AI assistant
Marel — AGM Information 2023
Dec 19, 2023
2191_rns_2023-12-19_8c696fbf-fc12-43a7-b9f1-9b81b63b4dfe.html
AGM Information
Open in viewerOpens in your device viewer
Marel: Fjárhagsdagatal 2024
Marel: Fjárhagsdagatal 2024
Marel mun halda aðalfund og birta árshluta- og ársuppgjör félagsins samkvæmt neðangreindu fjárhagsdagatali.
Fjárhagsdagatal 2024
| 1F 2024 | 29. apríl 2024 | Árshlutauppgjör. Fjárfestafundur 30. apríl 2024 |
| 2F 2024 | 24. júlí 2024 | Árshlutauppgjör. Fjárfestafundur 25. júlí 2024 |
| 3F 2024 | 30. október 2024 | Árshlutauppgjör. Fjárfestafundur 31. október 2024 |
| 4F 2024 | 12. febrúar 2025 | Árshluta- og ársuppgjör. Fjárfestafundur 13. febrúar 2025 |
| AGM | 26. mars 2025 | Aðalfundur Marel |
Áður birt dagatal fyrir fjárhagsárið fyrir 2023 er óbreytt:
| 4F 2023 | 7. febrúar 2024 | Árshluta- og ársuppgjör. Fjárfestafundur 8. febrúar 2023 |
| AGM | 20. mars 2024 | Aðalfundur Marel |
Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaða. Vinsamlegast athugið að dagsetningarnar eru birtar með fyrirvara um breytingar.
Fjárfestafundir og vefvarp
Fjárfestum og öðrum markaðsaðilum er boðið á fjárfestafundi sem haldnir eru ársfjórðungslega. Fundirnir fara fram á ensku. Fundinum er vefvarpað beint á marel.com/webcast og upptaka gerð aðgengileg á marel.com/ir eftir fundinn. Markaðsaðilum gefst einnig tækifæri til að hringja inn á fundina.
Fjárfestatengsl
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið [email protected] og í síma 563 8001.
Um Marel
Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Í gegnum árin, hefur Marel skref fyrir skref, útvíkkað starfsemi sína. Með kaupunum á Wenger 2022 myndast fjórða stoðin í viðskiptamódeli Marel með áherslu á lausnum fyrir matvælavinnslu fyrir gæludýr, plöntuprótein og fóður fyrir fiskeldi. Hjá félaginu starfa um 8.000 manns í yfir 30 löndum. Tekjur Marel námu um 1,7 milljarði evra árið 2022 en árlega fjárfestir Marel um 6% af tekjum í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið hefur verið skráð í Kauphöll Íslands síðan 1992 og var lokið við tvíhliða skráningu í Euronext Kauphöllina í Amsterdam árið 2019. Frekari upplýsingar má finna á marel.com/ir.
Viðhengi: