AI assistant
Marel — AGM Information 2023
Mar 8, 2023
2191_rns_2023-03-08_55e75d1f-dc6f-4698-84d8-8fa890726885.html
AGM Information
Open in viewerOpens in your device viewer
Marel: Framboð til stjórnar, endanleg dagskrá og tillögur til aðalfundar 2023
Marel: Framboð til stjórnar, endanleg dagskrá og tillögur til aðalfundar 2023
Framboðsfrestur til stjórnar Marel hf. rann út kl. 16:00 þann 8. mars 2023. Aðalfundur félagsins verður haldinn miðvikudaginn 22. mars 2023 kl. 16:00.
Eftirtaldir sjö aðilar gefa kost á sér til setu í stjórn Marel:
Ann Elizabeth Savage, Spalding, Englandi
Arnar Þór Másson, Reykjavík
Ástvaldur Jóhannsson, Seltjarnarnesi
Lillie Li Valeur, Vejle, Danmörku
Ólafur Steinn Guðmundsson, Princeton, New Jersey, Bandaríkjunum
Svafa Grönfeldt, Boston, Bandaríkjunum
Ton van der Laan, Berlicum, Hollandi
Frekari upplýsingar um framangreinda aðila eru aðgengilegar í skýrslu tilnefninganefndar félagsins á upplýsingasíðu aðalfundar 2023 á heimasíðu félagsins: marel.com/agm
Endanleg dagskrá og tillögur stjórnar til fundarins eru í viðhengi.
Fjárfestatengsl
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið [email protected] og í síma 563 8001.
Um Marel
Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Í gegnum árin, hefur Marel skref fyrir skref, útvíkkað starfsemi sína. Með kaupunum á Wenger 2022 myndast fjórða stoðin í viðskiptamódeli Marel með áherslu á lausnum fyrir matvælavinnslu fyrir gæludýr, plöntuprótein og fóður fyrir fiskeldi. Hjá félaginu starfa um 8.000 manns í yfir 30 löndum, þar af um 750 á Íslandi. Tekjur Marel námu um 1,7 milljarði evra árið 2022 en árlega fjárfestir Marel um 6% af tekjum í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið hefur verið skráð í Kauphöll Íslands síðan 1992 og var lokið við tvíhliða skráningu í Euronext Kauphöllina í Amsterdam árið 2019. Frekari upplýsingar má finna á marel.com/ir.
Viðhengi: