Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Remuneration Information 2020

May 18, 2020

2196_rns_2020-05-18_56f7640a-e9e5-49c4-b51c-48185291be13.pdf

Remuneration Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

hagar

Skýrsla starfskjaranefndar Haga hf.

f. starfsárið 2019-2020

Stjórn Haga skipaði starfskjaranefnd á fundi sínum 7. júní 2019 samkvæmt starfsreglum stjórnar. Starfskjarnéfnd var skipuð Ernu Gísladóttur, Davíð Harðarsyni og Eiríki S. Jóhannssyni. Félagið sambykkti nýja starfskjarastefnu á aðalfundi sínum 7. júní júní 2019. Hlutverk nefndarinnar er m.a. að vera leiðbeinandi fyrir félagsstjórn og framkvæmdastjórn um starfskjör æðstu stjórnenda félagsins og ráðgefandi um starfskjarastefnu. Nefndin skal jafnframt fylgjast með því að starfskjör æðstu stjórnenda séu innan ramma starfskjarastefnu félagsins.

Nefndin fór yfir starfskjör æðstu stjórnenda félagsins. Kom þar í ljós að starfssamningar Finns Árnasonar og Guðmundar Maretinssonar voru ekki í samræmi við nýja starfskjarastefnu félagsins varðandi kaupaukakerfi. Í framhaldinu áttu stjórnarformaður og varaformaður fundi með Finni Árnasyni varðandi leiðir til að aðlaga saminga þeirra að nýrri stefnu félagsins. Það reyndist ekki að lokum þörf á því þar sem bæði Finnur og Guðmundur hafa sagt upp störfum hjá félaginu. Starfslok þeirra verða í síðasta lagi í lok júní.

Nefndin fékk það verkefni frá stjórn félagsins að semja við nýjan forstjóra félagsins Finn Oddsson. Laun hans verða 3.700.000 kr. á mánuði auk hefðbundinna hlunninda forstjóra. Samið var um nýtt kaupaukakerfi í samræmi við nýja starfskjarastefnu félagsins. Þar segir í samning Finns um kaupauka:

Forstjóri skal eiga rétt til greiðslu árlegs kaupauka til samræmis við sérstaka kaupaukaætlun sem stjórn félagsins setur og endurskoðar árlega, að fengnu áliti starfskjaranefndar félagsins. Slíkur árlegur kaupauki skal þó að hámarki nema sem svarar til 4 grunnlauna forstjórans samkvæmt ráðningarsamningi þessum, án hlunninda.

Kaupauki miðast við eftirfarandi:

  • 1 mánuður skal greiddur ef 100% af EBITDA sambykktri rekstraráætlun ársins er náð.
  • 1 mánuður til viðbótar skal greiddur ef 110% af EBITDA sambykktri rekstraráætlun ársins er náð.
  • 1 mánuður skal síðan greiddur, óháð því hvort aðrar kaupaukagreiðslur hafa verið greiddar, ef sambykktum uppsettum innri markmiðum er náð.
  • 1 mánuður skal síðan greiddur ef EBITDA félagsins vex í prósentum meira en neysluvísitala sama tímabils og uppgjör og búið er að ná fyrstu þrem mánuðum í kaupauka

Ofangreind markmið skulu endurskoðast á ári hverju.


hagar

Starfskjaranefnd fór á fundum sínum yfir starfskjör stjórnar og nefndarmanna fyrir starfsárið 2019-2020 sem voru ákveðin á síðasta aðalfundi :

Stjórnarformaður 660.000 kr./mán.
Varaformaður 495.000 kr./mán.
Stjórnarmenn 330.000 kr./mán.
Formaður starfskjaranefndar 180.000 kr./mán.
Starfskjaranefndarmenn 90.000 kr./mán.
Formaður endurskoðunarnefndar 180.000 kr./mán.
Endurskoðurnarnefndarmenn 90.000 kr./mán.
Formaður tilnefningarnefndar 20.000 kr./klst.
Tilnefningarnefndarmenn 20.000 kr./klst.

Tillaga stjórnar um stjórnar starfskjör stjórnar og nefndarmanna fyrir starfsárið 2020-2021 til aðalfundar eru óbreytt starfskjör:

Stjórnarformaður 660.000 kr./mán.
Varaformaður 495.000 kr./mán.
Stjórnarmenn 330.000 kr./mán.
Formaður starfskjaranefndar 180.000 kr./mán.
Starfskjaranefndarmenn 90.000 kr./mán.
Formaður endurskoðunarnefndar 180.000 kr./mán.
Endurskoðurnarnefndarmenn 90.000 kr./mán.
Formaður tilnefningarnefndar 20.000 kr./klst.
Tilnefningarnefndarmenn 20.000 kr./klst.

2


hagar

Nefndin vill þakka fráfarandi forstjóra Hag, a Finni Árnasyni og Guðrúnu Evu Gunnarsdóttur framkvæmdastjóra fyrir gott samstarf svo og öðrum sem hafa starfað með nefndinni síðasta starfsárið.

Kópavogi 15. maí 2020

Erna Gísladóttir Davíð Harðarson Eiríkur S. Jóhannsson

3