AI assistant
Hagar — Remuneration Information 2022
May 10, 2022
2196_rns_2022-05-10_d2e7804a-9eae-4770-bb47-8221e91ee249.pdf
Remuneration Information
Open in viewerOpens in your device viewer
hagar
Skýrsla starfskjaranefndar Haga hf.
Starfsárið 2021-2022
Stjórn Haga skipaði starfskjaranefnd á fundi sínum 15. júní 2021 samkvæmt starfsreglum stjórnar. Starfskjaranefnd var skipuð Davíð Harðarsyni, Eiríki S. Jóhannssyni og Jensínu K. Böðvarsdóttur, sem jafnframt er formaður nefndarinnar.
Ný starfskjarastefna var samþykkt á aðalfundi Haga 3. júní 2021. Helstu breytingar í henni er kaupréttarkerfi fyrir forstjóra og starfsmenn í lykilstöðum. Með kaupréttarkerfi vill nefndin samþætta hagsmuni stjórnenda við langtímamarkmið eigenda, endanlegur fjárhagslegur mælikvarði á árangur stjórnenda er hlutabréfaverð. Ávinningur stjórnenda er ávinningur eigenda.
Í framhaldi af aðalfundi 2021 voru kaupréttum úthlutað til 26 lykilstarfsmanna. Dreifing kerfisins er mjög jöfn, og er m.a. forstjóri félagsins með sömu úthlutun og framkvæmdastjórar.
Starfskjaranefnd fjallaði um starfskjarastefnuna á nokkrum fundum sínum, þá sérstaklega um kaupréttarkerfið sem er í lið 7 „Breytilleg starfskjör – árangurtengdar greiðslur og kaupréttarkerfi“. Jafnræði lykilstjórnenda, bæði hvað varðar stöðu og kyn, var sérstaklega skoðað út frá kerfinu sem tók gildi eftir aðalfundinn 2021.
Hlutverk starfskjaranefndar er m.a. að vera leiðbeinandi fyrir félagsstjórn og framkvæmdastjórn um starfskjör æðstu stjórnenda félagsins og ráðgefandi um starfskjarastefnu. Nefndin skal jafnframt fylgjast með því að starfskjör æðstu stjórnenda séu innan ramma starfskjarastefnu félagsins.
Starfskjaranefnd fundaði 6 sinnum á tímabilinu og sjálfmat nefndarinnar var framkvæmt í maí.
Starfskjaranefnd fór á fundum sínum yfir starfskjör stjórnar og nefndarmanna fyrir starfsárið 2021-2022 sem voru ákveðin á síðasta aðalfundi. Nefndin lagði fyrir stjórn neðangreinda tillögu að hækkun stjórnarlauna sem samþykkt var í stjórn og lögð er fyrir aðalfund 2022.
Núverandi laun:
| Stjórnarformaður 700.000 kr./mán. | 735.000 |
|---|---|
| Varaformaður 515.000 kr./mán. | 541.000 |
| Stjórnarmenn 350.000 kr./mán. | 368.000 |
Tilaga að hækkun launa:
Önnur nefndarlaun eru óbreytt.
Starfskjaranefnd vill þakka Finni Oddssyni forstjóra og Guðrún Evu Gunnarsdóttur framkvæmdastjóra fjármálasviðs fyrir einstaklega gott samstarf og vel unnin störf, svo og öðrum sem hafa starfað með nefndinni síðasta starfsárið.
Kópavogur, 9. maí 2022
Jensína K. Böðvarsdóttir
formaður starfskjaranefndar
Davíð Harðarson, formaður stjórnar
Eiríkur S. Jóhannsson varaformaður stjórnar
1 af 1
Undirritunarsíða
Davíð Harðarson

Undirritað af:
Davíð Harðarson
1710764129
Dags: 09.05.2022
Timi: 12:08:15
Ástæða: Sambykkt
Signet ID: f797f76f-7257-48bb-9c26-68b6e8fadf54
Eiríkur S Jóhannsson

Undirritað af:
Eiríkur S Jóhannsson
0802684839
Dags: 09.05.2022
Timi: 12:58:12
Ástæða: Sambykkt
Signet ID: f797f76f-7257-48bb-9c26-68b6e8fadf54
Jensína Kristín Böðvarsdóttir

Undirritað af:
Jensína Kristín Böðvarsdóttir
1903694049
Dags: 09.05.2022
Timi: 12:15:55
Ástæða: Sambykkt
Signet ID: f797f76f-7257-48bb-9c26-68b6e8fadf54