AI assistant
Kvika banki — Proxy Solicitation & Information Statement 2021
Aug 17, 2021
2199_rns_2021-08-17_45f8ed09-b2c4-4ca8-a1ae-9548ffa7c95f.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
KVIKA
FUNDARBOD KVIKU BANKA HF.
til hluthafafundar 7. september 2021
Hluthafafundur Kviku banka hf., kt. 540502-2930, verður haldinn þriðjudaginn 7. september 2021 kl. 16:00, á starfsstöð félagsins að Katrínartúni 2, 9. hæð, 105 Reykjavík.
Á dagskrá fundarins verða eftirfarandi mál:
1) Kosning eins aðalmanns og eins varamanns í stjórn félagsins.
2) Önnur mál.
Fundarstörf fara fram á íslensku. Fundargögn eru aðgengileg á heimasíðu félagsins á íslensku og ensku. Sé misræmi milli fundargagna á íslensku og ensku, gildir íslenska útgáfan. Fundargögn eru aðgengileg á vefslóðinni https://www.kvika.is/fjarfestaupplysingar/hluthafafundir/ og skrifstofu félagsins að Katrínartúni 2, 105 Reykjavík.
Hvorki verður hægt að taka þátt á fundinum né greiða atkvæði með rafrænum hætti. Hluthafar geta óskað eftir því að fá að greiða atkvæði um mál sem eru á dagskrá fundarins bréflega. Skal beiðni um slíka atkvæðagreiðslu hafa borist á skrifstofu félagsins eða á netfangið [email protected] eigi síðar en fimm dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 16:00 fimmtudaginn 2. september 2021. Atkvæðagreiðslur og kosningar verða einungis skriflegar á fundinum komi fram krafa um slíkt frá einhverjum atkvæðisbærra fundarmanna og að gengnum úrskurði fundarstjóra um slíkt fyrirkomulag. Þó verður kjör stjórnarmanna skriflegt ef fleiri einstaklingar eru í framboði en kjósa skal.
Hver hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á fundinum ef hann sendir um það skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar á heimilisfang félagsins eða á netfangið [email protected]. Þeir hluthafar sem óska eftir því að fá tiltekið mál tekið til meðferðar á hluthafafundinum skulu sendar beiðni um slíkt eigi síðar en tíu dögum fyrir boðaðan hluthafafund, eða í síðasta lagi fyrir kl. 16:00 þann 28. ágúst 2021. Kröfu skal fylgja rökstuðningur eða drög að ályktun til félagsstjórnar. Hluthafar geta einnig lagt fram spurningar fyrir hluthafafund með því að sendar erindi á framangreint netfang eða bera þær upp á fundinum sjálfum.
Þeim sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn ber að tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins að minnsta kosti fimm dögum fyrir upphaf hluthafafundar, þ.e. fyrir kl. 16:00 fimmtudaginn 2. september 2021. Í tilkynningu um framboð til stjórnar skal geta nafns frambjóðanda, kennítolu, heimilisfangs, menntunar, upplýsinga um aðalstarf og starfsferil, hvenær viðkomandi tók fyrst sæti í stjórn félagsins ef við á, önnur trúnaðarstörf (t.a.m. stjórnarstörf í öðrum félögum) og hlutafjáreign í félaginu, beint eða í gegnum tengda aðila. Þá skal upplýsa um önnur tengsl við félagið og hagsmunatengsl við helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins, sem og hluthafa sem eiga, einir eða í samstarfi við aðra, meira en 10% hlut í félaginu. Þeir einir eru kjörengir til setu í stjórn félagsins sem þannig hafa gefið kost á sér. Krafa um hlutfallskosningu eða margfeldiskosningu, obr. 7. mgr. 63. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995, skal hafa borist stjórn félagsins minnst fimm dögum fyrir fundinn þ.e. fyrir kl. 16:00 fimmtudaginn 2. september 2021. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar munu liggja frammi hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins sem og á heimasíðu félagsins, eigi síðar en tveimur dögum fyrir fundinn, obr. 63. gr. a laga um hlutafélög nr. 2/1995. Framboðsform til stjórnarsetu er aðgengilegt á vefsíðu félagsins.
Hluthafafundurinn er lögmætur ef löglega er til hans boðað, óháð fundarsókn. Aðilar sem eru skráðir hluthafar í hlutaskrá félagsins þegar hluthafafundur fer fram geta beitt réttindum sínum á hluthafafundinum. Hluthafar geta látið umboðsmann sækja fundinn fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt og dagsett umboð, en form að umboði er aðgengilegt á vefsíðu félagsins. Umboð má leggja fram á fundinum eða sendar á framangreint netfang fyrir fundinn.
Stjórn Kviku banka hf.
Kvika banki hf.
Katrínartún 2
105 Reykjavík
[email protected]
kvika.is