Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Reitir fasteignafélag M&A Activity 2016

Dec 19, 2016

2202_rns_2016-12-19_6d92447e-d1c9-4c9b-ab44-ff62a91d57b3.html

M&A Activity

Open in viewer

Opens in your device viewer

Disclosure 347733

Reitir fasteignafélag hf. - Fyrirtækjafréttir

Reitir kaupa Alda Hótel Reykjavík

Samþykkt hefur verið tilboð Reita um kaup á fasteignum þeim sem hýsa Alda Hótel Reykjavík á Laugavegi 66-70 í Reykjavík af L66 fasteignafélagi ehf. og Fring ehf. Kaupverðið er 2.850 milljónir kr. og verður fjármagnað úr sjóði. Um er að ræða 4.084 fm. fasteign sem verður öll í langtímaútleigu til Alda Hótel Reykjavík ehf., og er áætlað að leigutekjur af eigninni muni nema um 240 milljónum kr. á ársgrundvelli en fyrirvari er gerður um endanlega samninga þar að lútandi. Kaupin munu þá leiða til þess að áætlaður rekstrarhagnaður (NOI) Reita hækkar um rúmlega 205 milljónir kr. á ársgrundvelli. Að fyrirvörum uppfylltum er áætlað að undirritun kaupsamnings og afhending verði um miðjan janúar 2017. Nánari upplýsingar veita Guðjón Auðunsson, forstjóri, í síma 575 9000 eða 660 3320, og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 575 9000 eða 669 4416.