AI assistant
Hagar — Remuneration Information 2025
May 6, 2025
2196_rns_2025-05-06_678a7479-e621-40aa-b9da-b8f724bc26c7.pdf
Remuneration Information
Open in viewerOpens in your device viewer
hagar
Skýrsla starfskjaranefndar Haga hf.
Starfsárið 2024-2025
Hlutverk:
Hlutverk starfskjaranefndar er m.a. að vera leiðbeinandi fyrir félagsstjórn og framkvæmdastjórn um starfskjör stjórnarmanna og stjórnenda félagsins auk þess að vera ráðgefandi um starfskjarastefnu þess. Nefndin skal jafnframt fylgjast með því að starfskjör æðstu stjórnenda séu innan ramma starfskjarastefnu félagsins. Stjórn Haga samþykkir starfsreglur starfskjaranefndar. Stjórn ber ábyrgð á störfum starfskjaranefndar og starfar nefndin í umboði stjórnar félagsins.
Skipan:
Á stjórnarfundi sem haldinn var í kjólfar aðalfundar þann 30. maí 2024 skipaði stjórn þrjá aðila til setu í starfskjaranefnd, í samræmi við starfsreglur stjórnar. Nefndin var skipuð Davíð Harðarsyni, Eiríki S. Jóhannssyni og Jensínu K. Böðvarsdóttur. Ákveðið var að Jensína K. Böðvarsdóttir veitti nefndinni formennsku.
Starfsáætlun og fundir ársins:
Á fyrsta fundi starfskjaranefndar var verkaskipting nefndarinnar staðfest og starfsáætlun samþykkt, en hún var í megin atriðum að skoða eftirfarandi málfni:
- Starfskjarastefnu félagsins.
- Gera tillögu til stjórnar um viðmið og ramma fyrir laun, hlunnindi og önnur starfskjör stjórnar, forstjóra og aðra þá starfsmenn er heyra beint undir stjórn félagsins og forstjóra.
- Laun lykilstarfsmanna og stjórnenda.
- Jafnlaunavottun.
- Kaupréttarkerfi.
- Skoða þróun kjara- og mannauðsmála, þá sérstaklega með tilliti til jafnlaunamála.
- Meta áhættu sem starfskjaramál kunna að skapa fyrir félagið.
- Framkvæma mat á störfum nefndarinnar og starfsreglum nefndarinnar.
Starfskjaranefnd fjallaði um ofangreind mál á fjórum bókuðum fundum á tímabilinu auk þess sem stjórnind undirbjó þá fundi með nokkrum stuttum óbókuðum TEAMS fundum. Nefndin undirbjó tillögu að kaupréttakerfi sem var aðlögð að ábendingum frá aðalfundi og síðar lögð fyrir hluthafafund þann 30. ágúst 2024. Tillagan var samþykkt samhljóða að undangengnum breytingartillögum Gildis lífeyrissjóð og starfskjaranefndar Haga.
Nefndin yfirfór laun og önnur starfskjör helstu stjórnenda félagsins. Það er mat nefndarinnar að laun og önnur starfskjör stjórnenda og starfsmanna í félaginu almennt, séu samkeppnishæf miðað við þekktar upplýsingar um starfskjör í þeim geirum sem félagið starfar í.
Það er mat stjórnar Haga að mikilvægt sé að hagsmunir stjórnenda séu tengdir við árangur fyrirtækisins þannig að til staðar séu hvatar til að vinna að langtímaárangri fyrirtækisins þannig að
hagar
stjórnendur séu fjárhagslega tengdir fjárhagsmarkmiðum hluthafa. Á hluthafafundi félagins í ágúst í fyrra, samþykktu hluthafar nýtt kaupréttarkerfi sem meðal annars er ætlað að ná framangreindu markmiði. Við ákvörðun um starfskjör stjórnenda og starfsmanna almennt er mikilvægt að félagið hafi til þess möguleg tæki sem ætlað er að geti tryggt hag starfsmanna og hluthafa um leið.
Tillaga um þóknun vegna setu í stjórn og nefndum:
Starfskjaranefnd fór á fundum sínum yfir starfskjör stjórnar og nefndarmanna fyrir starfsárið 2024-2025 sem voru ákveðin á síðasta aðalfundi.
Nefndin lagði fyrir stjórn að stjórnarlaun tækju almennt um 3,5% hækkun, en laun vegna setu í undirnefndum stjórnar yrðu endurskoðuð og hækkuð sérstaklega í ljósi þess að þau hefðu ekki tekið breytingum frá árinu 2018. Jafnframt var það lagt til að laun vegna setu í endurskoðunarnefnd yrðu hækkuð frekar í samræmi við að verkefni nefndarinnar eru almennt umfangsmeiri en í öðrum nefndum á vegum félagsins. Tillagan var samþykkt í stjórn og verður þannig lögð fyrir aðalfund 2025.
Núverandi stjórnarlaun:
Stjórnarformaður 798.000 kr./mán.
Varaformaður 587.000 kr./mán.
Stjórnarmenn 399.000 kr./mán.
Tillaga að hækkun launa:
826.000 kr./mán
608.000 kr./mán
413.000 kr./mán
Núverandi laun vegna starfskjaranefndar:
Formaður starfskjaranefndar 180.000 kr./mán.
Starfskjaranefndarmenn 90.000 kr./mán.
Tillagan felur í sér að laun nefndarmanna hækki um 5,6% frá undangengnu starfsári. Til samanburðar þá nam hækkun launavisitölu frá árinu 2018 um 59%, þegar laun vegna setu í starfskjaranefnd tóku síðast breytingum.
Núverandi laun vegna endurskoðunarnefndar:
Formaður endurskoðunarnefndar 180.000 kr./mán.
Endurskoðunarnefndarmenn 90.000 kr./mán.
Tillagan felur í sér að laun nefndarmanna hækka um 22% frá undangengnu starfsári. Til samanburðar þá nam hækkun launavisitölu frá árinu 2018 um 59%, þegar laun vegna setu í endurskoðunarnefnd tóku síðast breytingum.
Núverandi laun vegna tilnefningarnefndar:
Tilnefningarnefndarmenn 25.000 kr./klst.
Tillagan felur í sér að laun nefndarmanna hækki um 8% frá undangengnu starfsári, sem er í samræmi við hækkun launavisitölu frá árinu 2023, þegar laun vegna setu í tilnefningarnefnd tóku síðast breytingum.
Tillaga um hækkun launa:
27.000 kr./klst.
hagar
Úthlutun kaupréttta:
Stjórn Haga sambykkti veitingu kaupréttta til lykilstjórnenda í þrígang samkvæmt fyrrgreindri kaupréttaráætlun og að undangengnu áliti starfskjaranefndar, þ.e. þann 31. ágúst 2024, þann 15. nóvember 2024 og þann 1. febrúar 2025.
Annað:
Störf nefndarinnar á árinu gengu samkvæmt áætlun. Starfskjaranefnd vill þakka Finni Oddssyni forstjóra og Guðrún Evu Gunnarsdóttur framkvæmdastjóra fjármálasviðs fyrir einstaklega gott samstarf og vel unnin störf, svo og öðrum sem hafa starfað með nefndinni síðasta starfsárið.
Reykjavík, 2. maí 2025
Jensína K. Böðvarsdóttir
formaður starfskjaranefndar
Davíð Harðarson, meðstjórnandi
Eiríkur S. Jóhannsson, formaður stjórnar
Undirritunarsíða
Stjórnarmaður í Högum
Davíð Harðarson

Undirritað af:
Davíð Harðarson
1710764129
Dags: 05.05.2025
Tími: 11:31:38
Ástæða: Sambykkt
Signet ID: 574501d8-02ac-4494-84ab-2ccbcd045571
Stjórnarformaður Haga
Eiríkur S Jóhannsson

Undirritað af:
Eiríkur Signíðarson
Jóhannsson
0802684839
Dags: 04.05.2025
Tími: 17:53:57
Ástæða: Sambykkt
Signet ID: 574501d8-02ac-4494-84ab-2ccbcd045571
Formaður starfskjaranefndar
Jensína Kristín Böðvarsdóttir

Undirritað af:
Jensína Kristín
Böðvarsdóttir
1903694049
Dags: 02.05.2025
Tími: 17:34:49
Ástæða: Sambykkt
Signet ID: 574501d8-02ac-4494-84ab-2ccbcd045571