Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Icelandair Group Proxy Solicitation & Information Statement 2026

Mar 5, 2026

2197_rns_2026-03-05_db3ab694-7e14-437d-bee2-432c62ed2ad1.html

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

Icelandair: Aðalfundur 12. mars 2026 - endanleg dagskrá, tillögur og framboð til stjórnar

Icelandair: Aðalfundur 12. mars 2026 - endanleg dagskrá, tillögur og framboð til stjórnar

Aðalfundur Icelandair Group hf. verður haldinn miðvikudaginn 12. mars 2026, kl. 16:00 í höfuðstöðvum Icelandair, Flugvöllum 1, 221 Hafnarfirði.

Dagskrá og tillögur eru óbreytt frá fyrri tilkynningu félagsins, sem birt var þann 19. febrúar 2026.

Frestur til að skila inn framboðum til stjórnar rann út kl. 16:00 í dag. Eftirfarandi einstaklingar bjóða sig fram til stjórnar:

  1. Guðmundur Hafsteinsson, kennitala: 290875-3319
  2. John F. Thomas, kennitala: 250359-3409
  3. Matthew Evans, kennitala: 061086-5289
  4. Nina Jónsson, kennitala: 100567-3189
  5. Svafa Grönfeldt, kennitala: 290365-3769

Niðurstaða stjórnar Icelandair Group er sú að allir frambjóðendur séu óháðir félaginu og stjórnendum þess. Þá eru allir frambjóðendur óháðir stórum hluthöfum nema Matthew Evans sem kom inn í stjórn sem fulltrúi stærsta hluthafa félagsins.

Samkvæmt samþykktum félagsins kýs aðalfundur fimm aðila í stjórn félagsins. Þar sem einungis fimm einstaklingar hafa lýst yfir framboði, verða þessir frambjóðendur kjörnir í stjórn án atkvæðagreiðslu á fundinum. Frekari upplýsingar um frambjóðendur eru í meðfylgjandi skýrslu tilnefningarnefndar.

Eftirfarandi einstaklingar hafa lýst yfir framboði sínu til tilnefningarnefndar Icelandair Group á aðalfundinum:

- Alda Sigurðardóttir, kennitala: 170573-5019

- Georg Lúðvíksson, kennitala: 070376-4909

Samkvæmt samþykktum félagsins kýs aðalfundur tvo einstaklinga í tilnefningarnefnd. Þar sem einungis tveir einstaklingar hafa lýst yfir framboði, verða þessir frambjóðendur kjörnir í tilnefningarnefnd án atkvæðagreiðslu á fundinum.

Fundargögn og allar frekari upplýsingar um aðalfundinn, þar á meðal hlekkur til að skrá sig á fundinn, eru aðgengilegar á vefsíðu félagsins á https://www.icelandairgroup.com/agm

Frekari upplýsingar: Ari Guðjónsson, yfirlögfræðingur, tölvupóstur: [email protected]

Nánari upplýsingar

Fjárfestar: Íris Hulda Þórisdóttir, yfirmaður fjárfestatengsla. Netfang: [email protected]

Fjölmiðlar: Ásdís Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta og sjálfbærni. Netfang: [email protected]