Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Interim / Quarterly Report 2021

Jun 25, 2021

2196_rns_2021-06-25_488ad33a-689f-4f43-87f1-627f92c2bb1a.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Hagar hf.

Samandreginn árslutareikningur samstæðunnar
1. mars til 31. maí 2021

Hagar hf.
Hagasmára 1
201 Kópavogur
Kt. 670203-2120


Efnisyfirlit

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra ... 3
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu ... 5
Efnahagsreikningur ... 6
Eiginfjáryfirlit ... 7
Sjóðstreymisyfirlit ... 8
Skýringar ... 9

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. mai 2021


Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Hagar hf. („félagið“) er verslunarfyrirtæki með starfsemi á Íslandi en félagið er leiðandi á íslenskum matvöru-, sérvoru- og eldsneytismarkaði. Í lok tímabilsins starfrækti félagið 38 matvöruverslanir, 26 Olís þjónustustöðvar, 43 ÓB-stöðvar, eina birgðaverslun, þrjár sérvoruverslanir, tvö vöruhús og tvær framleiðslustöðvar. Kjarnastarfsemi Haga er á sviði matvöru og tengdra vöruhúsa, auk eldsneytissölu.

Árshlutareikningur Haga hf. fyrir tímabilið 1. mars til 31. maí 2021 er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34. Árshlutareikningurinn samanstendur af samandregrum samstæðureikningi Haga hf. og dótturfélaga þess, sem vísað er til sem samstæðunnar. Árshlutareikningurinn er hvorki endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.

Rekstur tímabilsins og fjárhagsleg staða

Samkvæmt rekstrarreikningi og yfirliti um heildarafkomu var hagnaður af rekstri samstæðunnar að fjárhæð 727 millj. kr. Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar 62.867 millj. kr. Eigið fé í lok tímabilsins nam 25.906 millj. kr. og var eiginfjárhlutfall 41,2%.

Áhrif COVID-19 faraldursins á afkomu og stöðu samstæðunnar

Hagar og dótturfélög þess finna enn fyrir áhrifum COVID-19 heimsfaraldursins en starfsemi samstæðunnar litast áfram af aðgerðum til að takmarka afleiðingar faraldursins, tryggja öryggi starfsfólks, viðskiptavina og annarra samstarfsaðila samstæðunnar. Rekstrarniðurstaða fyrsta ársfjörðungs er ánægjuleg í ljósi aðstæðna en samanburður við fyrsta ársfjörðung síðasta rekstrarárs er hagstæður þar sem sá ársfjörðungur varð fyrir höggi þegar gengisfall íslensku krónunnar og lækkun á heimsmarkaðsverði á olíu höfðu mikil áhrif á afkomuna.

Velta í dagvöruhluta samstæðunnar er enn að aukast og velta í eldsneytishlutanum er töluvert yfir fyrra ári og er farin að nálgast eðlilegra árferði. Gert er ráð fyrir að áhrifa af faraldrinum muni gæta á rekstur samstæðunnar fram á mitt rekstrarár en afkomuspá stjórnenda fyrir árið gerir ráð fyrir að EBITDA afkoma samstæðunnar verði 8.600 - 9.100 millj. kr. Nánari upplýsingar um áhrif COVID-19 má finna í skýringu 16.

Sala á Reykjavíkur Apóteki ehf. og rekstri Útilífs

Í mars og apríl 2021 var skrifað undir samninga um sölu á 90% eignarhlut félagsins í Reykjavíkur Apóteki ehf., sem og sölu á eignum tengdum rekstri Reykjavíkur Apóteks í Skeifunni 11. Afhending á eignum tengdum rekstri í Skeifunni 11 fór fram þann 21. maí sl. og afhending á eignarhlut Haga hf. í Reykjavíkur apóteki ehf. fór fram 18. júní sl. en viðmiðunardagur uppgjörs viðskiptanna var 31. maí 2021. Afkomuáhrif vegna sölunnar koma fram í rekstrarreikningi tímabilsins.

Þann 31. mars 2021 var skrifað undir samning um sölu á rekstri og eignum tengdum smásöluversluninni Útilíf. Samningurinn var gerður með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins en samþykki eftirlitsins var staðfest þann 8. júní sl. Afhending fer fram á öðrum ársfjörðungi rekstrarársins. Nánari upplýsingar um breytingar á samstæðunni má finna í skýringu 17.

Hlutafé og hluthafar

Skráð hlutafé félagsins nam í lok tímabilsins 1.181 millj. kr. Hver hlutur er ein króna að nafnverði. Allir hlutir eru í sama flokki og njóta sömu réttinda. Félagið á í lok tímabilsins eigin hluti að nafnverði 26,4 millj. kr.

Hluthafar voru 784 í byrjun tímabilsins og 787 í lok þess.

Þann 3. júní 2021 samþykkti aðalfundur félagsins að greiddur yrði arður til hluthafa sem nemur 1,27 krónum á hlut eða um 1.500 millj. kr. Arðurinn var greiddur þann 16. júní sl. Aðalfundur samþykkti einnig að lækka hlutafé félagsins til ógildingar á eigin hlutum að nafnverði 26,4 millj. kr. og verður skráð hlutafé eftir lækkun því 1.154 millj. kr.

Samandregrinn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. maí 2021


Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra, frh.:

Yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra gefur samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar glögga mynd af rekstrarafkomu samstæðunnar fyrir tímabilið 1. mars til 31. maí 2021, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu hennar þann 31. maí 2021 og breytingum á handbæru fé á tímabilinu, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu.

Jafnframt er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn og skýrsla stjórnar og forstjóra geymi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri samstæðunnar, stöðu hennar, og lýsi helstu áhættupáttum og óvissu sem samstæðan býr við.

Stjórn og forstjóri Haga hf. hafa í dag farið yfir árshlutareikning samstæðunnar fyrir tímabilið 1. mars til 31. maí 2021 og staðfesta hann með undirritun sinni.

Kópavogi, 25. júní 2021

Stjórn:

Davíð Harðarson, formaður

Eiríkur S. Jóhannsson, varaformaður

Eva Bryndís Helgadóttir, meðstjórnandi

Jensína Kristín Böðvarsdóttir, meðstjórnandi

Katrín Olga Jóhannesdóttir, meðstjórnandi

Forstjóri:

Finnur Oddsson

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. maí 2021


Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu

  1. mars 2021 til 31. mai 2021
2021 2020
Skýr. 1.3.-31.5. 1.3.-31.5.
Vörusala 32.034 28.241
Kostnaðarverð seldra vara ( 25.185) ( 22.412)
Framlegð 6.849 5.829
Aðrar rekstrartekjur 104 98
Hagnaður af sölu dótturfélags 17 80 0
Laun og launatengd gjöld ( 3.250) ( 3.276)
Annar rekstrarkostnaður ( 1.505) ( 1.354)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir 2.278 1.297
Afskriftir 7 ( 1.005) ( 1.024)
Rekstrarhagnaður 1.273 273
Fjármunatekjur 7 17
Fjármagnsgjöld ( 397) ( 448)
Hrein fjármagnsgjöld 8 ( 390) ( 431)
Áhrif hlutdeildarfélaga 31 30
Hagnaður (tap) fyrir tekjuskatt 914 ( 128)
Tekjuskattur ( 187) 32
Heildarhagnaður (-tap) timabilsins 727 ( 96)
Skipting hagnaðar (taps):
Hluthafar móðurfélags 717 ( 94)
Hlutdeild minnihluta 10 ( 2)
727 ( 96)
Hagnaður (tap) á hlut:
Grunnhagnaður (-tap) og þynntur hagnaður (tap) á hlut 0,63 ( 0,08)
Starfsþáttayfirlit, skýring 19

Skýringar á blaðsíðum 9 til 14 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárs hlutareikningnum.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. mai 2021

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Efnahagsreikningur 31. mai 2021

Skýr. 31.5.2021 28.2.2021
Eignir
Rekstrarfjármunir 23.129 23.444
Fjárfestingarfasteignir 4.606 4.326
Óefnislegar eignir 10.486 10.547
Leigueignir 15 7.943 8.255
Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum 1.233 1.202
Eignarhlutir í öðrum félögum 41 41
Skuldabréfaeign 16 1
Fastafjármunir samtals 47.454 47.816
Vörubirgðir 9 8.990 8.791
Viðskiptakrófur og aðrar skammtímakrófur 10 3.757 3.219
Viðskiptakrófur - greiðslukortakrófur 10 1.335 1.434
Handbært fé 1.331 388
Veltufjármunir samtals 15.413 13.832
Eignir samtals 62.867 61.648
Eigið fé
Hlutafé 1.154 1.154
Yfirverðsreikningur hlutafjár 2.132 2.132
Lögbundinn varasjóður 289 289
Bundinn hlutdeildarreikningur 5.257 4.433
Óráðstafað eigið fé 17.074 17.181
Samtals 25.906 25.189
Hlutdeild minnihluta 0 ( 2)
Eigið fé samtals 25.906 25.187
Skuldir
Vaxtaberandi langtímaskuldir 11 9.355 9.368
Leiguskuldir 15 6.700 7.010
Tekjuskattsskuldbinding 2.569 2.214
Langtímaskuldir samtals 18.624 18.592
Vaxtaberandi skammtímaskuldir 11 2.958 2.957
Skuldir við lánastofnanir 11 0 601
Tekjuskattur til greiðslu 491 471
Leiguskuldir 15 2.020 2.019
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 12 12.868 11.821
Skammtímaskuldir samtals 18.337 17.869
Skuldir samtals 36.961 36.461
Eigið fé og skuldir samtals 62.867 61.648

Aðrar upplýsingar, skýringar 13-14, 16-18

Skýringar á blaðsiðum 9 til 14 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárshlutareikningnum.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. mai 2021

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Eiginfjáryfirlit

1. mars 2021 til 31. mai 2021

Hlutafé Yfirverðs-reikningur hlutafjár Lög-bundinn varasjóður Bundinn hlutdeildar-reikningur Óráðstafað eigið fé Samtals Hlutdeild minnihluta Eigið fé samtals
Breytingar á eigin fé 1. mars til 31. mai 2021
Eigið fé 1. mars 2021 1.154 2.132 289 4.433 17.181 25.189 ( 2 ) 25.187
Heildarhagnaður tímabilsins 717 717 10 727
Flutt á bundinn hlutdeildarreikning 824 ( 824 ) 0 0
Hlutdeild minnihluta við sölu á dötturfélagi 0 ( 8 ) ( 8 )
Eigið fé 31. mai 2021 1.154 2.132 289 5.257 17.074 25.906 0 25.906
Breytingar á eigin fé 1. mars til 31. mai 2020
Eigið fé 1. mars 2020 1.189 4.017 297 5.947 13.136 24.586 1 24.587
Endurkaup á eigin bréfum ( 8 ) ( 412 ) ( 420 ) ( 420 )
Heildartap tímabilsins ( 94 ) ( 94 ) ( 2 ) ( 96 )
Flutt á bundinn hlutdeildarreikning 163 ( 163 ) 0 0
Eigið fé 31. mai 2020 1.181 3.605 297 6.110 12.879 24.072 ( 1 ) 24.071

Þann 3. júní 2021 samþykkti aðalfundur félagsins að greiddur yrði arður til hluthafa sem nemur 1,27 krónum á hlut eða um 1.500 millj. kr. Arðurinn var greiddur þann 16. júní sl. Aðalfundur samþykkti einnig að lækka hlutafé félagsins til ógildingar á eigin hlutum að nafnverði 26,4 millj. kr. og verður skráð hlutafé eftir lækkun því 1.154 millj. kr.

Skýringar á blaðsíðum 9 til 14 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárshlutareikningnum.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. mai 2021

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Sjóðstreymisyfirlit

  1. mars 2021 til 31. maí 2021
2021 2020
Skýr. 1.3.-31.5. 1.3.-31.5.
Rekstrarhreyfingar
Hagnaður (tap) tímabilsins 727 ( 96)
Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi:
Sóluhagnaður rekstrarfjármuna ( 136) 1
Afskriftir 7 1.005 1.024
Hrein fjármagnsgjöld 8 390 431
Áhrif hlutdeildarfélaga ( 31) ( 30)
Tekjuskattur 187 ( 32)
Veltufé frá rekstri 2.142 1.298
Breytingar á rekstrartengdum eignum ( 652) ( 134)
Breytingar á rekstrartengdum skuldum 1.470 2.071
Handbært fé fyrir vexti og tekjuskatt 2.960 3.235
Innheimtar vaxtatekjur 7 1
Greidd vaxtagjöld ( 277) ( 302)
Greiddur tekjuskattur ( 183) ( 273)
Handbært fé frá rekstri 2.507 2.661
Fjárfestingarhreýfingar
Fjárfesting í fasteignum ( 49) ( 287)
Fjárfesting í fjárfestingarfasteignum ( 33) ( 13)
Fjárfesting í áhöldum og innréttingum ( 489) ( 597)
Fjárfesting í óefnislegum eignum ( 15) ( 6)
Sóluverð áhalda og innréttinga 24 28
Skuldabréfaeign, breyting ( 17) 17
Seldur eignarhlutur í dótturfélagi 141 0
Fjárfestingarhreýfingar ( 438) ( 858)
Fjármögnunarhreýfingar
Afborganir langtímalána ( 114) ( 116)
Breyting á lánalínu ( 601) 415
Keypt eigin bréf 0 ( 420)
Leiguskuld afborganir 15 ( 411) ( 439)
Fjármögnunarhreýfingar ( 1.126) ( 560)
Hækkun á handbæru fé 943 1.243
Handbært fé í upphafi tímabils 388 2.232
Handbært fé í lok tímabils 1.331 3.475

Skýringar á blaðsíðum 9 til 14 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárs hlutareikningnum.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. maí 2021

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

  1. Félagið

Hagar hf. („félagið“) er íslenskt hlutafélag og er lögheimili þess að Hagasmára 1, Kópavogi. Samstæðuárshlutareikningur félagsins fyrir tímabilið 1. mars til 31. maí 2021 hefur að geyma árshlutareikning félagsins og dótturfélaga þess, sem vísað er til í heild sinni sem „samstæðunnar“ og til einstakra félaga sem „samstæðufélaga“. Aðalstarfsemi félagsins er rekstur smásöluverslana og tengdra vöruhúsa, ásamt sölu á eldsneyti. Í skýringu 13 er greint frá félögum í samstæðunni.

  1. Grundvöllur reikningsskilanna

Yfirlýsing um að alþjóðlegum reikningsskilastöðlum sé fylgt

Árshlutareikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal (IFRS) um árshlutareikninga, IAS 34, eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu. Samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning samstæðunnar fyrir rekstrarárið sem endaði þann 28. febrúar 2021.

Stjórn félagsins staðfesti árshlutareikninginn þann 25. júní 2021.

  1. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir

Við gerð árshlutareikningsins er beitt sömu reikningsskilaaðferðum og beitt var við gerð ársreiknings samstæðunnar fyrir rekstrarárið sem endaði þann 28. febrúar 2021. Hægt er að nálgast ársreikninginn á vef félagsins, www.hagar.is.

Árshlutareikningurinn er birtur í íslenskum krónum, sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins. Allar fjárhæðir eru birtur í milljónum króna.

  1. Mat og ákvarðanir

Gerð samstæðuárshlutareiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaaðferða og birtur fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að verða frábrugðnar þessu mati.

  1. Starfsþáttayfirlit

Starfsþættir samstæðunnar eru tveir, verslanir og vöruhús annars vegar og Olíuverzlun Íslands (Olís) hins vegar. Starfsemi verslana og vöruhúsa, þ.e. rekstur þeirra félaga sem mynduðu samstæðuna fyrir samruna Haga og Olís, er nær eingöngu í smásölurekstri matvöru á Íslandi. Stjórnendur hafa hingað til metið smásöluverslun eftir mismunandi tegundum verslana og landsvæðum og líta svo á að hún byggist á sambærilegum efnahagslegum einkennum, vörum, viðskiptavinum og birgjum. Heildsölurekstur matvöru og smásölurekstur sérvöru er óverulegur og undir þeim tekju-, hagnaðar- og eignamörkum sem hafa ber til viðmiðunar við gerð starfsþáttayfirlits samstæðunnar. Starfsemi Olís er að stærstum hluta í sölu eldsneytis og þjónustu sem því tengist.

Starfsþáttayfirlitið má finna í skýringu 19.

  1. Viðskiptavild

Engar vísbendingar voru um virðisrýrnun viðskiptavildar þann 31. maí 2021 og vegna þess var virðisrýrnunarpróf ekki framkvæmt.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. maí 2021
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

  1. Afskriftir
Afskriftir greinast pannig: 2021 2020
1.3-31.5. 1.3-31.5.
Afskriftir rekstrarfjármuna 510 503
Afskriftir fjärfestingarfasteigna 24 23
Afskriftir leigueigna 414 448
Afskriftir öefnislegra eigna 24 14
Hlutdeild í afskriftum Olíudreifingar ehf. 33 36
Afskriftir samtals 1.005 1.024
  1. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld greinast pannig: 2021 2020
1.3-31.5. 1.3-31.5.
Vaxtatekjur af innstæðum og kröfum 7 17
Fjármunatekjur samtals 7 17
Vaxtagjöld og verðbætur ( 257) ( 285)
Vaxtagjöld leiguskuldar ( 122) ( 135)
Gengistap ( 18) ( 28)
Fjármagnsgjöld samtals ( 397) ( 448)
Hrein fjármagnsgjöld ( 390) ( 431)
  1. Vörubirgðir
Vörubirgðir greinast pannig: 31.5.2021 28.2.2021
Matvara 4.778 4.255
Sérvara 2.180 2.068
Eldsneyti 1.636 2.003
Vörur í flutningi 396 465
Vörubirgðir samtals 8.990 8.791
Niðurfærsla birgða í lok tímabils 265 184
  1. Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur greinast pannig: 31.5.2021 28.2.2021
Viðskiptakröfur 3.534 2.993
Niðurfærsla viðskiptakrafna ( 203) ( 188)
Aðrar skammtímakröfur 456 433
Niðurfærsla annarra skammtímakrafna ( 53) ( 53)
Afleiðusamningar 23 34
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 3.757 3.219
Greiðslukortakröfur 1.335 1.434
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur samtals 5.092 4.653

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. mai 2021

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

  1. Vaxtaberandi skuldir
Vaxtaberandi skuldir greinast þannig: Vegið meðaltal vaxta Eftirstöðvar Eftirstöðvar
31.5.2021 28.2.2021 31.5.2021 28.2.2021
Skuldir í ISK, óverðtryggðar 3,01% 2,87% 6.765 6.831
Skuldir í ISK, verðtryggðar 2,80% 2,80% 5.548 5.494
Lánalína 0,00% 1,84% 0 601
Vaxtaberandi skuldir, þ.m.t. næsta árs afborgun 12.313 12.926
Næsta árs afborganir vaxtaberandi skulda ( 2.958 ) ( 3.558 )
Langtímaskuldir samtals 9.355 9.368
Afborganir langtímalána greinast þannig á næstu ár:
Afborganir innan árs 2.958 3.558
Afborganir eftir 1 til 2 ár 463 461
Afborganir eftir 2 til 3 ár 465 464
Afborganir eftir 3 til 4 ár 454 454
Afborganir eftir 4 til 5 ár 457 454
Afborganir síðar 7.516 7.535
Samtals 12.313 12.926

Gangvirði fjáreigna og fjárskulda er jafnt bókfærðu virði þeirra.

Óverðtryggðar skuldabréfaf lokkur, HAGA181021, að upphæð 2.500 millj. kr. er á gjaldaga í október nk. Flokkurinn ber fasta 4,65% vexti en unnið er að endurfjármögnun hans. Samstæðan hefur auk þess aðgang að skammtímafjármögnun í formi lánalína að fjárhæð 4,5 ma.kr. og USD 12,5 millj.

  1. Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir greinast þannig: 31.5.2021 28.2.2021
Viðskiptaskuldir 9.876 8.825
Aðrar skammtímaskuldir 2.969 2.996
Afleiðusamningar 23 0
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir samtals 12.868 11.821
  1. Félög í samstæðu

Dótturfélög í samstæðu Haga hf. voru sex í lok tímabilsins. Dótturfélögin eru eftirfarandi:

Staðsetning Eignarhlutur
31.5.2021 28.2.2021
Hagar verslanir ehf. Ísland 100% 100%
Olúverzlun Íslands ehf. (Olís) Ísland 100% 100%
Bananar ehf. Ísland 100% 100%
Noron ehf. Ísland 100% 100%
FKV ehf. (áður Ferskar kjötvörur ehf.) Ísland 100% 100%
Mjöll Frigg ehf. Ísland 100% 100%
Reykjavíkur Apótek ehf. Ísland 0% 90%

Mjöll Frigg ehf. er dótturfélag Olís. Engin starfsemi er í FKV ehf. Eignarhlutur Haga hf. í Reykjavíkur Apóteki ehf. hefur verið seldur en viðmiðunardagur viðskiptanna var 31. maí 2021 og fór afhending fram þann 18. júní sl.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. maí 2021

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

14. Kennitölur

Helstu kennitölur samstæðunnar eru eftirfarandi:

2021 2020
Rekstur: 1.3-31.5. 1.3-31.5.
Rekstrarhagnaðarhlutfall (rekstrarhagnaður fyrir afskriftir / vörusölu) 7,1% 4,6%
Launahlutfall (laun og launatengd gjöld / vörusölu) 10,1% 11,6%
Kostnaðarhlutfall (annar rekstarkostnaður / vörusölu) 4,7% 4,8%
Veltuhraði birgða (kostnaðarverð seldra vara / meðalbirgðastaða) 11,2 11,2
Innheimtutími viðskiptakrafna í dögum 10,8 10,8
Efnahagur: 31.5.2021 28.2.2021
Veltufjárhlutfall (veltufjármunir / skammtímaskuldir) 0,84 0,77
Lausafjárhlutfall ((veltufjármunir-birgðir) / skammtímaskuldir) 0,35 0,28
Skuldsetning (nettó vaxtaberandi skuldir / rekstrarhagnaður fyrir afskriftir) 2,01 2,40
Eiginfjárhlutfall (eigið fé / heildareignir) 41,2% 40,9%
Innra virði hlutafjár (eigið fé / hlutafé) 22,45 21,83

15. IFRS 16 Leigusamningar

Eðli breytinganna

Leigueignir og leiguskuldir samstæðunnar sem leigutaka eru eingöngu vegna húsnæðis. Leigueignir og leiguskuldir vegna lóðaleigusamninga eru ekki færðar. Við útreikning fjárhæða leigueigna og leiguskulda var lagt mat á leigutíma og vexti á nýju lánsfé enda var ekki unnt að ákvarða innbyggða vexti í leigusamningum með áreiðanlegum hætti. Vegnir meðalvextir voru ákvarðaðir 5,45%. Við mat á leigutíma er horft til samningstíma, að teknu tilliti til áforma stjórnenda.

Leigueignir greinast þannig frá upphafi til loka tímabilsins: 31.5.2021 28.2.2021
Leigueignir í upphafi tímabils 8.255 9.435
Nýir samningar á tímabilinu 0 55
Verðbætur á tímabilinu 99 347
Afskriftir á tímabilinu ( 414) ( 1.761)
Aðrar breytingar samninga á tímabilinu 3 220
Kaupleigusamningar, breytingar á tímabilinu 0 ( 41)
Leigueignir í lok tímabils 7.943 8.255
Leiguskuldir greinast þannig frá upphafi til loka tímabilsins: 31.5.2021 28.2.2021
Leiguskuldir í upphafi tímabils 9.029 10.167
Nýir samningar á tímabilinu 0 55
Afborgunarþáttur leigugreiðslna ( 411) ( 1.753)
Verðbætur á tímabilinu 99 347
Aðrar breytingar samninga á tímabilinu 3 220
Kaupleigusamningar, breytingar á tímabilinu 0 ( 7)
Leiguskuldir í lok tímabils 8.720 9.029
Afborganir leiguskulda greinast þannig á næstu ár: 31.5.2021 28.2.2021
Afborganir innan árs 2.020 2.019
Afborganir síðar 6.700 7.010
Samtals 8.720 9.029

Heildarleigugreiðslur sem tengjast þeim leigusamningum sem færðir eru samkvæmt leigustaðli IFRS 16 námu 533 millj. kr. (2020/21: 573 millj. kr.).

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. mai 2021

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

16. Áhrif COVID-19 heimsfaraldursins

Hagar og dótturfélög þess finna enn fyrir áhrifum COVID-19 heimsfaraldursins en starfsemi samstæðunnar litast áfram af aðgerðum til að takmarka afleiðingar faraldursins, tryggja öryggi starfsfólks, viðskiptavina og annarra samstarfsaðila samstæðunnar. Rekstrarniðurstaða fyrsta ársfjörðungs er ánægjuleg í ljósi aðstæðna en samanburður við fyrsta ársfjörðung síðasta rekstrarárs er hagstæður þar sem sá ársfjörðungur varð fyrir höggi þegar gengisfall íslensku krónunnar og lækkun á heimsmarkaðsverði á olíu höfðu mikil áhrif á afkomuna.

Velta í dagvöruhluta samstæðunnar er enn að aukast og velta í eldsneytishlutanum er töluvert yfir fyrra ári og er farin að nálgast eðlilegra árferði. Gert er ráð fyrir að áhrifa af faraldrinum muni gæta á rekstur samstæðunnar fram á mitt rekstrarár en afkomuspá stjórnenda fyrir árið gerir ráð fyrir að EBITDA afkoma samstæðunnar verði 8.600 - 9.100 millj. kr.

Fjárhagsleg staða samstæðu Haga hf. er sterk og er félagið vel í stakk búið að takast á við ögrandi aðstæður í íslensku efnahagslífi. Fjármögnun samstæðunnar að mestu tryggð til langs tíma og er aðgangur að skammtímafjármögnun, að fjárhæð um 6,2 ma. kr., hjá viðskiptabanka einnig tryggð.

17. Breytingar á samstæðunni

Í mars og apríl 2021 var skrifað undir samninga um sölu á 90% eignarhlut félagsins í Reykjavíkur Apóteki ehf., sem og sölu á eignum tengdum rekstri Reykjavíkur Apóteks í Skeifunni 11. Afhending á eignum tengdum rekstri í Skeifunni 11 fór fram þann 21. maí sl. og afhending á eignarhlut Haga hf. í Reykjavíkur Apóteki ehf. fór fram 18. júní sl. en viðmiðunardagur viðskiptanna var 31. maí 2021. Afkomuáhrif vegna sölunnar koma fram í rekstrarreikningi tímabilsins.

Þann 31. mars 2021 var skrifað undir samning um sölu á rekstri og eignum tengdum smásöluversluninni Útilíf. Samningurinn var gerður með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins en samþykki eftirlitsins var staðfest þann 8. júní sl. Afhending fer fram á öðrum ársfjörðungi rekstrarársins en þá munu áhrif sölunnar koma fram.

Í maí sl. náðu Hagar hf. og eigendur Djús ehf. samkomulagi um kaup Haga hf. á helmingshlut í Djús ehf., sem á og rekur veitingastaði undir merkjum Lemon. Kaupin voru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins og hefur afhending því ekki farið fram. Niðurstöðu eftirlitsins er að vænta á öðrum ársfjörðungi rekstrarársins.

18. Tengdir aðilar

Tengdir aðilar félagsins eru stórir hluthafar í félaginu, hlutdeildarfélög þess, lykilstjórnendur og stjórnarmenn. Viðskipti á milli félagsins og dótturfélaga þess, sem eru skilgreind sem tengdir aðilar, hafa verið færð út í samstæðureikningsskilum og eru ekki hluti af þessari skýringu.

Viðskipti við tengda aðila

Viðskipti við tengda aðila greinast þannig: 2021 2020
1.3.-31.5. 1.3.-31.5.
Seldar vörur og þjónusta 29 18
Keyptar vörur og þjónusta ( 346) ( 317)
Viðskiptakröfur í lok tímabils 1 1
Viðskiptaskuldir í lok tímabils ( 152) ( 130)

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. maí 2021
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

  1. Starfsbáttayfirlit
Fyrsti ársfjórðungur 2021/22 Verslanir og vöruhús Oliuverzlun Íslands ehf. Jöfnunar-færslur Samtals
Vörusala 23.338 8.750 ( 54) 32.034
Aðrar rekstrartekjur 174 12 ( 2) 184
Heildartekjur starfsbátta 23.512 8.762 (56) 32.218
Heildarre-kstrargjöld starfsbátta (21.529) (8.467) 56 (29.940)
EBITDA starfsbátta 1.983 295 0 2.278
Afskriftir starfsbátta ( 791) ( 214) 0 ( 1.005)
Áhrif hlutdeildarfélaga 0 31 0 31
Rekstrarafkoma starfsbátta 1.192 112 0 1.304
Hrein fjármagnsgjöld ( 333) ( 57) 0 ( 390)
Tekjuskattur ( 187)
Hagnaður tímabilsins 727
31. mai 2021
Eignir starfsbátta 45.011 17.856 0 62.867
Eignir samtals 62.867
Skuldir starfsbátta 27.857 9.104 0 36.961
Skuldir samtals 36.961
Fjárfestingar starfsbátta (nettó) 437 125 0 562
Fyrsti ársfjórðungur 2020/21 Verslanir og vöruhús Oliuverzlun Íslands ehf. Jöfnunar-færslur Samtals
--- --- --- --- ---
Vörusala 21.566 6.785 ( 110) 28.241
Aðrar rekstrartekjur 88 36 ( 26) 98
Heildartekjur starfsbátta 21.654 6.821 (136) 28.339
Heildarre-kstrargjöld starfsbátta (20.092) (7.086) 136 (27.042)
EBITDA starfsbátta 1.562 ( 265) 0 1.297
Afskriftir starfsbátta ( 757) ( 267) 0 ( 1.024)
Áhrif hlutdeildarfélaga 0 30 0 30
Rekstrarafkoma starfsbátta 805 (502) 0 303
Hrein fjármagnsgjöld ( 327) ( 104) 0 ( 431)
Tekjuskattur 32
Tap tímabilsins (96)
31. mai 2020
Eignir starfsbátta 44.266 19.773 0 64.039
Eignir samtals 64.039
Skuldir starfsbátta 28.379 11.589 0 39.968
Skuldir samtals 39.968
Fjárfestingar starfsbátta (nettó) 701 175 0 876

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. mai 2021

Fjárhæðir eru í milljónum króna