Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Kvika banki Capital/Financing Update 2021

Dec 1, 2021

2199_rns_2021-12-01_1f5ad419-6dd4-4868-b7a3-4a473dd92367.html

Capital/Financing Update

Open in viewer

Opens in your device viewer

Kvika banki hf.: Kvika heldur útboð á grænum skuldabréfum

Kvika banki hf.: Kvika heldur útboð á grænum skuldabréfum

Kvika mun halda lokað útboð á nýjum flokki grænna skuldabréfa, KVIKA 24 1216 GB, fimmtudaginn 9. desember. Skuldabréfin verða gefin út undir grænni fjármálaumgjörð bankans og skráð í kauphöll Nasdaq Iceland. Skuldabréfin eru nafnvaxtabréf til þriggja ára með fljótandi vöxtum og einni höfuðstólsgreiðslu á gjalddaga þann 16. desember 2024. Bréfin bera fljótandi REIBOR 3 mánaða vexti að viðbættu álagi sem greiddir eru ársfjórðungslega.

Útboðið verður með hollensku fyrirkomulagi, þ.e. öll skuldabréfin verða seld á hæsta álagi ofan á 3 mánaða REIBOR sem tekið verður. Stefnt er að gefa út 2 ma.kr. að nafnvirði í flokknum en heildarútgáfa verður takmörkuð við 5 ma.kr.

Áætlaður uppgjörsdagur er fimmtudagurinn 16. desember 2021.

Markaðsviðskipti Kviku hafa umsjón með útboðinu og er tekið á móti tilboðum á netfangið [email protected] til klukkan 16:00 fimmtudaginn 9. desember.