Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Remuneration Information 2023

May 10, 2023

2196_rns_2023-05-10_2ace0b13-9f10-40fc-bb61-68fcd8238f42.pdf

Remuneration Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

hagar

Skýrsla starfskjaranefndar Haga hf.

Starfsárið 2022-2023

Stjórn Haga skipaði starfskjaranefnd á fundi sínum 1. júní 2022 samkvæmt starfsreglum stjórnar. Starfskjaranefnd var skipuð Davíð Harðarsyni, Eiríki S. Jóhannssyni og Jensínu K. Böðvarsdóttur.

Starfskjaranefnd fjallaði um starfskjarastefnuna á fundum sínum, þá sérstaklega um kaupréttarkerfið sem er í lið 7 „Breytileg starfskjör – árangurtengdar greiðslur og kaupréttarkerfi“. Jafnræði lykilstjórnenda, bæði hvað varðar stöðu og kyn, var sérstaklega skoðað út frá kerfinu sem tók gildi eftir aðalfundinn 2021. Nefndin er sammála um að til staðar sé ójafnvægi sem bregðast verði við sem kallar á stækkun kerfisins. Hins vegar telur nefndin að ekki sé til staðar hljómgrunnur fyrir aukningu á kaupréttarkerfinu meðal hluthafa sem stendur, en leggur áherslu á endurskoðun á kerfinu m.t.t. þessa að ári liðnu þegar fyrsta nýtingartímabil kerfisins hefst.

Hlutverk starfskjaranefndar er m.a. að vera leiðbeinandi fyrir félagsstjórn og framkvæmdastjórn um starfskjör æðstu stjórnenda félagsins og ráðgefandi um starfskjarastefnu. Nefndin skal jafnframt fylgjast með því að starfskjör æðstu stjórnenda séu innan ramma starfskjarastefnu félagsins.

Starfskjaranefnd fundaði fjórum sinnum á tímabilinu.

Starfskjaranefnd fór á fundum sínum yfir starfskjör stjórnar og nefndarmanna fyrir starfsárið 2022-2023 sem voru ákveðin á síðasta aðalfundi. Nefndin lagði fyrir stjórn neðangreinda tillögu að hækkun stjórnarlauna sem samþykkt var í stjórn og lögð er fyrir aðalfund 2023.

Núverandi laun:

Tillaga að hækkun launa:

Stjórnarformaður 735.000 kr./mán. 772.000
Varaformaður 541.000 kr./mán. 568.000
Stjórnarmenn 368.000 kr./mán. 386.000
Tilnefningarnefndarmenn 20.000 kr./klst 25.000
Önnur nefndarlaun eru óbreytt.

Starfskjaranefnd vill þakka Finni Oddssyni forstjóra og Guðrún Evu Gunnarsdóttur framkvæmdastjóra fjármálasviðs fyrir einstaklega gott samstarf og vel unnin störf, svo og öðrum sem hafa starfað með nefndinni síðasta starfsárið.

Reykjavík, 3. maí 2023

Jensína K. Böðvarsdóttir
formaður starfskjaranefndar

Davíð Harðarson, formaður stjórnar

Eiríkur S. Jóhannsson, varaformaður stjórnar

1 af 1


Undirritunarsíða

Davíð Harðarson

img-0.jpeg

Undirritað af:
Davíð Harðarson
1710764129
Dags: 03.05.2023
Tími: 13:50:30
Ástæða: Sambykt
Signet ID: 4fc33f2f-dbfb-46ca-82d4-210f1e318a71

Eiríkur S Jóhannsson

img-1.jpeg

Undirritað af:
Eiríkur S Jóhannsson
0802684839
Dags: 03.05.2023
Tími: 13:33:31
Ástæða: Sambykt
Signet ID: 4fc33f2f-dbfb-46ca-82d4-210f1e318a71

Jensína Kristín Böðvarsdóttir

img-2.jpeg

Undirritað af:
Jensína Kristín
Böðvarsdóttir
1903694049
Dags: 03.05.2023
Tími: 14:17:51
Ástæða: Sambykt
Signet ID: 4fc33f2f-dbfb-46ca-82d4-210f1e318a71