Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Islandsbanki Earnings Release 2016

Feb 24, 2017

2190_rns_2017-02-24_401ada18-3385-4613-9586-f748e30acbd0.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Islandsbanki hf. : Ársuppgjör 2016

Islandsbanki hf. : Ársuppgjör 2016

Ársuppgjör Íslandsbanka 2015

Helstu niðurstöður:

Helstu niðurstöður á árinu 2016:

* Hagnaður eftir skatta var 20,2 ma. kr., samanborið við 20,6 ma. kr. 2015.
Hagnaður ársins 2016 einkennist af sterkum grunntekjum og lokum sölu
eignarhluta Borgunar í Visa Europe, samanborið við háa jákvæða
virðisbreytingu útlána árið 2015.
* Arðsemi eigin fjár var 10,2% samanborið við 10,8% árið 2015
* Hagnaður af reglulegri starfsemi var 15,1 ma. kr., samanborið við 16,2 ma.
kr. 2015.  Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi miðað við 15%
eiginfjárhlutfall þáttar 1 var 10,7% samanborið við 12,4% 2015.
* Hreinar vaxtatekjur voru 31,8 ma. kr. (2015: 28,0 ma. kr.) sem er 14%
hækkun. Vaxtamunur hækkaði og var 3,1% (2015: 2,9%), að hluta vegna hærra
vaxtaumhverfis og  hækkandi eigin fjár.
* Hreinar þóknanatekjur voru 13,7 ma. kr. 2016 samanborið við 13,2 ma. 2015.
* 1,7 ma. kr. voru bókaðar sem einskiptiskostnaður vegna skemmda á húsnæði
bankans á Kirkjusandi og flutninga í nýjar höfuðstöðvar.
* Kostnaðarhlutfall var 56,9% (2015: 56,2%). Bankaskattur og
einskiptiskostnaður er undanskilinn við útreikning kostnaðarhlutfalls.
Langtímamarkmið bankans er 55%.
* Heildareignir voru 1.048 ma. kr. (sept 16: 1.068 ma. kr.).  Útlán til
viðskiptavina og lausafé nema 93% af heildareignum bankans.
* Útlán til viðskiptavina jukust í 688 ma. kr. á árinu sem er 3,3% aukning.
Ný útlán voru 163 ma. kr. sem dreifast á mismunandi viðskiptaeiningar
bankans, en styrking krónunnar hafði  dempandi áhrif á útlánaaukningu.
* Hlutfall útlána með sértæka virðisrýrnun eða í meira en 90 daga vanskilum
var 1,8% (des 15: 2,2%)
* Innlán frá viðskiptavinum við lok árs voru sambærileg við 2015.  Væntingar
um útflæði vegna losunar gjaldeyrishafta hafa ekki ræst.
* Eiginfjárhlutfallið var 25,2% og eiginfjárþáttur 1 (CET1) var 24,9%.
Víkjandi lán að fjárhæð EUR 138m var fyrirframgreitt í september.
* Lausafjárstaða bankans er sterk og er umfram kröfur eftirlitsaðila og innri
viðmið.  Í desember 2016 var lausafjárhlutfallið (LCR) 187% (sept 16: 195%)
og fjármögnunarhlutfallið (NSFR) var 123% (sept 16: 126%).
* Vogunarhlutfall (e. leverage ratio) var 16,0% við lok tímabilsins samanborið
við 18,1% í lok árs 2015 sem telst afar hóflegt.
* Bankinn gaf út þrjú skuldabréf í erlendri mynt á árinu og er bankinn nú að
fullu fjármagnaður á markaði. Fyrsta útgáfan var í janúar, USD 35m, næsta í
maí, EUR 75m og sú þriðja í ágúst, EUR 500m (65 ma. kr.) til fjögurra ára á
1,75% föstum vöxtum, sem jafngilti 200 punkta álagi yfir millibankavexti í
evrum (um z+97 punktar í dag).
* Í október 2016 hækkaði S&P lánshæfismat bankans í BBB/A-2 með jákvæðum
horfum og í janúar 2017 hækkaði Fitch mat sitt í BBB/F3 með stöðugum horfum.
Íslandsbanki er eini bankinn á Íslandi með tvö lánshæfismöt.

Helstu atriði á 4. ársfjórðungi 2016:

* Hagnaður eftir skatta var 4,6 ma. kr. á fjórðungnum (4F15: 3,9 ma. kr.).
* Hagnaður af reglulegri starfsemi miðað við 15% eiginfjárþátt 1 var 11,7% á
fjórðungnum (4F15: 12,8%).
* Hreinar vaxtatekjur voru 8,1 ma. kr.  (4F15: 7,0 ma. kr.).

* Hreinar þóknanatekjur voru 3,8 ma. kr. (4F15: 3,2 ma. kr.).

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka:

Árið 2016 var mjög gott ár fyrir Íslandsbanka og einkenndist af mikilvægum
áföngum í sögu bankans. Grunnrekstur bankans hélt áfram að styrkjast og tekjur
voru stöðugar. Endurskipulagningu lánasafnsins er lokið, eignarhlutir í óskyldum
rekstri hafa verið seldir og gæði eigna halda áfram að aukast.

Bankinn lét mikið að sér kveða á fjármagnsmörkuðum hér heima og erlendis. Helst
ber að nefna útgáfu á 500 milljón evra skuldabréfi og hefur ávöxtunarkrafa
bréfanna lækkað töluvert á eftirmarkaði. Í desember greiddi bankinn út sérstaka
arðgreiðslu að upphæð 27 ma. kr., en heildararðgreiðslur til íslenska ríkisins á
árinu 2016 voru 37 ma. kr. Með arðgreiðslunni var stigið fyrsta skrefið í átt að
að hagstæðari samsetningu á eiginfjárgrunni bankans og undirbúningi að breyttu
eignarhaldi.

Í takt við árangur við afnám gjaldeyrishafta og minnkandi skuldsetningu voru
lánshæfismatseinkunnir ríkissjóðs Íslands allar hækkaðar á árinu og eru nú A-3 /
A- / BBB+. Lánshæfismat Íslandsbanka fékk einnig hækkun í BBB frá bæði Standard
& Poor's og Fitch Ratings, en Íslandsbanki er eini bankinn á Íslandi með tvö
alþjóðleg lánshæfismöt.

Fjórða árið í röð eru viðskiptavinir Íslandsbanka ánægðustu viðskiptavinirnir
samkvæmt niðurstöðu Íslensku ánægjuvogarinnar. Átta ár í röð höfum við verið
kosinn faglegasti bankinn og sá banki sem veitir fyrirtækjum bestu
bankaþjónustuna.Hápunktur ársins var síðan flutningur okkar í nýjar höfuðstöðvar
þar sem svokölluð verkefnamiðuð vinnuaðstaða er höfð í fyrirrúmi. Verkefnamiðuð
vinnuaðstaða veitir okkur sveigjanleika í skipulagi og eykur samvinnu sem aftur
styður við þá stefnu okkar að vera #1 í þjónustu.

Afkomufundur á íslensku

Í dag kl. 12.30, munu Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, og Jón Guðni
Ómarsson, fjármálastjóri, kynna afkomu bankans á opnum fjárfestafundi og svara
fyrirspurnum. Fundurinn fer fram á íslensku og er haldinn í Norðurturni, útibúi
bankans að Hagasmára 3. Boðið verður upp á veitingar.

Skrá mig á fjárfestafund.

Símafundur á ensku

Einnig er markaðsaðilum boðið upp á símafund kl. 14.00 á ensku. Farið verður
yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og afkomu bankans. Vinsamlegast
skráið ykkur á símafundinn með að senda póst á [email protected]. Fundargögn og
aðgangsorð vegna símafundar verða send út til skráðra aðila 2 tímum fyrir
fundinn.

Öll gögn má nálgast á vef fjárfestatengsla www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl.

Upplýsingar um fjárhagsdagatal bankans og þögul tímabil má finna hér:
http://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/fjarhagsdagatal/.

Nánari upplýsingar veita:

* Fjárfestatengill - Tinna Molphy,  [email protected] og í síma
440 3187.

* Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, [email protected]
og í síma 440 4005.

[]

Viðhengi: