Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Icelandair Group Share Issue/Capital Change 2016

May 6, 2016

2197_rns_2016-05-06_362e1633-dbd1-415b-b533-b040cb619aea.html

Share Issue/Capital Change

Open in viewer

Opens in your device viewer

Kaupsamningur undirritaður um kaup á tveimur Boeing 767-300 flugvélum

Kaupsamningur undirritaður um kaup á tveimur Boeing 767-300 flugvélum

Í þessum mánuði verða tvær Boeing 767-300 vélar teknar í notkun í leiðakerfi
Icelandair, dótturfélags Icelandair Group. Til viðbótar hefur nú verið
undirritaður kaupsamningur um kaup á tveimur Boeing 767-300 vélum. Vélarnar
verða afhentar á næstu mánuðum og verður þeim breytt til samræmis við aðrar
vélar í Icelandair flugflotanum. Gert er ráð fyrir að breytingum verði lokið í
ársbyrjun 2017. Kaupverð vélanna er trúnaðarmál. Það er því gert ráð fyrir að
fjórar 767-300 vélar verði í leiðakerfi Icelandair árið 2017. Boeing 767-300
vélarnar taka 262 farþega á meðan Boeing 757-200 vélarnar taka 183 farþega.
Fjárfestingunni er ætlað að styðja við áframhaldandi innri vöxt félagsins sem
ráðgerður er á næsta ári.

Nánari upplýsingar veita:

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group
Sími: 896-1455

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group
Sími: 665-8801