AI assistant
Kvika banki — Proxy Solicitation & Information Statement 2021
Aug 17, 2021
2199_rns_2021-08-17_5abc683f-64c9-4dbf-a7f5-1bf3ba17e9b9.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
KVIKA
EFTIRTALDIR ADILAR ERU Í FRAMBODI TIL STJÓRNAR KVIKU BANKA HF. Á HLUTHAFAFUNDI BANKANS SEM HALDINN VERDUR 7. SEPTEMBER NK:
ADALMAĐUR:
Ingunn Svala Leifsdóttir er fædd árið 1976. Ingunn Svala lauk BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1999, með áherslu á reikningshald og fjármál, og Cand. Oecon prófi í viðskiptafræði frá sama skóla árið 2001, með áherslu á reikningshald og stjórnun. Ingunn Svala lauk Advanced Management program (AMP) frá IESE Business School í New York útibúi árið 2018. Ingunn Svala hefur reynslu af stjórnunarstörfum og er stjórnarmáður Slippsins Akureyri ehf. og Parlogis ehf. Hún hefur setið í framkvæmdastjórn rekstrar Háskólans í Reykjavík frá árinu 2015 og ber ábyrgð á rekstri stoðsviða skólans og dótturfélaga hans. Ingunn Svala sat í endurskoðunarnefnd Vís og var stjórnarmáður Lífís ehf. til ársins 2021. Ingunn Svala var í eigin rekstri um tíma, s.s. rak bókhaldsstofu ásamt kaup og sölu fasteigna. Hún starfaði fyrir skilanefnd Kaupþings og var framkvæmdastjóri fjármálasviðs bankans til ársins 2011. Einnig var hún Global Business Controller for Invenstment Banking hjá Kaupþingi til ársins 2008. Ingunn Svala starfaði sem fjármálastjóri fyrir fjögur dótturfélög Actavis Group og aðstoðarmáður fjármálastjóra Delta hf sem var forveri Actavis.
VARAMAĐUR:
Helga Jóhanna Oddsdóttir er fædd árið 1973. Helga Jóhanna lauk BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1998 og M.S gráðu í viðskiptafræði, með áherslu á stjórnun og stefnumótun, árið 2005 frá sama skóla. Hún hefur þá lokið tveimur fögum til M.L gráðu í lögfræði við Háskólann í Reykjavík árið 2011 og sótti námskeiðin Executive coaching árið 2012 og Ábyrgð og árangur stjórnarmanna árið 2015 við Háskólann í Reykjavík. Helga Jóhanna lauk einnig NLP coaching námi frá Bruen. Helga Jóhanna er Sviðsstjóri rekstrarsviðs og staðgengill forstjóra hjá HS Veitum frá árinu 2020. Hún er framkvæmdastjóri Strategic Leadership frá árinu. Helga Jóhanna starfaði sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Opinna Kerfa til ársins 2011. Áður starfaði Helga Jóhanna sem forstöðumaður starfsmannaþjónustu Reykjanesbæjar til ársins 2009. Helga Jóhanna var mannauðsstjóri Landsbankans/Landsbréfa til ársins 2003. Helga Jóhanna er hún varamáður í stjórn Frjálsa Lífeyrissjóðsins og Samorku samtaka orku- og veitufyrirtækja á Íslandi. Hún hefur setið í stjórnum einkahlutafélaga í hennar eigu og fjölskyldunnar. Helga Jóhanna hefur þá tekið að sér leiðtogaþróun á sveitarfélagastigi í Kambodíu á vegum Evrópusambandsins. Helga Jóhanna hefur starfað sem aðstoðarmáður Runólfs Smára Steinþórssonar prófessors við Háskóla Íslands og hún var m.a. starfsmaður matsnefndar á vegum Menntamálaráðuneytisins. Hún sat í Barnaverndarnefnd Reykjanesbæjar í átta ár og í fræðsluráði í fjögur ár. Helga Jóhanna sat í stjórn starfsþróunar- og fræðsluhóps Stjórnvísi og kom að stefnumótun Flóru félags mannauðsstjóra við breytingar á félaginu.