AI assistant
Hagar — Interim / Quarterly Report 2021
Jan 14, 2021
2196_rns_2021-01-14_21971f87-c5e4-4cf3-89a0-5413779d51c3.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
Fréttatilkynning
- januar 2021
hagar
Vörusala Haga á 3F jókst um 5,5% milli ára
Uppgjör Haga hf. á 3. ársfjórðungi 2020/21
Árshlutareikningur Haga hf. fyrir þriðja ársfjórðung 2020/21 var sambykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 14. janúar 2021. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars 2020 til 30. nóvember 2020. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaða (IFRS). Reikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf.
Helstu lykiltölur
- Vörusala 3F nam 29.787 millj. kr. (2019/20: 28.240 millj. kr.). Vörusala 9M nam 88.952 millj. kr. (2019/20: 87.744 millj. kr.).
- Framlegðarhlutfall 3F var 21,5% (2019/20: 22,2%). Framlegðarhlutfall 9M var 21,9% (2019/20: 22,1%).
- Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 3F nam 1.947 millj. kr. (2019/20: 2.213 millj. kr.). Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 9M nam 6.263 millj. kr. (2019/20: 6.736 millj. kr.).
- Hagnaður 3F nam 448 millj. kr. eða 1,5% af veltu (2019/20: 628 millj. kr. og 2,2% af veltu). Hagnaður 9M nam 1.673 millj. kr. eða 1,9% af veltu (2019/20: 2.349 millj. kr. og 2,7% af veltu).
- Hagnaður á hlut 3F var 0,37 kr. (2019/20: 0,52 kr.). Hagnaður á hlut 9M var 1,42 kr. (2019/20: 1,95 kr.).
- Eigið fé nam 25.341 millj. kr. í lok tímabilsins og eiginfjárhlutfall 39,8% (Árslok 2019/20: 24.587 millj. kr. og 39,2%).
- Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2020/21 gerir ráð fyrir að EBITDA verði 8.100-8.600 millj. kr.
Helstu fréttir af starfseminni
- Góð veltuaukning í matvöruhluta samstæðunnar á 3F þrátt fyrir miklar samkomutakmarkanir.
- Hagræðingaraðgerðir hjá Olís vegna breyttra rekstrarforsendna í heimsfaraldri.
- Áframhaldandi áhersla á sóttvarnaraðgerðir til að tryggja öryggi og heilsu starfsfólks, viðskiptavina og annarra samstarfsaðila í heimsfaraldrinum.
- Vefverslun Hagkaups fyrir leikfóng og bækur og vefverslun Zara sett á laggirnar á 3F. Velta langt umfram væntingar.
- Heimsóknum viðskiptavina í matvöruverslanir fækkar áfram milli ára en meðalkarfa hvers viðskiptavinar stækkar umtalsvert.
- Fimm verslanir Bónus hafa verið endurnýjaðar á 3F og Hagkaup í Smáralind er töluvert breytt eftir að síðasta F&F deildin var aflögð.
- Nýtt kæli- og frystivöruhús Aðfanga tekið í notkun, sem eykur þjónustustig og hagræðir í dreifingu til verslana.
- Mikil áhersla á að draga úr matarsóun í verslunum og hefur hlutfall matarsóunar af rýrnun aldrei verið minna.
- Söluferli Útilífs og Reykjavíkur Apóteks hefur verið sett af stað og er á áætlun.
Fréttatilkynning
- januar 2021
hagar
Finnur Oddsson, forstjóri:
„Á heildina litið gekk rekstur á þriðja ársfjórðungi ágætlega en áhrifa heimsfaraldurs COVID-19 gætti, sem von er, á öllum sviðum rekstrar Haga. Tekjur á fjórðungnum jukust frá fyrra ári, en EBITDA var lítillega undir upprunalegum áætlunum og sama tímabili í fyrra. Heilt yfir erum við sátt við niðurstöður fjórðungsins, einkum í ljósi þeirra áskorana sem COVID-19 faraldurinn skapar jafnt hérlendis sem annars staðar. Mestu skiptir að félagið er vel í stakk búið að takast á við þær ögranir sem fylgja áframhaldandi sóttvarnaraðgerðum og breyttu neyslumynstri viðskiptavina okkar.
Umsvif hafa haldið áfram að aukast í dagvöruverslun, í Bónus og Hagkaup. Tekjur vegna dagvöru jukust um ríflega 15% frá fyrra ári en aukningin var töluvert meiri í sérvoruverslun á vegum Haga. Það var sérlega ánaegjulegt að fylgjast með góðu gengi netverslunar á tímabilinu, einkum með leikföng og bækur hjá Hagkaup og fatnað og útivistarvöru hjá Zöru og Útilif. Framlegð hefur hins vegar heldur dregist saman og talsverður kostnaður fallið til vegna sóttvarna- og öryggisgæslu, til að tryggja öryggi viðskiptavina og starfsfólks sem best á öllum tímum. Prátt fyrir ágæta veltuaukningu er niðurstaðan því svipuð afkoma úr þessum þætti rekstrar Haga. Eins og búist var við gætir enn neikvæðra áhrifa á tekjur og afkomu Olís, samfara minni umferð á vegum og samdrætti í umsvifum atvinnulifs. Skýringin á lakari afkomu samstæðu liggur því að mestu hjá eldsneytissviði starfseminnar.
Við gerum ráð fyrir að áhrifa faraldursins á rekstur Haga gæti áfram, a.m.k. fram á vor- og sumarmánuði. Áhrif á verslunar- og vöruhúsarekstur Haga verða frekar jákvæð en neikvæð, en viðskiptavinir hafa lagað sig að þessum nýju aðstæðum með breyttri neysluhegðun, færri heimsóknum í verslanir og stærri meðalkaupum í hverri ferð. Þetta endurspeglast m.a. í kröftugri verslun fyrir jólin, þar sem tekjur jukust áfram svipað og mánuðina á undan og afkoman sömuleiðis. Til að bregðast við áframhaldandi neikvæðum áhrifum á rekstur Olís höfum við þegar skipulagt og að hluta til innleitt aðgerðir sem munu leiða til varanlegs rekstrarhagræðis.
Horfur í rekstri Haga til skemmri tíma eru því svipaðar og verið hefur undanfarna mánuði. Til lengri tíma gerum við ráð fyrir að uppskera ávinning af nýjum stefnumótandi áherslum, þ.m.t. þrengri fókus um starfsemi félagsins, auknu samtali við viðskiptavini og þróun þjónustu okkar þannig að hún falli ávallt sem best að þörfum viðskiptavina, núverandi og nýjum. Úrvinnsla stefnu- og skipulagsvinnu síðustu mánaða gengur vel, söluferli sérvorueininga vinnst samkvæmt áætlun og við höfum boðið nýja liðsmenn velkomna í teymið sem mun, sem fyrr, vinna að því markmiði að efla hag neytenda með framúrskarandi verslun.“
Fréttatilkynning
- januar 2021
hagar
Rekstrarreikningur samstæðunnar
| Friillj. kr. | 3F 2020/21 | 3F 2019/20 | 9M 2020/21 | 9M 2019/20 | ||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 01.09.30.14 | 01.09.30.11 | Revising | % | 01.09.30.14 | 01.09.30.11 | Revising | % | |
| Vörusala | 29.787 | 28.240 | 1.547 | 5,5% | 88.952 | 87.744 | 1.208 | 1,4% |
| Kostnaðarverð seldra vara | (23.392) | (21.970) | (1.422) | 6,5% | (69.461) | (68.372) | (1.089) | 1,6% |
| Framlegð | 6.395 | 6.270 | 125 | 2,0% | 19.491 | 19.372 | 119 | 0,6% |
| Framlegð % | 21,5% | 22,2% | - | -0,7% | 21,9% | 22,1% | - | -0,2% |
| Aðrar rekstrartekjur | 96 | 121 | (25) | -20,7% | 279 | 385 | (106) | -27,5% |
| Laun og launatengd gjöld | (3.197) | (2.991) | (206) | 6,9% | (9.537) | (9.014) | (523) | 5,8% |
| Annar rekstrarkostnaður | (1.347) | (1.187) | (160) | 13,5% | (3.970) | (4.007) | 37 | -0,9% |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) | 1.947 | 2.213 | (266) | -12,0% | 6.263 | 6.736 | (473) | -7,0% |
| EBITDA % | 6,5% | 7,8% | - | -1,3% | 7,0% | 7,7% | - | -0,6% |
| Afskriftir | (1.038) | (1.013) | (25) | 2,5% | (3.130) | (2.882) | (248) | 8,6% |
| Rekstrarhagnaður (EBIT) | 909 | 1.200 | (291) | -24,3% | 3.133 | 3.854 | (721) | -18,7% |
| Hrein fjármagnsgjöld | (381) | (440) | 59 | -13,4% | (1.231) | (1.055) | (176) | 16,7% |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 25 | 21 | 4 | 19,0% | 150 | 111 | 39 | 35,1% |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 553 | 781 | (228) | -29,2% | 2.052 | 2.910 | (858) | -29,5% |
| Tekjuskattur | (105) | (153) | 48 | -31,4% | (379) | (561) | 182 | -32,4% |
| Heildarhagnaður | 448 | 628 | (180) | -28,7% | 1.673 | 2.349 | (676) | -28,8% |
| Skipting hagnaðar | ||||||||
| Hlutdeild móðurfélags | 448 | 628 | (180) | -28,7% | 1.676 | 2.349 | (673) | -28,7% |
| Hlutdeild minnih luta | - | - | - | - | (3) | - | (3) | - |
| 448 | 628 | (180) | -28,7% | 1.673 | 2.349 | (676) | -28,8% |
Rekstur fyrstu níu mánuði rekstrarársins
Vörusala tímabilsins nam 88.952 millj. kr., samanborið við 87.744 millj. kr. árið áður. Söluaukning tímabilsins milli ára var 1,4%.
Framlegð félagsins var 19.491 millj. kr., samanborið við 19.372 millj. kr. árið áður eða 21,9% framlegð, samanborið við 22,1% á fyrra ári.
Rekstrarkostnaður í heild hækkar um 486 millj. kr. milli ára. Laun hækka um 5,8% sem skýrist m.a. af áhrifum starfslokagreiðslna og aukins launakostnaðar vegna COVID-19. Annar rekstrarkostnaður lækkar um 37 millj. kr. Kostnaðarhlutfallið í heild hækkar milli ára úr 14,8% í 15,2%.
Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) nam 6.263 millj. kr., samanborið við 6.736 millj. kr. árið áður. EBITDA-hlutfall var 7,0%, samanborið við 7,7% árið áður.
Afskriftir hafa hækkað um 248 millj. kr. milli ára sem skýrist aðallega af endurnýjun verslana og mikilla fjárfestinga undanfarin misseri.
Fjármagnskostnaður hefur aukist sem skýrist aðallega af gengistapi á tímabilinu.
Heildarhagnaður tímabilsins nam 1.673 millj. kr., sem jafngildir 1,9% af veltu en hagnaður eftir skatta á fyrra ári var 2.349 millj. kr. eða 2,7% af veltu.
Lykiltölur á 3. ársfjörðungi
- Vörusala 3F jókst um 5,5% milli ára.
- Framlegð 3F jókst um 2,0% milli ára.
- Framlegðarhlutfall 3F undir væntingum eða 21,5% sem er 0,7%-stigum undir fyrra ári. Framlegðarhlutfall Bónus og Hagkaups undir væntingum en Olís hækkar milli ára.
- Laun 3F yfir fyrra ári, m.a. vegna lotunar á samningsbundnum starfslokakostnaði og aukins launakostnaðar vegna COVID-19.
- Annar rekstrarkostnaður 3F hækkar um 13,5% sem að mestu leyti má rekja til COVID-19.
- Launa- og kostnaðarhlutfall 3F er 15,3% en var 14,8% á fyrra ári.
- EBITDA á 3F lækkar um 12,0% frá fyrra ári. EBITDA-hlutfall er 6,5% en var 7,8% á fyrra ári.
- Heildarhagnaður á 3F lækkar um 28,7% á milli ára.
Fréttatilkynning
- januar 2021
hagar
Efnahagsreikningur samstæðunnar
Lykiltölur efnahags 30.11.2020
- Heildareignir samstæðunnar í lok tímabilsins námu 63.743 millj. kr. og jukust um 1.035 millj. kr. frá árslokum 2019/20.
- Fastafjármunir voru 48.130 millj. kr. og hækkuðu um 576 millj. kr. frá árslokum. Fjárfesting í fasteignum nam 1.711 millj. kr. á tímabilinu og fjárfesting í áhöldum og innréttingum nam 1.357 millj. kr.
- Veltufjármunir voru 15.613 millj. kr. og hækkuðu um 459 millj. kr. frá árslokum.
- Birgðir í lok tímabils voru 9.421 millj. kr. og veltuhraði birgða 10,2. Birgðir hækkuðu um 1.041 millj. kr. frá árslokum en birgðastaða í samstæðu nær hámarki í nóvember ár hvert vegna jólavertíðar. Þá eru birgðir nokkuð hærri nú vegna aukalagers vegna COVID-19. Birgðir í lok nóvember 2019 voru 8.557 millj. kr. og veltuhraði 10,4.
| I millj. kr. | 30.11.2020 | 29.02.2020 | Breyting | % |
|---|---|---|---|---|
| Eignir | ||||
| Fastafjármunir | 48.130 | 47.554 | 576 | 1,2% |
| Veltufjármunir | 15.613 | 15.154 | 459 | 3,0% |
| Eignir samtals | 63.743 | 62.708 | 1.035 | 1,7% |
| Eigið fé og skuldir | ||||
| Hlutafé | 1.171 | 1.189 | (18) | -1,5% |
| Annað eigið fé | 24.172 | 23.397 | 775 | 3,3% |
| Samtals | 25.343 | 24.586 | 757 | 3,1% |
| Hlutdeild minnihluta | (2) | 1 | (3) | -300,0% |
| Eigið fé samtals | 25.341 | 24.587 | 754 | 3,1% |
| Langtimaskuldir | 22.290 | 22.362 | (72) | -0,3% |
| Vaxtaberandi skammtímaskuldir | 468 | 442 | 26 | 5,9% |
| Skuldir við lánastofnánir | – | 1.273 | (1.273) | -100,0% |
| Aðrar skammtímaskuldir | 15.644 | 14.045 | 1.599 | 11,4% |
| Skuldir samtals | 38.402 | 38.122 | 280 | 0,7% |
| Eigið fé og skuldir samtals | 63.743 | 62.708 | 1.035 | 1,7% |
- Viðskiptakröfur hækkuðu um 277 millj. kr. frá árslokum og er innheimtutími krafna nú 9,9 dagar samanborið við 14,7 daga á sama tímabili á fyrra ári.
- Veltufjárhlutfall er 0,97 og lausafjárhlutfall 0,38 í lok tímabils. Aðgangur að skammtímafjármögnun að upphæð 6,2 ma. kr. hjá viðskiptabanka er tryggður.
- Eigið fé í lok tímabilsins var 25.341 millj. kr. og eiginfjárhlutfall 39,8%. Arðsemi eigin fjár á tímabilinu var 9,8%. Eiginfjárhlutfall við lok síðasta rekstrarárs var 39,2% og arðsemi eigin fjár 12,6%. Félagið átti 9,2 millj. eigin hluta í lok tímabils.
- Heildarskuldir samstæðunnar í lok tímabils voru 38.402 millj. kr. en þar af voru vaxtaberandi skuldir 12.498 millj. kr. og leiguskuldir 9.338 millj. kr. Nettó vaxtaberandi skuldir, með leiguskuldum, í lok tímabils voru 20.463 millj. kr. eða 2,43x12 mánaða EBITDA.
Fréttatilkynning
- januar 2021
hagar
Sjóðstreymisyfirlit samstæðunnar
| Havilli. kr. | 3F 2020/21 | 5F 2019/20 | 9M 2020/21 | 9M 2019/20 | ||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 01.08.30-11 | 01.08.30-11 | Breyting | % | 01.03.30-21 | 01.03.30-11 | Breyting | % | |
| Handbært fé frá rekstri | 2.328 | 1.266 | 1.062 | 83,9% | 5.931 | 8.675 | (2.744) | -31,6% |
| Fjárfestingarhreyfingar | (794) | (1.066) | 272 | -25,5% | (2.934) | (2.564) | (370) | 14,4% |
| Fjármögnunarhreyfingar | (1.050) | 406 | (1.456) | -358,6% | (3.856) | (3.482) | (374) | 10,7% |
| Hækkun (lækkun) á handbæru fé | 484 | 606 | (122) | -20,1% | (859) | 2.629 | (3.488) | -132,7% |
| Handbært fé í byrjun tímabils | 889 | 2.759 | (1.870) | -67,8% | 2.232 | 736 | 1.496 | 203,3% |
| Handbært fé í lok tímabils | 1.373 | 3.365 | (1.992) | -59,2% | 1.373 | 3.365 | (1.992) | -59,2% |
Sjóðstremi fyrstu niu mánuði rekstrarárs
- Handbært fé frá rekstri á tímabilinu nam 5.931 millj. kr., samanborið við 8.675 millj. kr. á fyrra ári. Breytingu á milli ára má rekja til breytinga á rekstrartengdum eignum, en á fyrra ári var gerð breyting á uppgjörsfyrirkomulagi greiðslukorta, þar sem uppgjör frá færsluhirði fór úr því að vera mánaðarlegt í daglegt.
- Fjárfestingarhreyfingar tímabilsins voru 2.934 millj. kr., samanborið við 2.564 millj. kr. á fyrra ári. Á tímabilinu var fjárfest í fasteign á Furuvöllum á Akureyri auk þess sem nær allur hluti af kostnaði við framkvæmd á nýju kæli- og frystivöruhúsi. Aðfanga er kominn fram. Auk þess var fjárfest í áhöldum og innréttingum fyrir 1.357 millj. kr. sem að stærstum hluta er vegna endurnýjunar Bónus og Hagkaupsverslana og innréttingar og tæki í nýtt kæli- og frystivöruhús.
- Fjármögnunarhreyfingar tímabilsins voru 3.856 millj. kr., samanborið við 3.482 millj. kr. á fyrra ári. Ekki var greiddur arður til hluthafa vegna síðastliðins rekstrarárs en á fyrra ári var arðgreiðsla að fjárhæð 1.159 millj. kr. Keypt eigin bréf á tímabilinu nema 920 millj. kr.
Staðan og framtíðarhorfur
Hagar og dótturfélög þess hafa ekki farið varhluta af áhrifum COVID-19 faraldursins á yfirstandandi rekstrarári. Afkoma samstæðunnar á fyrri árshelmingi var ásættanleg eftir mjög erfiðan fyrsta ársfjörðung þegar fyrsta bylgja faraldursins var í hámarki. Áhrifa faraldurs COVID-19 gætti á öllum sviðum rekstrar Haga á þriðja ársfjörðungi, sem einkenndist af áframhaldandi tekjuvexti í dagvöruhluta samstæðunnar en tekjusamdrætti hjá Olís líkt og undanfarna mánuði. Framlegð samstæðunnar var undir væntingum auk þess sem rekstrarkostnaður hefur hækkað vegna faraldursins.
Afkoma desembermánaðar var umfram væntingar og má gera ráð fyrir að síðasti ársfjörðungur verði í takti við afkomu sama tímabils á fyrra ári og að áhrif á rekstur Haga verði svipuð og verið hefur. Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2020/21 er því óbreytt og gerir ráð fyrir að EBITDA verði 8.100-8.600 millj. kr.
Efnahags- og lausafjárstaða Haga er sterk og er félagið vel í stakk búið til að takast á við ögrandi aðstæður í íslensku efnahagslífi. Fjármögnun félagsins er tryggð til langs tíma og er aðgangur að skammtímafjármögnun, að fjárhæð um 6,2 ma. kr., hjá viðskiptabanka einnig tryggður.
Gripið hefur verið til margvíslegra aðgerða til að tryggja öryggi og heilsu starfsfólks, viðskiptavina og annarra samstarfsaðila samstæðunnar. Aðgerðirnar skipta miklu máli því stór hluti af starfsemi samstæðunnar, s.s. matvöruverslanir og tengd vöruhús, ásamt sölustöðum eldsneytis, gegna stóru hlutverki í innviðastarfsemi landsins, sérstaklega í krefjandi aðstæðum sem þessum.
Fréttatilkynning
- januar 2021
hagar
Hlutafé og hluthafar
- Markaðsvirði Haga í lok tímabilsins nam 64,1 ma. kr. og lokaverð þann 30. nóvember 2020 var 54,3 kr./hlut.
- Skráð hlutafé Haga í lok tímabilsins nam 1.181 millj. kr. Félagið átti 9,2 millj. hluti í lok tímabilsins.
- Þann 9. júní 2020 samþykkti aðalfundur að ekki yrði greiddur arður til hluthafa vegna síðastliðins árs.
- Stjórn Haga hefur á grundvelli samþykktar aðalfundar frá 9. júní 2020 sett í gang tvær endurkaupaáætanir frá því í byrjun nóvember, í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Þeim er nú báðum lokið og nam fjárhæð endurkaupanna 1.000 millj. kr. eða 17,8 millj. hluta.
- Ný endurkaupaáætlun hefst í viku 3 og mun fjárhæð endurkaupanna nema að hámarki 500 millj. kr.
- Hluthafar voru 684 í byrjun rekstrarárs og 708 í lok tímabilsins.
Rafraenn kynningarfundur föstudaginn 15. januar 2021
Rafraenn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn föstudaginn 15. januar kl. 8:30. Fundinum verður varpað í gegnum netið, þar sem Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar og samstæðu, munu kynna rekstur og afkomu félagsins, ásamt því að svara fyrirspurnum.
Tekið verður við spurningum sem tengjast uppgjörinu á meðan á útsendingu stendur á netfangið [email protected] og verður þeim svarað eins og kostur er í lok fundar.
Fundinum verður varpað í gegnum netið á slóðinni: https://livestream.com/accounts/11153656/events/9471233/player
Kynningargögn verða aðgengileg við upphaf fundar á heimasíðu Haga, www.hagar.is.
Fjárhagsdagatal 2020/21
Fjárhagsupplysingar eru birtar eftir lokun markaða.
| Uppgjörstímabil | Vikudagur | Birtingardagur |
|---|---|---|
| 4F – 1. mars – 28. febrúar | Mánudagur | 10. maí 2021 |
| Aðalfundur 2021 | Fimmtudagur | 3. júní 2021 |
Fréttatilkynning þessi og uppgjörsgögn verða aðgengileg í enskri útgáfu þann 18. janúar á https://en.hagar.is/
Press release and financial statements will be available in English on January 18th at https://en.hagar.is/
Nánari upplýsingar veita Finnur Oddsson, forstjóri félagsins ([email protected]) og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar og samstæðu ([email protected]), í síma 530-5500 eða tölvupósti.