Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Icelandair Group AGM Information 2025

Feb 17, 2025

2197_rns_2025-02-17_a918f38c-5427-48bc-af7a-ebfaefc94c40.html

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Icelandair Group hf. - Aðalfundur 12. mars 2025

Icelandair Group hf. - Aðalfundur 12. mars 2025

Rafrænn fundur - Bein útsending frá höfuðstöðvum Icelandair, Flugvöllum 1, 221 Hafnarfirði - kl. 16:00

Stjórn Icelandair Group hefur ákveðið að aðalfundur félagsins þann 12. mars 2025 verði haldinn rafrænt, sbr. grein 4.6 í samþykktum félagsins. Hluthafar sem hyggjast sækja fundinn skulu tilkynna þátttöku sína með tveggja daga fyrirvara og leggja fram skriflegar spurningar varðandi dagskrá eða gögn sem lögð verða fram á fundinum og þeir óska svara við, sbr. grein 4.4 í samþykktum félagsins. Skráning á fundinum fer fram í gegnum www.lumiconnect.com/meeting/icelandairgroupagm2025. Skráðir þátttakendur munu fá sendar upplýsingar í tölvupósti fyrir fundinn um hvernig þeir geta tekið þátt og greitt atkvæði ásamt tengli á beina útsendingu fundarins. Fundinum verður streymt beint frá höfuðstöðvum Icelandair en opið verður fyrir mætingu á staðinn. Atkvæðagreiðsla og umræður verða þó einungis rafrænar. Fundurinn verður haldinn á íslensku en bein þýðing á ensku verður í boði bæði í beinni útsendingu í streyminu og á fundarstað.

DAGSKRÁ:

1) Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár

2) Staðfesting ársreiknings og tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu

3) Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna

4) Tillögur félagsstjórnar um starfskjarastefnu

5) Skýrsla og tillögur tilnefninganefndar um skipan stjórnar

6) Kosning tveggja fulltrúa í tilnefningarnefnd

7) Kosning stjórnar félagsins

8) Tilnefning til endurskoðunarnefndar

9) Kosning endurskoðanda

10) Breyting á samþykktum félagsins

11) Heimild til kaupa á eigin bréfum

12) Önnur mál löglega fram borin

Nánari upplýsingar:

Ari Guðjónsson, yfirlögfræðingur

Netfang: [email protected], sími: +354 661-2188

Viðhengi: