Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Marel AGM Information 2024

Mar 6, 2024

2191_rns_2024-03-06_6c31d793-7029-40e6-8d7f-faf7feca72ba.html

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Marel: Framboð til stjórnar, endanleg dagskrá og tillögur til aðalfundar 2024

Marel: Framboð til stjórnar, endanleg dagskrá og tillögur til aðalfundar 2024

Framboðsfrestur til stjórnar Marel hf. rann út kl. 16:00 þann 6. mars 2024. Aðalfundur félagsins verður haldinn miðvikudaginn 20. mars 2024 kl. 16:00.

Eftirtaldir sjö aðilar gefa kost á sér til setu í stjórn Marel:

Ann Elizabeth Savage, Spalding, Englandi

Arnar Þór Másson, Reykjavík

Ástvaldur Jóhannsson, Seltjarnarnesi

Lillie Li Valeur, Dusseldorf, Þýskalandi

Ólafur Steinn Guðmundsson, Princeton, New Jersey, Bandaríkjunum

Svafa Grönfeldt, Boston, Bandaríkjunum

Ton van der Laan, Berlicum, Hollandi

Frekari upplýsingar um framangreinda aðila eru aðgengilegar í skýrslu tilnefninganefndar félagsins á upplýsingasíðu aðalfundar 2024 á heimasíðu félagsins: marel.com/agm

Endanleg dagskrá og tillögur stjórnar til fundarins eru í viðhengi.

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið [email protected] og í síma 563 8001.

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu. Marel var stofnað árið 1983 og hjá félaginu starfa um 7.500 starfsmenn í yfir 30 löndum (þar af um 800 starfsmenn á Íslandi) og þjónusta viðskiptavini í yfir 140 löndum. Lykilmarkaðir félagsins eru í vinnslu alifugla, kjöts, fisks, gæludýrafóðurs, plöntupróteina og fóðurs fyrir fiskeldi. Félagið er skráð í Kauphöll Íslands og Euronext Amsterdam og skilaði 1,7 milljarði evra í tekjur árið 2023 (257 milljarðar króna), en 46% af heildartekjum koma frá þjónustu og varahlutum. Árlega fjárfestir Marel 5-6% af tekjum í nýsköpun og vöruþróun, eða um 15 milljörðum króna árið 2023, með áherslu á sjálfvirkni, róbótatækni og stafrænar lausnir sem tryggja örugg matvæli sem unnin eru á hagkvæman og sjálfbæran hátt. Frekari upplýsingar má finna á marel.com/ir.

Viðhengi: