AI assistant
Hampiðjan hf. — Proxy Solicitation & Information Statement 2023
Mar 10, 2023
6172_rns_2023-03-10_d9342994-3df3-4680-88be-a609d523b16b.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
HAMPIÐJAN
Aðalfundur
Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn að Skarfagörðum 4, Reykjavík, föstudaginn 24. mars 2023 og hefst klukkan 16:00.
Á dagskrá fundarins verður:
- Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina árið 2022.
- Staðfesting ársreiknings og ráðstöfun hagnaðar reikningsársins 2022.
- Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og undirnefnda stjórnar.
- Tillaga félagsstjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
- Kosning stjórnar félagsins.
- Kosning endurskoðunarfélags.
- Tillögur félagsstjórnar um breytingar á samþykktum félagsins.
- Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur ásamt ársreikningi félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, tveimur víkum fyrir aðalfund.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað.
Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs rennur út fimm dögum fyrir upphaf aðalfundar.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu hafa borist í hendur stjórnar með skriflegum hætti eigi síðar en 10 dögum fyrir aðalfund. Hver hluthafi í félaginu á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar ef framangreind skilyrði eru uppfyllt.
Hluthafar sem ekki geta sótt fundinn, en hyggjast gefa umboð, þurfa að gera það skriflega eða með rafrænum hætti og þannig að dagsetning komi fram.
Stjórn Hampiðjunnar hf.
HAMPIÐJAN