AI assistant
Kvika banki — Capital/Financing Update 2021
Mar 16, 2021
2199_rns_2021-03-16_a0768d63-1007-4e00-81cd-776d5090b09c.html
Capital/Financing Update
Open in viewerOpens in your device viewer
Kvika banki hf.: Kvika heldur útboð á víxlum
Kvika banki hf.: Kvika heldur útboð á víxlum
Í boði eru víxlar í þremur flokkum. Boðnir eru til sölu 3 mánaða flokkurinn KVB 21 0621, 6 mánaða flokkurinn KVB 21 0921 og 9 mánaða flokkurinn KVB 21 1222. Samþykkt tilboð í hverjum flokki munu nema að hámarki 1.000 m.kr. að nafnverði. Heildarútgáfa verður að hámarki 2.000 m.kr.
Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á sama verði. Lægsta samþykkta verðið (hæstu samþykktu flötu vextir) ræður söluverðinu. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m.kr. nafnverðseiningum og verða skráðir í kauphöll Nasdaq Iceland. Tekið er við tilboðum til kl. 16:00 fimmtudaginn 18. mars. Uppgjörsdagur er mánudagurinn 22. mars 2021.
Vinsamlegast hafið samband við markaðsviðskipti Kviku í síma 540-3220 eða með tölvupósti á [email protected] til þess að fá nánari upplýsingar um útboðið.
Viðhengi: