AI assistant
Hagar — M&A Activity 2022
Aug 31, 2022
2196_rns_2022-08-31_fbc36ddf-743c-499d-a749-ceda216e6e42.html
M&A Activity
Open in viewerOpens in your device viewer
Hagar hf.: Kaup Haga á hlutafé í Klasa ehf. - Samruninn kominn til framkvæmda
Hagar hf.: Kaup Haga á hlutafé í Klasa ehf. - Samruninn kominn til framkvæmda
Þann 3. desember 2021 var tilkynnt um undirritun samnings Haga hf., Regins hf. og KLS eignarhaldsfélags ehf. um áskrift að hlutafé í fasteignaþróunarfélaginu Klasa ehf. Samningarnir voru undirritaðir með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins en þann 10. júní 2022 var undirrituð sátt á milli Haga hf. og Samkeppniseftirlitsins um skilyrði fyrir kaupunum.
Það tilkynnist hér með að samruninn er nú kominn til framkvæmda. Fjárhagsleg áhrif viðskiptanna munu því koma fram á 2. ársfjórðungi 2022/23 en áætluð áhrif vegna söluhagnaðar eigna á EBITDA Haga eru um 940 millj. kr. og áhrif á hagnað félagsins eftir skatta eru um 750 millj. kr.
Áður útgefin afkomuspá félagsins fyrir rekstrarárið 2022/23, þ.e. EBITDA 10.200-10.700 millj. kr., er án áhrifa vegna viðskipta með Klasa.
Frekari upplýsingar um viðskiptin má finna í Kauphallartilkynningu Haga frá 3. desember 2021.
Nánari upplýsingar veitir Finnur Oddsson, forstjóri Haga, [email protected].
