AI assistant
Marel — AGM Information 2023
Feb 16, 2023
2191_rns_2023-02-16_4485cc80-2088-4198-b5c6-1748eda7d560.html
AGM Information
Open in viewerOpens in your device viewer
Marel: Aðalfundur 2023
Marel: Aðalfundur 2023
Aðalfundur Marel hf. verður haldinn rafrænt og í höfuðstöðvum félagsins að Austurhrauni 9, 210 Garðabæ, miðvikudaginn 22. mars nk., kl. 16:00
Drög að dagskrá:
1. Fundarsetning. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár
3. Skýrsla forstjóra
4. Ársreikningar félagsins fyrir starfsárið 2022 lagðir fram til staðfestingar (kosning)
5. Ákvörðun um hvernig skuli fara með hagnað fyrir starfsárið 2022 (kosning)
6. Skýrsla um framkvæmd starfskjarastefnu félagsins
7. Tillaga um starfskjarastefnu félagsins (kosning)
8. Tillaga um stefnu félagsins um kaupauka í formi frammistöðutengdra hlutabréfa (kosning)
9. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna árið 2023 (kosning)
10. Ákvörðun um greiðslu til endurskoðanda fyrir liðið starfsár (kosning)
11. Tillögur stjórnar um breytingar á samþykktum félagsins:
- 11.1. Ný grein 4.3 – Tillaga um að bæta við nýrri grein þess efnis að félaginu sé heimilt að binda heimild hluthafa til þátttöku á hluthafafundi við að hluthafi tilkynni um þátttöku sína fyrir tiltekinn skráningardag, í samræmi við ákvæði 1. gr. laga nr. 119/2022 um breytingu á lögum nr. 2/1995 um hlutafélög. (Kosning)
- 11.2. Grein 4.5 – Tillaga um breytingu á grein 4.5, ef tillaga 11.1 er samþykkt, til að samræma frest vegna tilkynningar um rafræna þátttöku við skráningarfrest vegna þátttöku á hluthafafundum. (Kosning)
- 11.3. Grein 4.20 – Tillaga um breytingu á grein 4.20, ef tillaga 11.1 er samþykkt, þannig að tiltekið sé að upplýsingar um skráningardag skuli koma fram í fundarboði til hluthafafundar. (Kosning)
- 11.4. Grein 4.22 – Tillaga um breytingu á grein 4.22 um rétt hluthafa til að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á hluthafafundi þannig að krafa um það skuli berast félagsstjórn eigi síðar en sjö dögum eftir að gögn skv. 4. mgr. 88. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög hafa verið birt. Þessi breyting er í samræmi við ákvæði 2. gr. laga nr. 119/2022 um breytingu á lögum nr. 2/1995 um hlutafélög. (Kosning)
- 11.5. Grein 15.2 – Tillaga um endurnýjun heimildar í grein 15.2 í samþykktum félagsins. Greinin heimilar stjórn félagsins að hækka hlutafé um allt að 75 milljónir að nafnvirði sem nota má í tengslum við fyrirtækjakaup. (Kosning)
12. Kosning stjórnar félagsins
Framboð til stjórnar:
- 12.1. Ann Elizabeth Savage (kosning)
- 12.2. Arnar Þór Másson (kosning)
- 12.3. Ástvaldur Jóhannsson (kosning)
- 12.4. Lillie Li Valeur (kosning)
- 12.5. Ólafur Steinn Guðmundsson (kosning)
- 12.6. Svafa Grönfeldt (kosning)
- 12.7. Ton van der Laan (kosning)
13. Kosning endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtækis (kosning)
14. Tillaga um að endurnýja heimild félagsins til að kaupa eigin hlutabréf (kosning)
15. Önnur mál löglega upp borin og fundarslit
Aðalfundurinn verður rafrænn, auk þess sem hluthafar geta mætt á fundinn í höfuðstöðvum félagsins. Atkvæðagreiðsla bæði fyrir og á meðan aðalfundi stendur mun eingöngu fara fram með rafrænum hætti. Hluthafar eiga rétt á að tilnefna umboðsmann til að mæta og kjósa fyrir sína hönd.
Allir hluthafar þurfa að skrá þátttöku sína fyrir aðalfundinn eins og fram kemur hér að neðan. Bent er á að hluthafar sem eiga bæði hlutabréf skráð á Nasdaq á Íslandi og í Euronext kauphöllinni í Amsterdam, verða að fara eftir leiðbeiningum fyrir hvorn markað um sig. Skráning á aðalfundinn og kosning fyrir fundinn hefst kl. 12 föstudaginn 17. febrúar og lýkur henni kl. 12 á hádegi á fundardegi.
Hluthafar sem eiga hlutabréf skráð á Nasdaq á Íslandi skrá þátttöku á aðalfundinn í gegnum vefgátt LUMI AGM á www.lumiconnect.com/meeting/marel2023 og fá í kjölfar skráningar send aðgangsauðkenni til að taka þátt í fundinum og greiða atkvæði bæði fyrir og meðan á fundi stendur.
Hluthafar sem eiga hlutabréf skráð í Euronext kauphöllinni í Amsterdam skrá þátttöku á aðalfundinn með milligöngu vörsluaðila hlutabréfanna. ABN AMRO er umboðsaðili Marel vegna hlutabréfa sem skráð eru í Euronext kauphöllinni og vörsluaðilar skrá þátttöku á aðalfundinn í gegnum vefsíðuna www.abnamro.com/intermediary. Hluthafar geta einnig skráð sig á aðalfundinn í gegnum vefsíðuna www.abnamro.com/evoting. Hluthafar sem eiga hlutabréf sem skráð eru í Euronext kauphöllinni geta ekki skráð sig á aðalfundinn við inngang fundarins og skráning á aðalfundinn verður að hafa borist félaginu fyrir kl. 12 á fundardag.
Framboð til setu í stjórn félagsins skulu berast skriflega til stjórnar félagsins að minnsta kosti 14 dögum fyrir upphaf aðalfundar, þ.e. fyrir kl. 16 miðvikudaginn 8. mars.
Hluthafar eiga rétt á að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á hluthafafundi og skal kröfu þar um fylgja rökstuðningur eða drög að ályktun til stjórnar. Tillögum og fylgiskjölum skal skilað til stjórnar félagsins eigi síðar en tíu dögum fyrir aðalfundinn, þ.e. í síðasta lagi fyrir kl. 16 sunnudaginn 12. mars, á netfangið [email protected]
Fundarstörf munu fara fram á ensku. Á aðalfundarvef félagsins, www.marel.com/agm er að finna allar frekari upplýsingar í tengslum við aðalfundinn, þ.m.t. upplýsingar um rétt hluthafa til að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar og leggja fram ályktunartillögur fyrir fundinn, tillögur stjórnar félagsins, ársreikning félagsins fyrir árið 2022, upplýsingar um heildarfjölda hluta og atkvæðafjölda í félaginu þann 16. febrúar 2023, reglur um rafræna kosningu og frekari upplýsingar um skráningu og atkvæðagreiðslu.
Dagskrá fundarins og endanlegar tillögur verða gerðar aðgengilegar hluthöfum 14 dögum fyrir fundinn á www.marel.com/agm
Stjórn Marel hf.
Fjárfestatengsl
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið [email protected] og í síma 563 8001.
Um Marel
Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Í gegnum árin, hefur Marel skref fyrir skref, útvíkkað starfsemi sína. Með kaupunum á Wenger 2022 myndast fjórða stoðin í viðskiptamódeli Marel með áherslu á lausnum fyrir matvælavinnslu fyrir gæludýr, plöntuprótein og fóður fyrir fiskeldi. Hjá félaginu starfa yfir 8.000 manns í yfir 30 löndum, þar af um 750 á Íslandi. Tekjur Marel námu um 1,7 milljarði evra árið 2022 en árlega fjárfestir Marel um 6% af tekjum í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið hefur verið skráð í Kauphöll Íslands síðan 1992 og var lokið við tvíhliða skráningu í Euronext Kauphöllina í Amsterdam árið 2019. Frekari upplýsingar má finna á marel.com/ir.
Viðhengi: