AI assistant
Origo — AGM Information 2018
Feb 5, 2018
2208_agm-r_2018-02-05_5abeef94-90f8-4c07-9a2a-eb655ddcf8bb.pdf
AGM Information
Open in viewerOpens in your device viewer
AÐALFUNDUR ORIGO HF. 2. MARS 2018 KL. 16.00 Í RÁÐSTEFNUSAL FÉLAGSINS AÐ BORGARTÚNI 37
- 1 Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár
- 2 Staðfesting ársreiknings og tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað félagsins á reikningsárinu
- 3 Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna
- 4 Tillaga til starfskjarastefnu (óbreytt)
- 5 Kosning stjórnar
- 6 Kosning endurskoðenda
- 7 Tillögur frá hluthöfum
- 8 Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutum sbr. 55. gr. hlutafélagalaga
- 9 Önnur mál
Réttur hluthafa til að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar og kosning
Hver hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á aðalfundi ef hann gerir um það skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar með nægilegum fyrirvara til að unnt sé að taka mál til meðferðar á fundinum. Þannig skulu óskir hluthafa liggja fyrir eigi síðar en 10 dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 16.00 þriðjudaginn 20. febrúar 2018. Nánari upplýsingar um þátttöku og atkvæðagreiðslu er að finna á heimasíðu félagsins.
Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar. Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað.
Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn geta veitt öðrum skriflegt umboð eða greitt atkvæði skriflega. Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara kosta er bent á að kynna sér á heimasíðu félagsins hvernig þeir skuli bera sig að. Þar er að finna leiðbeiningar um skráningu og form skjala og hvernig þeim skuli skilað til félagsins.
Aðrar upplýsingar
Endanleg dagskrá svo og öll skjöl sem lögð verða fyrir aðalfundinn, þ.m.t. ársreikningur félagsins og allar tillögur, verða hluthöfum tiltæk á heimasíðu félagsins og munu jafnframt liggja frammi á skrifstofu félagsins. Hluthöfum er bent á að skv. 63. gr. a. hlutafélagalaga skal tilkynna skriflega, minnst fimm dögum fyrir hluthafafund, um framboð til stjórnar. Tilkynnt verður um framboð til stjórnar á heimasíðu félagsins eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfundinn.
Reykjavík, 5. febrúar 2018, stjórn Origo hf.