Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Klappir Grænar Lausnir hf. AGM Information 2021

Mar 24, 2021

8457_rns_2021-03-24_a627df64-bc9b-460b-add3-e471d3ab23bc.html

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Klappir Grænar Lausnir hf. - Breyting á dagskrá aðalfundar 13. apríl 2021

Klappir Grænar Lausnir hf. - Breyting á dagskrá aðalfundar 13. apríl 2021

Klappir Grænar Lausnir hf. birtu tilkynningu um dagskrá aðalfundar þann 13. apríl 2021 ásamt framkomnum tillögum til breytingar á samþykktum með frétt þann 22. mars 2021. Meðal framkominna tillagna var eftirfarandi tillaga:

  1. Sameining hlutaflokka í félaginu.  Grein 2.01 – liðir 1-6

“Aðalfundur félagsins samþykkir að sameina A- og B-flokka hlutabréfa í félaginu, þannig að allir hlutir í félaginu hafi sama vægi varðandi atkvæðarétt og önnur réttindi.  Stjórn félagsins skal annast nánari útfærslu á þeim breytingum á samþykktum félagins sem af sameiningu flokkana leiðir.  Öll hlutabréf félagsins skulu skráð í kauphöll. “ 

Framangreind tillaga hefur verið afturkölluð og kemur því ekki til umræðu eða afgreiðslu á aðalfundi félagsins.

Hluthafar eiga rétt á að fá mál sett á dagskrá aðalfundar og leggja fram ályktunartillögu ef gerð hefur verið skriflega eða rafræn krafa þar um. Óski hluthafi eftir að koma máli eða tillögu á dagskrá fundarins skal slík beiðni hafa borist skrifstofu félagsins eða á netfangið [email protected] eigi tíu dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 16:00 laugardaginn 3. apríl 2021.

Nánari upplýsingar

Frekari upplýsingar veitir Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri í síma 664 9200.