Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Kaldalón hf. Proxy Solicitation & Information Statement 2025

Mar 8, 2025

6045_rns_2025-03-08_9e64f126-9887-4650-83bb-434043dff5a6.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

KALDALÓN

FUNDARBOD

Stjórn Kaldalóns hf., kt. 490617-1320, Kollunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík („félagið“) boðar til aðalfundar í félaginu fimmtudaginn 3. apríl 2025, kl. 16:00. Fundurinn verður haldinn á Reykjavík Natura, Nauthólsvegi 52, 101 Reykjavík.

Á dagskrá fundarins verða eftirfarandi liðir:

1) Skýrsla stjórnar um rekstur og starfsemi félagsins síðastliðið rekstrarár
2) Staðfesting ársreiknings félagsins fyrir síðastliðið rekstrarár
3) Ákvörðun um meðferð hagnaðar eða taps félagsins á síðastliðnu rekstrarári
4) Kosning stjórnar og varamanna í stjórn félagsins
5) Kjör endurskoðanda félagsins
6) Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna félagsins og undirnefnda
7) Samþykkt starfskjarastefnu félagsins
8) Kosning þriggja fulltrúa í tilnefningarnefnd
9) Atkvæðagreiðsla um fyrirliggjandi tillögu um utanaðkomandi nefndarmann í endurskoðunarnefnd
10) Lækkun hlutafjár með niðurfellingu eigir hluta og samsvarandi breyting á samþykktum félagsins, þar sem gerð er tillaga um að hlutafé félagsins verið lækkáð um kr. 337.501.390, eða 33.750.139 hluti
11) Önnur mál löglega fram boðin

Ekki verður boðið upp á rafræna þátttöku á fundinum en hluthöfum gefst kostur á að senda umboðsmann á fundinn sem greiðir atkvæði fyrir þeirra hönd. Umboðsmaður skal leggja fram dagsett og skriflegt umboð við upphaf fundar. Umboð er að finna á vefsíðu félagsins kaldalon.is/adalfundur2025.

Fresti til að tilkynna um framboð til stjórnar á netfangið [email protected] lýkur fimm sólarhringum fyrir hluthafafund, nánar tiltekið kl. 16:00 laugardaginn 29. mars 2025. Notast skal við framboðseyðublað sem finna má á vefsíðu félagsins. Vísað er til fyrri auglýsinga tilnefningarnefndar eftir framboðum en óskað var eftir tillögum að stjórnarmönnum fyrir kl. 16:00 þann 31. janúar 2025. Starfsemi tilnefningarnefndar takmarkar ekki heimild frambjóðenda að skila inn framboðum. Tilnefningarnefnd mun ekki geta lagt mat á frambjóðendur sem tilkynna framboð eftir 31. janúar 2025.

Framboðum í tilnefningarnefnd félagsins skal skila á þar til gerðu eyðublaði sem finna má á vefsvæði fundarins. Framboðum skal skila á netfangið [email protected]. Framboðsfrestur rennur út 7 dögum fyrir hluthafafund, nánar tiltekið kl. 16:00 þann 27. mars 2025.

Upplýsingar um frambjóðendur verða birtar á skrifstofu og vefsíðu félagsins eigi síðar en tveimur dögum fyrir hluthafafund. Meðfylgjandi fundarboði er birt skýrsla tilnefningarnefndar félagsins.


Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á hluthafafundinum. Til þess að tillögur frá hluthafa verði teknar til umræðu á fundinum verður að skila þeim til stjórnar félagsins með nægilegum fyrirvara svo unnt verði að taka málið á dagskrá, þó í síðasta lagi 10 dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 16:00 mánudaginn 24. mars 2025. Tillögum skal skila á netfagnið [email protected].

Gögn vegna aðalfundar, þ.m.t. ársskýrsla félagsins, verða gerð aðgengileg eigi síðar en fimmtudaginn 13. mars nk. á vefsvæði fundarins kaldalon.is/adalfundur2025.

Reykjavík, 8. mars 2025

F.h. stjórnar Kaldalóns hf.

Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason
stjórnarformaður