Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Kaldalón hf. Proxy Solicitation & Information Statement 2022

May 4, 2022

6045_rns_2022-05-04_9b95b5c5-3c86-49db-918e-45ba2c42265e.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

KALDALÓN

FUNDARBOD

Stjórn Kaldalóns hf., kt. 490617-1320, Ingólfsstræti 3, 101 Reykjavík hefur borist beiðni frá SKEL fjárfestingarfélagi hf. um að boðað verði til hluthafafundar í félaginu og efnt þar til stjórnarkjörs. SKEL fjárfestingarfélag hf. á meira en 1/20 hlutafjár í Kaldalón hf. og ber stjórn Kaldalóns því að boða til hluthafafundar. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 25. maí 2022, kl 17:00, í Kornhlöðunni, Bankastræti 2, 101 Reykjavík.

Á dagskrá fundarins eru eftirfarandi mál:

  1. Kosning stjórnar og varamanna í stjórn félagsins.
  2. Önnur mál.

Ekki verður boðið upp á rafrænar þátttöku á fundinum en hluthöfum gefst kostur á að senda umboðsmann á fundinn sem greiðir atkvæði fyrir þeirra hönd. Umboðsmaður skal leggja fram dagsett og skriflegt umboð við upphaf fundar.

Fresti til að tilkynna um framboð til stjórnar á netfangið [email protected] lýkur fimm sólarhringum fyrir hluthafafund, nánar tiltekið kl. 17:00 föstudaginn 20. maí 2022. Í tilkynningu skulu frambjóðendur veita upplýsingar um nafn sitt, kennitölu, heimilisfang, aðalstarf, önnur stjórnarstörf, menntun, reynslu og hlutafjáreign í félaginu. Þá skulu frambjóðendur einnig upplýsa um hagsmunatengsl við helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins, sem og hluthafa félagsins sem eiga meira en 10% hlut í því.

Upplýsingar um frambjóðendur verða birtar á skrifstofu og vefsíðu félagsins eigi síðar en tveimur dögum fyrir hluthafafund.

Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á hluthafafundinum. Til þess að tillögur frá hluthafa verði teknar til umræðu á fundinum verður að skila þeim til stjórnar félagsins með nægilegum fyrirvara svo unnt verði að taka málíð á dagskrá, þó í síðasta lagi 10 dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 17:00 sunnudaginn 15. maí 2022.

Allar nánari upplýsingar um hluthafafundinn má finna á vefsíðu félagsins, www.kaldalon.is.

Reykjavík, 4. maí 2022

F.h. stjórnar Kaldalóns hf.

Almar D. Möller
stjórnarformaður