hækkaði á milli ára að hluta til vegna kostnaðar við starfslok forstjóra og tveggja framkvæmdastjóra. Kostnaðarauki frá lykilinnviðabirgjum hefur talsverð áhrif á kostnaðarverð seldar þjónustu þar sem umræddur kostnaður er að miklu leyti verðtryggður. Fjöldi ársverka var 311 samanborið við 299 árið áður. Rekstur Billboard er hluti af reikningsskilum félagsins frá og með 1. apríl 2024. Samþætting rekstrarins að rekstri Símans hefur gengið vel og hefur afkoma verið í takti við þær forsendur sem kynntar voru í aðdraganda kaupanna. EBITDA var 7.147 m.kr. (2023: 6.150 m.kr.) og rekstarhagnaður var 2.875 m.kr. (2023: 2.079 m.kr.). Félagið gaf út afkomuspá í febrúar 2024 þar sem EBITDA spá nam 6.400 - 6.700 m.kr., spá um rekstrarhagnað nam 2.500 - 2.800 m.kr. og spá um fjárfestingar nam 3.200 - 3.500 m.kr. Spáin var uppfærð eftir að kaupin á Billboard gengu í gegn og var uppfærð EBITDA spá 7.000 - 7.300 m.kr., uppfærð spá um rekstrarhagnað 2.700 - 3.000 m.kr. og uppfærð spá um fjárfestingar 3.300 - 3.600 m.kr. Niðurstaða ársins er því innan útgefinna afkomuspár og var almennt í samræmi við áætlun.
Hrein fjármagnsgjöld voru 1.113 m.kr. á árinu 2024 (2023: 392 m.kr.). Vaxtatekjur á árinu 2023 innihéldu um 100 m.kr. vaxtatekjur sem tengjast ávöxtun á söluandvirði skuldabréfs sem selt var til Ardian á 1F 2023. Vaxtatekjur vegna lánastarfsemi jukust frá fyrra ári og námu 448 m.kr. (2023: 294 m.kr.). Vöxtur var í útlánum Símans Pay frá fyrra ári en þó var vöxturinn hægari en árið 2023. Vaxtagjöld félagsins hækkuðu talsvert á milli ára þar sem skuldsetning var aukin í því skyni að fjármagna ytri vöxt og til þess að fjármagna útlánavöxt. Öll fjármögnun Símans er á fljótandi vöxtum og voru grunnvextir að meðaltali hærri árið 2024 en árið 2023.
Hagnaður nam 1.381 m.kr. samanborið við 1.346 m.kr. árið 2023. Hagnaður á hlut árið 2024 var 0,54 (2023: 0,46) sem er 17% aukning.
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra
Efnahagsreikningur
Rekstrarfjármunir voru 3.543 m.kr. í lok árs 2024 (2023: 2.552 m.kr.) og hækkun frá fyrra ári má einkum rekja til rekstrarfjármuna Billboard sem bættust við samstæðuna á árinu. Óefnislegar eignir í lok árs voru 26.243 m.kr. (2023: 21.047 m.kr.) og aukning milli ára skýrist af viðskiptavild sem myndast við yfirtóku á félögunum Billboard og Noona Iceland.
Handbært fé nam 835 m.kr. (2023: 1.810 m.kr.). Eignir námu samtals 41.182 m.kr. (2023: 33.789 m.kr.) en hækkunina má að mestu rekja til fjárfestinga í Billboard og Noona Iceland.
Hlutafé var 2.483 m.kr. í árslok (2023: 2.517 m.kr.). Á árinu keypti félagið eigin bréf að nafnvírði 135 m.kr. fyrir alls 1.424 m.kr. (2023: 296 m.kr. og 2.976 m.kr.). Hluti af kaupverði Billboard var greiddur með eigin bréfum að fjárhæð 1.000 m.kr. og var gengi hlutabréfa Símans í viðskiptunum 9,886. Eigið fé nam 18.116 m.kr. (2023: 17.600 m.kr.). Langtímaskuldir námu 14.990 m.kr. (2023: 8.205 m.kr.) en félagið tók ný lán að fjárhæð 4.500 m.kr. til þess að fjármagna kaup á Billboard og Noona Iceland. Um mitt ár stækkaði félagið skuldabréfaf lok sem er á gjaldaga árið 2026 um 1.500 m.kr. og er heildarstærð flokksins nú 3.000 m.kr. að nafnverði, en stækkunin var hluti af fjármögnun vegna yfirtóku á Billboard. Skammtímalán námu 2.084 m.kr. (2023: 2.281 m.kr.). Skuldir námu samtals 23.066 m.kr. (2023: 16.189 m.kr.).
Sjóðstrey mi
Greiddir vexir námu 1.612 m.kr. á árinu 2024 (2023: 947 m.kr.). Aukningu frá fyrra ári má rekja til aukinnar skuldsetningar og að vextir voru að meðaltali hærri árið 2024 en árið 2023. Fjárfestingar voru sambærilegar á milli ára en innbyrðis skipting breyttist frá fyrra ári þar sem aukning var í fjárfestingu í rekstrarfjármunum en lækkun á fjárfestingu í sýningarréttum. Útlánaaukning varð á milli ára en ekki eins hróð og árið 2023. Fjárfestingar í dótturfélögum námu alls 5.352 m.kr. árið 2024 og tekin voru ný langtímalán að fjárhæð 6.000 m.kr.
Fréttir úr starfseminni
Þann 18. janúar 2024 var tilkynnt um kaup Símans á öllu hlutafé í Billboard. Fyrirtækið starfar á auglýsingamarkaði og við kaupin styrktist þjónustuframboð Símans á því sviði enn frekar. Heildarvírði (e. enterprise value) Billboard samkvæmt kaupsamningi var 4,9 ma.kr. Billboard er hluti af rekstri félagsins frá og með 1. apríl 2024.
Þann 8. júní var undirritaður kaupsamningur um kaup Símans á öllu hlutafé í Noona Iceland ehf. sem tók yfir innlendan rekstur Noona Labs ehf. Síminn Pay mun stýra sameiginlegum rekstri fyrirtækjanna ásamt því að samþætta lausnir Símans Pay og vistkerfi Noona. Samþykki Samkeppniseftirlitsins fyrir kaupunum fékkst í desember og er Noona Iceland hluti af rekstri félagsins frá og með 1. desember 2024. Kaupverðið var að fullu greitt á árinu 2024.
Þann 27. ágúst gerði Síminn Pay samkomulag við Rapyd Europe hf. um að Síminn Pay taki yfir kortalán og greiðsludreifingar VISA og MasterCard korthafa sem sett voru á laggirnar og starfrækt af hálfu Valitor. Með þessum viðskiptum munu kortalán um 10 þúsund einstaklinga fyrir um 1.700 m.kr. færast yfir til Símans Pay, dótturfélags Símans. Heimild Samkeppniseftirlitsins fyrir viðskiptunum fékkst þann 24. janúar 2025 og hefur ferli við yfirfærslu lána verið hafði.
Í júní varð ljóst að sýningarréttur að ensku úrvalsdeildinni myndi færast til samkeppnisaðila frá og með tímabilinu 2025 - 2026.
Forstjórskipti urðu hjá félaginu í lok ágúst. Orri Hauksson lét af störfum eftir tæplega 11 ára starf. Við starfi forstjóra tók María Björk Einarsdóttir, en hún starfaði áður sem fjármálastjóri Eimskips. Tveir framkvæmdastjórar létu af stöfum á árinu og tveir voru ráðnir.
5G uppybyggig heldur áfram af krafti í samstarfi við Milu ehf. Á árinu var 5G tækni bætt við 45 sendastaði og í árslok var alls búið að setja upp 181 5G senda. Stöðug fjölgun er á viðskiptavinum með ljósleiðara, og á árinu fjölgaði þeim um 4.700. Viðskiptavinir Sjónvarps Símans hafa aldrei verið fleiri og er Sjónvarp Símans Premium nú stærsta efnisveita landsins, hvort sem litið er til efnisframboðs í klukkustundum talið, eða fjölda áskrifenda.
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra
Fréttir úr starfseminni, frh.:
Þróun fjártækni undir merkjum Símans Pay ehf. hélt áfram á árinu. Skráðir notendur appsins eru nú um 92 þúsund og nýta það til fjölbreyttra athafna hvort sem það er að greiða fyrir bilastæði, versla í mathöllum eða njóta góðra tilboða á vörum og þjónustu. Meginstarfsemi Símans Pay felst þó í útlánum sem námu um 3.500 m.kr. í árslok og mun lánabókin stækka enn frekar eftir yfirtöku nýs lánasafns. Útgáfa kreditkorta til einstaklinga gekk vel á árinu og voru alls um 3 þúsund kort gefin út á síðasta ári. Helsta nýjung ársins hjá Símanum Pay var útgáfa fyrirtækjakorts sem hefur fengið afar góðar viðtökur.
Síminn horfir áfram til markaðsfjármögnunar í fjármögnun félagsins. Félagið gaf fjórum sinnum út vixla árið 2024 og voru viðtökur fjárfesta góðar. Síðasta útboðinu lauk þann 27. nóvember sl. þar sem álag á 6 mánaða REIBOR var 32 punktar sem er hagfelld niðurstaða. Á fyrsta ársfjörðungi 2024 stækkaði Síminn skuldabréfallokk sem er á gjaldaga í júní 2026 um 1.500 m.kr. í tengslum við fjármögnun kaupanna á Billboard. Kjör flokksins eru 1M REIBOR að viðbættu 1,3% álagi.
Horfur ársins og óvissuþættir
Rekstur félagsins hefur verið stöðugur undanfarin ár og afkoma góð. Reiknað er með að svo verði áfram og gera afkomuspár ráð fyrir aukningu í rekstarhagnaði árið 2025 samanborið við árið 2024. Helsta óvissan í tekjuöflun félagsins snýr að missi á sýningarétti á ensku úrvalsdeildinni en félagið hefur haldið á þeim rétti undanfarin 6 ár. Óvissa í áætlunum er því meiri en undanfarin ár. Hafa þarf í huga að umræddur sýningarréttur er dýr og gera áætlanir félagsins ekki ráð fyrir neikvæðum afkomuáhrifum, þar sem möguleg neikvæð tekjuáhrif eru metin lægri en jákvæð áhrif á afskriftir. Þrátt fyrir óvissu tengda þessari breytingu, eru rekstarhorfur félagsins metnar góðar. Verðbólga fer lækkandi sem hefur jákvæð áhrif, auk þess sem kjarasamningar eru til næstu ára sem auðveldar áætlanagerð og dregur úr óvissu. Innleiðing á Billboard hefur gengið vel og rekstarhorfur á árinu góðar.
Yfirlit yfir málarekstur sem félagið stendur í má finna í skýringu 31 og eins og fram kemur gerir félagið ekki ráð fyrir verulegum fjárhagslegum skaða vegna þeirra mála sem þar koma fram.
Vísað til skýringar 29 um helstu áhættu- og óvissuþætti.
Hlutafé og samþykktir
Hlutafé í árslok 2024 skiptist á 931 hluthafa en þeir voru 1.027 í ársbyrjun. Í árslok 2024 áttu tveir hluthafar yfir 10% af hlutafé félagsins en tíu stærstu hluthafar félagsins eru:
| Nafnverð hlutafjár í m.kr. | Eignarhlutur í % | |
|---|---|---|
| Stoðir hf. | 461 | 17,40% |
| Brú Lifeyrissjóður starfs sveit | 275 | 10,38% |
| Lifeyrissj.starfsm.rík. A-deild | 259 | 9,77% |
| Lifeyrissjóður verzlunarmanna | 174 | 6,57% |
| Gildi - lifeyrissjóður | 149 | 5,62% |
| Birta lifeyrissjóður | 93 | 3,51% |
| Söfnunarsjóður lifeyrisréttinda | 89 | 3,36% |
| Stefnir - Innlend hlutabréf hs. | 78 | 2,94% |
| Brú R deild | 71 | 2,68% |
| Lifeyrissj.starfsm.rík. B-deild | 60 | 2,26% |
| 10 stærstu hluthafar samtals | 1.709 | 64,49% |
Á aðalfundi félagsins sem haldinn var þann 14. mars 2024 var samþykkt að heimila stjórn félagsins að kaupa fyrir hönd félagsins allt að 265 m.kr. að nafnverði hlutafjár félagsins, sbr. VIII. kafla laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Gildistími heimildarinnar er allt að átján mánuðir. Með samþykkt tillögu þessarar féll úr gildi sams konar heimild sem samþykkt var á aðalfundi félagsins þann 9. mars 2023.
Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði arður að fjárhæð 500 m.kr. á árinu 2025. Óskað verður eftir áframhaldandi heimild til endurkaupa eigin bréfa fyrir allt að 10% af hlutafé.
Skráð hlutafé félagsins nam 2.650 m.kr. í árslok 2024, en félagið átti eigin hluti í árslok að nafnverði 167 m.kr. Hlutaféð er í einum flokki sem skráður er í Kauphöll Íslands. Allir hlutir njóta sömu réttinda.
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra
Stjórn og stjórnarhættir
Stjórn Símans hf. leggur áherslu á að viðhalda góðum stjórnarháttum og að fylgja „Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja“ sem. Viðskiptaráð Íslands, Nasdaq OMX Iceland hf. og Samtök atvinnulífsins hafa gefið út. Stjórnin hefur sett sér ítarlegar starfsreglur þar sem valdsvið hennar er skilgreint sem og verksvið gagnvart forstjóra. Félagið er með skráð verðbréf í Kauphöll Íslands hf. og ber því að fylgja leiðbeiningum um stjórnarhætti samkvæmt reglum Kauphallarinnar sem hægt er að nálgast á vef hennar.
Í stjórn félagsins eru þrír karlar og tvær konur og uppfyllir félagið ákvæði laga um kynjahlutföll stjórnar félagsins. Í framkvæmdastjórn félagsins sitja fjórir karlar og tvær konur.
Frekari upplýsingar um stjórn og stjórnarhætti er að finna í kaflanum stjórnarháttaryfirlýsing sem er viðauki með ársreikningnum.
Ófjárhagsleg upplýsingagjóf
Ófjárhagslegar upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að leggja mat á þróun, umfang, stöðu og áhrif félagsins í tengslum við umhverfis-, félags- og starfsmannamál, sem og stefnu félagsins í mannréttindamálum, mútu- og spillingarmálum, eru birtar sem viðauki með ársreikningnum.
Yfirlýsing stjórnar og forstjóra
Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er ársreikningur samstæðunnar í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu. Er það álit stjórnar og forstjóra að samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af rekstrarafkomu samstæðunnar á árinu 2024, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu hennar 31. desember 2024 og breytingu á handbæru fé á árinu 2024. Jafnframt er það álit stjórnar og forstjóra að samstæðuársreikningurinn og skýrsla stjórnar gefi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri samstæðunnar og stöðu hennar og lýsi helstu áhættuþáttum og óvissu sem samstæðan býr við.
Stjórn og forstjóri Símans hf. hafa í dag fjallað um samstæðuársreikning félagsins fyrir árið 2024 og staðfesta hann með undirritun sinni.
Reykjavík, 18. febrúar 2025.
Stjórn
Jón Sigurðsson, formaður
Sigrún Ragna Ólafsdóttir, varaformaður
Arnar Þór Másson
Bjarni Þorvarðarson
Valgerður Halldórsdóttir
Forstjóri
María Björk Einarsdóttir
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Áritun óháðs endurskoðanda
Til stjórnar og hluthafa Símans hf.
Áritun um endurskoðun samstæðuársreiknings
Álit
Við höfum endurskoðað samstæðuársreikning Símans hf. („félagið“) fyrir árið 2024. Samstæðuársreikningurinn hefur að geyma rekstrarreikning og yfirlit um heildarafkomu, efnahagsreikning, eiginfjáryfirlit, sjóðstreymisyflit, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaðferðir og aðrar skýringar.
Það er álit okkar að samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af fjárhagsstöðu félagsins 31. desember 2024 og afkomu þess og breytingu á handbæru fé á árinu 2024, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur í lögum og reglum um ársreikninga skráðra félaga á Íslandi.
Álitið er í samræmi við skýrslu okkar til endurskoðunarnefndar og stjórnar.
Grundvöllur álits
Við endurskoðuðum í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Ábyrgð okkar samkvæmt stöðlunum er lýst frekar í kaflanum. Ábyrgð endurskoðanda á endurskoðun samstæðuársreikningsins í árituninni. Við erum óháð félaginu í samræmi við gildandi síðareglur fyrir endurskoðendur. Við teljum að við höfum aflað nægilegra og viðeigandi endurskoðunargagna til að byggja álit okkar á.
Samkvæmt bestu vitund okkar og skilningi lýsum við yfir að við höfum ekki veitt neina óheimila þjónustu samkvæmt 1. mgr. 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 537/2014 og að við erum óháð félaginu við endurskoðunina.
Við vorum fyrst kjörin endurskoðendur á aðalfundi félagsins þann 16. apríl 2015 og höfum verið endurskoðendur félagsins samfellt síðan þá.
Lykilþættir endurskoðunar
Lykilþættir endurskoðunar eru þeir þættir, sem samkvæmt faglegu mati okkar, höfðu mest vægi við endurskoðun samstæðuársreikningsins. Við gefum ekki sérstakt álit á einstökum lykilþáttum en tókum á þeim við endurskoðun á samstæðuársreikningnum í heild og við ákvörðun um álit okkar á honum.
Lykilþáttur
Endurskoðunin
Mat viðskiptavildar
Bókfært verð viðskiptavildar í árslok 2024 nam 19,8 ma. kr. og er hún stærsta einstaka eign samstæðunnar. Viðskiptavild hefur verið deilt út á þær sjóðskapandi einingar innan samstæðunnar sem hún tilheyrir. Árlega ber að framkvæma virðisrýrnunarpróf á viðskiptavild og öðrum eignum sem ekki rýrna við notkun og hafa óskilgreindan líftíma.
Mat á verðmæti viðskiptavildar er einn af lykilþáttum í endurskoðun á ársreikningi samstæðunnar vegna þess hversu hátt hlutfall viðskiptavild er af heildareignum hennar og um er að ræða eign sem háð er mati stjórnenda. Mat á verðmæti viðskiptavildar byggir á væntingum stjórnenda um núvirt framtiðarsjóðstreymi sjóðskapandi eininga.
Í skýringu 15 er fjallað um virðisrýrnunarpróf sem framkvæmt var á viðskiptavild samstæðunnar í árslok og í skýringu 35.3 er fjallað um reikningsskilaðferðir.
Við ásamt verðmatssérfræðingum okkar lögðum mat á forsendur sem stjórnendur nota við útreikning á núvirtu framtiðarsjóðstreymi fyrir hverja fjárskapandi einingu. Í þeirri vinnu fólst m.a.:
- Forsendur rekstrar- og sjóðstreymisáætlana til næstu fimm ára voru yfirfarnar. Við yfirferðina var lagt mat á forsendur um tekjur, rekstrarkostnað, framlegð og fjárfestingar fyrir spátímabilið.
- Við yfirferð á rekstrar- og sjóðstreymisáætlunum er meðal annars horft til frávika frá áætlunum fyrri ára.
- Lagt var mat á forsendur fyrir áæltluðum framtiðarvexti að loknu spátímabilinu.
- Reiknilikan félagsins var yfirfarið og lagt mat á virkni þess.
- Farið var yfir ávóxtunarkröfu (WACC) sem notuð er við núvirðingu sjóðstreymis. Ávóxtunarkrafan er borin saman við fjármagnskostnað félagsins og aðrar markaðsforsendur.
- Forsendur stjórnenda voru bornar saman við ytri og innri gögn.
- Við yfirfórum skýringar í ársreikningi og staðfestum að helstu upplýsingar sem reikningsskilareglur kveða á um kæmu fram.
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Áritun óháðs endurskoðanda, frh:
| Lýkilþáttur | Endurskoðunin |
|---|---|
| Tekjuskráning | |
| Tekjuskráningarkerfi samstæðunnar skrá mikinn fjölda færslna í ýmsum kerfum. Tekjur samstæðunnar skiptast niður á farsimabjónustu, gagnaflutninga, sjónvarpsbjónustu og vörusölu. Gerð er grein fyrir tekjuskráningu samstæðunnar í skýringu 35.4. |
Skráning tekna er einn af lýkilþáttum í endurskoðun á ársreikningi samstæðunnar vegna mikils fjölda af færslum í tekjuskráningarkerfum samstæðunnar. | Endurskoðunaraðgerðir okkar miðuðu að því að leggja mat á hönnun, innleiðingu og virkni á sjálfvirkum eftirlitsþáttum með tekjuskráningu auk viðeigandi gagnaendurskoðunaraðgerða með það að markmiði að sannreyna heild og nákvæmni í tekjuskráningu og að tekjur séu skráðar á viðeigandi tímabil. Í þeirri vinnu fólst m.a.:
• Lagt var mat á þau fjárhags- og upplýsingakerfi sem notuð eru við tekjuskráningu og flæði á milli tekjukerfa og fjárhagskerfis. Einnig voru framkvæmdar prófanir á völdum sjálfvirkum eftirlitsþáttum sem eru til staðar í ferlinu.
• Skoðun á aðgangsheimildum starfsmanna í fjárhags- og upplýsingakerfum samstæðunnar.
• Skoðun á eftirlitsþáttum við reikningagerð sem eru hannaðir til að tryggja réttmæti og nákvæmni útsendra reikninga.
• Greiningaraðgerðum var beitt á væntar tekjur.
• Greiningartæki var notað við skoðun á tekjufærslum í þeim tilgangi að greina óvenjulegar færslur til frekari skoðunar. |
| Aðrar upplýsingar
Stjórn og forstjóri bera ábyrgð á öðrum upplýsingum. Aðrar upplýsingar eru upplýsingar í ársskýrslu að undanskildum samstæðuársreikningi og áritun okkar á hann.
Álit okkar á samstæðuársreikningnum nær ekki til annarra upplýsinga og við staðfestum þær ekki á neinn hátt.
Í tengslum við endurskoðun okkar á samstæðuársreikningnum ber okkur að lesa aðrar upplýsingar og meta hvort þær séu í verulegu ósamræmi við samstæðuársreikninginn eða aðra þekkingu sem við höfum aflað okkur við endurskoðunina eða virðast verulega rangar. Ef við, á grundvelli vinnu okkar, ályktum að verulegar rangfærslur séu í öðrum upplýsingum ber okkur að skýra frá því. Ársskýrslan liggur ekki fyrir við áritun okkar á samstæðuársreikninginn en við munum fá hana afhenta til yfirferðar áður en hún verður gefin út. | |
| Ábyrgð stjórnar og forstjóra á samstæðuársreikningnum
Stjórn og forstjóri eru ábyrg fyrir gerð og glöggri framsetningu samstæðuársreikningsins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur í lögum og reglum um ársreikninga skráðra félaga á Íslandi og fyrir því innra eftirliti sem þau telja nauðsynlegt til að gera þeim kleift að setja fram samstæðuársreikning sem er án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.
Við gerð samstæðuársreikningsins ber stjórn og forstjóra að leggja mat á rekstrarhæfi félagsins og upplýsa, eftir því sem við á, um þætti er varða rekstrarhæfi og miða grundvöll reikningsskilanna við áframhaldandi rekstrarhæfi, nema þau ætli annað hvort að leysa félagið upp eða hætta starfsemi þess, eða hafa engan annan raunhæfan kost en að gera það.
Stjórn og forstjóri skulu hafa eftirlit með gerð og framsetningu samstæðuársreikningsins. | |
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Áritun óháðs endurskoðanda, frh:
Ábyrgð endurskoðanda á endurskoðun samstæðuársreikningsins
Markmið okkar eru að öðlast hæfilega vissu um hvort samstæðuársreikningurinn í heild sé án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka, og að gefa út áritun endurskoðanda sem inniheldur álit okkar. Í hæfilegri vissu felst áreiðanleiki en ekki trygging fyrir því að endurskoðun í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla muni alltaf leiða í ljós verulega annmarka ef þeir eru fyrir hendi. Annmarkar geta komið fram vegna sviksemi eða mistaka og eru taldir verulegir ef þeir einir og sér eða samanlagt gætu haft áhrif á efnahagslegar ákvarðanir sem notendur samstæðuársreikningsins taka á grundvelli hans.
Við endurskoðun í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla beitum við ávallt faglegri dómgreind og viðhöfum faglega gagnrýni. Að auki:
-
Greinum við og metum hættu á verulegri skekkju í samstæðuársreikningnum, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka, skipuleggjum og framkvæmum endurskoðunaraðgerðir til að bregðast við þeirri hættu og öflum endurskoðunargagna sem eru nægjanleg og viðeigandi til að byggja álit okkar á. Hættan á að uppgötva ekki verulega skekkju vegna sviksemi er meiri en að uppgötva ekki skekkju vegna mistaka, þar sem sviksemi getur falið í sér samsæri, fölsun, að einhverju sé viljandi sleppt, villandi framsetningu eða að farið sé framhjá innra eftirliti.
-
Öflum við skilnings á innra eftirliti sem varðar endurskoðunina, til að skipuleggja viðeigandi endurskoðunaraðgerðir, en ekki til að veita álit á virkni innra eftirlits félagsins.
-
Metum við hvort reikningsskilaaðferðir og reikningshaldslegt mat stjórnenda og tengdar skýringar séu viðeigandi.
-
Ályktum við um hvort notkun stjórnar og forstjóra á forsendu reikningsskilanna um rekstrarhæfi sé viðeigandi og metum, á grundvelli endurskoðunarinnar, hvort aðstæður séu til staðar sem valdið gætu verulegum vafa um rekstrarhæfi félagsins. Ef við teljum að verulegur vafi leiki á rekstrarhæfi ber okkur, í áritun okkar, að vekja sérstaka athygli á viðeigandi skýringum samstæðuársreikningsins eða, ef slíkar skýringar eru öfullnægjandi, að víkja frá fyrirvaralausri áritun. Niðurstaða okkar byggir á endurskoðunargögnum sem aflað er fram að dagsetningu áritunar okkar. Samt sem áður geta atburðir eða aðstæður í framtíðinni gert félagið órekstrarhæft.
-
Metum við framsetningu, uppbyggingu og innihald samstæðuársreikningsins í heild, að meðtöldum skýringum, og hvort samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af undirliggjandi viðskiptum og atburðum.
-
Öflum nægilegra og viðeigandi endurskoðunargagna varðandi fjárhagslegar upplýsingar eininga innan samstæðunnar til að geta gefið álit á samstæðuársreikningnum. Við erum ábyrg fyrir skipulagi, eftirliti og framkvæmd endurskoðunar samstæðunnar og berum óskipta ábyrgð á áritun okkar.
Við upplýsum stjórn og endurskoðunarnefnd meðal annars um áætlað umfang og tímasetningar endurskoðunarinnar og veruleg atriði sem upp kunna að koma í endurskoðun okkar, þar á meðal alla verulega annmarka á innra eftirliti sem við greinum við endurskoðun okkar.
Við lýsum því einnig yfir við stjórn og endurskoðunarnefnd að við höfum uppfyllt skyldur síðareglna um óhæði og upplýsum um tengsl eða önnur atriði sem gætu mögulega talist hafa áhrif á óhæði okkar og þegar við á, til hvaða aðgerða við höfum gripið til að eyða áhættu eða varúðarráðstafanir til að bregðast við henni.
Af þeim atriðum sem við höfum upplýst stjórn og endurskoðunarnefnd um, leggjum við mat á hvaða þættir höfðu mesta þýðingu við endurskoðun samstæðuársreikningsins og eru því lykilþættir endurskoðunarinnar. Við lýsum þessum þáttum í áritun okkar nema lög og reglur útiloki að upplýst sé um þá eða, við einstakar mjög sjaldgæfar kringumstæður, þegar við metum að ekki skuli upplýsa um lykilþátt þar sem neikvæðar afleiðingar þess eru taldar vega byngra en almennir hagsmunir af birtingu slíkra upplýsinga.
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Áritun óháðs endurskoðanda, frh:
Áritun og staðfesting vegna annarra ákvæða laga og reglna
Áritun vegna sameiginlegs rafræns skýrslusniðs (ESEF reglur)
Í tengslum við endurskoðun okkar á samstæðuársreikningi Símans hf. framkvæmdum við aðgerðir til að geta gefið álit á því hvort samstæðuársreikningur Símans hf. fyrir árið 2024 með skráarheitið 254900X9GQZN6UGXYF10-2024-12-31-is hafi í öllum meginatriðum verið gerður í samræmi við lög um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu nr. 20/2021 um sameiginleg rafræn skýrslusnið í samræmi við reglugerð ESB 2019/815 sem inniheldur skilyrði sem tengjast gerð samstæðuársreikningsins á XHTML formi og iXBRL merkingum.
Stjórn og forstjóri eru ábyrg fyrir gerð samstæðuársreikningsins í samræmi við lög um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu nr. 20/2021. Í því felst meðal annars að útbúa samstæðuársreikninginn á XHTML formi í samræmi við ákvæði reglugerðar ESB 2019/815, um sameiginleg rafræn skýrslusnið.
Stjórn og forstjóri eru ábyrg fyrir gerð samstæðuársreikningsins í samræmi við lög um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu nr. 20/2021. Í því felst meðal annars að útbúa samstæðuársreikninginn á XHTML formi í samræmi við ákvæði reglugerðar ESB 2019/815, um sameiginleg rafræn skýrslusnið.
Ábyrgð okkar er að afla hæfilegrar vissu, byggt á gögnum sem við höfum aflað, um hvort samstæðuársreikningurinn sé í öllum meginatriðum gerður í samræmi við ESEF reglur og gefa út áritun með áliti okkar. Eðli, tímasetning og umfang vinnunnar byggja á mati endurskoðandans, þar á meðal mati á hættunni á að vikið sé í verulegum atriðum frá kröfum sem fram koma í ESEF reglunum, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.
Það er álit okkar að samstæðuársreikningur Símans hf. fyrir árið 2024 með skráarheitið 254900X9GQZN6UGXYF10-2024-12-31-is sé í öllum meginatriðum gerður í samræmi við ESEF reglur.
Staðfesting vegna skýrslu stjórnar
Í samræmi við ákvæði 2. mgr. 104 gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga staðfestum við samkvæmt okkar bestu vitund að í skýrslu stjórnar sem fylgir þessum samstæðuársreikningi eru veittar þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga og koma ekki fram annars staðar í ársreikningnum.
Sigríður Soffía Sigurðardóttir, endurskoðandi, ber ábyrgð á endurskoðun samstæðuársreikningsins og þessari áritun.
Reykjavík, 18. febrúar 2025.
KPMG ehf.
Sigríður Soffía Sigurðardóttir
Diana Hilmarsdóttir
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu ársins 2024
| Skýr. | 2024 | 2023 | |
|---|---|---|---|
| Sala | 5 | 27.189 | 25.067 |
| Kostnaðarverð sól | 6 | ( 17.328) | ( 16.497) |
| Framlegð | 9.861 | 8.570 | |
| Aðrar rekstrartekjur | 643 | 674 | |
| Rekstrarkostnaður | 7 | ( 7.629) | ( 7.165) |
| Rekstrarhagnaður | 2.875 | 2.079 | |
| Fjármunatekjur | 734 | 740 | |
| Fjármagnsgjöld | ( 1.841) | ( 1.102) | |
| Gengismunur | ( 6) | ( 30) | |
| Hrein fjármagnsgjöld | 9 | ( 1.113) | ( 392) |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 1.762 | 1.687 | |
| Tekjuskattur | 10 | ( 381) | ( 341) |
| Hagnaður og heildarhagnaður ársins | 1.381 | 1.346 | |
| EBITDA | 7.147 | 6.150 | |
| Hagnaður á hlut | |||
| Grunnhagnaður á hlut | 11 | 0,54 | 0,46 |
| Þynntur hagnaður á hlut | 11 | 0,54 | 0,44 |
Skýringar á blaðsiðum 14 - 38 eru óaðskiljanlegur hluti af ársreikningnum.
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Efnahagsreikningur ársins 2024
| Skýr. | 31.12.2024 | 31.12.2023 | |
|---|---|---|---|
| Eignir | |||
| Fastafjármunir | |||
| Rekstrarfjármunir | 13 | 3.543 | 2.552 |
| Leigueignir | 14 | 1.844 | 732 |
| Óefnislegar eignir | 15 | 26.243 | 21.047 |
| Aðrar eignir | 17 | 638 | 431 |
| Fastafjármunir | 32.268 | 24.762 | |
| Veltufjármunir | |||
| Birgðir | 18 | 1.339 | 1.257 |
| Viðskiptakrófur | 19 | 2.503 | 2.279 |
| Útlán | 20 | 3.204 | 2.715 |
| Aðrar skammtímakrófur | 21 | 1.033 | 966 |
| Handbært fé | 835 | 1.810 | |
| Veltufjármunir | 8.914 | 9.027 | |
| Eignir samtals | 41.182 | 33.789 | |
| Eigið fé | |||
| Hlutafé | 2.483 | 2.517 | |
| Lögbundinn varasjóður | 621 | 629 | |
| Annað bundið eigið fé | 828 | 570 | |
| Óráðstafað eigið fé | 14.184 | 13.884 | |
| Eigið fé | 23 | 18.116 | 17.600 |
| Skuldir | |||
| Langtímaskuldir | |||
| Vaxtaberandi skuldir | 24 | 12.733 | 7.470 |
| Leiguskuldbindingar | 25 | 1.571 | 503 |
| Tekjuskattsskuldbinding | 26 | 686 | 232 |
| Langtímaskuldir | 14.990 | 8.205 | |
| Skammtímaskuldir | |||
| Vaxtaberandi skuldir | 2.084 | 2.281 | |
| Viðskiptaskuldir | 27 | 3.760 | 4.261 |
| Næsta árs afborganir langtímaskulda | 24 | 429 | 0 |
| Næsta árs afborganir leiguskuldbindinga | 25 | 351 | 276 |
| Skattar til greiðslu | 255 | 204 | |
| Aðrar skammtímaskuldir | 28 | 1.197 | 962 |
| Skammtímaskuldir | 8.076 | 7.984 | |
| Skuldir samtals | 23.066 | 16.189 | |
| Eigið fé og skuldir samtals | 41.182 | 33.789 |
Skýringar á blaðsiðum 14 - 38 eru óaðskiljanlegur hluti af ársreikningnum.
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Fjárhæðir eru í milljánum króna
Eiginfjáryfirlit ársins 2024
| Hlutafé | Yfirverðs-reikningur | Lögbundinn varasjóður | Annað bundið eigið fé | Óráðstafað eigið fé | Eigið fé samtals | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Eigið fé 1.1.2023 | 4.242 | 495 | 1.061 | 576 | 28.887 | 35.261 |
| Hagnaður og heildarhagnaður ársins | 1.346 | 1.346 | ||||
| Greiddur arður (0,12 á hlut) | ( 499) | ( 499) | ||||
| Hlutafjárlækkun | ( 1.429) | ( 357) | ( 13.794) | ( 15.580) | ||
| Keypt eigin bréf | ( 296) | ( 495) | ( 75) | ( 2.110) | ( 2.976) | |
| Fært af bundnu eigin fé | ( 6) | 6 | 0 | |||
| Kostnaður v/ kaupréttarsamninga | 48 | 48 | ||||
| Eigið fé 31.12.2023 | 2.517 | 0 | 629 | 570 | 13.884 | 17.600 |
| Eigið fé 1.1.2024 | 2.517 | 0 | 629 | 570 | 13.884 | 17.600 |
| Hagnaður og heildarhagnaður ársins | 1.381 | 1.381 | ||||
| Greiddur arður (0,2 á hlut) | ( 500) | ( 500) | ||||
| Keypt eigin bréf | ( 135) | ( 899) | ( 33) | ( 357) | ( 1.424) | |
| Seld eigin bréf | 101 | 899 | 25 | ( 25) | 1.000 | |
| Fært á bundið eigið fé | 258 | ( 258) | 0 | |||
| Kostnaður v/ kaupréttarsamninga | 59 | 59 | ||||
| Eigið fé 31.12.2024 | 2.483 | 0 | 621 | 828 | 14.184 | 18.116 |
Skýringar á blaðsíðum 14 - 38 eru óaðskiljanlegur hluti af ársreikningnum.
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Sjóðstreymisyflrit ársins 2024
| Skýr. | 2024 | 2023 | |
|---|---|---|---|
| 1.1.-31.12. | 1.1.-31.12. | ||
| Rekstrarhreyfingar | |||
| Rekstrarhagnaður samkvæmt rekstrarreikningi | 2.875 | 2.079 | |
| Rekstrarliðir sem ekki hafa áhrif á fjárstreymi: | |||
| Afskriftir | 13-15 | 4.272 | 4.071 |
| Söluhagnaður varanlegra rekstrarfjármuna | ( 2) | ( 18) | |
| Aðrir liðir sem ekki hafa áhrif á fjárstreymi | 59 | 48 | |
| 7.204 | 6.180 | ||
| Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum: | |||
| Birgðir, hækkun | ( 312) | ( 80) | |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, hækkun | ( 77) | ( 173) | |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir, hækkun (lækkun) | 145 | ( 315) | |
| Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum | ( 244) | ( 568) | |
| Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta | 6.960 | 5.612 | |
| Innborgaðir vextir | 742 | 758 | |
| Greiddir vextir | ( 1.612) | ( 947) | |
| Greiddir skattar | ( 289) | ( 570) | |
| Handbært fé frá rekstri | 5.801 | 4.853 | |
| Fjárfestingarhreyfingar | |||
| Fjárfesting í rekstrarfjármunum | 13 | ( 1.146) | ( 886) |
| Fjárfesting í óefnislegum eignum | 15 | ( 2.549) | ( 2.827) |
| Söluverð rekstrarfjármuna | 22 | 42 | |
| Útlán, breyting | ( 597) | ( 1.272) | |
| Kaup á dótturfélögum að frádregnu handbæru fé | 22 | ( 5.352) | 0 |
| Sala á verðbréfi | 0 | 15.685 | |
| Fjárfestingarhreyfingar | ( 9.622) | 10.742 | |
| Fjármögnunarhreyfingar | |||
| Greiddur arður | ( 499) | ( 499) | |
| Kaup eigin bréfa | 23 | ( 1.424) | ( 2.976) |
| Útgreitt hlutafé | 0 | ( 15.580) | |
| Tekin ný langtímalán | 6.000 | 1.500 | |
| Afborganir langtímalána | 24 | ( 460) | 0 |
| Afborganir leiguskuldbindinga | 25 | ( 362) | ( 265) |
| Skammtímalán, breyting | ( 404) | 352 | |
| Fjármögnunarhreyfingar | 2.851 | ( 17.468) | |
| Lækkun á handbæru fé | ( 970) | ( 1.873) | |
| Áhrif gengisbreytinga á handbært fé | ( 5) | ( 38) | |
| Handbært fé í byrjun ársins | 1.810 | 3.721 | |
| Handbært fé í lok ársins | 835 | 1.810 |
Skýringar á blaðsiðum 14 - 38 eru óaðskiljanlegur hluti af ársreikningnum.
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
1. Starfsemi
Síminn hf. er hlutafélag og starfar á grundvelli laga nr. 2/1995 um hlutafélög á Íslandi. Höfuðstöðvar félagsins eru að Ármúla 25 í Reykjavík. Samstæðuársreikningur fyrir árið 2024 hefur að geyma ársreikning félagsins og dótturfélaga þess sem vísað er til í heild sem „félagsins“ og til einstakra félaga sem „dótturfélaga“. Dótturfélög Símans hf. eru Síminn Pay ehf., Radíómiðun ehf., Billboard ehf., BBI ehf. og Noona Iceland ehf.
Meginstarfsemi félagsins er á sviði fjarskipta, fjártækni og miðlunar.
2. Grundvöllur reikningsskilanna
2.1. Yfirlýsing um að alþjóðlegum reikningsskilastöðlum sé fylgt
Ársreikningur félagsins er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastæða (IFRS) eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu. Auk þess hefur samstæðan beitt ákvæðum laga nr. 3/2006 um ársreikninga þegar ekki er kveðið á um tiltekin atriði í alþjóðlegum reikningsskilastöðlum, svo sem um færslur inn á bundinn hlutdeildarreikning á meðal eigin fjár og viðbótarkröfur ársreikningalaga um upplýsingagjóf. Samantekt á mikilvægum reikningsskilaaðferðum er að finna í skýringu 35.
Hægt er að nálgast ársreikninginn á vef félagsins, www. siminn.is og á vef Kauphallar Íslands: www.nasdaqomxnordic.com.
Stjórn og forstjóri félagsins samþykktu ársreikninginn og heimiluðu birtingu hans á stjórnarfundi þann 18. febrúar 2025.
2.2. Grundvöllur matsaðferða
Samstæðuársreikningurinn er gerður samkvæmt kostnaðarverðsaðferð.
2.3. Starfrækslugjaldmiðill og framsetningargjaldmiðill
Ársreikningurinn er gerður í íslenskum krónum sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins og eru fjárhæðir birtar í milljónum króna nema annað sé tekið fram.
2.4. Mat og ákvarðanir
Gerð samstæðuársreiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastæða krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaaðferða og birtar fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að verða frábrugðnar þessu mati.
Mat og forsendur þess eru í stöðugri endurskoðun. Breytingar á reikningshaldslegu mati eru færðar á því tímabili sem breytingin á sér stað og þeim framtiðartímabilum sem breytingarnar hafa áhrif á.
Upplýsingar um mikilvægar ákvæðanir þar sem reikningsskilaaðferðir hafa mest áhrif á skráðar fjárhæðir eigna og skulda í ársreikningnum er að finna í skýringu 15 um mat á endurheimtanlegum fjárhæðum fjárskapandi eininga sem innihalda viðskiptavild.
3. Breytingar á reikningsskilaaðferðum
Við gerð ársreikningsins er beitt sömu reikningsskilaaðferðum og við gerð ársreiknings félagsins fyrir árið 2023.
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
14
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
4. Starfsbáttayfirlit
Yfirlit um starfsbætti veitir upplýsingar um einstaka þætti í rekstri félagsins og er sett fram með sama hætti og regluleg skýrslugjöf til stjórnar félagsins.
Starfsemi félagsins skiptist í fimm starfsbætti sem selja vörur og þjónustu á mismunandi mörkuðum. Starfsbættirnir eru:
| Starfsbáttur | Lýsing |
|---|---|
| Farsímapjónusta: | Farsímapjónusta innanlands og erlendis, hvort sem heldur er hefðbundin GSM þjónusta, gervihnattapjónusta eða önnur farsímapjónusta. |
| Gagnaflutningur: | Gagnaflutningsþjónusta, þ.m.t. xDSL þjónusta, GPON, Internet, IP net, heimtaugar og |
| Sjónvarpsþjónusta: | Dreifing á sjónvarpsefni, áskrift, notkun og auglýsingar á miðlum félagsins. |
| Vörusala búnðar: | Sala á fjarskiptabúnaði og fylgihlutum. |
| Annað: | Tekjur tengdar fjarskíptum, talsímapjónustu, upplýsingatækni og fjármálum. Tekjur Billboard ehf. eru færðar hér. |
| Starfsbættir 2024 | Farsíma-þjónusta |
| --- | --- |
| Rekstrartekjur | 6.858 |
| Óskipt rekstrargjöld | |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) | |
| Afskriftir | |
| Hrein fjármagnsgjöld | |
| Tekjuskattur | |
| Hagnaður ársins | |
| Fjárfestingar | |
| Óskiptar eignir 31.12.2024 | |
| Óskiptar skuldir 31.12.2024 | |
| Starfsbættir 2023 | Farsíma-þjónusta |
| --- | --- |
| Rekstrartekjur | 6.510 |
| Óskipt rekstrargjöld | |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) | |
| Afskriftir | |
| Hrein fjármagnsgjöld | |
| Tekjuskattur | |
| Hagnaður ársins | |
| Fjárfestingar | |
| Óskiptar eignir 31.12.2023 | |
| Óskiptar skuldir 31.12.2023 |
- Breyting hefur verið gerð á starfsbáttayfirliti félagsins. Talsímapjónusta hefur verið sýnd sem starfsbáttur en frá og með 2024 er Talsímapjónusta færð undir starfsbáttinn Annað. Samanburðartölum hefur verið breytt til samræmis.
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
5. Sala
| Seld þjónusta og vörur greinast þannig: | 2024 | 2023 |
|---|---|---|
| Sala á þjónustu | 23.286 | 22.498 |
| Auglýsingasala | 2.009 | 662 |
| Vörusala | 1.894 | 1.907 |
| 27.189 | 25.067 |
Enginn einstakur viðskiptavinur er með meira en 10% af sölu félagsins.
6. Kostnaðarverð sölu
Kostnaðarverð sölu greinist þannig:
| Laun og launatengd gjöld | 1.357 | 991 |
|---|---|---|
| Kostnaðarverð seldrar þjónustu | 10.711 | 10.115 |
| Samtengijöld | 641 | 692 |
| Kostnaðarverð seldra vara | 1.674 | 1.684 |
| Eignfærð vinna | ( 192) | ( 121) |
| Afskriftir | 3.137 | 3.136 |
| 17.328 | 16.497 |
Kostnaðarverð seldrar þjónustu samanstendur af: efniskostnaði, þjónustusamningum, leyfisgjøldum, aðkeyptri þjónustu og fjarskiptakostnaði.
7. Rekstrarkostnaður
Rekstrarkostnaður greinist þannig:
| Laun og launatengd gjöld | 3.681 | 3.349 |
|---|---|---|
| Markaðs- og sölukostnaður | 635 | 609 |
| Húsnæðis- og bifreiðakostnaður | 234 | 347 |
| Tölvu- og hugbúnaðarkostnaður | 1.014 | 1.049 |
| Skrifstofu- og stjörnunarkostnaður | 930 | 876 |
| Afskriftir | 1.135 | 935 |
| 7.629 | 7.165 |
8. Laun og launatengd gjöld
Laun og launatengd gjöld greinast þannig:
| Laun | 4.142 | 3.545 |
|---|---|---|
| Mótframlag í lífeyrissjóði | 538 | 489 |
| Önnur launatengd gjöld | 358 | 306 |
| 5.038 | 4.340 |
Ársverk 311 299
67% starfsmanna félagsins eru karlar (2023: 67%) og 33% konur (2023: 33%).
Laun og launatengd gjöld skiptast þannig á liði ársreiknings:
| Kostnaðarverð sölu | 1.357 | 991 |
|---|---|---|
| Rekstrarkostnaður | 3.681 | 3.349 |
| 5.038 | 4.340 |
Að auki er kostnaður vegna kaupréttta starfsmanna færður á rekstrarkostnað, samtals 59. m.kr. (2023: 48 m.kr.)
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
9. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld greinast bannig: 2024 2023
Fjármunatekjur
| Vaxtatekjur af bankainnistæðum og kröfum | 284 | 444 |
|---|---|---|
| Vaxtatekjur af útlánum | 448 | 294 |
| Fenginn arður | 2 | 2 |
| 734 | 740 |
Fjármagnsgjöld
| Vaxtagjöld | ( 1.488) | ( 898) |
|---|---|---|
| Vaxtagjöld vegna leiguskuldbindinga | ( 113) | ( 47) |
| Niðurfærsla útlána | ( 190) | ( 74) |
| Önnur fjármagnsgjöld | ( 50) | ( 83) |
| ( 1.841) | ( 1.102) | |
| Gengismunur | ( 6) | ( 30) |
| Hrein fjármagnsgjöld | ( 1.113) | ( 392) |
10. Skattar
Tekjuskattur er reiknaður og færður í ársreikninginn. Tekjuskattur vegna ársins 2024 til greiðslu á árinu 2025 nemur 248 m.kr.
| Greining á virku skatthlutfalli: | 2024 | 2023 | ||
|---|---|---|---|---|
| Hagnaður fyrir skatta | 1.762 | 1.687 | ||
| Skatthlutfall | 21,0% | ( 370) | 20,0% | ( 337) |
| Öfrádráttarbær kostnaður | 0,7% | ( 12) | 0,7% | ( 11) |
| Öskattskyldar tekjur | 0,0% | 0 | (0,1%) | 2 |
| Jöfnunargjald | 0,0% | 0 | (0,2%) | 4 |
| Aðrar breytingar | (0,1%) | 1 | (0,1%) | 1 |
| Skattur samkvæmt rekstrarreikningi | 21,6% | ( 381) | 20,2% | ( 341) |
11. Hagnaður á hlut
Grunnhagnaður á hlut er miðaður við hagnað, sem ráðstafað er til hluthafa í félaginu og vegins meðaltals hlutafjár á árinu og sýnir hver hagnaðurinn er á hverja krónu hlutafjár. Þynntur hagnaður á hlut miðar við hagnað sem ráðstafað er til hluthafa í móðurfélaginu og vegins meðaltals virkra hluta að teknu tilliti til þynningaráhrifa væntra útgefinna hluta vegna kaupréttta starfsmanna.
| 2024 | 2023 | |
|---|---|---|
| Hagnaður ársins til hluthafa í móðurfélaginu | 1.381 | 1.346 |
| Hlutafé í ársbyrjun | 2.517 | 4.242 |
| Áhrif keyptra eigin bréfa | ( 58) | ( 150) |
| Áhrif sölu á eigin bréfum | 84 | 0 |
| Áhrif hlutafjárlækkunar | 0 | ( 1.190) |
| Vegið meðaltal útistandandi hluta | 2.543 | 2.902 |
| Áhrif kaupréttarsamninga | 0 | 167 |
| Vegið meðaltal útistandandi hluta fyrir þynntan hagnað | 2.543 | 3.069 |
| Hagnaður á hlut | 0,54 | 0,46 |
| Þynntur hagnaður á hlut | 0,54 | 0,44 |
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
12. Kaupréttarsamningar
Síminn hf. er með kaupréttaráætlun fyrir stjórnendur og ákveðna lykilstarfsmenn byggða á sambykkt aðalfundar 2023. Kauprétturinn nemur samtals 75.000.000 hlutum í félaginu. Kauprétturinn ávinnst á þremur árum frá úthlutun. Kaupverð ræðst af meðalverði hlutabréfa hlutabréfa Símans 10 daga fyrir undirritun kaupréttarsamnings. Við grunnverð bæstast vextir sem skulu samsvara stýrivöxtum Seðlabanka Íslands á tímabilinu frá dagsetningu kaupréttarsamnings fram til nýtingardags, að lágmarki 4% á ári.
Síminn hf. er auk þess með kaupréttaráætlun fyrir starfsmenn félagsins byggða á sambykkt aðalfundar 2023. Starfsmenn hafa rétt til að kaupa hlutabréf fyrir allt að 1,5 m.kr. á ári í samræmi við 10. grein laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og ræðst verðið af meðalverði hlutabréfa félagsins 10 daga fyrir undirritun kaupréttarsamnings. Kaupréttur nær til allra fastráðinna starfsmanna félagsins.
Í rekstrarreikningi eru gjaldfærðar 59 m.kr. vegna kaupréttarsamninga. Heildarkostnaður félagsins vegna kaupréttarsamninga á næstu 2 árum er áætlaður um 39 m.kr. byggt á reiknilikani Black-Scholes.
| Eftirfarandi kaupréttarsamningar eru í gildi í árslok. | Fjöldi hluta | Nýtingar-ár | Kaupverð á hlut |
|---|---|---|---|
| Útgefnir 2023 - stjórnendur og lykilstarfsmenn | 52 | 2026 - 2029 | 12,44 |
| Útgefnir 2024 - stjórnendur og lykilstarfsmenn | 23 | 2028 - 2030 | 12,44 |
| Útgefnir 2023 - starfsmenn | 62 | 2025 - 2026 | 10,78 |
| Útgefnir 2024 - starfsmenn | 11 | 2025 - 2026 | 9,95 |
| 148 |
13. Rekstrarfjármunir
Rekstrarfjármunir og afskriftir greinast þannig:
| Fjarskipta-búnaður | Fasteignir og lóðir | Tæki, búnaður og bifreiðar | Samtals | |
|---|---|---|---|---|
| Kostnaðarverð | ||||
| Heildarverð 1.1.2023 | 10.251 | 282 | 893 | 11.426 |
| Kaup á árinu | 777 | 0 | 109 | 886 |
| Selt og niðurlagt á árinu | ( 1.821) | 0 | ( 174) | ( 1.995) |
| Heildarverð 31.12.2023 | 9.207 | 282 | 828 | 10.317 |
| Kaup á árinu | 1.069 | 0 | 77 | 1.146 |
| Kaup á félagi | 1.040 | 0 | 145 | 1.185 |
| Selt og niðurlagt á árinu | ( 2.071) | 0 | ( 59) | ( 2.130) |
| Heildarverð 31.12.2024 | 9.245 | 282 | 991 | 10.518 |
| Afskriftir og virðisrýrnun | ||||
| Afskrifað 1.1.2023 | 8.258 | 15 | 687 | 8.960 |
| Afskriftir | 703 | 1 | 73 | 777 |
| Selt og niðurlagt á árinu | ( 1.819) | 0 | ( 153) | ( 1.972) |
| Afskrifað alls 31.12.2023 | 7.142 | 16 | 607 | 7.765 |
| Afskriftir | 860 | 0 | 91 | 951 |
| Kaup á félagi | 342 | 0 | 29 | 371 |
| Selt og niðurlagt á árinu | ( 2.071) | 0 | ( 41) | ( 2.112) |
| Afskrifað alls 31.12.2024 | 6.273 | 16 | 686 | 6.975 |
| Bókfært verð | ||||
| Bókfært verð 1.1.2023 | 1.993 | 267 | 206 | 2.466 |
| Bókfært verð 31.12.2023 | 2.065 | 266 | 221 | 2.552 |
| Bókfært verð 31.12.2024 | 2.972 | 266 | 305 | 3.543 |
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
13. Rekstrarfjármunir, frh.:
Fasteignamat húseigna og lóða samstæðunnar nam 319 m.kr. (2023: 303 m.kr.) og brunabótamat 529 m.kr. (2023: 510 m.kr.). Búnaður félagsins er tryggður fyrir 5.943 m.kr. (2023: 6.654 m.kr.).
| Afskriftir rekstrarfjármuna, leigueigna og óefnislegra eigna skiptast þannig á rekstrarliði: | 2024 | 2023 |
|---|---|---|
| Kostnaðarverð seldrar þjónustu | 3.137 | 3.136 |
| Annar rekstrakostnaður | 1.135 | 935 |
| Samtals | 4.272 | 4.071 |
Nýtingartími greinist á eftirfarandi hátt:
| Fjarskiptabúnaður | 3 - 10 ár |
|---|---|
| Fasteignir | 3 - 10 ár |
| Tæki, búnaður og bifreiðar | 3 - 10 ár |
14. Leigueignir
Félagið leigir fasteignir, aðstöðu og bifreiðar. Þessir leigusamningar eru að jafnaði til 5 - 15 ára, með möguleika á endurnýjun í lok leigutímans. Flestir leigusamningar innifela viðbótar leigugreiðslur sem eru byggðar á breytingu á tilteknum vísitölum.
| Leigueignir greinast á eftirfarandi hátt: | Fjarskipta-búnaður | Fasteignir og lóðir | Bifreiðar | Samtals |
|---|---|---|---|---|
| Kostnaðarverð | ||||
| Heildarverð 1.1.2023 | 240 | 1.577 | 47 | 1.864 |
| Nýir samningar | 0 | 0 | 18 | 18 |
| Lokun á samningum | 0 | ( 188) | ( 13) | ( 201) |
| Verðbætur af leiguskuldbindingu | 0 | 50 | 1 | 51 |
| Heildarverð 31.12.2023 | 240 | 1.439 | 53 | 1.732 |
| Nýir samningar | 0 | 1.506 | 21 | 1.527 |
| Lokun á samningum | ( 64) | ( 48) | ( 18) | ( 130) |
| Verðbætur af leiguskuldbindingu | 0 | 46 | 1 | 47 |
| Heildarverð 31.12.2024 | 176 | 2.943 | 57 | 3.176 |
| Afskriftir | ||||
| Afskrifað 1.1.2023 | 7 | 899 | 17 | 923 |
| Afskriftir | 21 | 232 | 18 | 271 |
| Afskriftir færðar út | 0 | ( 187) | ( 7) | ( 194) |
| Afskrifað alls 31.12.2023 | 28 | 944 | 28 | 1.000 |
| Afskriftir | 22 | 348 | 22 | 392 |
| Afskriftir færðar út | ( 14) | ( 31) | ( 15) | ( 60) |
| Afskrifað alls 31.12.2024 | 36 | 1.261 | 35 | 1.332 |
| Bókfært verð 1.1.2023 | 233 | 678 | 30 | 941 |
| Bókfært verð 31.12.2023 | 212 | 495 | 25 | 732 |
| Bókfært verð 31.12.2024 | 140 | 1.682 | 22 | 1.844 |
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
15. Óefnislegar eignir
Óefnislegar eignir og afskriftir greinast þannig:
| Viðskipta-vild | Hug-búnaður | Aðrar eignir | Samtals | |
|---|---|---|---|---|
| Kostnaðarverð | ||||
| Heildarverð 1.1.2023 | 38.558 | 4.448 | 7.817 | 50.823 |
| Kaup á árinu | 0 | 711 | 1.237 | 1.948 |
| Selt og niðurlagt á árinu | 0 | ( 383) | 0 | ( 383) |
| Heildarverð 31.12.2023 | 38.558 | 4.776 | 9.054 | 52.388 |
| Kaup á árinu | 0 | 700 | 1.262 | 1.962 |
| Kaup á félagi | 4.944 | 4 | 1.220 | 6.168 |
| Selt og niðurlagt á árinu | 0 | ( 76) | ( 1.082) | ( 1.158) |
| Heildarverð 31.12.2024 | 43.502 | 5.404 | 10.454 | 59.360 |
| Viðskipta-vild | Hug-búnaður | Aðrar eignir | Samtals | |
| Afskriftir og virðisrýrnun | ||||
| Afskrifað 1.1.2023 | 23.683 | 2.620 | 2.398 | 28.701 |
| Afskriftir | 0 | 573 | 2.450 | 3.023 |
| Selt og niðurlagt á árinu | 0 | ( 383) | 0 | ( 383) |
| Afskrifað alls 31.12.2023 | 23.683 | 2.810 | 4.848 | 31.341 |
| Afskriftir | 0 | 634 | 2.295 | 2.929 |
| Kaup á félagi | 0 | 1 | 5 | 6 |
| Selt og niðurlagt á árinu | 0 | ( 77) | ( 1.082) | ( 1.159) |
| Afskrifað alls 31.12.2024 | 23.683 | 3.368 | 6.066 | 33.117 |
| Bókfært verð | ||||
| Bókfært verð 1.1.2023 | 14.875 | 1.828 | 5.419 | 22.122 |
| Bókfært verð 31.12.2023 | 14.875 | 1.966 | 4.206 | 21.047 |
| Bókfært verð 31.12.2024 | 19.819 | 2.036 | 4.388 | 26.243 |
Nýtingartími greinist á eftirfarandi hátt:
Hugbúnaður 2 - 7 ár
Aðrar eignir 0 - 15 ár
Aðrar eignir samanstanda af vörumerki félagsins, sýningarrétti, tíðnigjöldum og öðrum óefnislegum eignum.
Vörumerki félagsins er veðsett vegna lántöku félagsins.
15.1. Árlegt virðisrýrnunarpróf
Ílok reikningsárs var framkvæmt virðisrýrnunarpróf á viðskiptavild félagsins. Við framkvæmd virðisrýrnunarprófs var endurheimtanlegt virði metið út frá nýtingarvirði þeirra fjárskapandi eininga sem viðskiptavildin tilheyrir. Viðskiptavild sem myndast hefur við kaup hefur verið útdeilt niður á viðeigandi dótturfélög sem skilgreind eru sem minnstu aðgreinanlegu fjárskapandi einingar af stjórnendum samstæðunnar.
| Viðskiptavild greinist þannig niður á fjárskapandi einingar: | 2024 | 2023 |
|---|---|---|
| Viðskiptavild Símans hf. | 14.875 | 14.875 |
| Viðskiptavild Billboard ehf. | 3.459 | 0 |
| Viðskiptavild Noona Iceland ehf. | 1.485 | 0 |
| Vörumerki undir öðrum eignum | 1.589 | 1.589 |
Siminn hf. - Ársreikningar samstæðu 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
15.1. Árlegt virðisrýnunarpróf, frh.:
Endurheimtanlegar fjárhæðir fyrir fjárskapandi einingar eru byggðar á nýtingarvirði. Við mat á nýtingarvirði er stuðst við vænt fjárstreymi sem fært hefur verið til núvirðis. Fjárstreymi var áætlað með hliðsjón að fjárhæðum í sambykktum rekstraráætlunum næstu fimm ára ásamt föstum framtíðarnafnvexti eftir spätímabilið sem stjórnendur telja að endurspegli reynslu fyrri ára, framtíðarbróun í fjarskiptum og upplýsingatækni og aðrar ytri upplýsingar. Vænt fjárstreymi er fært til núvirðis með vegnum fjármagnskostnaði (WACC) viðkomandi fjárskapandi einingar. Ávöxtunarkrafan byggir á áhættulausum vöxtum að viðbættu álagi á samsetningu fjármögnunar fyrir hverja fjárskapandi einingu þar sem byggt er á ytri og innri gögnum.
Við mat á virði vörumerkja er byggt á væntu framtíðarfjárstreymi miðað við gefnar forsendur um endingartíma og að teknu tilliti til hugsanlegra skattaáhrifa. Ávöxtunarkrafan miðar við áhættulausa vexti að viðbættu álagi vegna sérstakrar og væntrar áhættu við viðkomandi vörumerki.
Nýtingarvirði byggir á nokkrum meginforsendum sem innhalda mat stjórnenda á framtíðarhorfum viðkomandi fjárskapandi einingar þar sem stuðst er við söguleg gögn, ytri sem og innri. Forsendurnar eru eftirfarandi:
| 2024 | 2023 | |
|---|---|---|
| Síminn hf. | ||
| Langtímavöxtur | 2,0% | 2,0% |
| Vegið meðaltal tekjuvaxtar á tímabilinu 2025-2029 / 2024-2028 | 2,2% | 2,9% |
| EBITDA meðalvöxtur á tímabilinu 2025-2029 / 2024-2028 | 0,4% | 3,2% |
| WACC | 10,6% | 10,2% |
| Skuldsetningarhlutfall | 60,7% | 59,9% |
| Vextir | 7,4% | 7,1% |
| Billboard ehf. | ||
| Langtímavöxtur | 2,0% | - |
| Vegið meðaltal tekjuvaxtar á tímabilinu 2021-2025 / 2020-2024 | 3,7% | - |
| EBITDA meðalvöxtur á tímabilinu 2021-2025 / 2020-2024 | 4,2% | - |
| WACC | 14,5% | - |
| Skuldsetningarhlutfall | 33,5% | - |
| Vextir | 7,4% | - |
Endurheimtanlegar fjárhæðir allra fjárskapandi eininga var metið hærra en eignagrunnur og því engin virðisrýnun færð hjá félaginu.
Við framkvæmd virðisrýnunarprófs viðskiptavildar verða stjórnendur að meta ákveðnar forsendur sem notaðar eru í árlegu virðisrýnunarprófi. Slikt mat felur alltaf í sér ákveðna óvissu sem getur haft veruleg áhrif á útkomu prófanna ef forsendur reynast rangar. Fjárskapandi einingar félagsins eru ekki viðkvæmar fyrir breytingum á meginforsendum virðisrýnunarprófsins og myndu raunhæfar breytingar á lykilforsendum ekki leiða til virðisrýnunar.
16. Dótturfélög
Dótturfélög eru eftirfarandi:
| Staðsetning starfsemi | Eignarhlutur | ||
|---|---|---|---|
| 2024 | 2023 | ||
| Radiómiðun ehf. | Ísland | 100% | 100% |
| Síminn Pay ehf. | Ísland | 100% | 100% |
| Billboard ehf. | Ísland | 100% | 0% |
| BBI ehf. | Ísland | 100% | 0% |
| Noona Iceland ehf. | Ísland | 100% | 0% |
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
17. Aðrar eignir
| Aðrar eignir greinast þannig: | 2024 | 2023 |
|---|---|---|
| Fjárfesting í öðrum félögum | 8 | 8 |
| Sjónvarpsefni til sýningar | 522 | 240 |
| Útlán til meira en 12 mánaða | 108 | 183 |
| Aðrar eignir samtals | 638 | 431 |
18. Birgðir
Birgðir greinast þannig:
| Vörur til endursölu og rekstrarvörubirgðir | 710 | 639 |
|---|---|---|
| Sjónvarpsefni til sýningar | 629 | 618 |
| Birgðir samtals | 1.339 | 1.257 |
Vörunotkun vegna vörusölu ársins nam 1.673 m.kr. (2023: 1.711 m.kr.).
19. Viðskiptakröfur
Viðskiptakröfur greinast þannig:
| Viðskiptakröfur | 2.617 | 2.357 |
|---|---|---|
| Niðurfærsla viðskiptakrafna | ( 114) | ( 78) |
| Viðskiptakröfur samtals | 2.503 | 2.279 |
Breyting á niðurfærslu viðskiptakrafna greinist þannig:
| Staða í ársbyrjun | ( 78) | ( 84) |
|---|---|---|
| Breyting á niðurfærslu vegna krafna sem kunna að tapast | ( 73) | ( 30) |
| Tapaðar viðskiptakröfur á árinu | 37 | 36 |
| Staða í lok árs | ( 114) | ( 78) |
Niðurfærsla hefur verið reiknuð vegna krafna sem kunna að tapast. Niðurfærslan er byggð á mati stjórnenda og reynslu fyrri ára. Lánsáhætta vegna viðskiptavina er lítil þar sem viðskiptamenn félagsins eru margir og ótengdir. Nánar er fjallað um áhættu vegna viðskiptakrafna í skýringu 29.
20. Útlán
Útlán félagsins samanstanda af útlánum dótturfélags Símans hf., Símans Pay ehf. Eingöngu er um að ræða útlán til einstaklinga á bilinu 1-36 mánuðir.
| Útlán 31.12.2024: | Brúttó
bókfært
virði | Fært meðal
langtíma-
krafna | Vænt
útlánatap | Skamm-
tímahluti
útlána |
| --- | --- | --- | --- | --- |
| Léttkaup fastar greiðslur 1-36 mán | 678 | ( 108) | ( 40) | 530 |
| Léttkort, sveigjanlegar greiðslur | 2.807 | 0 | ( 133) | 2.674 |
| | 3.485 | ( 108) | ( 173) | 3.204 |
Útlán 31.12.2023:
| Léttkaup, fastar greiðslur 1-36 mán | 1.007 | ( 183) | ( 64) | 760 |
|---|---|---|---|---|
| Léttkort, sveigjanlegar greiðslur | 2.000 | 0 | ( 45) | 1.955 |
| 3.007 | ( 183) | ( 109) | 2.715 |
Nánari upplýsingar um útlán má finna í skýringu 29.5 um áhættustýringu.
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
21. Aðrar skammtímakrófur
| Aðrar skammtímakrófur greinast þannig: | 2024 | 2023 |
|---|---|---|
| Fyrirframgreiddur kostnaður | 701 | 719 |
| Áfallnir vextir | 0 | 8 |
| Aðrar skammtímakrófur | 332 | 239 |
| Aðrar skammtímakrófur samtals | 1.033 | 966 |
22. Kaup á dótturfélögum
Pann 27. mars var undirritaður kaupsamningur um um kaup Símans á öllu hlutafé í félögunum BBI ehf., Dengsa ehf., og Billboard ehf. Fyrirtækin starfa á auglýsingamarkaði og styrkja enn frekar þjónustuframboð Símans á því sviði. Kaupverð var greitt með hlutafé í Símanum að nafnverði 101 m.kr. á genginu 9,886 og 3.848 m.kr í peningum auk kostnaðar við kaupin.
Rekstrarfjármunir ... 1.743
Veltufjármunir ... 309
Samtals eignir ... 2.052
Langtímaskuldir ... 910
Skammtímaskuldir ... 655
Samtals skuldir ... 1.565
Hrein eign ... 487
Kaupverð ... 4.893
Viðskiptavild ... 4.406
Pann 8. júní var undirritaður kaupsamningur um kaup Símans á öllu hlutafé í Noona Iceland ehf. sem tók yfir innlendan rekstur Noona Labs ehf. Síminn Pay mun stýra sameiginlegum rekstri fyrirtækjanna ásamt því að samþætta lausnir Símans Pay og vistkerfi Noona. Samþykki Samkeppniseftirlitsins fyrir kaupunum fékkst í desember og er Noona Iceland hluti af rekstri félagsins frá og með 1.desember 2024. Kaupverðið var að fullu greitt á árínu 2024.
Óefnislegar eignir ... 1.475
Hrein eign ... 1.475
Kaupverð ... 1.475
23. Eigið fé
23.1. Hlutafé
Útgefnir hlutir í lok ársins eru alls 2.650 m.kr. og er nafnverð hvers hlutar ein íslensk króna. Á árinu var hlutafé félagsins lækkað úr 2.775 m.kr. niður í 2.650 m.kr. Eitt atkvæði fylgir hverri krónu nafnverðs. Allir útgefnir hlutir eru greiddir að fullu. Félagið á eigin hluti að nafnverði 167 m.kr. sem færðir eru til lækkunar á eigin fé (2023: 258 m.kr.). Samkvæmt gildandi endurkaupaáætlun keypti félagið eigin bréf á árinu með það að markmiði að lækka eigið fé félagins.
23.2. Yfirverð
Yfirverð er munurinn á greiðslum í krónum sem félagið fékk við kaup, sölu og útgáfu á hlutafé og nafnverði útgefinna hluta.
23.3. Lögbundinn varasjóður
Samkvæmt lögum um hlutafélög skal félagið binda 25% af nafnverði hlutafjár í varasjóði, sem ekki má nota til að greiða hluthöfum arð.
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
23
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
23. Eigið fé, frh.:
23.4. Annað bundið eigið fé
Annað bundið eigið fé greinist þannig:
| Þýðingarmunur í dóttur-félögum | Bundinn hlutdeildar-reikningur | Samtals | |
|---|---|---|---|
| Staða 1.1. 2023 | 454 | 122 | 576 |
| Breyting ársins | ( 6) | ( 6) | |
| Staða 31.12.2023 | 454 | 116 | 570 |
| Staða 1.1. 2024 | 454 | 116 | 570 |
| Breyting ársins | 258 | 258 | |
| Staða 31.12.2024 | 454 | 374 | 828 |
23.5. Óráðstafað eigið fé
Óráðstafað eigið fé er uppsafnaður óráðstafaður hagnaður að frádregnu ójöfnuðu tapi samstæðunnar frá stofnun móðurfélagsins, að frádregnum arðgreiðslum og millifærslum til og frá öðrum eiginfjárliðum.
24. Vaxtaberandi skuldir
Lán félagsins greinast á eftirfarandi hátt:
| 2024 | 2023 | |||
|---|---|---|---|---|
| Meðalvextir | Eftirstöðvar | Meðalvextir | Eftirstöðvar | |
| Skuldir í ISK, óverðtryggðar | 11,05% | 13.179 | 9,42% | 7.500 |
| Lántökukostnaður | ( 17) | ( 30) | ||
| Næsta árs afborganir | ( 429) | 0 | ||
| 12.733 | 7.470 | |||
| Hreyfingar á vaxtaberandi skuldum greinast á eftirfarandi hátt: | 2024 | 2023 | ||
| Staðá í ársbyrjun | 7.470 | 5.956 | ||
| Kaup á dótturfélagi | 138 | 0 | ||
| Afborganir | ( 460) | 0 | ||
| Dreifing lántökukostnaðar | 14 | 14 | ||
| Tekin ný langtímalán | 6.000 | 1.500 | ||
| 13.162 | 7.470 |
Afborganir vaxtaberandi skulda greinast þannig:
| Til greiðslu 2025 / 2024 | 429 | 0 |
|---|---|---|
| Til greiðslu 2026 / 2025 | 12.750 | 7.500 |
| Heildarlán að meðtöldum næsta árs afborgunum | 13.179 | 7.500 |
Í lánaskilmálum eru kvaðir um að uppfylla ákveðin fjármálahlutföll. Félagið er með tímabundna undanþágu frá lánaskilmála varðandi skuldaþekju. Skilmálinn er tímabundið utan marka vegna fjárfestingar ársins í félögum. Aðrir lánaskilmálar eru uppfylltir. Skuldir félagsins eru tryggðar með veði í vörumerki félagsins. Lán félagsins eru með framlengingarheimild til ársins 2031.
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
- Leiguskuldbindingar
| Hreyfingar á leiguskuldbindingum greinast á eftirfarandi hátt: | Fjarskipta-búnaður | Fasteignir og lóðir | Bifreiðar | Samtals |
|---|---|---|---|---|
| Leiguskuldbindingar 1.1.2023 | 234 | 716 | 32 | 982 |
| Leigugreiðslur | ( 28) | ( 264) | ( 20) | ( 312) |
| Greiddir vextir | 12 | 33 | 2 | 47 |
| Nýir samningar | 0 | 0 | 18 | 18 |
| Lokun á samningum | 0 | 0 | ( 7) | ( 7) |
| Verðbætur af leiguskuldbindingu | 0 | 50 | 1 | 51 |
| Leiguskuldbindingar 31.12.2023 | 218 | 535 | 26 | 779 |
| Leigugreiðslur | ( 26) | ( 426) | ( 23) | ( 475) |
| Greiddir vextir | 8 | 103 | 2 | 113 |
| Nýir samningar | 0 | 1.506 | 21 | 1.527 |
| Lokun á samningum | ( 52) | ( 12) | ( 5) | ( 69) |
| Verðbætur af leiguskuldbindingu | 0 | 46 | 1 | 47 |
| Leiguskuldbindingar 31.12.2024 | 148 | 1.752 | 22 | 1.922 |
| Leiguskuldbinding greinast á eftirfarandi hátt: | 2024 | 2023 | ||
| Til greiðslu 2025 / 2024 | 351 | 276 | ||
| Til greiðslu 2026 / 2025 | 362 | 280 | ||
| Til greiðslu 2027 / 2026 | 330 | 48 | ||
| Til greiðslu 2028 / 2027 | 314 | 30 | ||
| Til greiðslu 2029 / 2028 | 93 | 21 | ||
| Afborganir síðar | 472 | 124 | ||
| Heildarleiguskuldbinding að meðtöldum næsta árs afborgunum | 1.922 | 779 |
Leigugreiðslur:
| Fjarskipta-búnaður | Fasteignir og lóðir | Bifreiðar | Samtals | |
|---|---|---|---|---|
| 2024 | ||||
| Leigugreiðslur | 26 | 426 | 23 | 475 |
| Þar af: | ||||
| Vaxtagjöld (sjá skýringu 9) | 8 | 103 | 2 | 113 |
| Afborgun höfuðstóls | 18 | 319 | 21 | 358 |
| 2023 | ||||
| Leigugreiðslur | 28 | 264 | 20 | 312 |
| Þar af: | ||||
| Vaxtagjöld (sjá skýringu 9) | 12 | 33 | 2 | 47 |
| Afborgun höfuðstóls | 16 | 231 | 18 | 265 |
Leiguskuldbindingar er flokkaðar á eftirfarandi hátt í efnahagsreikningi:
| 2024 | 2023 | |
|---|---|---|
| Langtímaskuldir | 1.571 | 503 |
| Skammátímaskuldir | 351 | 276 |
| 1.922 | 779 |
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
- Leiguskuldbindingar, frh.:
Önüvirtar greiðslur af leiguskuldbindingum:
| Leigu-greiðslur | Vaxta-greiðslur | Afborgun höfuðstóls 2024 | Afborgun höfuðstóls 2023 | |
|---|---|---|---|---|
| Til greiðslu 2025 / 2024 | 508 | 157 | 351 | 276 |
| Til greiðslu 2026 / 2025 | 486 | 124 | 362 | 280 |
| Til greiðslu 2027 / 2026 | 423 | 93 | 330 | 48 |
| Til greiðslu 2028 / 2027 | 377 | 63 | 314 | 30 |
| Til greiðslu 2029 / 2028 | 137 | 44 | 93 | 21 |
| Til greiðslu 2030 / 2029 og síðar | 596 | 124 | 472 | 124 |
| 2.527 | 605 | 1.922 | 779 |
Áhrif leigusamninga í rekstrarreikningi eru eftirfarandi:
2024 2023
| Afskriftir leigueigna | 392 | 271 |
|---|---|---|
| Vaxtagjöld leigusamninga | 113 | 47 |
| 505 | 318 | |
| Leigugreiðslur | ( 475) | ( 312) |
| Tekjur (kostnaður) vegna leigusamnninga umfram leigugreiðslur | 30 | 6 |
EBITDA leiðrétt fyrir leigugreiðslum (fyrir IFRS 16) er eftirfarandi:
| EBITDA samkvæmt rekstrarreikningi | 7.147 | 6.150 |
|---|---|---|
| Leigugreiðslur | ( 475) | ( 312) |
| EBITDAaL (EBITDA eftir leigugreiðslur) | 6.672 | 5.838 |
Framlengingarákvæði
Flestir leigusamningar félagsins um fasteignir fela í sér framlengingarheimildir sem því er heimilt að nýta allt að einu ári fyrir lok öuppsegjanlegs leigutímabils. Félagið leggur mat á það við upphaf leigusamnings hvort það sé talið nokkuð liklegt að það muni nýta heimildir til framlenginga. Ef verulegar breytingar verða á aðstæðum sem eru á valdi félagsins, mun það endurmeta hvort framlengingarheimildir verði nýttar.
- Tekjuskattsskuldbinding
| Hreyfingar á tekjuskattsskuldbindingu greinast á eftirfarandi hátt: | 2024 | 2023 |
|---|---|---|
| Tekjuskattsskuldbinding í ársbyrjun | 232 | 89 |
| Kaup á dóttufélagi | 336 | 0 |
| Tekjuskattur tímabilsins | 381 | 346 |
| Skattar til greiðslu á næsta ári | ( 255) | ( 204) |
| Leiðrétting frá fyrra ári | ( 8) | 1 |
| Tekjuskattsskuldbinding samtals | 686 | 232 |
Frestaður skattur skiptist þannig á einstaka liði efnahagsreikningsins:
| Rekstrarfjármunir | ( 174) | ( 73) |
|---|---|---|
| Öefnislegar eignir | ( 550) | ( 174) |
| Skammtímakrófur | ( 22) | ( 23) |
| Leigðar eignir | ( 368) | ( 146) |
| Leiguskuldbindingar | 384 | 156 |
| Gengismunur | 3 | 15 |
| Skattalegt tap | 41 | 13 |
| ( 686) | ( 232) |
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
27. Viðskiptaskuldir
| Viðskiptaskuldir greinast þannig: | 2024 | 2023 |
|---|---|---|
| Viðskiptaskuldir | 3.190 | 2.980 |
| Áfallinn kostnaður | 570 | 1.281 |
| Viðskiptaskuldir samtals | 3.760 | 4.261 |
28. Aðrar skammtímaskuldir
Aðrar skammtímaskuldir greinast þannig:
| Áfallinn kostnaður | 587 | 489 |
|---|---|---|
| Ógreidd laun og launatengd gjöld | 217 | 159 |
| Ógreiddur virðisaukaskattur | 393 | 314 |
| Aðrar skammtímaskuldir samtals | 1.197 | 962 |
29. Áhættustýring
29.1. Stýring fjármögnunaráhættu
Félagið stýrir fjárhagssamsetningu þannig að tryggt sé að félög samstæðunnar séu rekstrarhæf, með það markmið að hámarka hagnað hluthafa með því að finna bestu samsetningu eigin fjár á móti skuldum. Stefna félagsins er óbreytt frá fyrra ári.
Fjárhagssamsetning félagsins samanstendur af lánum sem nánar eru upplistuð í skýringu númer 24, skammtímálánum og eigin fé sem samanstendur af útgefnu hlutafé, varasjóðum og óráðstöfuðu eigin fé.
29.2. Stýring fjárhagslegrar áhættu
Starfsemi félagsins hefur það í för með sér að rekstur, eignir, skuldir og eigið fé eru undirorpín fjárhagslegri áhættu. Sú áhætta samanstendur meðal annars af markaðsáhættu, mestmegnis tengdri gengi gjaldmiðla og vaxtastigi, lánsáhættu og lausafjáráhættu. Fjárstýring Símans veitir félögum innan samstæðunnar miðlæga fjármálaljónustu svo sem vegna fjármögnunar, gjaldeyriskaupa, vaxtastýringar og áhættumats. Starfsemi fjárstýringar er hagað innan ramma fjárstýringarstefnu Símans sem er endurskoðuð reglulega af stjórn félagsins. Félagið tekur ekki stöðu í fjármálagerningum, þar með talið afleiddum fjármálagerningum, byggða á spákaupmennsku.
29.3. Vaxtaáhætta
Vaxtaáhætta er áhættan af því að gangvirði eða framtíðarsjóðsflæði fjármálagerninga muni sveiflast vegna breytinga á markaðsvöxtum. Breytingar á markaðsvöxtum hafa áhrif á vaxtatekjur og vaxtagjöld í rekstrarreikningi. Lánasafn félagsins samanstendur af lánum í ISK með breytilegum vöxtum. Vaxtaberandi fjárskuldir félagsins eru hærri en vaxtaberandi fjáreignir, en vaxtaáhættan er vegna breytilegra vaxta. Áhættan liggur því í að möguleg hækkun á vöxtum leiði til hækkunar á fjármagnsliðum.
Næmnigreining á breytingum á vöxtum var gerð miðað við stöðu á fjáreignum og fjárskuldum í lok ársins. Næmnigreiningin gerir ráð fyrir að fjárhæð fjárskulda með breytilega vexti í lok árs sé eins allt árið. Miðað við 100 punkta hækkun á markaðsvöxtum og að allar aðrar forsendur séu óbreyttar þá breytist afkoma og eigið fé um 97 m.kr. eftir skatta. (2023; 43 m.kr.). Fjáreignir og fjárskuldir félagsins með fasta vexti eru ekki færðar á gangvirði og því ekki næmar fyrir breytingum á vöxtum.
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
29. Áhættustýring, frh.:
29.4. Gjaldmiðlaahætta
Félagið ber stærstu áhættu gagnvart EUR og USD. Hluti af fjárfestingum félagsins er í erlendri mynt ásamt rekstrargjöldum. Að minna marki hefur gengið áhrif á rekstrartekjur félagsins. Í árslok 2024 voru engin af langtímalánum félagsins í erlendum gjaldmiðlum, eins og í árslok 2023.
Gengi helstu gjaldmiðla á árinu má sjá í eftirfarandi töflu:
| Meðalgengi | Árslokagengi | |||
|---|---|---|---|---|
| 2024 | 2023 | 2024 | 2023 | |
| EUR | 149,3 | 149,1 | 143,9 | 150,5 |
| USD | 137,9 | 138,0 | 138,2 | 136,2 |
Eignir og skuldir félagsins í erlendri mynt miðað við gengi í lok árs má sjá í eftirfarandi töflu:
| Eignir | Skuldir | |||
|---|---|---|---|---|
| 2024 | 2023 | 2024 | 2023 | |
| EUR | 169 | 188 | 320 | 940 |
| USD | 35 | 6 | 371 | 362 |
| Aðrir gjaldmiðlar | 5 | 1 | 11 | 15 |
| 209 | 195 | 702 | 1.317 |
Efnahagsreikningur félagsins er ekki viðkvæmur gagnvart flökti á gengi gjaldmiðla. Næmnigreining á gengisáhættu metur áhrif flökts gengis gjaldmiðla á útistandandi fjármagnsliði miðað við gengi við lok núverandi tímabils. Gert er ráð fyrir að allar aðrar breytur séu fastar. Áhrifin að teknu tilliti til skatta á afkomu og eigið fé eru 4 m.kr. (2023: 9 m.kr) hækkun/lækkun fyrir hvert 1% í hækkun/lækkun á gengi krónunnar.
29.5. Lánsáhætta
Lánsáhætta er hættan á fjárhagslegu tapi félagsins ef viðskiptamaður eða mótaðili í fjármálagerningi getur ekki staðið við umsamdar skuldbindingar sínar. Áhætta félagsins gagnvart lánsáhættu er takmörkuð við fjárhagslegar eignir listaðar á efnahagsreikningi auk vissra ábyrgða. Félagið fylgist reglulega með þróun þeirra eigna sem tengjast útlánaáhættu. Viðskiptakröfur félagsins eru á hendur fjöldamörgum viðskiptavinum sem dreifast á margar starfsgreinar og landssvæði. Viðskiptakröfur eru því ekki háðar fáum stórum viðskiptavinum.
Hámarksútlánaáhætta greinist bannig:
| Mesta mögulega tap | ||
|---|---|---|
| 2024 | 2023 | |
| Langtímakröfur | 108 | 183 |
| Viðskiptakröfur | 2.617 | 2.357 |
| Útlán | 3.425 | 3.011 |
| Aðrar skammtímakröfur | 1.033 | 966 |
| Handbært fé | 835 | 1.810 |
| Ábyrgðir | 0 | 23 |
| 8.018 | 8.350 |
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
- Áhættustýring, frh.:
29.5. Lánsáhætta, frh.:
Viðskiptakrófur:
Meirihluti viðskiptakrafna félagsins eru til greiðslu innan 90 daga. Mynduð er niðurfærsla vegna áætlaðrar virðisrýrnunar viðskiptakrafna og annarra krafna. Niðurfærslan er í meginatriðum sérstök niðurfærsla vegna einstakra viðskiptamanna og sameiginleg niðurfærsla með tilliti til aldurs krafna, sem ekki hefur verið tengd einstökum viðskiptamönnum. Sameiginlega niðurfærslan er ákveðin með tilliti til innheimtusögu sambærilegra krafna.
Eftirfarandi tafla sýnir aldursdreifingu viðskiptakrafna sem komnar eru á gjalddaga að teknu tilliti til niðurfærslu:
| Nafnverð kröfu | Niðurfærsla | |||
|---|---|---|---|---|
| 2024 | 2023 | 2024 | 2023 | |
| Ógjaldfallið | 1.295 | 1.164 | 36 | 35 |
| Gjaldfallið innan 30 daga | 1.182 | 1.122 | 20 | 19 |
| Gjaldfallið fyrir 31-60 dögum | 54 | 43 | 9 | 8 |
| Gjaldfallið fyrir 61-180 dögum | 42 | 16 | 19 | 7 |
| Gjaldfallið fyrir meira en 180 dögum | 44 | 12 | 30 | 9 |
| 2.617 | 2.357 | 114 | 78 |
Lánsáhætta vegna viðskiptavina er lítil þar sem að viðskiptamenn félagsins eru margir og ótengdir. Því telja stjórnendur félagsins ekki þörf á frekari varúðarfærslum umfram hefðbundnar niðurfærslur. Undir rekstrakostnaði voru gjaldfæðar 72 m.kr. vegna niðurfærslu krafna á árinu 2024 (2023 30 m.kr.).
Útlán:
Lánshæfismódel Símans Pay er þróað og viðhaldið í samstarfi við CreditInfo. Módelið er stöðugt í þróun og ítrun með sérfræðingum CreditInfo og utanaðkomandi sérfræðingum í útlánaeftirliti og innheimtu. Þegar viðskiptavinir sækja um lánalínu hjá Símanum Pay er lánshæfi þeirra metið út frá viðeigandi gögnum, þar á meðal launatekjum, vanskilasögu og lánshæfiseinkunn CreditInfo.
Félagið notar virðisrýrnunarlíkan við mat á væntri útlánaáhættu sem er í samræmi við kröfur IFRS 9. Félagið framkvæmir áhættumat til að meta líkur á vanefndum viðskiptavina. Einstaklingar eru flokkaðir frá A1 til E3, þar sem A1 reiknast með minnstu og E3 með mestu líkur á vanefndum. Engar tryggingar eru á bakvið lánin.
Útlán þar sem ekki mælist marktæk aukning á útlánaáhættu falla undir stig 1. Útlán þar sem mælist marktæk aukning á útlánaáhættu frá upphaffegri skráningu falla undir stig 2. Útlán sem eru í vanefndum af hálfu lántaka falla undir stig 3.
31. desember 2024
Útlán til einstaklinga:
| Stig 1 | Stig 2 | Stig 3 | Samtals | |
|---|---|---|---|---|
| Einkunn A | 1.925 | 17 | 13 | 1.955 |
| Einkunn B | 1.002 | 14 | 13 | 1.029 |
| Einkunn C | 136 | 5 | 3 | 144 |
| Einkunn D | 102 | 13 | 16 | 131 |
| Einkunn E | 47 | 24 | 155 | 226 |
| Brúttó staða | 3.212 | 73 | 200 | 3.485 |
| Vænt útlánatap | ( 64) | ( 9) | ( 100) | ( 173) |
| Bókfærð staða | 3.148 | 64 | 100 | 3.312 |
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
-
Áhættustýring, frh.:
29.5. Lánsáhætta, frh.: -
desember 2023
| Útlán til einstaklinga: | Stig 1 | Stig 2 | Stig 3 | Samtals |
| --- | --- | --- | --- | --- |
| Einkunn A | 1.700 | 35 | 0 | 1.735 |
| Einkunn B | 1.057 | 32 | 1 | 1.090 |
| Einkunn C | 10 | 0 | 0 | 10 |
| Einkunn D | 3 | 1 | 0 | 4 |
| Einkunn E | 0 | 0 | 168 | 168 |
| Brúttó staða | 2.770 | 68 | 169 | 3.007 |
| Vænt útlánatap | ( 15) | ( 1) | ( 93) | ( 109) |
| Bókfærð staða | 2.755 | 67 | 76 | 2.898 |
29.6. Lausafjáráhætta
Lausafjáráhætta er áhættan á því að félagiðlendi í erfiðleikum við að mæta fjárhagslegum skuldbindingum sínum í náinni framtíð. Félagið mætir þessari áhættu með því að gera áætlanir um greiðslur og tryggja nægjanlega varasjóði. Eftirfarandi tafla greinir skuldbindingar félagsins eftir gjalddögum þeirra. Taflan miðar við ónúvirtar greiðslur og að greitt sé á fyrsta samningsbundna greiðsludegi. Vegið meðaltal fljótandi vaxta er 10,225% (2023: 11,1%).
| Bókf. verð | Innan árs | 1-2 ár | 2-5 ár | > 5 ár | Samtals | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 31. desember 2024 | ||||||
| Langtímálán | 13.162 | 3.370 | 11.380 | 14.750 | ||
| Leiguskuldbindingar | 1.922 | 508 | 486 | 937 | 596 | 2.527 |
| Viðskiptaskuldir | 4.957 | 4.957 | 4.957 | |||
| Skammtímálán | 2.084 | 2.282 | 2.282 | |||
| 22.125 | 11.117 | 11.866 | 937 | 596 | 24.516 | |
| 31. desember 2023 | ||||||
| Langtímálán | 7.470 | 864 | 865 | 7.758 | 9.487 | |
| Leiguskuldbindingar | 779 | 311 | 299 | 125 | 141 | 876 |
| Viðskiptaskuldir | 5.223 | 5.223 | 5.223 | |||
| Skuldir við lánastofnanir | 2.281 | 2.400 | 2.400 | |||
| 15.753 | 8.798 | 1.164 | 7.883 | 141 | 17.986 |
29.7. Gangvirði
Það er mat stjórnenda að ekki sé verulegur munur á bókfærðu virði fjáreigna og fjárskulda og gangvirði þeirra í reikningsskilunum.
- Ábyrgðir og önnur mál
Félagið hefur lagt eignir að veði til að tryggja skuldbindingar vegna lána að fjárhæð 14 ma.kr. (2023: 11 ma.kr.) í árslok.
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
30
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
31. Málarekstur
Félagið stendur í málarekstri vegna mála sem snúa að tülkunum á fjarskipta-, fjölmiðla- og samkeppnislögum.
Samkeppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu á árinu 2020 að Síminn hefði brotið gegin ákvörðunum Samkeppniseftirlitsins nr. 6/2015 og 20/2015 og lagði á sekt að fjárhæð 500 m.kr. sem Síminn greiddi. Síminn kærði ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála og gerði kröfu um ógildingu ákvörðunarinnar. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála skilaði úrskurði í byrjun árs 2021 þar sem nefndin feldi úr gildi þann hluta ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins sem laut að meintu broti gegin 6/2015 og lækkáði sektina niður í 200 m.kr. Síminn og Samkeppniseftirlitið höfðuðu mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur frá 11. október 2022 var að fella ákvörðun Samkeppniseftirlitsins úr gildi og gerði Samkeppniseftirlitinu að endurgreiða Símanum 200 m.kr. auk dráttarvaxta. Samkeppniseftirlitið áfrýjaði dóminum til Landsréttar. Landsréttur staðfesti niðurstöðu Héraðsdóms með dómi þann 16. febrúar 2024, um að ógilda ákvörðun Samkeppniseftirlitsins í heild sinni. Samkeppniseftirlitið áfrýjaði málinu til Hæstaréttar og fór málflutningur fram 29. janúar 2025. Von er á niðurstöðu fyrir lok febrúarmánaðar.
Síminn og Sýn hafa átt í ágreiningi í tengslum við dreifingu á sjónvarpsefni. Póst- og fjarskiptastofnun (nú Fjarskiptastofa) komst að þeirri niðurstöðu að Síminn hefði farið gegin fjölmiðlalögum sbr. ákvörðun PFS nr. 10/2018. Lagði stofnunin á sekt að fjárhæð 9 m.kr. sem félagið hefur þegar greitt. Síminn taldi háttsemi félagsins í fullu samræmi við ákvæði fjölmiðlalaga og höfðaði mál til ógildingar ákvörðunar Póst- og fjarskiptastofnunar. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu og ógilti ákvörðun PFS að hluta og lækkáði sektina niður í 7 m.kr. Síminn áfrýjaði málinu til Landsréttar sem staðfesti niðurstöðu Póst- og fjarskiptastofnunar og hækkáði sektina aftur í 9 m.kr. Síminn áfrýjaði málinu til Hæstaréttar en rétturinn ómerkti niðurstöðu Landsréttar og héraðsdóms og vísaði málinu aftur heim í hérað til löglegrar meðferðar. Héraðsdómur skilaði dómsúrlausn og staðfesti meint brot en feldi niður sektina á þeim grundvelli að lagaheimild skorti til að sekta. Í kjölfarið á ákvörðun PFS sendi Sýn kröfu til Símans um greiðslu skaðabóta að fjárhæð 1,9 ma.kr. Síminn hafnaði kröfunni og benti á að það mætti hvorki ráða af erindi Sýnar að skilyrði skaðabótaskyldu væri fyrir hendi né heldur væri gerð tilraun til að færa sönnur á ætlað tjón Sýnar. Að mati Símans var um tilhæfulausa kröfu að ræða og vísaði Héraðsdómur Reykjavíkur kröfu Sýnar frá dómi vegna vanreifunar. Í framhaldinu lagði Sýn fram beiðni um dómkvaðningu matsmanna og stefndi Símanum fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð 125 m.kr. vegna áranna 2015-2017. Síminn hafnaði málatilbúnaði Sýnar en þann 19. febrúar 2024 dæmdi Héraðsdómur Símann til þess að greiða Sýn 16,5 m.kr. í skaðabætur, auk dráttarvaxta frá 7. apríl 2020. Sýn hefur áfrýjað málinu til Landsréttar. Sýn stefndi Símanum einnig til greiðslu fjárhæðar 270 m.kr. vegna áranna 2018-2019. Þann 6. janúar 2025 dæmdi Héraðsdómur Símann til þess að greiða Sýn 33,9 m.kr. í skaðabætur, auk dráttarvaxta frá 22. nóvember 2022.
Fjármálaeftirlitsnefnd Seðlabanka Íslands komst að þeirri niðurstöðu að sekta Símann um 76,5 m.kr. á grundvelli þess að stofnunin taldi að Síminn hefði ekki birt ætlaðar innherjaupplysingar eða tekið ákvörðun um frestun á birtingu á ætluðum innherjaupplysingum þann 31. ágúst 2021 í tengslum við sölu á dótturfélaginu Mílu ehf. Síminn áfrýjaði málinu til Héraðsdóms Reykjavíkur til að fá ákvörðuninni hnekkt en Héraðsdómur sýknaði Seðlabankann. Síminn áfrýjaði dóminum til Landsréttar. Félagið hefur greitt fjárhæðina en ekki gjaldfært í rekstri.
Fjarskiptastofa (þá PFS) og Sýn höfðuðu mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur og gerðu kröfu um að úrskurður úrskurðarnefndar póst- og fjarskiptamála nr. 7/2019 yrði felldur úr gildi, en úrskurður nefndarinnar fól í sér ógildingu á ákvörðun PFS nr. 27/2019 þar sem stofnunin lagði sekt að fjárhæð 9 m.kr. á Símann. Héraðsdómur feldi úrskurð nefndarinnar úr gildi en Fjarskiptastofa hafði gefið það út að sektarfjárhæðin yrði feldi úr gildi ef úrskurðurinn yrði ógildur.
Staða eftirfarandi mála er óbreytt frá útgáfu ársreiknings 2023.
Árið 2019 sendi Gagnaveita Reykjavíkur (nú Ljóseifarinn) Símanum kröfu um greiðslu að fjárhæð 1,3 ma.kr. Síminn hafnaði kröfunni og benti á að það mætti ekki ráða af erindi Ljóseifarans að skilyrði skaðabótaskyldu væri fyrir hendi. Að mati Símans er um tilhæfulausa kröfu að ræða.
Þrátt fyrir að óvissa sé um niðurstöður þessara mála er það mat stjórnenda að ekki komi til verulegra fjárútláta vegna þeirra. Félagið hefur ekki fært neinn kostnað í reikningsskil sín vegna mögulegra bóta í framangreindum málum.
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
32. Tengdir aðilar
Hluthafar sem hafa veruleg áhrif á starfsemi samstæðunnar, stjórnendur og stjórnarmenn og nánir fjölskyldumeðlimir þeirra og félög sem þeir ráða yfir teljast til tengdra aðila. Viðskipti við tengda aðila eru óveruleg. Viðskiptum milli félaga sem innifalin eru í samstæðureikningi hefur verið eytt út í samstæðureikningi félagsins.
Laun og hlunnindi til stjórnar og stjórnenda félagsins vegna starfa fyrir félög í samstæðunni og eignarhlutir í félaginu greinast þannig:
| Fyrir árið 2024 | Laun og hlunnindi | Kaupaukar | Mótframlag í lífeyrissjóð | Fjöldi hluta beinn/óbeinn |
|---|---|---|---|---|
| Laun og hlunnindi stjórnar og framkvæmdastjórnar | ||||
| Jón Sigurðsson, formaður | 11,7 | 1,3 | 461,2 | |
| Sigrún Ragna Ólafsdóttir, varaformaður | 7,6 | 1,0 | 0,2 | |
| Arnar Þór Másson, stjórnarmaður | 7,2 | 0,8 | 0,0 | |
| Bjarni Þorvarðarson, stjórnarmaður | 6,5 | 0,9 | 0,0 | |
| Valgerður Halldórsdóttir, stjórnarmaður | 4,9 | 0,6 | 0,0 | |
| Björk Viðarsdóttir, fyrverandi stjórnarmaður | 1,2 | 0,1 | 0,0 | |
| María Björk Einarsdóttir, forstjóri | 18,2 | 2,3 | 0,0 | |
| Orri Hauksson, fyrverandi forstjóri* | 44,3 | 11,6 | 7,5 | 16,7 |
| Framkvæmdastjórar** | 165,0 | 40,6 | 26,3 | 11,7 |
| Starfslokalaun *** | 160,2 | 21,2 | 0,0 | |
| 426,8 | 52,2 | 62,0 | 489,8 |
Innifelur laun fráfarandi forstjóra í 8 mánuði ársins. Fjöldi hluta miðast við eign við starfslok.
Framkvæmdastjórar hjá móðurfélagi yfir árið, samtals 7 aðilar.
**Laun og hlunnindi tengdum starfslokum forstjóra og tveggja framkvæmdastjóra.
| Fyrir árið 2023 | Laun og hlunnindi | Kaupaukar | Mótframlag í lífeyrissjóð | Fjöldi hluta beinn/óbeinn |
|---|---|---|---|---|
| Laun og hlunnindi stjórnar og framkvæmdastjórnar | ||||
| Jón Sigurðsson, formaður | 11,3 | 1,3 | 461,2 | |
| Sigrún Ragna Ólafsdóttir, varaformaður | 6,3 | 0,9 | 0,2 | |
| Arnar Þór Másson, stjórnarmaður | 5,9 | 0,7 | 0,0 | |
| Bjarni Þorvarðarson, stjórnarmaður | 6,3 | 0,9 | 0,0 | |
| Björk Viðarsdóttir, stjórnarmaður | 5,9 | 0,7 | 0,0 | |
| Orri Hauksson, forstjóri | 66,0 | 18,9 | 10,9 | 16,7 |
| Framkvæmdastjórar* | 176,0 | 35,8 | 26,4 | 2,6 |
| 277,7 | 54,7 | 41,8 | 480,7 |
*Framkvæmdastjórar innan móðurfélags, samtals 5 aðilar.
Lækkun á eignarhlutum stjórnar, forstjóra og framkvæmdastjóra milli ára skýrist af lækkun hlutafjár sem framvæmd var á árinu.
33. Þóknun til endurskoðenda
| Þóknun til endurskoðenda samstæðunnar sundurliðast þannig: | 2024 | 2023 |
|---|---|---|
| Endurskoðun ársreiknings og könnun ársreiknings | ||
| KPMG Íslandi | 21 | 18 |
| KPMG Danmörku | 0 | 1 |
| 21 | 19 | |
| Önnur þóknun til endurskoðunarfyrirtækja | ||
| KPMG Íslandi | 9 | 13 |
| 9 | 13 | |
| Þóknun til endurskoðenda samstæðunnar samtals | 30 | 32 |
Siminn hf. - Ársreikningar samstæðu 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
34. Atburðir eftir reikningsskiladag
Heimild Samkeppniseftirlitsins fyrir kaupum á lánasafni Rapyd Europe hf. fékkst þann 24. janúar 2025 og hefur ferli við yfirfærslu lána verið hafið. Engir atburðir hafa átt sér stað eftir lok reikningsskiladags sem höfðu áhrif á ársreikninginn.
35. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir
Reikningsskilaaðferðum sem er lýst hér á eftir hefur verið beitt með samræmdum hætti fyrir öll tímabil sem koma fram í ársreikningnum af öllum félögum í samstæðunni. Þeir reikningsskilastaðlar sem tóku gildi 1. janúar 2024 hafa ekki veruleg áhrif á reikningsskil félagsins.
Til að auka upplýsingagildi ársreikningsins eru skýringar við hann birtar á grundvelli þess hversu viðeigandi og mikilvægar þær eru fyrir lesandann. Það þýðir að upplýsingar sem metnar eru hvorki mikilvægar né viðeigandi fyrir notanda reikningsskilanna eru ekki birtar í skýringum.
35.1. Samstæða
Ársreikningur samstæðunnar tekur til ársreiknings móðurfélagsins og dótturfélaga þess. Dótturfélög eru þau félög þar sem samstæðan fer með yfirráð. Yfirráð grundvallast af því hvort fjárfestir hefur ákvörðunarvald yfir fjárfestingunni, ber áhættu eða hefur réttinn til að njóta breytilegs ávinnings vegna þátttóku í fjárfestingunni og getur með ákvörðunarvaldi haft áhrif á ávinning sinn af fjárfestingunni.
Rekstrarniðurstaða keyptra eða seldra dótturfélaga er meðtallin í samstæðurekstrarreikningi frá og með kaupdegi eða fram að söludegi eftir því sem við á. Ef við á eru gerðar leiðréttingar á reikningsskilum dótturfélaga til samræmis við reikningsskilaaðferðir samstæðunnar.
Meðal markmiða samstæðureikningsskilanna er að birta einungis tekjur, gjöld, eignir og skuldir samstæðunnar út á við og er því viðskiptum innan hennar eytt út við gerð reikningsskilanna.
35.2. Sameining félaga
Kaup á dótturfélögum eru færð samkvæmt kaupaðferð en í henni felst að eignir, skuldir og eiginfjárgerningar útgefnir af samstæðunni, sem látin eru í skiptum fyrir yfirráð í keyptu félagi, eru metnar til gangvirðis á kaupdegi. Viðskiptakostnaður tengdur kaupunum er færður í rekstrarreikningi á því tímabili sem hann fellur til.
Ef kaupin fela í sér óvissa greiðslu er eignin eða skuldin sem tengist kaupunum metin á gangvirði á kaupdegi og hluti kaupverðsins sem er umfram gangvirði eignarhluta samstæðunnar í eignum, skuldum og óvissum skuldum félaga á kaupdegi er færður sem viðskiptavild. Síðari breytingar á gangvirði slíkra eigna og skulda eru færðar til jöfnunar á kostnaði tengdum kaupunum þar sem þær uppfylla skilyrði um leiðréttingu á tímabilinu (sjá hér að neðan). Allar aðrar síðari breytingar á gangvirði óvissra eigna og skulda eru færðar í samræmi við viðeigandi IFRS staðal.
Matstímabilið er frá kaupdegi til þess dags er félagið hefur fengið fullnægjandi upplýsingar um aðstæður á kaupdegi, að hámarki 1 ár.
35.3. Viðskiptavild
Viðskiptavild sem myndast við sameiningu er færð til eignar þann dag sem félagið nær yfirráðum í keyptu félagi (á kaupdegi). Viðskiptavild er mismunur á kaupverði dótturfélags og hlutdeildar í hreinni eign þess eftir að eignir og skuldir hafa verið metnar til gangvirðis á kaupdegi. Viðskiptavildin er færð í starfsrækslugjaldmiðli keyptu einingarinnar og uppreiknuð miðað við uppgjörsgengi í lok uppgjörstímabils.
Viðskiptavild er ekki afskrifuð heldur metin árlega með tilliti til virðisrýrnunar eða oftar ef vísbending um virðisrýrnun er til staðar. Við framkvæmd virðisrýrnunarprófs er viðskiptavildinni skipt niður á fjárskapandi einingar. Þær fjárskapandi einingar sem viðskiptavildinni hefur verið úthlutað á eru prófaðar með tilliti til virðisrýrnunar og ef bókfært verð er hærra en virði þeirra hefur virðisrýrnun átt sér stað. Hafí virðisrýrnun átt sér stað er viðskiptavild fyrst færð niður og síðar aðrar eignir sem tilheyra viðkomandi fjárskapandi einingu. Óheimilt er að bakfæra áður færða virðisrýrnun viðskiptavildar á síðari tímabilum.
Við sölu á dótturfélagi er fjárhæð viðskiptavildar, sem rekja má til þess, reiknuð inn í söluhagnað eða sölutap sem birt er í rekstrarreikningi.
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
35. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:
35.4. Tekjur
Tekjur af sölu á vörum og þjónustu eru metnar á gangvirði greiðslunnar sem er móttekin eða er innheimtanleg, að frádregnum afsláttum og endurgreiðslum. Tekjur eru færðar í rekstrarreikning þegar félagið hefur uppfyllt samningsskyldu sína sem er yfirleitt við afhendingu, liklegt er að endurgjaldið verði innheimt og unnt er að meta kostnað vegna sölunnar og möguleg skil á vörum á áreiðanlegan hátt.
Megintekjuflokkar félagsins eru eftirfarandi: samtengingar- og reikitekjur, mánaðargjöld, stofngjöld, línuleigur, útseld vinna, auglýsingar í sjónvarpi og notendabúnaður.
Mánaðargjöld eru tekjufærð miðað við áskriftartímabil en tekjur vegna umferðar eru færðar miðað við raunverulega notkun viðskiptavina. Tekjum vegna fyrirframgreiddrar þjónustu er frestað þar til viðskiptavinur nýtir þá þjónustu sem hann hefur greitt fyrir.
Tekjur af vörusölu eru færðar í rekstrarreikning þegar verulegur hluti áhættu og eignarhalds flyst til kaupanda.
Auglýsingatekjur í sjónvarpi eru færðar í rekstrarreikning þegar auglýsingar eru birtar. Tekjufærsla þeirra er gerð við fyrstu sýningu þrátt fyrir að sama auglýsing geti verið birt oftar en einu sinni vegna endursýninga á sjónvarpsbáttum. Sama regla gildir um kostun einstakra sjónvarpsbátta.
Tekjur af veittri þjónustu eru færðar í rekstrarreikning í hlutfalli við stöðu verks á uppgjörsdegi. Staða verks er metin með hliðsjón af vinnu sem lokið er.
35.5. Erlendir gjaldmiðlar
Ársreikningar félaga innan samstæðunnar eru gerðir í þeim gjaldmiðli sem stærstur hluti starfseminnar heyrir undir, þ.e. starfsrækslugjaldmiðli. Við gerð ársreiknings samstæðu eru ársreikningar erlendra dótturfélaga umreiknaðir í íslenskar krónur sem er starfsrækslugjaldmiðill og framsetningargjaldmiðill móðurfélagsins.
Við gerð reikningsskila hvers félags innan samstæðunnar eru viðskipti í öðrum gjaldmiðlum en starfsrækslugjaldmiðli færð á gengi hvers viðskiptadags. Peningalegar eignir og skuldir eru færðar miðað við skráð gengi á reikningsskiladegi. Efnislegar eignir og skuldir metnar á kostnaðarverði eru færðar á upphaflægu skráðu gengi.
Við gerð samstæðuársreiknings eru eignir og skuldir erlendra félaga umreiknaðar á skráðu gengi reikningsskiladags. Tekjur og gjöld eru umreiknuð á meðalgengi ársins.
Við sölu erlendrar rekstrareiningar er uppsafnaður gengismunur tengdur rekstrareiningunni í samstæðunni færður af eigin fé í rekstrarreikning. Þýðingarmunur sem búið var að ráðstafa til minnihluta er bakfærður en ekki gjaldfærður í rekstrarreikning.
Viðskiptavild og gangvirðisbreytingar vegna kaupa á erlendri starfsemi eru færðar á skráðu gengi reikningsskiladags.
35.6. Skattamál
Gjaldfærður tekjuskattur samanstendur af tekjuskatti til greiðslu og frestuðum tekjuskatti.
Tekjuskattur til greiðslu
Tekjuskattur til greiðslu er tekjuskattur sem áætlað er að komi til greiðslu á næsta ári vegna skattskylds hagnaðar ársins auk leiðréttinga á tekjuskatti til greiðslu vegna fyrri ára. Skattskyldur hagnaður getur verið annar en reikningshaldslegur hagnaður. Reiknaður tekjuskattur miðast við gildandi skatthlutfall á reikningsskiladegi á hverju skattasvæði.
Frestaður tekjuskattur
Frestaður tekjuskattur stafar af tímabundnum mismuni efnahagsliða í skattuppgöri annars vegar og ársreikningi hins vegar þar sem tekjuskattstofn félagsins er miðaður við aðrar forsendur en reikningsskil þess. Tekjuskattsskuldbinding er uppreiknuð fyrir allan tímabundinn mismun. Tekjuskattseign er uppreiknuð að því marki sem metið er að nýtist á móti skattskyldum hagnaði í framtiðinni. Frestaður tekjuskattur er ekki færður vegna viðskiptavildar sem ekki er skattalega frádráttarbær.
Frestaður tekjuskattur miðast við gildandi skatthlutfall á reikningsskiladegi.
Siminn hf. - Ársreikningar samstæðu 2024
34
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
35. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:
35.6. Skattamál, frh.:
Tekjuskattseign og tekjuskattsskuldbindingu er jafnað saman innan samstæðunnar þegar lagalegur réttur er til þess, þau varða tekjuskatt sem lagður er á af sömu yfirvöldum á sama fyrirtæki eða mismunandi fyrirtæki sem eru samsköttuð og gert er ráð fyrir að muni greiða skatta sameiginlega.
Skattar tímabilsins
Frestaður skattur er gjaldfærður í rekstrarreikningi nema þegar hann tengist liðum meðal eigin fjár en þá er hann færður meðal eigin fjár.
35.7. Hagnaður á hlut
Í ársreikningnum er sýndur grunnhagnaður á hlut og þynntur hagnaður á hlut fyrir almenna hluti í félaginu. Grunnhagnaður á hlut er reiknaður sem hlutfall hagnaðar, sem ráðstafað er til hluthafa í móðurfélaginu, og vegins meðalfjölda virkra hluta á árinu. Þynntur hagnaður á hlut er reiknaður með því að leiðréttá meðalfjölda virkra hluta vegna mögulegrar þynningar vegna hluta sem gæti þurft að gefa út í samræmi við kaupréttarsamninga starfsmanna.
35.8. Rekstrarfjármunir
Eignir eru skráðar meðal rekstrarfjármuna þegar líklegt er að hagrænn ávinningur tengdur eigninni muni nýtast samstæðunni og hægt er að meta kostnað vegna eignarinnar með áreiðanlegum hætti.
Rekstrarfjármunir eru færðir á upphaflegu kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun.
Afskriftir eru færðar á kerfisbundinn hátt á áæltluðum nýtingartíma eignarinnar að teknu tilliti til vænts hrakvirðis. Afskriftaraðferð, áæltaður nýtingartími og hrakvirði er endurmetið að minnsta kosti árlega.
Hagnaður eða tap vegna sölu rekstrarfjármuna er mismunur söluverðs og bókfærðs verðs eigna á söludegi og er fært í rekstrarreikning.
35.9. Óefnislegar eignir
Keyptar óefnislegar eignir
Óefnislegar eignir eru færðar á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun. Afskriftir eru færðar á kerfisbundinn hátt á áæltluðum nýtingartíma eignarinnar. Áæltaður nýtingartími er endurmetinn í lok hvers reikningsskilatímabils.
Óefnislegar eignir sem myndast við sameiningu félaga
Óefnislegar eignir sem myndast í reikningsskilum við sameiningu félaga eru aðeins færðar ef þær eru aðgreinanlegar frá viðskiptavild. Við upphaflega skráningu eru þær færðar á kostnaðarverði á kaupdegi en við síðara mat eru þær færðar á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun.
35.10. Virðisrýrnun af öðrum eignum en viðskiptavild
Á reikningsskiladegi er bókfært verð efnislegra og óefnislegra eigna yfirfarið í þeim tilgangi að kanna hvort vísbending sé um virðisrýrnun. Sé slík vísbending til staðar er endurheimtanlegt virði eignarinnar metið. Endurheimtanlegt virði fjárskapandi einingar sem eignin fellur undir er metið þegar ekki er hægt að meta endurheimtanlegt virði einstakra eigna.
Óefnislegar eignir sem hafa óendanlegan líftíma eru yfirfarnar í þeim tilgangi að kanna hvort vísbending sé um virðisrýrnun.
Endurheimtanlegt virði er annað hvort gangvirði að frádregnum áæltluðum sölukostnaði eða nýtingarvirði eignar, hvort sem hærra reynist. Nýtingarvirði er áæltað framtiðarfjárstreymi sem er núvirt með vöxtum fyrir skatta þar sem vextirnir endurspegla mat markaðarins á tímavirði peninga hverju sinni og þá áhættu sem fylgir eigninni.
Sé endurheimtanlegt virði eignar metið lægra en bókfært verð er virði hennar fært niður í endurheimtanlegt virði. Tap vegna virðisrýrnunar er fært í rekstrarreikning en hafi eignin verið endurmetin kemur virðisrýrnunin fyrst til lækkunar á áður færðu endurmati.
Ef tap vegna virðisrýrnunar snýst við er bókfært verð eignarinnar hækkað aftur en þó aldrei umfram bókfært verð fyrir virðisrýrnun að teknu tilliti til afskrifta. Bakfærsla virðisrýrnunar færist í rekstrarreikning nema viðkomandi eign hafi áður verið endurmetin, en þá er hækkunin færð sem endurmatshækkun.
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
35. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:
35.11. Birgðir
Birgðir eru metnar á kostnaðarverði eða söluverði hvort sem lægra reynist, að teknu tilliti til úreltra og gallaðra vara. Kostnaðarverð birgða samanstendur af kostnaði við öflun þeirra ásamt öðrum kostnaði sem fellur til við að koma birgðunum í söluhæft ástand. Söluverð er áætlað söluverð að frádregnum áætluðum sölukostnaði.
35.12. Skuldbindingar
Skuldbinding er færð þegar samstæðan ber lagalega eða liklega greiðsluskyldu vegna liðinna atburða og hægt er að meta fjárhæð hennar með áreiðanlegum hætti. Fjárhæð skuldbindingar er byggð á besta mögulega mati á skuldinni sem er fyrirliggjandi á reikningsskiladegi. Ef skuldbindingin er metin út frá áætluðu framtiðarsjóðstregmi er skuldbinding færð miðað við núvirt áætlað sjóðstregmi.
Þegar virði skuldbindingarinnar er endurheimtanlegt frá þriðja aðila er fjárhæð hennar færð til eignar.
35.13. Fjáreignir
Fjáreignir eru flokkaðar á afskrifuðu kostnaðarverði. Flokkunin er ákveðin við upphaflega skráningu og fer eftir eðli og tilgangi fjáreignarinnar. Öll almenn viðskipti með fjáreignir eru skráð á viðskiptadegi. Með almennum viðskiptum er átt við kaup og sölu fjáreigna sem grundvallast af samningi eða markaðsvenjum um afhendingu eða móttóku fjáreigna innan tiltekins tíma.
Vaxtatekjur eru færðar miðað við virka vexti fyrir alla fjármálagerninga. Aðferð virkra vaxta felst í því að reiknað er endurgreiðsluvirði fjáreignar eða fjárskuldar og vaxtatekjum og vaxtagjöldum jafnað á líftímanum. Virkir vextir er sú ávóxtunarkrafa sem núvirðir áætlað sjóðstregmi eða tekjur yfir áætlaðan líftíma fjármálagernings, eða yfir styttra tímabil ef við á, þannig að það jafngildi bókfærðri fjárhæð fjáreignarinnar eða fjárskuldarinnar í efnahagsreikningi.
Vaxtatekjur eru færðar miðað við virka vexti fyrir alla fjármálagerninga aðra en þá sem skilgreindir eru sem fjáreignir á gangvirði í gegnum rekstrarreikning.
Fjáreignir færðar á afskrifuðu kostnaðarverði
Fjáreignir á afskrifuðu kostnaðarverði eru fjáreignir með föstum eða ákvarðanlegum greiðslum sem ekki eru skráðar á virkum markaði. Slikar eignir eru í upphafi færðar á gangvirði að viðbættum öllum tengdum viðskiptakostnaði, nema gerningurinn sé skilgreindur á gangvirði í gegnum rekstrarreikning í samræmi við gangvirðisheimildina. Eftir upphaflega skráningu eru fjáreignir færðar á afskrifuðu kostnaðarverði miðað við virka vexti, að frádreginni virðisrýrnun þegar við á. Fjáreignir samanstanda af handbæru fé, verðbréfaeign, samningum, útlánum, viðskiptakröfum og öðrum kröfum.
Virðisrýrnun fjáreigna
Á reikningsskiladegi er bókfært verð fjáreigna metið í þeim tilgangi að kanna hvort vísbending sé um virðisrýrnun. Virðisrýrnun hefur orðið ef vænt framtiðarsjóðstregmi miðað við upphaflega virka vexti er lægra en bókfært verð. Ef virðisrýrnun á ekki lengur við er hún bakfærð í rekstrarreikningi, þó aldrei umfram bókfært verð fyrir virðisrýrnun að teknu tilliti til afskrifta. Ákveðin tegund fjáreigna eins og viðskiptakröfur eru færðar á nafnverði að teknu tilliti til niðurfærslu. Niðurfærslan er ekki endanleg afskrift heldur er myndáður mótreikningur til að mæta hugsanlegu tapi sem kann að myndast í framtiðinni. Eignasafn fjáreigna er metið til virðisrýrnunar ef einstakar eignir eru þess eðlis að þær verði ekki metnar hver fyrir sig.
Afskráning fjáreigna
Félagið afskráir fjáreignir aðeins þegar samningsbundinn réttur til framtiðarsjóðstregmis af fjáreigninni er ekki lengur til staðar eða þegar áhættan eða ávinningurinn af fjáreigninni flyst yfir á annað félag.
35.14. Fjárskuldir
Fjárskuldir
Fjárskuldir eru flokkaðar sem aðrar fjárskuldir.
Aðrar fjárskuldir
Aðrar fjárskuldir, þar á meðal skuldir við fjármálastofnanir, viðskiptaskuldir og aðrar fjárskuldir eru upphaflega skráðar á gangvirði að frádregnum viðskiptakostnaði. Við síðara mat eru þær færðar á afskrifuðu kostnaðarverði miðað við aðferð virkra vaxta.
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
35. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:
35.14. Fjárskuldir, frh.:
Afskráning fjárskulda
Félagið afskráir fjárskuldir eingöngu þegar skuldbinding vegna þeirra er ekki lengur til staðar. Hagnaður eða tap vegna afskráningar er fært í rekstrarreikning.
35.15. Leigusamningar
Við upphaf samnings leggur félagið mat á það hvort samningur eða hluti hans feli í sér leigusamning. Samningur er leigusamningur að hluta eða heild ef hann felur í sér afnotarétt yfir eign á tilteknu tímabili í skiptum fyrir endurgjald. Við mat á því hvort leigusamningur felur í sér afnotarétt yfir eign notar félagið skilgreiningu leigusamnings í IFRS 16.
35.15.1. Félagið sem leigutaki
Við upphaf eða breytingu á samningi sem felur í sér leiguhluta úthlutar félagið endurgjaldinu á sérhvern leiguhluta á grundvelli sjálfstæðs verðs hvers hlutar fyrir sig. Fyrir leigusamninga um fasteignir hefur félagið hins vegar kosið að aðgreina ekki leiguhluta frá öðrum hlutum samningsins og færir þá sem einn leigusamning.
Félagið færir leigueign og leiguskuld við upphaf leigusamnings. Leigueignin er upphaflega færð á kostnaðarverði, sem er upphafleg fjárhæð leiguskuldarinnar að teknu tilliti til leigugreiðslna sem hafa fallið til fyrir eða á upphafsdegi samningsins, beins kostnaðar við öflun leigueignarinnar og áætlaðs kostnaðar við að taka niður og fjarlægja eignina, eða til þess að færa eignina eða umhverfi hennar í samt horf að loknum leigusamningi, og að frádregnum leiguilvilnunum sem félagið hefur fengið.
Leigueignin er afskrifuð línulega frá upphafi til loka leigusamningsins, nema þegar eignarhald flyst yfir til félagsins í lok leigutímabilins eða ef kostnaðarverð leigueignarinnar endurspeglar að félagið muni nýta sér kauprétt í lok leigutímabilins. Í þeim tilfellum er leigueignin afskrifuð á nýtingartíma eignarinnar, sem er ákvarðaður með sömu aðferð og notuð er fyrir aðra fastafjármuni félagsins. Jafnframt er virði leigueignar lækkað reglubundið um sem nemur virðisrýrnun hennar, ef einhver er, og leiðrétt vegna endurmats leiguskuldarinnar.
Leiguskuld er upphaflega færð við núvirði ógreiddra leigugreiðslna á upphafsdegi leigusamningsins. Greiðslurnar eru núvirtar með því að nota innbyggða vexti leigusamningsins, séu þeir tiltækir, en annars notar félagið þá vexti sem það fær af nýju lánsfé. Að jafnaði notar félagið vexti á nýju lánsfé til núvirðingar.
Félagið ákvarðar vexti af nýju lánsfé með því að sækja vaxtauppfýsingar vegna ólikra fjármögnunarleiða og gerir tilteknar aðlaganir til að endurspegla skilmála leigusamningsins og eiginleika eignarinnar sem er leigð.
Leigugreiðslur sem eru innfaldar í ákvörðun fjárhæðar leiguskuldar fela í sér eftirfarandi:
- Fastar greiðslur, þar með taldar leigugreiðslur sem eru samkvæmt eðli sínu fastar;
- Breytilegar leigugreiðslur tengdar vöxtum eða vísitölu, upphaflega áætlaðar miðað við vexti eða vísitölu á upphafsdegi;
- Fjárhæðir sem gert er ráð fyrir að þurfi að greiða samkvæmt hrakvirðistryggingu; og
- Kaupverð samkvæmt kaupréttarákvæði í leigusamningi þegar félagið telur nokkuð víst að það muni nýta kaupréttinn, leigugreiðslur á valkvæðum framlengingartímabilum ef félagið er nokkuð viss um að það muni nýta framlengingarheimildir og greiðslur vegna uppsagnar leigusamnings fyrir lok leigutímans, nema félagið sé nokkuð viss um að nýta ekki uppsagnarheimildir.
Leiguskuldin er færð á afskrifuðu kostnaðarverði með því að nota aðferð virkra vaxta. Hún er endurmetin þegar breyting verður á framtíðarleigugreiðslum vegna breytinga á vísitölu eða vöxtum, ef breyting verður á mati félagsins á fjárhæð sem það væntir að verði greidd samkvæmt hrakvirðistryggingu, ef félagið breytir mati sínu á því hvort það muni nýta kaupréttarákvæði, heimildir til framlengingar eða uppsagnar leigusamnings eða þegar breyting verður á fjárhæð leigugreiðslu sem er í eðli sínu föst.
Þegar leiguskuldin er endurmetin með þessum hætti er samsvarandi leiðrétting gerð á bókéfærðu verði leigueignarinnar eða leiðrétting færð í rekstrarreikning félagsins ef bókéfærð virði leigueignarinnar hefur verið fært niður í núll.
Skammtímaleigusamningar og leigusamningar um lágvirðiseignir
Félagið kýs að færa ekki leigueignir og leiguskuldir vegna leigusamninga um lágvirðiseignir og skammtímaleigusamninga. Félagið gjaldfærir leigugreiðslur vegna þessara leigusamninga línulega á leigutíma.
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
36. Nýir reikningsskilastaðlar sem ekki hafa tekið gildi
Nokkrir nýir albjóðlegir reikningsskilastaðlar gilda um fjárhagsár sem hefjast eftir 1. janúar 2024 og heimilt er að beita fyrir gildistöku þeirra. Félagið hefur ekki innleitt nýja eða breytta reikningsskilastaðla fyrir gildistíma við gerð samstæðuársreikningsins.
Ekki er búist við að eftirfarandi nýir og breyttir reikningsskilastaðlar hafi veruleg áhrif á reikningsskil félagsins.
- Skortur á skiptanleika gjaldmiðla (Breytingar á IAS 21)
- Flokkun og mat fjármálagerninga (Breytingar á IFRS 9 og IFRS 7)
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
38
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Stjórnárháttayfirlýsing
Umgjörð um stjórnarhætti
Stjórnarhættir hjá Símanum eru skilgreindir sem umgjörð utan um umsýslu og stjórnun fyrirtækisins og tæki til samskipta milli stjórnenda fyrirtækisins, félagsstjórnar, hluthafa og annarra hagsmunaaðila.
Stjórnarhættir Símans eru markaðir af lögum nr. 2/1995 um hlutafélög, samþykktum félagsins, starfsreglum stjórnar og síðareglum félagsins.
Stjórnarhættirnir fylgja leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja sem gefnar eru út af Viðskiptaráði Íslands, Nasdaq OMX Iceland hf. og Samtökum atvinnulifsins, 6. útgáfa 2021. Félagið hefur ekki sett sér stefnu um fjölbreytileika enn sem komið er. Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja má m.a. finna á vefsíðu Viðskiptaráðs Íslands, www.vi.is.
Hluthafafundur
Æðsta vald í málefnum félagsins er í höndum hluthafa þess. Aðalfund félagsins skal halda fyrir lok maí ár hvert. Hlutabréf félagsins eru rafræn og skráð hjá Verðbréfaskráningu Íslands, sem jafnframt hýsir hlutaskrána. Hlutaskráin er aðgengileg hluthöfum á skrifstofu félagsins.
Samþykktir
Samþykktir eru hluti af stofnskjólum hlutafélaga. Samþykktir Símans geyma m.a. reglur um tilgang félagsins, hlutafé, hluthafafundi, stjórn, ársreikninga og endurskoðun.
Stjórn félagsins
Stjórn félagsins skipa Jón Sigurðsson formaður, Sigrún Ragna Ólafsdóttir varaformaður stjórnar, Arnar Þór Måsson, Bjarni Þorvarðarson og Valgerður Halldórsdóttir.
Jón Sigurðsson er fæddur 1978, hann var fyrst kosinn í stjórn félagsins 21. nóvember 2019. Jón er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og er forstjóri Stoða hf., en Stoðir eiga 17,40% hlutafjár í Símanum. Jón er stjórnarformaður S121 ehf., og situr í stjórn First Water hf., Bláa Lónsins hf., Blue Lagoon Skincare ehf., Sökla eignarhaldsfélags ehf., Bjarg Invest ehf., S380 ehf., Straumnes ehf., Straumnes eignarhaldsfélags ehf., Straumnes Ráðgjafar ehf., Square ehf. og S120 ehf.
Sigrún Ragna Ólafsdóttir er fædd 1963, hún var fyrst kosin í stjórn félagsins 11. mars 2021. Sigrún Ragna er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands 1987, fékk löggildingu sem endurskoðandi árið 1990 og lauk MBA námi frá Háskólanum í Reykjavík 2007. Sigrún Ragna er sjálfstætt starfandi ráðgjafi með viðtæka stjórnunarreynslu. Hún er stjórnarformaður Stefnis hf., í stjórn Heklu hf. og Heklu fasteigna ehf. auk þess sem hún er formaður tilnefningarnefndar Festi hf. og situr í tilnefningarnefnd Eikar hf.
Bjarni Þorvarðarson er fæddur 1966, hann var fyrst kosinn í stjórn félagsins 21. mars 2019. Bjarni lauk B.Sc. prófi í rafmagnsverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1989 og síðar meistaragráðum í rafmagnsverkfræði frá University of Wisconsin, Madison, 1991, í alþjóðaviðskiptum frá ISG í París 1993 og fjármálafræðum frá London Business School árið 1998. Bjarni er stjórnarformaður Eikar fasteignafélags hf., Coripharma ehf., Coripharma Holding hf., Matorku ehf. og Stakrar Gulrótar ehf., og er í stjórn BKP Invest ehf. og Inning ehf.
Arnar Måsson er fæddur 1971, hann var fyrst kosinn í stjórn félagsins 11. mars 2021. Arnar er með BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands, meistaragráðu í stjórnmálafræði frá London School of Economics and Political Science. Arnar er með Diploma fyrir stjórnarmann (Board of Directors Diploma) frá International Institute for Management Development (ImD), Lausanne, Sviss. Arnar er sjálfstætt starfandi ráðgjafi og stjórnarmaður. Arnar er í stjórn JBT Marel og Íslandshótela og er fulltrúi í Háskólaráði Háskóla Íslands.
Valgerður Halldórsdóttir er fædd 1985, hún var fyrst kosin í stjórn félagsins 14. mars 2024. Hún er með BSc gráðu í íðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Hún er meðstofnandi og rekstrarstjóri (Chief Operating Officer) hugbúnaðarfyrirtækisins Rocky Road. Valgerður er í stjórn Símans Pay ehf. og Noona Iceland ehf.
Allir stjórnarmenn félagsins fyrir utan Jón Sigurðsson teljast vera óháðir félaginu, viðskiptaaðilum, samkeppnisaðilum og stórum hluthöfum. Jón Sigurðsson er óháður félaginu, viðskiptaaðilum og samkeppnisaðilum, en ekki óháður stórum hluthöfum í félaginu.
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
39
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Stjórnarháttayfirlýsing
Stjórn félagsins, frh.:
Af samsetningu stjórnar má sjá að Síminn uppfyllir skilyrði hlutafélagalaga um kynjakvóta. Stjórn telur að samsetning hennar hafi samræmst starfsemi og stefnu félagsins þannig að henni var kleift að sinna málefnum félagsins af skilvirkni og heilindum. Bakgrunnur og menntun stjórnarmanna er fjölbreytt. Eignarhlut stjórnarmanna í Símanum má sjá í skýringu 32. Stjórn fer með æðsta vald í málefnum félagsins á milli hluthafafunda með þeim takmörkunum sem leiða af lögum, samþykktum félagsins og starfsreglum stjórnar. Stjórnarformaður hefur tilteknu hlutverki að gegna sem mælt er fyrir um í starfsreglum stjórnar Símans og gert er ráð fyrir að hann sinni í samræmi við leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja.
Núgildandi starfsreglur stjórnar voru samþykktar á stjórnarfundi 23. apríl 2024 og eru þær aðgengilegar á vef félagsins, www.siminn.is.
Alls voru haldnir 20 stjórnarfundir árið 2024 og mætti meirihluti stjórnar á alla fundi og tóku allir stjórnarmenn virkan þátt í störfum stjórnarinnar. Stjórn fór yfir það hvernig henni tókst að uppfylla fjárhags- og starfsáætlun fyrir liðið starfsár.
Undirnefndir Símans
Hjá Símanum starfa tvær undirnefndir stjórnar, endurskoðunarnefnd og starfskjaranefnd. Tilnefningarnefnd er kosin af hluthöfum á aðalfundi.
Endurskoðunarnefnd
Hlutverk endurskoðunarnefndar er að hafa eftirlit með vinnuferli við gerð reikningsskila, hafa eftirlit með fyrirkomulagi og virkni innra eftirlits og áhættustýringu félagsins, hafa eftirlit með endurskoðun samstæðureikninga og yfirfara áður en þeir eru lagðir fyrir stjórn til samþykktar. Jafnframt er hlutverk Endurskoðunarnefndar að hafa eftirlit með störfum endurskoðanda og endurskoðunarfyrirtækis ásamt því að gera tillögu um val á ytri endurskoðanda og meta óhæði hans. Endurskoðunarnefnd yfirfer á hverju ári áhættustefnu Símans og gerir athugasemdir til stjórnar ef þörf þykir. Endurskoðunarnefnd leggur mat á þörf þess að hafa innri endurskoðun að störfum fyrir félagið. Hlutverk Endurskoðunarnefndar nær til þeirra verkefna sem kveðið er á um í Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja, sem gefnar eru út af Viðskiptaráði, Kauphöllinni (OMX) og Samtökum atvinnulifsins. Endurskoðunarnefnd er skipuð þremur nefndarmönnum að lágmarki. Nefndarmenn skulu búa yfir þeirri reynslu og þekkingu sem nauðsynleg er til þess að gegna störfum sínum.
Endurskoðunarnefnd skipa Sigrún Ragna Ólafsdóttir formaður, Arnar Þór Másson og Bjarni Þorvarðarson. Endurskoðunarnefnd hélt 6 fundi árið 2024 og meirihluti nefndarinnar mætti á alla fundi. Endurskoðunarnefnd boðar endurskoðendur félagsins á fundi þegar tilefni er til, auk þess sem þeir mæta á stjórnarfundi vegna ársreiknings.
Starfsreglur endurskoðunarnefndar voru staðfestar af stjórn þann 23. apríl 2024 og má nálgast á heimasiðu félagsins, www.siminn.is.
Starfskjaranefnd
Hlutverk starfskjaranefndar er að tryggja að starfskjör yfirstjórnenda taki mið af afkomu fyrirtækisins til langs tíma, frammistóðu þeirra sjálfra og hagsmunum hluthafa. Forstjóri er ábyrgur fyrir starfskjörum annarra og ber honum að tryggja að starfskjör séu ávallt í samræmi við stefnu starfskjaranefndar. Stefna starfskjaranefndar er að tryggja að félaginu sé jafnan kleift að laða til sín og halda í starfi hæfum stjórnendum. Í þessu skyni ber nefndinni að ráðfæra sig við ytri ráðgjafa um starfskjör í sambærilegum fyrirtækjum þegar þörf krefur. Hlutverki nefndarinnar er ætlað að ná til þeirra verkefna sem kveðið er á um í Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja, 6. útgáfa 2021.
Starfskjaranefnd skipa Jón Sigurðsson formaður, Arnar Þór Másson og Valgerður Halldórsdóttir. Starfskjaranefnd hélt 4 fundi árið 2024 og mætti meirihluti nefndarinnar á alla fundina.
Núgildandi starfskjarastefna var samþykkt á aðalfundi félagsins 2024. Starfsreglur starfskjaranefndar voru staðfestar af stjórn þann 23. apríl 2024. Starfskjarastefnu félagsins og starfsreglur starfskjaranefndar má nálgast á heimasiðu félagsins, www.siminn.is
Tilnefningarnefnd
Tilgangur tilnefningarnefndar félagsins að huga að hagsmunum allra hluthafa og tilnefna frambjóðendur í stjórn félagsins. Tilnefningarnefnd fer yfir þekkingu og reynslu stjórnar sem heild og í framhaldi metur frambjóðendur út frá þekkingu og reynslu og hvort þeir geti sinnt skyldum sínum samkvæmt samþykktum félagsins, lögum um hlutafélög nr. 2/1995, auk annarra laga og reglugerða sem gilda um félagið. Ekki er sjálfgefið að breyta þurfi samsetningu stjórnar á hverjum tíma en slíkt er háð aðstæðum hverju sinni, virkni núverandi stjórnar og vilja núverandi stjórnarmanna til áframhaldandi stjórnarsetu. Tilnefningarnefnd er kosin af hluthöfum á aðalfundi. Tilnefningarnefndina skipa Jensína K. Böðvarsdóttir formaður, Steinunn K. Þórðardóttir og Eyjólfur Árni Rafnsson. Starfsreglur tilnefningarnefndar voru staðfestar á aðalfundi Símans þann 10. mars 2020 og má nálgast á heimasiðu félagsins, www.siminn.is.
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
40
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Stjórnarháttayfirlýsing
Regluvörður
Regluvörður er Eiríkur Hauksson sem er skipaður af stjórn. Regluvörður hefur umsjón með að reglum um innherjaupplysingar og viðskipti innhérja sé fylgt.
Árangursmat stjórnar
Ný stjórn var kosin á aðalfundi þann 14. mars 2024 og var árangursmat stjórnar framkvæmt í desember 2024. Helstu þættir sem lagt var mat á voru: upplysingagjóf, stefnumótun og framtiðarsýn, áhættustjórnun, störf stjórnarmanna og forstjóra. Einnig var lagt mat á starfsemi undirnefnda.
Samskipti hluthafa og stjórnar
Samskipti stjórnar við hluthafa eiga að einkennast af hreinskilni og vera skýr og samræmd. Beini hluthafar fyrirspurnum til stjórnar félagsins skal stjórn vera tilkynnt um þær og hafa yfirumsjón með viðbrögðum félagsins við þeim.
Framkvæmdastjórn Símans
María Björk Einarsdóttir, forstjóri
Forstjóri Símans er María Björk Einarsdóttir, fædd árið 1989. María hefur starfað sem forstjóri Símans síðan frá því í september 2024. Á árunum 2021-2024 starfaði hún sem fjármálastjóri Eimskips og þar áður var hún framkvæmdastjóri Ölmu íbúðafélags (áður Almenna leigufélagið) um sjó ára bil og leiddi uppbyggingu, fjármögnun og loks sölu félagsins til nýrra eigenda árið 2021. Áður starfaði María í fjármálageiranum sem sérfræðingur á sviði sérhæfðra fjárfestinga. María hefur setið í stjórn fasteignafélagsins Kaldalóns frá árinu 2023. María er með B.Sc. gráðu í rekstrarverkfræði, með áherslu á fjármál, frá Háskólanum í Reykjavík og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Forstjóri annast daglegan rekstur félagsins og skal í þeim efnum fara eftir þeirri stefnu og fyrirmælum sem stjórn hefur gefið. Forstjóri skal ávallt starfa af heilindum með hagsmuni félagsins að leiðarljósi. María Björk á kauprétt að 11.250.000 hlutum í félaginu.
Aðrir í framkvæmdastjórn:
Óskar Hauksson, framkvæmdastjóri fjármála
Berglind Björg Harðardóttir, framkvæmdastjóri einstaklingssviðs
Logi Karlsson, framkvæmdatjóri tækniþróunar
Birkir Ágústsson, framkvæmdastjóri miðla
Vésteinn Gauti Hauksson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs
Framkvæmdastjórn ber ábyrgð á daglegum rekstri félagsins og fylgni við rekstraráætlanir. Samtals eiga aðilar framkvæmdastjórnar aðrir en forstjóri kauprétti að 30 milljónum hluta í félaginu.
Innra eftirlit og áhættustýring
Áhættustefna félagsins var staðfest 27. ágúst 2024. Stefna félagsins um áhættustýringu hefur þann tilgang að viðhalda yfirsýn og viðeigandi stýringu áhættu í starfsemi Símans og dótturfélaga. Hjá hverju félagi innan samstæðunnar skal starfa öryggisráð eða sambærilegur vettvangur sem sér til þess að stefnunni sé framfylgt og að starfrækt sé stjórnskipulag áhættustýringar og samræmt áhættustýringarferli sem hentar umfangi viðkomandi fyrirtækis. Fyrirtækin skulu greina og meðhöndla áhættu í starfsemi sinni með reglubundnu áhættumati, markvissu eftirliti og aðgerðum. Stjórn og stjórnendur stýra áhættu félagsins í samræmi við áhættuvilja félagsins sem inniheldur áhættumörk sem félagið vill halda sig innan.
Til að tryggja að reikningsskil félagsins séu í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla hefur félagið lagt áherslu á vel skilgreind ábyrgðarsvið, eðlilega aðgreiningu starfa, ásamt reglulegri skýrslugjóf. Félagið útbýr mánaðarlega skýrslur þar sem einstakar rekstrareiningar eru yfirfarnar og er mikilvægur þáttur í eftirliti með afkomu og öðrum lykilþáttum starfseminnar. Mánaðarleg uppgjör eru unnin og lögð fyrir stjórn félagsins. Til staðar eru verklagsreglur til að tryggja eftirlit með tekjuskráningu, rekstrarkostnaði ásamt fleiri liðum sem hafa áhrif á rekstur félagsins.
Upplysingar um brott á reglum sem viðeigandi eftirlits- og/eða úrskurðaraðili hefur ákvarðað
Fjármálaeftirlitsnefnd Seðlabanka Íslands tók ákvörðun um að leggja stjórnvaldssekt að fjárhæð 76,5 m.kr. á Símann vegna þess að Síminn hafi ekki birt eins fljótt og auðið var, innherjaupplysingar um sölu Milu þann 31. ágúst 2023. Að mati Símans voru ekki til staðar neinar innherjaupplysingar á þeim tíma umfram það sem áður hafði verið birt, enda hafi engin bindandi tilboð borist á þeim tíma. Héraðsdómur staðfesti niðurstöðu Fjármálaeftirlitsins og hefur málinu verið áfrýjað til Landsréttar.
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
41
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Stjórnarháttayfirlýsing
Gildi félagsins
Gildi Símans eru: Skapandi, fagleg og árangursdrifin.
Samfélagsleg ábyrgð
Síminn er einn af stofnfélögum í Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð. Félagið hefur sett fram sjálbærnistefnu þar sem áherslur félagsins í umhverfis, félagslegum og stjórnarháttum er lagðar. Það er stefna Símans að huga að sjálfærni í hvívetna og tryggja að markmið séu mælanleg og að væntingar til árangurs í sjálfærni séu skýr fyrir starfsfólki Símans, viðskiptavinum, birgjum, hluthófum og öðrum haghófum. Unnið er í samræmi við þessar áherslur á grundvelli tíu viðmiða UN Global Compact og UFS viðmiða. Gerð er árleg framvinduskýrsla um aðgerðir og árangur í sjálfærni.
Síðareglur
Félagið vinnur eftir síðareglum sem síðast voru endurskoðaðar og samþykktar 2. ágúst 2022.
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
42
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Ófjárhagslegar upplysingar
Viðskiptalíkan
Sögu Símans hf. má rekja til ársins 1906 og hefur félagið allar götur síðan verið grunnstoð í fjarskiptabjónustu á Íslandi. Síminn býður fyrirtækjum, einstaklingum og opinberum aðilum upp á breitt framboð öruggra fjarskiptalausna sem uppfylla nýjustu kröfur hverju sinni. Þá hefur dótturfélagið Radíómiðun um árabil verið leiðandi í þróun fjarskiptalausna fyrir sjávarútveg og sérhæfðra lausna á sviði hlutaneta (e. IoT) fyrir aðrar atvinnugreinar, til að mynda fiskeldi, iðnað og flutninga.
Miðlun afþreyingarefnis og auglýsinga er annar mikilvægur þáttur í starfsemi félagsins og hefur efnisveitan Sjónvarp Símans Premium vaxið hratt á undanförnum árum. Vinsældir veitunnar má rekja til hágæða dagskrárgerðar, þar sem vönduð íslensk dagskrárgerð og mikið úrval af vinsælu erlendu efni kemur saman. Vegna vinsælda veitunnar, hefur sjónvarpsbjónusta Símans fest sig í sessi sem mikilvægur auglýsingamiðill á innlendum markaði. Með tilkomu dótturfélagsins Billboard, sem bættist við samstæðuna árið 2024, hefur staða félagsins á auglýsingamarkaði styrkt enn frekar, en Billboard hefur um langt skeið verið leiðandi fyrirtæki á sviði umhverfismiðla.
Fjártækni er nýjasta tekjustoð Símans, en dótturfélagið Síminn Pay hefur á síðustu árum þróað fjölbreyttar lausnir á sviði fjártækni, sem spanna allt frá vörukaupalánum fyrir einstaklinga, til kreditkorta og rafrænna beiðna fyrir fyrirtæki. Þá gengu kaup Símans á stafrænu þjónustunni Noona í gegn í desember 2024, en með því breikkar vöruframboð félagsins á sviði fjártækni enn frekar með lausnum á borð við tíma- og borðabókunarkerfi og afgreiðslulausnir fyrir fyrirtæki.
Síminn er þjónustufyrirtæki í fremstu röð, og framtiðarsýn félagsins er að skapa stafrænt samfélag sem auðgar lífið, en í því felst metnaður félagsins til þess að þróa stafrænt vistkerfi snjallra lausna sem skapa virði fyrir fólk og fyrirtæki. Hlutverk Símans er að skapa verðmætar tengingar og gildi félagsins eru að vera skapandi, fagleg og árangursdrífin. Sjálfbærni og góðir stjórnarhættir eru hornsteinn í rekstri félagsins. Árangur Símans endurspeglast í ánægju viðskiptavina, stoltu starfsfólki og sterki fyrirtækjamenningu, og arðbærum rekstri sem gerir félagið að eftirsóknarverðum fjárfestingarkosti.
Félagið er skráð á aðallista NASDAQ OMX Iceland og er eignarhald dreift.
Stefnur félagsins m.t.t. ófjárhagslegra þátta, sjálfbærni og UFS
- Upplýsingaóryggisstefna, uppfærð 2024
- Upplýsingastefna, uppfærð 2022
- Mannauðs- og mannréttindastefna, uppfærð 2022 (jafnlaunastefna skv. ÍST 85-2012 er hluti af þessari stefnu)
- Starfskjarastefna, gefin út 2024
- Persónuverndarstefna Símans, uppfærð 2024
- Persónuverndarstefna Símans fyrir starfsfólk, uppfærð 2022
- Gæðastefna (innanhúss) gefin út 2024
- Stefna Símans gegn einelti, áreitni og ofbeldi (innanhúss) gefin út 2024
- Innkaupastefna Símans (innanhúss), uppfærð 2023
- Stefna Símans í sjálfbærni, uppfærð 2024
- Síðareglur birgja, gefin út 2021
- Starfsreglur stjórnar, uppfærðar 2024
- Stefna Símans Pay ehf um varnir gegn peningapvætti og fjármögnun hryðjuverkastarfsemi, gefin út 2023
- Skýjastefna Símans, gefin út 2023
- Gervigreindarstefna, gefin út 2024
- Varðveislustefna Símans, gefin út 2024
- Þjónustustefna Símans, gefin út 2024
Síminn er með allar ofangreindar stefnur til sífelldrar endurskoðunar og hefur sett fram heildstæða sjálfbærnistefnu sem tekur á umhverfis- og loftlagsmálum, félagslegum þáttum og stjórnarháttum ásamt öðrum ófjárhagslegum þáttum. Í stefnunni eru skilgreindar megináhættur út frá áhættumatsgreiningu (e. materiality).
Áreiðanleikakönunarferli félagsins með tilliti til ófjárhagslegra þátta, sjálfbærni og UFS
Í samræmi við upplýsingaóryggisstefnu, upplýsingastefnu, gæðastefnu ásamt innri ferium og öðrum gæðakröfum, er lögð áhersla á að tryggja gæði og réttar ófjárhagslegar upplýsingar. Þá fer ytri endurskoðandi yfir skýrslu stjórnar, m.a. ófjárhagslegar upplýsingar, sem hluta af ytri endurskoðun félagsins.
Félagið hefur skilgreint megináhættur og markmið byggt á sjálfbærnistefnu til að tryggja að stefnunni sé framfylgt. Nánar er gerð grein fyrir þeim í köflunum um umhverfisþætti, félagslega þætti og stjórnarhætti.
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
43
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Ófjárhagslegar upplysingar
Umhverfis- og loftlagsmál
Síminn gaf út sína fyrstu sjálfbærnistefnu árið 2021 sem var uppfærð árið 2024. Við val á lykilmælikvörðum (fyrir umhverfismál, félagslega þætti og stjórnarhætti) var stuðst við mikilvægisgreiningu (e. Materiality) á fjarskiptageiranum, skoðun á leiðandi erlendum fjarskiptafélögum m.t.t. UFS frammistöðu og aðlagað að starfsemi Símans. Samhliða þeirri vinnu voru helstu megináhættur endurskilgreindar og markmið endurskilgreind.
Félagið er meðvitað um þau umhverfisáhrif sem fjarskiptaiðnaðurinn hefur í för með sér enda felur reksturinn í sér auðlinda- og orkunotkun tengt notkun og förgun á búnaði og tækjum sem notuð eru í starfsemi félagsins sem og hýsingu gagna í gagnaverum.
Félagið hefur skilgreint tvo meginþætti í umhverfismálum sem tengjast starfsemi félagsins, þ.e. virðiskeðjuáhrif og notkun náttúruauðlinda og er það sýn félagsins að eftirfarandi atriði eigi við starfsemi félagsins í heild.
Félagið hefur innleitt umhverfisstjórnunarkerfi Klappa Grænna lausna hf. sem mun gefa félaginu rauntímayfirsýn yfir helstu umhverfisþætti. Verkefnið framundan er að byggja frekar undir þá innleiðingu ásamt því að auka þekkingu hjá starfsfólki Símans og undirbúa félagið t.d. fyrir sjálfbærniupplýsingagjóf stórra og/eða skráðra fyrirtækja (CSRD).
Megináhættur:
- Umhverfis og loftlagsáhrif í virðiskeðjunni
- Loftlagsbreytingar
- Ágangur á náttúruauðlindir
Markmið:
- Endurvinna allan nothæfan búnað sem viðskiptavinir skila
- Auka hlutfall búnaðs sem viðskiptavinir koma með í endurvinnslu til okkar í gegnum nýttu notað ferlið
- Vinna með birgjunum okkar að umbúðir séu endurvinnanlegar
Árangur:
- Greining stærstu birgja m.t.t. loftlagsáhættu hefur farið fram. Innleiðing umhverfisstjórnunarkerfis Klappa er lokið, í framhaldinu munu stærstu birgjar Símans fá sent staðlað birgjamat.
- Heildarlosun félagsins af starfsemi hefur minnkað á milli ára en sérstök áhersla hefur verið lögð á vistvænni samgöngur til og frá vinnu, minni matarsöun, aukna flokkun sorps, vistvænni breytingar á húsnæði ásamt því að félagið rekur fleiri rafmagnsbila en áður.
Félagslegir þættir
Áherslur félagsins í félagslegum þáttum eru nátengdar áherslum félagsins í sjálfbærni- og mannréttindamálum. Í þeirri stafrænu umbreytingu sem samfélagið er að ganga í gegnum liggja tækifæri fyrir félagið að vera hreyfiafl til góðra verka.
Félagið er með virka mannaðs- og mannréttindastefnu sem stuðla á að jafnri stöðu og jöfnum tækifærum starfsfólks óháð kyni, kynhneigð, kynþætti, þjóðerni, trúabrógðum eða lífsstíl. Síminn hlaut jafnlaunavottun Jafnréttisstofu í lok árs 2018, fyrst íslenskra fjarskiptafélága. Árið 2019 tók Síminn þátt í Jafnréttisvísi Capacent sem leiddi til ýmissa umbótaverkefna á sviði jafnréttismála og stefnir félagið á að jafna kynjahlutföll í öllum skipulagseiningum félagsins sem og í stjórnendahópi félagsins. Árið 2021 gaf félagið út Samskiptasáttmála sem á að vera starfsfólki leiðarljós í samskiptum sín á milli.
Síminn á í formlegu samstarfi með Vertonet, HR og Stelpur og tækni sem hafa það að markmiði að auka hlut kvenna og kvára í upplýsingtækni. Tilgangurinn er að fjölga konum og kvárum sem útskrifast úr tæknigreinum. Síminn er einnig styrktaraðili Vertonets og átaksverkefnis þeirra um að auka nýliðun kvenna og kvára í upplýsingastækni.
Síminn gerðist aðili að jafnvægisvog FKA þar sem megin tilgangurinn er að auka á jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja í íslensku viðskiptalífi með það að markmiði að árið 2027 verði hlutfallið á milli kynja a.m.k. 40/60 í framkvæmdastjórnum fyrirtækja á Íslandi og að virkja íslenskt viðskiptalíf til að verða að fyrirmynd jafnréttis fyrir aðrar þjóðir.
Hjá félaginu er starfrækt Vinnuverndar- og brunavarnarráð. Það tekur m.a. þátt í gerð áætlunar um öryggi og heilbrigði á vinnustað, vinnur að bættum aðbúnaði, hollustuháttum og öryggi á vinnustöðum. Með stefnu félagsins gegin einelti, áreitni og ofbeldi og meðfylgjandi viðbragðsáætlun er unnið að því að tryggja sálfélagslegt öryggi starfsfólks í vinnu. Kappkostað er að tryggja ánægju og velliðan starfsfólks auk þess sem lögð er áhersla á fræðslu og þjálfun. Reglulega eru framkvæmdar vinnustaðakannanir til að mæla líðan á vinnustað og starsfánægju.
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Ófjárhagslegar upplysingar
Félagslegir þættir, frh.:
Síminn og dótturfélög styðja við og virða vernd alþjóðlegra mannréttinda í samræmi við innlend lög sem og Mannréttindayfirlysingu Sameinuðu þjóðanna í allri starfsemi félagsins. Samstæðan virðir Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og tekur skýra afstöðu gegmmannréttindabrotum svo sem nauðungar- og þrælkunarvinnu, þar með talinni barnaprælkun, stuðla að virðingu í samskiptum, tryggja velliðan og aukin lífsgæði jafnt innan sem og utan félagsins.
Megináhættur:
- Velliðan og velferð starfsfólks
Heilsa og öryggi starfsfólks og verktaka - Mannréttindi í virðiskeðjunni
Launajafnrétti - Samskipti við nærsamfélagið
Markmið:
- Síminn hefur það markmið að launamunur milli kynja sé undir 1,0
Jafna hlutfall kynja í stjórnendahlutverkum - Vinna markvisst að auknum hlut kvenna í upplýsingatækni innan fyrirtækisins sem utan
Árangur:
- Launamunur kynja er 1,11 (1,15 2023) karlmönnum í hag
- Markmið félagsins að jafna kynjahlutföll hefur ekki náðst
- Jafnlaunavottun var endurnýjuð á árinu samkvæmt ÍST 85:2012 staðli og kröfum Jafnréttisstofu
- Styrkir veittir til fimm ungra kvenna og kvára til náms í Háskólanum í Reykjavík með það að markmiðið að fjölga konum í tækni
- Haldnir voru nokkrir viðburðir innan Símans fyrir stelpur og stálp á grunnskólaaldri með það markmiði að vekja áhuga þeirra á tæknitengdum störfum
Stjórnarhættir
Síminn leggur áherslu á góða forystu og stjórnarhætti og fylgir leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja sem gefnar voru út af Viðskiptaráði Íslands, Nasdaq OMX Iceland hf. og Samtökum atvinnulifsins, 6. útgáfu frá árinu 2021.
Stjórnarhættir hjá Símanum eru einnig markaðir af lögum nr.2/1995 um hlutafélög, samþykktum félagsins, starfsreglum stjórnar, síðareglum félagsins auk þess sem félagið hefur innleitt samkeppnisréttaráætlun sem er mikilvægur hluti af stjórnarháttum þess.
Síðareglur Símans eru starfsfólki leiðarljós hvað varðar hugsanlega hagsmunaárekstra, mútugreiðslur, trúnað og meðferð viðkvæmra upplýsinga sem og fylgni við gildandi lög og reglur á hverjum tíma.
Eitt af lykilatriðum í rekstri Símans er að tryggja öryggi þeirra gagna og upplýsinga sem félagið vinnur með. Síminn er með virka upplýsingaöryggisstefnu sem styður við samfelldan rekstur og þjónustur og lágmarkar þannig rekstraráhættu og hámarkar öryggi upplýsinga og verðmæta í eigu eða umsjón félagsins. Síminn rekur vottað upplýsingaöryggiskerfi en félagið hlaut vottun BSI samkvæmt ISO/IEC 27001:2013 staðlinum árið 2016.
Gildandi upplýsingastefna Símans tekur mið af reglum Kauphallar – Nasdaq Iceland. Með stefnunni er lögð áhersla á að veita hagsmunaaðilum áreiðanlegar upplýsingar sem skipta máli er varða starfsemi félagsins, sem skráðs félags á íslenskum hlutabréfamarkaði í Kauphóll - Nasdaq Iceland.
Netöryggi er órjúfanlegur þáttur í starfsemi Símans og eru vernd gagna og persónuupplýsinga því ávallt í fyrirrúmi. Síminn er með virka upplýsingaöryggisstefnu sem styður við samfelldan rekstur og þjónustu. Með vottuðu upplýsingaöryggiskerfi lágmarkar Síminn rekstraráhættu og hámarkar öryggi upplýsinga í eigu eða umsjón félagsins. Með virkri persónuverndarstefnu leggur Síminn jafnframt áherslu á að gæta fríðhelgi einkalífs, jafnt starfsfólks sem og viðskiptavina. Lögð er áhersla á að gæta að málefnalegri, áreiðanlegri og gagnsærri meðferð persónuupplýsinga um viðskiptavini, starfsfólk og aðra sem persónuverndaruplýsingar varðar, í samræmi við persónuverndarlög hverju sinni. Hjá félaginu starfar persónuverndarfulltrúi sem hefur eftirlit með því að félagið uppfylli lagaskyldur sínar.
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Ófjárhagslegar upplysingar
Stjórnarhættir, frh.:
Síminn setti sér verklagsreglur á árinu 2022 um vernd uppljóstrara. Reglurnar voru settar á grundvelli 5. gr. laga um vernd uppljóstrara nr. 40/2020. Reglunum er meðal annars ætlað að stuðla að því að starfsfólk geti upplýst um lögbrot eða aðra ámælisverða háttsemi sem kann að eiga sér stað hjá félaginu og stuðla þannig að ábyrgum stjórnarháttum.
Síminn leggur áherslu á að viðhalda góðum samskiptum við lykil haghafa með opnum samtölum um þróun, tækifæri og sjálfbærniten gdar áhættur.
Megináhættur:
- Gagnaöryggi, gæðamál og óhæði stjórnar
- Að birgjar félagsins hugi ekki að gagnaöryggi og persónuvernd.
Markmið:
- Ljúka gloppugreiningu byggða á niðurstöðum tvöfaldrar mikilvægisgreiningar tli að greina lykilþætti sjálfbærni í rekstri Símans
- Setja fram markmið og áætlun um kolefnishlutleysi fyrirtækisins
- Innleiða ESRS staðlana í umhverfisstjórnunarkerfi Símans
- Framkvæma birgjamat
Árangur:
Árangur ársins 2024 var: Að innleiða ESRS staðla í umhverfisstjórnunararkerfi Símans en innleiðing var ekki lögleidd á árinu eins og búist hafði verið við. Einnig voru markmið um upplýsingagjöf sem náðist.
Tviátta mikilvægisgreining
Á árinu 2024 var lögð áhersla á að auka þekkingu á sjálfbærni í tengslum við starfsemi félagsins. Framkvæmd var tviátta mikilvægigreining en hún felur í sér ítarlega greiningu á áhrifum sjálfbærniþátta á starfsemi samstæðunnar sem og áhrifum virðiskeðju samstæðunnar á umhverfið og samfélagið. Áhrif eru metin með því skoða hvernig sjálfbærniþættir eins og loftlagsmál, félagsleg ábyrgð og síðferðisleg viðmið hafa, eða geta haft, bein áhrif á rekstur, hagnað og langtímahorfur samstæðunnar. Áhrif á umhverfi og samfélag felast aftur á móti í greiningu á því hvernig starfsemi Símans og dótturfélaga hefur áhrif á umhverfið, samfélagið sem við störfum í og viðskiptavini.
Vinnan er mikilvægur þáttur í skuldbindingu Símans til að efla samfélagslega ábyrgð og stuðla að sjálfbærni í starfseminni. Niðurstöður lágu fyrir í janúar árið 2025 og munu næstu skref verða að framkvæma gloppugreiningu sem byggir á niðurstöðu greiningarinnar.
Eftirfarandi yfirflokkar ESRS teljast mikilvægir fyrir samstæðu Símans:
ESRS E1: Loftslagsbreytingar
ESRS E5: Hringrásarhagkerfi
ESRS S1: Starfsfólk
ESRS S4: Neytendur og endanotendur
ESRS G1: Stjórnarhættir
Frekari umfjöllun um tviátta mikilvægisgreiningu verður í ársskýrslu félagsins fyrir árið 2024.
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
46
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Ófjárhagslegar upplysingar
Upplysingagjöf vegna flokkunarreglugerðar Evrópusambandsins
Krófur um upplysingagjöf á sviði sjálfbærni hafa aukist verulega síðustu ár. Með lögum nr. 25/2023 (ESB 2020/852) sem samþykkt voru á Alþingi í maí 2023 og tóku gildi 1.júni 2023 er félögum sem falla undir gildissvið laganna gert að innleiða flokkunarkerfi ESB og veita upplysingar um flokkunarkerfið í ársreikningi 2023. Upplysa þarf um hlutfall veltu, rekstarkostnaðar og fjárfestinga sem uppfylla skilyrði um að vera umhverfislega sjálfbær í samræmi við viðmið regluverksins. Til þess að fyrirtæki geti talist umhverfislega sjálfbær í skilningi reglugerðarinnar þurfa þau að uppfylla viðmið um umhverfislega sjálfbæra atvinnustarfsemi skv. 3.gr. reglugerðarinnar. Í fyrsta lagi þarf framlag atvinnustarfseminnar að stuðla verulega að einu af sex umhverfismarkmiðum, á sama tíma má hún ekki valda umtalsverðu tjóni á einu eða fleiri af markmiðum reglugerðarinnar. Hún þarf að hlíta tæknilegum matsviðmiðum en, einnig bera að veita upplysingar um lágmarksverndarráðstafanir í eftirfarandi málaflokkum: Mannréttindi, Spilling og mútuþægni, skattamál og samkeppnismál.
Lágmarksverndarráðstafanir
Eitt af grunnskilyrðum þess að starfsemi Símans geti talist umhverfislega sjálfbær er að félagið uppfylli fullnægjandi lágmarksverndarráðstafanir (e. minimum safeguards) í samræmi við 18.gr. flokkunarreglugerðarinnar (8. gr. reglugerðar Evrópusambandsins (ESB) 2020/852). Með því að standast kröfur um lágmarksverndarráðstafanir sýnir félagið fram á að umhverfismarkmiðum sé uppfyllt ásamt fylgni þess við alþjóðlegar laga- og leiðbeiningakröfur OECD og Sameinuðu þjóðanna um félagsleg viðmið.
Mannréttindi
Síminn er með virka mannauðs- og mannréttindastefnu sem stuðlar að jafnri stöðu og jöfnum tækifærum starfsfólks. Síminn hefur stefnu um persónuvernd og hefur sett fram verklagsreglur um vernd uppljóstrara. Við gerð verklagsreglna og stefnumótunar er horft til reglna OECD og leiðbeininga Sameinuðu þjóðanna.
Spilling og mútuþægni
Starfsfólk skal gæta réttsýni og löghlýðni í hvívetna, í síðareglum Símans er farið yfir mál er varða spillingu og mútuþægni. Pá er tekið á þessum atriðum í síðareglum birgja.
Skattamál
Félagið hefur sett sér formlegra skattastefnu þar sem sett er fram formleg ábyrgð, skilgreind eftirlitshlutverk og skýrslugjöf. Síminn leggur ríka áherslu á að haga skattamálum í samræmi við lög, reglur og síðferði.
Samkeppnismál
Félagið hefur starfað eftir samkeppnisréttaráætlun frá árinu 2011. Í síðareglum Símans er tekið á því að starfsfólk skuli gæta réttsýni og löghlýðni í hvívetna. Í því felst m.a. að allt starfsfólk skuli í störfum sínum þekkja og virða meginreglur samkeppnislaga um bann við ólögmætu samráði, misnotkun á markaðsráðandi stöðu, sé hún fyrir hendi, og samrunareglur. Starfsfólk skal í þessu skyni kynna sér þau gögn sem eru hluti af Samkeppnisréttaráætlun, nýta þau í störfum sínum og sækja námskeið sem eru hluti af áætluninni (sjá samkeppnisréttaráætlun félagsins). Síminn hefur ekki gerst brotlegur við lög eða reglur á sviði samkeppnismála.
Hæf starfsemi
Kjarnastarfsemi Símans er fjarskipti, fjártækni og miðlun. Á þessum tímapunkti hefur Evrópusambandið ekki skilgreint atvinnustarfsemi Símans (fjarskipti) sem gjaldgenga starfsemi og því ekki hægt að meta hlutfall gjaldgengrar starfsemi né hlutfall þess sem uppfyllir tæknilegu matsviðmiðin. Hluti af fjarskiptastarfsemi sem snýr að siten gingu mæla og annara nema (IOT) gæti fallið undir lið 8.2 í framseldri reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) 2021/2139 sem snýr að tölvuforritun, ráðgjöf og tengdri starfsemi sem er kóði J62 í atvinnugreinaflokkun ESB en umfang þess er óverulegt innan félagsins. Hluti af afþreyingarstarfseminni fellur undir lið 8.3 sjónvarpsendingar og dagskrárgerð. Ekki er talið að hluti 13.3 sem snýr að útgáfustarfsemi á sviði framleiðslu kvikmynda og sjónvarpsefnis eigi við þar sem félagið er kaupandi á framleiðslunni en ekki eigandi þess.
Síminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
EU Taxonomy
Velta
| Velta | Viðmið fyrir verulegt framlag | Viðmið fyrir verulegt framlag ("Veldur ekki verulegu tjóni") | |||||||||||||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Atvinnustarfsemi (1) | Númer (2) | Helldar velta (3) | Hutfall veltu (4) | Mötvægi við loftslagsbreytingar (5) | Vatns- og sjávarauðlindir (7) | Hringrásarhagkerfið (8) | Mengun (9) | Liffræðileg fjölbreytni og vistkerfi (10) | Vatns- og sjávarauðlindir (13) | Hringrásarhagkerfið (14) | Mengun (15) | Hringråsarhagkerfið (16) | Vatns- og sjávarauðlindir (17) | Hlutfall veltu sem fellur að flokkunar-kerfinu, ár N (18) | Flokkur (starf-semi sem gerir annarri starfsemi kleift að studla að umhverf-ismark-miðum (20) | Flokkur "(umbreyt-ingastarf-semi)" (21) | |||
| % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | E | T | ||||
| A. STARFSEMI SEM FLOKKUNARKERFID NÆR YFIR | |||||||||||||||||||
| A.1. Umhverfissjálfbær starfsemi (sem fellur að flokkunarkerfinu) | |||||||||||||||||||
| Velta frá umhverfissjálfbærri starfsemi (sem fellur að flokkunarkerfinu (A.1) | 0 | ||||||||||||||||||
| A.2. Starfsemi sem flokkunarkerfið nær yfir en er ekki umhverfissjálfbær (sem fellur ekki að flokkunarkerfinu) | |||||||||||||||||||
| Sjónvarpsendingar og dagskrárgerð | 8.3 | 7.905 | 28% | ||||||||||||||||
| Velta frá starfsemi sem flokkunarkerfið nær yfir en er ekki umhverfissjálfbær (starfsemi sem fellur ekki að flokkunarkerfinu) (A.2) | 7.905 | 28% | |||||||||||||||||
| Alls (A.1 + A.2) | 7.905 | 28% | |||||||||||||||||
| B. STARFSEMI SEM FLOKKUNARKERFI NÆR EKKI YFIR | |||||||||||||||||||
| Velta frá starfsemi sem flokkunarkerfið nær ekki yfir (B) | 19.927 | 72% | |||||||||||||||||
| Alls (A + B) | 27.832 | 100% |
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
EU Taxonomy
Fjärfestingagjöld
| Atvinnustarfsemi (1) | Númer (2) | Heildar fjärfestingagjöld (3) | Hlutfall fjärfestingagjölda (4) | Viðmið fyrir verulegt framlag | Viðmið fyrir verulegt framlag ("Veldur ekki verulegu tjóni") | |||||||||||||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Mötvægi við loftslagsbreytingar (5) | Vatns- og sjávaraudlindir (7) | Hringrásarhagkerfið (8) | Mengun (9) | Liffræðileg fjölbreytni og vistkerfi (10) | Mengun (15) | Hringrásarhagkerfið (14) | Vatns- og sjávaraudlindir (13) | Hringrásarhagkerfið (14) | Vatns- og sjávaraudlindir (13) | Liffræðileg fjölbreytni og vistkerfi (16) | Hingfrastir (17) | Hutfall fjärfest-inga sem fellur að flokkunar-kerfinu, ár N (18) | Flokkur (starf-semi sem gerir annarri starfsemi kleift að studla að umhverf-ismark-miðum (20) | Flokkur "(umbreyt-ingastarf-semi)" (21) | ||||||||
| % | % | % | % | % | % | % | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | % | % | E | T | ||||||
| A. STARFSEMI SEM FLOKKUNARKERFID NÆR YFIR | ||||||||||||||||||||||
| A.1. Umhverfissjálfbær starfsemi (sem fellur að flokkunarkerfinu) | ||||||||||||||||||||||
| Fjärfestingagjöld frá umhverfissjálfbærri starfsemi (sem fellur að flokkunarkerfinu (A.1) | 0 | |||||||||||||||||||||
| A.2. Starfsemi sem flokkunarkerfið nær yfir en er ekki umhverfissjálfbær (sem fellur ekki að flokkunarkerfinu) | ||||||||||||||||||||||
| Sjónvarpsendingar og dagskrárgerð | 8.3 | 1.949 | 53% | |||||||||||||||||||
| Fjärfestingagjöld frá starfsemi sem flokkunarkerfið nær yfir en er ekki umhverfissjálfbær (starfsemi sem fellur ekki að flokkunarkerfinu) (A.2) | 1.949 | 53% | ||||||||||||||||||||
| Alls (A.1 + A.2) | 1.949 | 53% | ||||||||||||||||||||
| B. STARFSEMI SEM FLOKKUNARKERFI NÆR EKKI YFIR | ||||||||||||||||||||||
| Fjärfestingagjöld frá starfsemi sem flokkunarkerfið nær ekki yfir (B) | 1.724 | 47% | ||||||||||||||||||||
| Alls (A + B) | 3.673 | 100% |
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
EU Taxonomy
Rekstrargjöld
| Atvinnustarfsemi (1) | Númer (2) | Heildar rekstrargjöld (3) | Hlutfall rekstrargjalda (4) | Viðmið fyrir verulegt framlag | Viðmið fyrir verulegt framlag ("Veldur ekki verulegu tjóni") | ||||||||||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Mötvægi við loftslagsbreytingar (5) | Vatns- og sjávarauðlindir (7) | Hringrásarhagkerfið (8) | Mengun (9) | Liffræðileg fjölbreytni og vistkerfi (10) | Mengun (15) | Hringrásarhagkerfið (14) | Vatns- og sjávarauðlindir (13) | Hringrásarhagkerfið (14) | Liffræðileg fjölbreytni og vistkerfi (16) | Hlutfall rekstrar- gjalda sem fellur að flokkunar- kerfinu, ár N (18) | Flokkur (starf-semi sem gerir annarri starfsemi kleift að stuðla að umhverf- ismark- miðum (20) | Flokkur "(umbreyt- ingastarf- semi)" (21) | |||||||
| % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | % | E | ||||
| A. STARFSEMI SEM FLOKKUNARKERFID NÆR YFIR | |||||||||||||||||||
| A.1. Umhverfissjálfbær starfsemi (sem fellur að flokkunarkerfinu) | |||||||||||||||||||
| Rekstrargjöld frá umhverfissjálfbærri starfsemi (sem fellur að flokkunarkerfinu (A.1) | 0 | ||||||||||||||||||
| A.2. Starfsemi sem flokkunarkerfið nær yfir en er ekki umhverfissjálfbær (sem fellur ekki að flokkunarkerfinu) | |||||||||||||||||||
| Sjónvarpssendingar og dagskrárgerð | 8.3 | 4 | 1% | ||||||||||||||||
| Rekstrargjöld frá starfsemi sem flokkunarkerfið nær yfir en er ekki umhverfissjálfbær (starfsemi sem fellur ekki að flokkunarkerfinu) (A.2) | 4 | 1% | |||||||||||||||||
| Alls (A.1 + A.2) | 4 | 1% | |||||||||||||||||
| B. STARFSEMI SEM FLOKKUNARKERFI NÆR EKKI YFIR | |||||||||||||||||||
| Rekstrargjöld frá starfsemi sem flokkunarkerfið nær ekki yfir (B) | 377 | 99% | |||||||||||||||||
| Alls (A + B) | 381 | 100% |
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Ársfjórðungsyfirlit - óendurskoðað
Rekstur samstæðunnar greinist þannig á ársfjórðunga:
| | 1 F
2024 | 2 F
2024 | 3 F
2024 | 4 F
2024 | Samtals |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| Sala | 6.417 | 6.708 | 6.773 | 7.291 | 27.189 |
| Kostnaðarverð sōlu | ( 4.180) | ( 4.527) | ( 4.166) | ( 4.455) | ( 17.328) |
| Framlegð | 2.237 | 2.181 | 2.607 | 2.836 | 9.861 |
| Aðrar rekstrartekjur | 158 | 163 | 182 | 140 | 643 |
| Rekstrarkostnaður | ( 1.964) | ( 1.708) | ( 1.925) | ( 2.032) | ( 7.629) |
| Rekstrarhagnaður | 431 | 636 | 864 | 944 | 2.875 |
| Hrein fjármagnsgjöld | ( 195) | ( 320) | ( 292) | ( 306) | ( 1.113) |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 236 | 316 | 572 | 638 | 1.762 |
| Tekjuskattur | ( 65) | ( 72) | ( 123) | ( 121) | ( 381) |
| Hagnaður ársins | 171 | 244 | 449 | 517 | 1.381 |
| EBITDA | 1.435 | 1.726 | 1.915 | 2.071 | 7.147 |
| | 1 F
2023 | 2 F
2023 | 3 F
2023 | 4 F
2023 | Samtals |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| Sala | 6.153 | 6.117 | 6.329 | 6.468 | 25.067 |
| Kostnaðarverð sōlu | ( 4.155) | ( 4.110) | ( 4.113) | ( 4.119) | ( 16.497) |
| Framlegð | 1.998 | 2.007 | 2.216 | 2.349 | 8.570 |
| Aðrar rekstrartekjur | 145 | 166 | 172 | 191 | 674 |
| Rekstrarkostnaður | ( 1.825) | ( 1.811) | ( 1.623) | ( 1.906) | ( 7.165) |
| Rekstrarhagnaður | 318 | 362 | 765 | 634 | 2.079 |
| Hrein fjármagnsgjöld | ( 1) | ( 145) | ( 126) | ( 120) | ( 392) |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 317 | 217 | 639 | 514 | 1.687 |
| Tekjuskattur | ( 71) | ( 38) | ( 132) | ( 100) | ( 341) |
| Hagnaður ársins | 246 | 179 | 507 | 414 | 1.346 |
| EBITDA | 1.315 | 1.410 | 1.811 | 1.614 | 6.150 |
Siminn hf. - Ársreikningur samstæðu 2024
51
Fjárhæðir eru í milljónum króna