AI assistant
Klappir Grænar Lausnir hf. — AGM Information 2023
Apr 25, 2023
8457_rns_2023-04-25_d5d4452c-2b0c-441a-9114-49fd47442c25.pdf
AGM Information
Open in viewerOpens in your device viewer
Klappir
The smart way to sustainability
Framboð til stjórnarsetu
Aðalfundur Klappa Grænna Lausna hf. 27. apríl 2023
Í framboði til stjórnar Klappa Grænna Lausna hf. (hér eftir „Klappir“) á aðalfundi félagsins 27. apríl 2023 eru eftirtaldir einstaklingar:
Ágúst Einarsson
Ágúst hefur setið í stjórn Klappa frá árinu 2021.
Fæðingarár: 1962
Menntun: M.Sc. í Industrial and Business Engineering og B.Sc. í Mechanical Engineering frá Aalborg University
Aðalstarf: Sjálfstætt starfandi ráðgjafi
Starfsreynsla: Framkvæmdastjóri Tempo og dótturfélaga (2015-2019), framkvæmdastjóri TM Software og stjórnarformaður dótturfélaga (2006-2015), framkvæmdastjóri Skyggnis (2003-2006), framkvæmdastjóri TrackWell (1999-2003), Area Manager hjá Navision Software, Europe (1994-1999)
Önnur stjórnarseta: ExMon Software ehf. (stjórnarformaður)
Hlutafjáreign í Klöppum og hagsmunatengsl: Ágúst á enga hluti í Klöppum en starfar m.a. fyrir félagið sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptamenn og samkeppnisaðila félagsins
Gunnar Sigurðsson
Gunnar hefur setið í stjórn Klappa frá árinu 2022.
Fæðingarár: 1992
Menntun: M.Sc. í fjármálum fyrirtækja frá Háskóla Íslands, M.Sc. í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands og B.Sc. í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands
Aðalstarf: Sérfræðingur í markaðsviðskiptum hjá Arctica Finance hf.
Starfsreynsla: Kennari og aðstoðarkennari við Háskóla Íslands (2017- ), sérfræðingur á fjármálasviði Rapyd (áður Korta hf.) (2019-2023), verkefnastjóri hjá VHE ehf. (2012-2016)
Önnur stjórnarseta: Skotveiðifélag Íslands (stjórnarmaður) og Binary ehf. (stjórnarmaður)
Hlutafjáreign í Klöppum og hagsmunatengsl: Gunnar á enga hluti í Klöppum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptamenn og samkeppnisaðila félagsins.
Hildur Jónsdóttir
Hildur hefur setið í stjórn Klappa frá árinu 2014.
Fæðingarár: 1958
Menntun: Diplómanám í mannaðsstjórnun við Háskóla Íslands, tveggja ára sérnám í hugrænni atferlismeðferð við Háskóla Íslands, Cand.Pysk (MS) frá Psykologisk Institut Aarhus Universitet
Aðalstarf: Fjárfestir
Starfsreynsla: framkvæmdastjóri Kvista eignarhaldsfélags (2013- ), starfsmannastjóri Klappa (2017-2021), starfsmannastjóri Ark Technology ehf. (2014-2017), sjálfstætt starfandi sálfræðingur (2010-2015), stofurekstur eigin sálfræðistofu (2003-2010), sálfræðingur við Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða (2005-2011), sálfræðingur við Fræðslumiðstöð Reykjavíkur (1997-2005), forstöðumaður Dalhúss hjá Félagsmálastofnun Kópavogs, fjölskyldudeild (1993-1995), meðferðarfulltrúi í unglingathvarfi F.R. Keilufelli hjá Félagsmálastofnun Reykjavíkur (1991-1993)
Önnur stjórnarseta: Engin
Hlutafjáreign í Klöppum og hagsmunatengsl: Hildur er einn af eigendum Kvista eignarhaldsfélags ehf. sem á 17.694,871 hluti í félaginu. Hildur er jafnframt maki daglegs stjórnanda félagsins.
Sigurður Þórarinsson
Fæðingarár: 1967
Menntun: M.Sc. í Industrial Engineering frá University of Washington og B.Sc. í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands
Aðalstarf: Tæknistjóri (CTO) Landspítala
Starfsreynsla: Sjálfstætt starfandi ráðgjafi (2020- ), tæknistjóri (CTO) hjá Tempo Software (2017-2021), Director of Development and Operations hjá Sabre Airline Solutions (2011-2017), tæknistjóri (CTO) hjá Nyherja (2010-2011), Director of Managed Services hjá Skyggni/Nýherja (2008-2010), Managing Director (2006-2008) og Manager of Operations hjá Skyggni (2004-2006), meðstofnandi og
stjórnarmaður hjá TrackWell Software (1996-2004), Software Engineer and System Administrator hjá Háskóla Íslands (1991-1994)
Önnur stjórnarseta: Stokkur ehf. (stjórnarformaður)
Hlutafjáreign í Klöppum og hagsmunatengsl: Sigurður á enga hluti í Klöppum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptamenn og samkeppnisaðila félagsins
Vilborg Einarsdóttir
Vilborg hefur setið í stjórn Klappa frá árinu 2022.
Fæðingarár: 1967
Menntun: M.Sc. í viðskiptafræði á sviði stjórnunar og stefnumótunar, B.Ed. í kennslufræðum frá Kennaraháskóla Íslands
Aðalstarf: Stofnandi og framkvæmdastjóri Bravo Earth ehf.
Starfsreynsla: Fyrirlesari og stundakennari í ýmsum námskeiðum Háskóla Íslands, meðstofnandi og forstjóri Mentor ehf. (2000-2019), kennari við Háskóla Íslands (2003-2005), skólastjóri og stofnandi MFA-skólans (1990-1997)
Önnur stjórnarseta: Engin
Hlutafjáreign í Klöppum og hagsmunatengsl: Vilborg á 17.105 hluti í Klöppum í gegnum Vilma ehf. Jafnframt á Bravo Earth ehf. í viðskiptum við tvo af helstu viðskiptamönnum félagsins. Fram skal einnig koma að Bravo Earth ehf. selur hugbúnað til að halda utan um og koma sjálfbærnistefnu í framkvæmd. Félagið er ekki í samkeppni við Klappir en selur til sama markhóps