Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Marel Report Publication Announcement 2021

Jul 14, 2021

2191_rns_2021-07-14_049c6ec0-b6fa-407e-8be9-ff096b6a68ad.html

Report Publication Announcement

Open in viewer

Opens in your device viewer

Marel: Uppgjör annars ársfjórðungs 2021 birt 21. júlí, rafrænn afkomufundur 22. júlí 2021

Marel: Uppgjör annars ársfjórðungs 2021 birt 21. júlí, rafrænn afkomufundur 22. júlí 2021

Marel hf. mun birta uppgjör annars ársfjórðungs 2021 eftir lokun markaða þann 21. júlí 2021.

Rafrænn afkomufundur með markaðsaðilum

Fimmtudaginn 22. júlí 2021 kl. 8:30 að íslenskum tíma verður haldinn afkomufundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila. Fundurinn verður eingöngu rafrænn en þar munu Árni Oddur Þórðarson forstjóri og Linda Jónsdóttir fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á öðrum ársfjórðungi.

Fundinum verður vefvarpað beint á www.marel.com/webcast og upptaka verður aðgengileg á www.marel.com/ir eftir fundinn.

Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn:

  • IS: +354 800 7437
  • NL: +31 20 721 9496
  • UK: +44 33 3300 9035
  • US: +1 646 722 4903

Fjárhagsdagatal

  • 3F 2021 – 20. október 2021
  • 4F 2021 – 2. febrúar 2022

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið [email protected] og í síma 563 8001.

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá Marel starfa nú um 6.800 manns í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi. Marel velti 1.238 milljónum evra árið 2020, en árlega fjárfestir félagið um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið var stofnað 1983, skráð í Kauphöll Íslands árið 1992, og tvíhliða skráð í Euronext kauphöllina í Amsterdam árið 2019.