Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Klappir Grænar Lausnir hf. AGM Information 2021

Mar 22, 2021

8457_rns_2021-03-22_6c11c521-d6c5-4a54-9033-cf9617027bd3.pdf

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

KLAPPIR

Ályktunartillögur stjórnar Klappa Grænna Lausna hf.

fyrir aðalfund félagsins þann 13. apríl 2021

Dagskrárliður 3

Tillaga um staðfestingu á ársreikningi félagsins.

Stjórn leggur til að ársreikningur fyrir árið 2020 verði samþykktur.

Greinargerð:

Ársreikningur félagsins vegna ársins 2020 er aðgengilegur á vefsíðu Klappa Grænna Lausna hf. www.klappir.com/fjarfestar

Ársreikningurinn verður kynntur af forstjóra félagsins, Jóni Ágústi Þorsteinssyni.

Dagskrárliður 4

Ákvörðun um tillögu stjórnar um hvernig skuli fara með hagnað eða tap ársins 2020.

Stjórn leggur til við aðalfund að ekki verði greiddur arður en að tap ársins verði fært til lækkunar á eigirn fé félagsins.

Dagskrárliður 6

Kosning endurskoðunarfélags

Stjórn leggur til að Deloitte ehf. og Birna María Sigurðardóttir löggiltur endurskoðandi, sem þar starfar, verði kjörrið endurskoðunarfirma félagsins.

Dagskrárliður 7

Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna

Lagt er til að stjórnarlaun verði óbreytt eða sem nemur kr. 50.000 fyrir hvern setinn stjórnarfund.


Dagskrárliður 8

Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins

Stjórn leggur til að framlögð starfskjarastefna verði samþykkt.

Dagskrárliður 9

Tillaga stjórnar um heimild félagsins til kaupa á eigin hlutum

Stjórn leggur til að:

„Aðalfundur Klappa Grænna Lausna hf., haldinn 13. apríl 2021, samþykki að veita stjórn félagsins heimild, á grundvelli 55. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög, til að kaupa fyrir hönd félagsins allt að 10% af hlutafé þess.

Kaupverð hvers hlutar má ekki vera hærra en nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra. Heimildina má nýta í eitt skipti eða fleiri. Heimild þessi gildir í 18 mánuði frá aðalfundardegi 2021“

Dagskrárliður 10

Tillaga stjórnar til aðalfundar um tillögur til breytinga á samþykktum félagsins

Stjórn leggur til nokkrar breytingar á samþykktum félagsins sem eru einkum til þess fallnar að auka skýrleika þeirra. Helstu efnisbreytingar sem stjórn leggur til eru eftirfarandi:

  • Stjórn leggur til að gildandi heimild til útgáfu nýrra hluta verði framlengd til 18 mánaða og að tekin verði af tvímæli um það að hluti hennar sé bundinn hugsanlegri útgáfu hlutafjár til að efna skuldbindingar félagsins skv. gildandi kaupréttaráætlun.
  • Að gerð verði grein fyrir reglum sem gilda um rétt hluthafa til að fá tiltekin mál tekin fyrir á hluthafafundi.
  • Að framvegis verði kjörnir 5 stjórnarmenn í stað 3 til 7 stjórnarmanna.
  • Að tilgreint verði að hugsanleg heimild stjórnar til kaupa á eigin hlutum félagsins skuli tilgreind hverju sinni í viðauka við samþykktir félagsins á meðan heimildin gildir.

Dagskrárliður 11

Önnur mál löglega fram borin

Stjórn félagsins hefur borist erindi frá hluthafa um að eftirfarandi tillaga verði tekin til afgreiðslu á fundinum. Stjórn tekur ekki afstöðu til tillögunnar.

Tillagan ásamt rökstuðningi er svohljóðandi:

„Breytingar á samþykktum félagsins,.

  1. Sameining hlutaflokka í félaginu. Grein 2.01 – liðir 1-6

“Aðalfundur félagsins samþykkir að sameina A- og B-flokka hlutabréfa í félaginu, þannig að allir hlutir í félaginu hafi sama vægi varðandi atkvæðarétt og önnur réttindi. Stjórn félagsins skal annast nánari útfærslu á þeim breytingum á samþykktum félagsins sem af sameiningu flokkana leiðir. Öll hlutabréf félagsins skulu skráð í kauphöll.“

Röksemdir með tillögunni.

Stjórn Klappa grænna lausna hf. ákvað árið 2017 að gera þá tilraun að hafa tvo flokka hlutabréfa í félaginu. Annars vegar A-flokk sem færi með allan atkvæðarétt hluthafa og hins vegar B-flokk hlutabréfa sem hefði ekki atkvæðarétt en væri skráður í kauphöll. Skipting þessi var að norrænnni fyrirmynd en hefur lítið þekkt á Íslandi.

Sú reynsla sem hefur fengist á þessari skiptingu hlutaflokka hefur ekki verið góð. Í reynd er það þannig að 90-95% af þeim aðilum sem eru að kaupa hlutabréf á Íslenska hlutabréfamarkaðinum (þar á meðal allir lífeyrissjóðirnir) hafa ekki sýnt því áhuga á að eignast hlutabréf sem ekki hafa fullan atkvæðarétt.

Fáir kaupendur að atkvæðalausum bréfum þýðir einfaldlega minni eftirspurn og samkvæmt öllum hefðbundum lögmálum, lægra verð. Sameining flokkanna er því til þess fallin að auka eftirspurn eftir bréfum félagsins og verkar þannig jákvætt á starfsemi félagsins.“