Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Marel Board/Management Information 2024

Mar 4, 2024

2191_rns_2024-03-04_b1db31d2-dff6-4487-8e11-f964a24ba628.pdf

Board/Management Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Fréttatilkynning

04 March 2024 17:00:00 GMT

marel

Marel: Sebastiaan Boelen nýr fjármálastjóri félagsins

Marel hefur ráðið Sebastiaan Boelen i stóðu fjármálastjóra frá og með deginum i dag. Sebastiaan býr yfir 25 ára reynslu á sviði fjármála og rekstrar i alþjóðlegum fyrirtækjum og hefur bæði hollenskt og breskt rikisfang. Reynsla hans spannar mismunandi svið iðnaðar, þar á meðal framleiðslu, matvæla, drykkjarfanga og tækni, þar sem hann hefur náð góðum árangri i bættri rekstrarafkomu. Sebastiaan var áður hjá Southern Water i Bretlandi þar sem hann var fjármálastjóri samstæðunnar i fjögur ár. Fyrir það starfaði Sebastiaan við fjármálastjórn og rekstur, meðal annars hjá Arrow Global, SPI Group og Black & Decker.

Eftir tæplega 10 ára starf hafa Marel og Stacey Katz, fráfarandi fjármálastjóri, komist að samkomulagi um starfslok hennar hjá félaginu. Stacey mun vera félaginu innan handar sem ráðgjafi út fjárhagsárið til að tryggja góða yfirfærslu á ábyrgð og verkefnum.

Árni Sigurðsson, forstjóri Marel:

"Ég vil bjóða Sebastiaan innilega velkominn til Marel. Hann er afar reynslumihill fjármálastjóri og ég hlakka til að fá hann til starfa. Alþjóðleg og yfirgripsmíki reynsla Sebastiaan mun nýtast félaginu vel til að gripa þau viðamíklu tækifæri sem i félaginu búa og tryggja áframhaldandi vóxt og viðgang i takti við fjárhagsmarkmið félagsins.

Fyrir hónd Marel vil ég þakka Stacey Katz fyrir vel unnin stórf og mikilvægt framlag hennar i gegnum árin, þá sérstaklega i áskorunum síðustu ára. Við óskum henni alls hins besta og farsældar i framtíðarverkefnum."

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel i gegnum netfangið [email protected] og i sima 563 8001.

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er i fararbroddi á heimsvisu i þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu. Marel var stofnað árið 1983 og hjá félaginu starfa um 7.500 starfsmenn i yfir 30 lóndum (þar af um 800 starfsmenn á Íslandi) og þjónusta viðskiptavini i yfir 140 lóndum. Lykilmarkaðir félagsins eru í vinnslu alifugla, kjóts, fisks, gæludýrafóðurs, plöntupróteina og fóðurs fyrir fiskeldi. Félagið er skráð í Kauphöll Íslands og Euronext Amsterdam og skilaði 1,7 milljarði evra í tekjur árið 2023 (257 milljarðar króna), en 46% af heildartekjum koma frá þjónustu og varahlutum. Árlega fjárfestir Marel 5-6% af tekjum í nýskópun og vöruþróun, eða um 15 milljörðum króna árið 2023, með áherslu á sjálfvirkni, róbótatækni og stafrænar lausnir sem tryggja örugg matvæli sem unnin eru á hagkvæman og sjálfbaran hátt. Frekari upplýsingar má finna á marel.com/ir.

Marel

Austurhraun 9

IS-210 Gardabaer


Fréttatilkynning
04 March 2024 17:00:00 GMT
marel

Viðhengi

Marel: Sebastiaan Boelen nýr fjármálastjóri félagsins

Marel | Austurhraun 9 | IS-210 Gardabaer