Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Kvika banki M&A Activity 2021

Mar 9, 2021

2199_rns_2021-03-09_1dabf638-876c-4f6a-9835-a87514ee35cf.html

M&A Activity

Open in viewer

Opens in your device viewer

Kvika banki hf.: Skilyrt samþykki FME fyrir samruna Kviku, TM og Lykils

Kvika banki hf.: Skilyrt samþykki FME fyrir samruna Kviku, TM og Lykils

Þann 23. febrúar sl. tilkynnti Kvika banki hf. („Kvika“) að undirrituð hefði verið samrunaáætlun vegna fyrirhugaðs samruna Kviku, TM hf. („TM“) og Lykils fjármögnunar hf. („Lykill“). Þann 26. febrúar síðastliðinn var svo tilkynnt um að tveir af fjórum fyrirvörum í samrunasamningi félaganna frá 25. nóvember sl. hefðu verið uppfylltir. Eftir stæðu fyrirvarar um samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands („FME“) fyrir samrunanum og samþykki hluthafafunda í Kviku, TM og Lykli.

Í dag, 9. mars 2021, tilkynnti FME Kviku, TM og Lykli að fjármálaeftirlitsnefnd hefði afgreitt umsókn um samruna félaganna. Mat nefndarinnar er að forsendur séu til staðar til þess að veita samþykki fyrir samrunanum skv. 106. gr. laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 þegar samrunaferlinu er lokið samkvæmt ákvæðum hlutafélagalaga.

Hluthafafundir verða haldnir í Kviku, TM og Lykli þann 30. mars nk., þar sem ákvörðun um samruna félaganna er á dagskrá, sbr. fundarboð sem birt voru þann 8. mars sl.