Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Kvika banki Proxy Solicitation & Information Statement 2021

Mar 30, 2021

2199_rns_2021-03-30_86d57497-199a-40c5-9b59-d79a576bcecf.html

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

Kvika banki hf.: Aðalfundur 21. apríl 2021

Kvika banki hf.: Aðalfundur 21. apríl 2021

Aðalfundur Kviku banka hf., kt. 540502-2930, verður haldinn miðvikudaginn 21. apríl 2021, kl. 16:00, á Hilton Reykjavík Nordica, 2. hæð, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík.

Á dagskrá fundarins verða eftirfarandi mál:

  1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár.
  2. Ársreikningur félagsins fyrir árið 2020 og ákvörðun um meðferð hagnaðar félagsins á reikningsárinu.
  3. Tillaga um að heimila félaginu að kaupa eigin hlutabréf.
  4. Tillaga um starfskjarastefnu félagsins.
  5. Tillaga stjórnar um breytingar á samþykktum félagsins.
  6. Kosning stjórnar og varastjórnar félagsins.
  7. Kosning endurskoðenda félagsins.
  8. Ákvörðun þóknunar til stjórnarmanna og nefndarmanna í undirnefndum stjórnar.
  9. Önnur mál.

Fundarstörf fara fram á íslensku. Fundargögn verða aðgengileg á heimasíðu félagsins á íslensku og ensku utan þess að ársreikningur félagsins er eingöngu aðgengilegur á ensku. Dagskrá, endanlegar tillögur, starfskjarastefna, ársreikningur félagsins og önnur fundargögn munu liggja frammi á skrifstofu félagsins að Katrínartúni 2, Reykjavík, hluthöfum til sýnis í 21 dag fyrir aðalfund. Umrædd gögn, ásamt upplýsingum um frambjóðendur til stjórnar, eru einnig birt á heimasíðu félagsins, https://www.kvika.is/fjarfestaupplysingar/hluthafafundir/.

Um frekari upplýsingar vísast til meðfylgjandi fundarboðs.

Viðhengi: