AI assistant
Nova Klúbburinn — Proxy Solicitation & Information Statement 2025
Feb 3, 2025
2207_rns_2025-02-03_3f484d33-b170-41ac-9d71-5dcd863d7a2e.html
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
Nova Klúbburinn hf.: Tilnefningarnefnd óskar eftir framboðum til stjórnar
Nova Klúbburinn hf.: Tilnefningarnefnd óskar eftir framboðum til stjórnar
Aðalfundur Nova Klúbbsins hf. verður haldinn 27. mars 2025 og óskar tilnefningarnefnd nú eftir framboðum til stjórnar félagsins. Tilnefningarnefnd fer yfir þau framboð sem berast og velur úr þeim frambjóðendur sem nefndin álítur hæfa til setu í stjórn félagsins. Tillaga nefndarinnar er aðeins ráðgefandi en bindur hluthafa ekki þegar til stjórnarkjörs kemur.
Tilkynningu um framboð, ásamt ferilskrá, skal skilað á netfangið [email protected]. Hægt er að nálgast framboðseyðublað á fjárfestasíðu félagsins, sjá hér. Farið verður með öll framboð sem berast tilnefningarnefnd sem trúnaðarmál og listi yfir frambjóðendur verður ekki birtur.
Frestur til að skila inn framboðum til tilnefningarnefndar er til og með 10. febrúar 2025. Nefndin áskilur sér þó rétt, eftir atvikum, til að fjalla um framboð sem berast síðar.
Allir núverandi stjórnarmenn hyggjast gefa kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu.
Niðurstaða nefndarinnar um tilnefningu frambjóðenda til stjórnarsetu verður kynnt í síðasta lagi þremur vikum fyrir aðalfund, með tillögum stjórnar til fundarins.
Almennum framboðsfresti til stjórnar lýkur fimm sólarhringum fyrir aðalfund, eða kl. 16:00 þann 22. mars 2025. Starfsemi tilnefningarnefndar takmarkar ekki heimild frambjóðenda til að skila inn framboðum til stjórnar fram að því tímamarki.
Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Kvaran, formaður tilnefningarnefndar Nova, á [email protected]
