Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Icelandair Group Proxy Solicitation & Information Statement 2023

Feb 23, 2023

2197_rns_2023-02-23_6d4036c1-7cdc-4772-91cd-5a05418454d8.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

1x

1x

Safe space

V29 ICELANDAIR

Aðalfundur V28

Icelandair group V28

img-0.jpeg

Aðalfundur Icelandair Group hf. verður haldinn rafrænt fimmtudaginn 9. mars 2023.

Streymt verður frá Hilton Reykjavík Nordica og hefst fundurinn kl. 16:00.

Hluthafar sem hyggjast taka þátt í aðalfundinum skulu skrá sig með að lágmarki 3 daga fyrirvara fyrir fundinn. Skráning á fundinn fer fram á www.icelandairgroup.com.

Dagskrá

  1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár.
  2. Staðfesting árseiknings og tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu.
  3. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
  4. Tillögur félagsstjórnar um starfskjarastefnu.
  5. Skýrsla og tillögur tilnefningarnefndar um skipan stjórnar.
  6. Kosning stjórnar félagsins.
  7. Kosning tveggja fulltrúa í tilnefningarnefnd.
  8. Kosning endurskoðanda.
  9. Breytingar á samþykktum félagsins.
  10. Heimild til kaupa á eigin bréfum.
  11. Önnur mál löglega fram borin.

Hluthafar eiga rétt á að leggja fram mál og/eða ályktunartillögur fyrir fundinn ef gerð hefur verið skrifleg eða rafræn krafa um það eigi síðar en 10 dögum fyrir fund, þ.e. í síðasta lagi kl. 16 mánudaginn 27. febrnar 2023. Hafí hluthafar krafist þess að tiltekið mál eða ályktun verði tekin fyrir verða endanleg dagskrá og tillögur uppfærðar á vefsíðu félagsins eigi síðar en þremur dögum fyrir aðalfundinn.

Réttur hluthafa til að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar og kosning

Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn geta veitt öðrum skriflegt umboð eða greitt atkvæði skriflega. Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara kosta er bent á að kynna sér hvernig þeir skuli bera sig að á aðalfundarvef félagsins www.icelandairgroup.com. Þar sem finna má leiðbeiningar um skráningu atkvæða, form skjala og upplýsingar um hvernig þeim skuli skilað til félagsins. Allar kosningar og umræður fara þó fram rafrænt.

Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar.

Aðrar upplýsingar

Öll skjöl sem lögð verða fyrir aðalfundinn, þ.m.t. ársreikningur félagsins, upplýsingar um heildarfjölda hluta og atkvæðafjölda í félaginu á boðunardegi sem og allar aðrar tillögur, eru hluthöfum tiltæk á aðalfundarsíðu félagsins www.icelandairgroup.com.

Hluthöfum er bent á að skv. samþykktum félagsins skal tilkynna skriflega, minnst sjö dögum fyrir hluthafafund, um framboð til stjórnar. Skal framboðstilkynningum skilað til stjórnar í síðasta lagi fimmtudaginn 2. mars 2023 kl. 16:00. Það sama gildir um framboð í tilnefningarnefnd. Hægt er að senda inn framboð á netfangið [email protected].

Endanleg dagskrá verður bírt á heimasiðu félagsins tveimur víkum fyrir fundinn, fimmtudaginn 23. febrnar 2023 kl. 16:00. Komi tillögur frá hluthöfum á tímabílinu 23. febrnar 2023 til 2. mars 2023 þá verða uppfærðar tillögur og dagskrá bírtar að lágmarki þremur dögum fyrir fund.

Allar nánari upplýsingar um aðalfundinn er að finna á vefsíðu félagsins, www.icelandairgroup.com.

Stjórn Icelandair Group hf.

Frekari upplýsingar:

Ari Guðjónsson, yfirögfræðingur
[email protected]