Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Interim / Quarterly Report 2022

Oct 19, 2021

2196_rns_2021-10-19_39216dbc-2c1c-4cda-8ae9-1df42e6ed30f.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Fréttatilkynning

  1. oktober 2021

hagar

Hagnaður á 2. ársfjórðungi 1.709 millj. kr.

Uppgjör Haga hf. á 2. ársfjórðungi 2021/22

Árshlutareikningur Haga hf. fyrir annan ársfjórðung 2021/22 var sambykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 19. október 2021. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars 2021 til 31. ágúst 2021. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Reikningurinn hefur verið kannaður af endurskoðendum félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf.

Helstu lykiltölur

  • Vörusala 2F nam 34.885 millj. kr. (2020/21: 30.924 millj. kr.). Vörusala 6M nam 66.919 millj. kr. (2020/21: 59.165 millj. kr.).
  • Framlegðarhlutfall 2F var 21,2% (2020/21: 23,5%). Framlegðarhlutfall 6M var 21,3% (2020/21: 22,1%).
  • Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 2F nam 3.263 millj. kr. (2020/21: 3.019 millj. kr.). EBITDA fyrstu 6M nam 5.541 millj. kr. (2020/21: 4.316 millj. kr.).
  • Hagnaður 2F nam 1.709 millj. kr. eða 4,9% af veltu (2020/21: 1.321 millj. kr. og 4,3% af veltu). Hagnaður 6M nam 2.436 millj. kr. eða 3,6% af veltu (2020/21: 1.225 millj. kr. og 2,1% af veltu).
  • Grunnhagnaður á hlut 2F var 1,48 kr. (2020/21: 1,12 kr.). Grunnhagnaður á hlut 6M var 2,11 kr. (2020/21: 1,04 kr.). Þynntur hagnaður á hlut 2F var 1,47 kr. (2020/21: 1,12 kr.). Þynntur hagnaður á hlut 6M var 2,10 kr. (2020/21: 1,04 kr.).
  • Eigið fé nam 26.161 millj. kr. í lok tímabils og eiginfjárhlutfall 40,7% (Árslok 2020/21: 25.187 millj. kr. og 40,9%).
  • Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2021/22 gerir ráð fyrir að EBITDA verði 9.300-9.800 millj. kr.

Helstu fréttir af starfseminni

  • Góður ársfjórðungur að baki með aukinni veltu en framlegðarhlutfall heldur undir áætlunum.
  • Áhrif COVID-19 faraldursins fara minnkandi á rekstur samstæðunnar nú þegar landsmenn eru farnir að ferðast á ný og fleiri ferðamenn koma til landsins.
  • Uppgjör vegna sölu eigna Útilífs er lokið og var félagið afhent í lok 2F. Söluhagnaður sem fram kemur í rekstrarreikningi 2F er um 273 millj. kr.
  • Fyrirvörum vegna kaupa Haga á Djús ehf. aflétt og fjárhagsleg áhrif af rekstri félagsins koma fram, í formi hlutdeildartekna, frá og með 2. júlí 2021.
  • Í samræmi við sambykkt aðalfundar var gengið frá samningum um kauprétti við lykilstarfsmenn félagsins. Alls voru veittir 11,8 millj. hlutir eða um 1,0% hlutafjár í félaginu.
  • Í júní skrifuðu Hagar og Olís undir samkomulag við Reykjavíkurborg vegna fækkunar eldsneytisstöðva innan borgarmarkanna, sem og framtíðaruppbyggingu Haga á lóðum í Mjóddinni.
  • Í september undirrituðu Hagar, Reginn, Klasi og KLS eignarhaldsfélag viljayfirlysingu um uppbyggingu og rekstur öflugs fasteignapróunarfélags.

Fréttatilkynning

  1. október 2021

hagar

Finnur Oddsson, forstjóri:

Rekstur Haga á öðrum fjórðungi rekstrarársins 2021/2022 gekk vel. Tekjur námu 34.885 millj. kr. og jukust um 13% miðað við sama tímabil í fyrra. Afkoma á fjórðungnum batnaði á milli ára, en EBITDA nam 3.263 millj. kr. og hagnaður 1.709 millj. kr., sem er um 30% aukning. Við erum ánægð með starfsemi félagsins á fyrri helming rekstrarárs, sérstaklega tóluverða tekjuaukningu og aukinn hagnað, sem nam 2.436 millj. kr. á tímabilinu í samanburði við 1.225 millj. kr. í fyrra.

Pessi viðsnúningur í rekstri Haga á fyrri helmingi árs skýrist af bættri afkomu hjá öllum helstu rekstrareiningum félagsins, þ.e. Bónus, Hagkaup og Olís. Afkoma af rekstri Olís er mun betri en var í fyrra, en eftirspurn hefur aukist samhliða meiri umsvifum í samfélaginu og fjölgun ferðamanna í vor og sumar. Að auki hefur markviss aðlögun í rekstri þjónustustöðva skilað umtalsverðu hagræði í rekstarkostnaði. Tekjur í dagvöruverslun hafa haldið áfram að aukast og framlegð heldur styrkst, sem skilar bættri rekstrarafkomu hjá verslunum og vöruhúsum.

Aðlögun starfsemi Haga að nýjum stefnumótandi áherslum gengur ágætlega, en þær miða m.a. að því að auka fókus á kjarnastarfsemi félagsins, efla tengingu við viðskiptavini og treysta sérstöðu vörumerkja dótturfélaga. Sölu og uppgjóri vegna rekstrareininga, Útilíf og Reykjavíkur Apóteki, er lokið. Áfram er unnið að því að aðlaga og styrkja vöruframboð þjónustustöðva og verslana, m.a. með skýrari afmörkun þjónustuframboðs, stuðningi við nýsköpun og nýja aðila í matvælaíramleiðslu, og kaupum á Djús ehf. sem rekur Lemon veitingastaðina. Vinnu við uppbyggingu netverslunar Haga og dótturfélaga miðar vel, en þar er horft til uppbyggingar yfir lengri tíma og samhliða verður lagður grunnur að frekari nýtingu upplýsingatækni við ákvörðunartöku og til að bæta þjónustu við viðskiptavini. Það er svo ánægjulegt að við höfum fengið nýja liðsmenn til að taka þátt í þessari vegferð Haga, en í síðasta mánuði tóku Jóhanna Jónsdóttir við sem framkvæmdastjóri Banana og Frosti Ólafsson við sem framkvæmdastjóri Olís.

Ílok september var gengið frá viljayfirlýsingu á milli Haga, Klasa og Regins um uppbyggingu og rekstur öflugs fasteignafélags, þar sem Hagar greiða fyrir eignarhlut í félaginu með þróunareignum. Þetta er í samræmi við markaða stefnu þar sem gert er ráð fyrir aðkomu sérhæfðra aðila til að stýðja við uppbyggingu og verðmætasköpun í tengslum við lóðir og fasteignir Haga. Gert er ráð fyrir að eignarhlutur hvers eiganda um sig, þ.e. Haga, Regins og KLS eignarhaldsfélags, núverandi eiganda Klasa, verði um 1/3 af útgefnu hlutafé og að verðmæti undirliggjandi fjárfestingareigna verði um 15 ma. kr. Við gerum ráð fyrir að fyrirhugað samstarf stuðli að bæði hraðari og hagkvæmari uppbyggingu á þróunarreitum Haga og treysti þannig verðmætasköpun fyrir hluthafa félagsins.

Horfur í rekstri Haga eru áfram góðar. Heldur hefur dregið úr neikvæðum áhrifum vegna COVID-19 og gert er ráð fyrir að eftirspurn á eldsneytismarkaði muni halda áfram að aukast með auknum umsvifum og ferðamannastraumi. Þá er gert ráð fyrir að eftirspurn eftir dagvöru verði nokkuð stöðug, en þó má búast við að fleiri Íslendingar fari utan á næstunni, í samanburði við fyrra ár, sem gæti hægt á tekjuvexti. Einnig er ástæða til að draga athygli að væntanlegum verðhækkunum á hrá- og neytendavöru sem til komnar eru vegna hnökra á aðfangakeðjum og aukinni eftirspurn í heimshagkerfinu.

Spá stjórnenda um afkomu gerir ráð fyrir að EBITDA samstæðu á rekstrarárinu verði á bilinu 9.300-9.800 millj. kr. Fjárhagsleg staða er sterk og félagið því vel í stakk búið að fylgja eftir nýjum stefnumótandi áherslum og takast á við ögrandi aðstæður í íslensku efnahagslífi. Sem fyrr er það markmið okkar að efla hag viðskiptavina með því að gera verslun hagkvæma, þægilega og skemmtilega.


Fréttatilkynning

  1. október 2021

hagar

Rekstrarreikningur samstæðunnar

Vællj. kr. 2F 2021/22 3F 2020/21 6M 2021/22 6M 2020/21
01.06.21.00 01.06.21.05 Rørning % 01.06.21.00 01.06.21.05 Rørning %
Vörusala 34.885 30.924 3.961 12,8% 66.919 59.165 7.754 13,1%
Kostnaðarverð seldra vara (27.501) (23.657) (3.844) 16,2% (52.686) (46.069) (6.617) 14,4%
Framlegð 7.384 7.267 117 1,6% 14.233 13.096 1.137 8,7%
Framlegð % 21,2% 23,5% - -2,3% 21,3% 22,1% - -0,9%
Aðrar rekstrartekjur 125 85 40 47,1% 229 183 46 25,1%
Hagnaður af sölu félaga 269 - 269 - 349 - 349 -
Laun og launatengd gjöld (3.182) (3.064) (118) 3,9% (6.432) (6.340) (92) 1,5%
Annar rekstarkostnaður (1.333) (1.269) (64) 5,0% (2.838) (2.623) (215) 8,2%
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) 3.263 3.019 244 8,1% 5.541 4.316 1.225 28,4%
EBITDA % 9,4% 9,8% - -0,4% 8,3% 7,3% - 1,0%
Afskriftir (897) (1.068) 171 -16,0% (1.902) (2.092) 190 -9,1%
Rekstrarhagnaður (EBIT) 2.366 1.951 415 21,3% 3.639 2.224 1.415 63,6%
Hrein fjármagnsgjöld (341) (419) 78 -18,6% (731) (850) 119 -14,0%
Áhrif hlutdeildarfélaga 90 95 (5) -5,3% 121 125 (4) -3,2%
Hagnaður fyrir tekjuskatt 2.115 1.627 488 30,0% 3.029 1.499 1.530 102,1%
Tekjuskattur (406) (306) (100) 32,7% (593) (274) (319) 116,4%
Heildarhagnaður 1.709 1.321 388 29,4% 2.436 1.225 1.211 98,9%
Skipting hagnaðar
Hlutdeild móðurfélags 1.709 1.322 387 29,3% 2.426 1.228 1.198 97,6%
Hlutdeild minníhluta - (1) 1 - 10 (3) 13 -
1.709 1.321 388 29,4% 2.436 1.225 1.211 98,9%

Rekstur á fyrri árshelmingi 2021/22

Vörusala tímabilsins nam 66.919 millj. kr., samanborið við 59.165 millj. kr. árið áður. Söluaukning milli ára nam 13,1%. Söluaukning verslana og vöruhúsa nam 9,5% og söluaukning hjá Olís nam 28,1%.

Framlegð samstæðunnar var 14.233 millj. kr., samanborið við 13.096 millj. kr. árið áður eða 21,3% framlegðarhlutfall í samanburði við 22,1% árið áður.

Hagnaður af sölu Reykjavíkur Apóteks ehf. nam 76 millj. kr. og hagnaður af sölu eigna Útilífs nam 273 millj. kr. eða samtals sölu hagnaður 349 millj. kr.

Launakostnaður hækkaði aðeins um 1,5% milli ára, þrátt fyrir um 6% hækkan launa vegna kjarasamninga. Einskiptisliðir á tímabilinu nema 108,9 millj. kr. vegna gjaldfærslu kaupréttarsamninga og starfsloka framkvæmdastjóra. Einskiptisliðir á fyrra ári námu 86,4 millj. kr.

Annar rekstarkostnaður hækkar um 8,2% milli ára en kostnaðarhlutfall er 4,2% í samanburði við 4,4% árið áður.

Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) nam 5.541 millj. kr., samanborið við 4.316 millj. kr. árið áður. EBITDA-hlutfall var 8,3%,

samanborið við 7,3% árið áður. EBITDA verslana og vöruhúsa hækkar um 20,5% milli ára og EBITDA Olís hækkar um 76,9%.

Heildarhagnaður tímabilsins nam 2.436 millj. kr., sem jafngildir 3,6% af veltu en hagnaður eftir skatta á fyrra ári var 1.225 millj. kr. eða 2,1% af veltu.

Lykiltölur á 2. ársfjörðungi

  • Vörusala 2F jókst um 12,8% milli ára. Seldum stykkjum í matvöruverslunum fjölgaði lítillega á 2F en heimsóknum viðskiptavina fjölgaði um 1,7%. Meðalkarfa stækkaði um 3,8% á fjörðungnum. Magnaukning í eldsneytislítrum hjá Olís var 22,5% milli ára.
  • Framlegð 2F í krónum talið jókst um 1,6% milli ára en framlegðarhlutfall lækkaði úr 23,5% í 21,2%.
  • Laun 2F voru 3,9% yfir fyrra ári og annar rekstarkostnaður hækkaði um 5,0%.
  • Launa- og kostnaðarhlutfall 2F er 12,9% en var 14,0% á fyrra ári.
  • EBITDA á 2F hækkar um 8,1% frá fyrra ári. EBITDA-hlutfall er 9,4% en var 9,8% á fyrra ári.
  • Heildarhagnaður á 2F hækkar um 29,4% á milli ára.

Fréttatilkynning

  1. október 2021

hagar

Efnahagsreikningur samstæðunnar

I millj. kr. 31.08.2021 28.02.2021 Breyting %
Eignir
Fastafjármunir 48.155 47.816 339 0,7%
Veltufjármunir 16.195 13.832 2.363 17,1%
Eignir samtals 64.350 61.648 2.702 4,4%
Eigið fé og skuldir
Hlutafé 1.154 1.154 -- 0,0%
Annað eigið fé 25.007 24.035 972 4,0%
Samtals 26.161 25.189 972 3,9%
Hlutdeild minnihluta -- (2) 2 -100,0%
Eigið fé samtals 26.161 25.187 974 3,9%
Langtímaskuldir 19.366 18.592 774 4,2%
Vaxtaberandi skammtímaskuldir 2.950 2.957 (7) -0,2%
Skuldir við lánastofnánir -- 601 (601) -100,0%
Aðrar skammtímaskuldir 15.873 14.311 1.562 10,9%
Skuldir samtals 38.189 36.461 1.728 4,7%
Eigið fé og skuldir samtals 64.350 61.648 2.702 4,4%

Lykiltölur efnahags 31.08.2021

  • Heildareignir samstæðunnar í lok tímabilsins námu 64.350 millj. kr. og hækkuðu um 2.702 millj. kr. frá árslokum 2020/21.
  • Fastafjármunir voru 48.155 millj. kr. og hækkuðu um 339 millj. kr. frá árslokum. Fjárfesting í áhöldum og innréttingum nam 854 millj. kr. á tímabilinu.
  • Veltufjármunir voru 16.195 millj. kr. og hækkuðu um 2.363 millj. kr. frá árslokum.
  • Birgðir í lok tímabils voru 9.817 millj. kr. og veltuhraði birgða 11,0. Birgðir hafa hækkað um 1.026 millj. kr. á rekstrarárinu og eru 1.458 millj. kr. hærri en á sama tíma í fyrra. Hækkun birgða má að langmestu leyti rekja til hærri eldsneytisbirgða. Veltuhraði birgða á fyrra ári var 11,1.
  • Innheimtutími viðskiptakrafna er 11,4 dagar samanborið við 11,1 dag á sama tímabili á fyrra ári.
  • Veltufjárhlutfall er 0,86 og lausafjárhlutfall 0,34 í lok tímabils. Aðgangur að skammtímafjármögnun í formi lánalína að upphæð 6,2 ma. kr. hjá viðskiptabanka er tryggður.
  • Eigið fé í lok tímabilsins var 26.161 millj. kr. og eiginfjárhlutfall 40,7%. Arðsemi eigin fjár á tímabilinu var 14,7%. Eiginfjárhlutfall við lok síðasta rekstrarárs var 40,9% og arðsemi eigin fjár 10,2%. Félagið átti enga eigin hluti í lok tímabils.
  • Heildarskuldir samstæðunnar í lok tímabils voru 38.189 millj. kr. en þar af voru vaxtaberandi skuldir 12.236 millj. kr. og leiguskuldir 9.356 millj. kr. Nettó vaxtaberandi skuldir, með leiguskuldum, í lok tímabils voru 21.592 millj. kr. eða 2,1xEBITDA. Nettó vaxtaberandi skuldir, án leiguskulda, voru 1,1xEBITDA.
  • Överðtryggður skuldabréfaflokkur, HAGA181021, að upphæð 2.500 millj. kr. var á gjaldaga í gær, 18. október 2021. Skuldabréfaflokkurinn var endurfjármagnaður með útgáfu á nýjum överðtryggðum skuldabréfaflokki til 3ja ára, HAGA181024. Útgáfudagur skuldabréfanna var 18. október 2021 en bréfin eru vaxtagreiðslubréf með gjaldaga 2svar á ári og bera 3,72% fasta vexti.

4


Fréttatilkynning

  1. október 2021

hagar

Sjóðstreymisyfirlit samstæðunnar

Fjalllj. kr. 2F 2021/22 2F 2020/21 Breyting % 6M 2021/22 6M 2020/21 Breyting %
01.06-31.08 01.06-31.08 01.09-31.08 01.09-31.08
Handbært fé frá rekstri 2.050 942 1.108 117,6% 4.557 1.603 954 26,5%
Fjárfestingarhreýfingar (416) (1.282) 866 -67,6% (854) (2.140) 1.286 -60,1%
Fjármögnunarhreýfingar (2.014) (2.246) 232 -10,3% (3.140) (2.806) (334) 11,9%
Hækkun (lækkun) á handbæru fé (380) (2.586) 2.206 -85,3% 563 (1.343) 1.906 -141,9%
Handbært fé í byrjun tímabils 1.331 3.475 (2.144) -61,7% 388 2.232 (1.844) -82,6%
Handbært fé í lok tímabils 951 889 62 7,0% 951 889 62 7,0%

Sjóðstreymi á fyrri árshelmingi 2021/22

  • Handbært fé frá rekstri á tímabilinu nam 4.557 millj. kr., samanborið við 3.603 millj. kr. á fyrra ári en breytingu á milli ára má fyrst og fremst rekja til betri afkomu samstæðunnar.
  • Fjárfestingarhreýfingar tímabilsins voru 854 millj. kr., samanborið við 2.140 millj. kr. á fyrra ári. Fjárfestingar tímabilsins eru heldur lægri en á fyrra ári þegar fjárfesting í fasteignum, m.a. byggingu á nýju kæli- og frystivöruhúsi Aðfanga, nam 1.341 millj. kr. Vöruhúsið var tekið í notkun fyrir síðustu jól. Fjárfesting í áhöldum og innréttingum á tímabilinu nam 854 millj. kr. sem var að stærstum hluta vegna endurnýjunar Bónus og Hagkaupsverslana.
  • Fjármögnunarhreýfingar tímabilsins voru 3.140 millj. kr., samanborið við 2.806 millj. kr. á fyrra ári. Í júní var greiddur arður til hluthafa, vegna síðastliðins rekstrarárs, að fjárhæð 1.466 millj. kr. en á fyrra ári var enginn arður greiddur.

Staðan og framtíðarhorfur

Hagar og dótturfélög þess hafa undanfarin misseri fundið fyrir áhrifum COVID-19 heimsfaraldursins og hefur starfsemin litast af aðgerðum til að takmarka afleiðingar faraldursins og tryggja öryggi starfsfólks, viðskiptavina og annarra samstarfsaðila samstæðunnar. Áhrif faraldursins hafa frekar verið jákvæð á dagvöruhluta samstæðunnar þar sem velta og afkoma hafa heldur styrkst. Áhrif á eldsneytishluta samstæðunnar hafa hins vegar verið frekar neikvæð rekstrarlega, þá sér í lagi á fyrsta ársfjörðungi síðasta rekstrarárs, en velta og afkoma er nú farin að nálgast eðlilegra árferði.

Í ljósi aðstæðna þá gekk rekstur á fyrsta ársfjörðungi 2021/22 vel. Samanburður við fyrsta ársfjörðung síðasta rekstrarárs var hagstæður þar sem sá ársfjörðungur varð fyrir höggi þegar gengisfall íslensku krónunnar og lækkun á heimsmarkaðsverði á olíu höfðu mikil áhrif á afkomu Olís og Haga. Rekstrarniðurstaða annars ársfjörðungs 2021/22 var umfram áætlanir og nokkuð betri en á síðasta ári sem m.a. má rekja til sölu eigna tengt rekstri Útilífs. Heldur hefur dregið úr neikvæðum áhrifum COVID-19 faraldursins á rekstur samstæðunnar, en eftirspurn eftir eldsneyti hefur aukist með meiri umsvifum í samfélaginu og fjölgun ferðamanna.

Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið gerir ráð fyrir að EBITDA afkoma samstæðunnar verði 9.300-9.800 millj. kr. Fjárhagsleg staða samstæðu Haga er sterk og er félagið vel í stakk búið að takast á við ögrandi aðstæður í íslensku efnahagslífi. Fjármögnun samstæðunnar er að mestu tryggð til langs tíma og er aðgangur tryggður að skammtímafjármögnun í formi lánalína að fjárhæð 4,5 ma.kr. og USD 12,5 millj.

Pann 25. júní 2021 skrifuðu Hagar og Olís undir samkomulag við Reykjavíkurborg vegna fækkunar eldsneytisstöðva innan borgarmarkanna, sem og framtíðaruppbyggingar Haga á lóðum í Mjóddinni. Nánar tiltekið er um að ræða rammasamkomulag vegna fyrirhugaðra breytinga á aðstöðu eldsneytisstöðva Olís og ÓB og samkomulag vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á lóðunum að Álfabakka 7, Álfheimum 49, Egilsgötu 5 og Stekkjarbakka 4-6. Samningarnir hafa í fór með sér fækkun á eldsneytisdælum og þjónustustöðvum hjá Olís

5


Fréttatilkynning

  1. október 2021

hagar

og ÓB á næstu fimm árum en samkomulagið inniheldur einnig ýmis atriði varðandi framtíðaruppbyggingu Haga, m.a. nýir lóðaleigusamningar og leyfi fyrir matvöruverslun í Stekkjarbakka.

Í lok september sl. undirrituðu Hagar hf., Reginn hf., Klasi ehf. og KLS eignarhaldsfélag ehf. viljayfirlýsingu um uppbyggingu og rekstur öflugs fasteignapróunarfélags. Viljayfirlýsingin var gerð í tengslum við fyrirhuguð kaup Haga og Regins á nýju hlutafé í fasteignapróunarfélaginu Klasa. Samkvæmt viljayfirlýsingunni er áætlað að eignarhlutur hvers eiganda um sig, þ.e. Haga, Regins og KLS eignarhaldsfélags, núverandi eiganda Klasa, verði um 1/3 af útgefnu hlutafé.

Hagar og Reginn munu greiða fyrir eignarhlut sinn með þróunareignum. Á meðal eigna Haga sem um ræðir má nefna þróunarreit í Mjódd, þ.e. Álfabakka 7 og Stekkjarbakka 4-6, og á atvinnusvæði Sundahafnar, þ.e. Klettagarða 27. Samhliða fyrirhugaðri fjárfestingu Haga og Regins í fasteignapróunarfélaginu Klasa mun Klasa verða skipt upp þannig að eldri verkefni Klasa, sem ekki teljast til þróunarverkefna, færast í annað félag sem stendur utan fyrirhugaðra viðskipta. Áætluð verðmæti undirliggjandi fjárfestingareigna Klasa eftir fyrirhuguð viðskipti verða um 15 ma.kr. og gert er ráð fyrir að eiginfjárhlutfallið í upphafi verði um 70%. Fyrirhuguð viðskipti eru gerð m.a. með fyrirvörum um niðurstöður áreiðanleikakönnunar og um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Hlutafé og hluthafar

  • Markaðsvirði Haga í lok tímabilsins nam 75,1 ma. kr. og lokaverð þann 31. ágúst 2021 var 65,1 kr./hlut.
  • Skráð hlutafé Haga í lok tímabilsins nam 1.154 millj. kr. Félagið átti enga eigin hluti í lok tímabils.
  • Þann 3. júní 2021 samþykkti aðalfundur að lækka hlutafé félagsins til ógildingar á eigin hlutum að nafnverði 26,4 millj. kr. Lækkunin kom til framkvæmda þann 5. júli 2021 og lækkaði hlutfé Haga því úr 1.181 millj. kr. að nafnverði í 1.154 millj. kr. að nafnverði.
  • Aðalfundur samþykkti einnig að greiddur yrði arður til hluthafa vegna síðastliðins árs sem nemur 1,27 krónum á hlut eða 1.466 millj. kr. Arðurinn var greiddur þann 16. júní sl.
  • Stjórn Haga hefur á grundvelli samþykktar aðalfundar frá 3. júní 2021 ákveðið að setja í gang endurkaupaáætlun að fjárhæð 500 millj. kr., í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Nánar verður tilkynnt um útfærslu endurkaupanna á næstu dögum.
  • Hluthafar voru 784 í byrjun rekstrarárs og 852 í lok ágúst. 10 stærstu hluthafar félagsins eiga tæplega 72% eignarhlut í félaginu.

Kynningarfundur miðvikudaginn 20. október 2021

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn á Nauthól, Nauthólvsegi 106 í Reykjavík, miðvikudaginn 20. október kl. 08:30. Þar mun Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, kynna rekstur og afkomu félagsins, ásamt því að svara fyrirspurnum.

Fundinum verður einnig varpað í gegnum netið á vefslóðinni: https://vimeo.com/event/1366935/embed/250950380e

Kynningargögn verða aðgengileg við upphaf fundar á heimasíðu Haga, www.hagar.is.


Fréttatilkynning

  1. október 2021

hagar

Fjárhagsdagatal 2021/22

Breyting hefur verið gerð á dagsetningu birtingar ársuppgjørs en uppgjørið verður birt þann 28. apríl 2022 en í tilkynningu um fjárhagsdagatal ársins 2021/22 var áætlað að birting ársuppgjørs færi fram þann 10. maí 2022. Þá hefur dagsetningu aðalfundar 2022 einnig verður breytt og verður hann haldinn þann 1. júní 2022 en var áður áætlaður þann 2. júní 2022. Fjárhagsupplysingar eru birtar eftir lokun markaða.

Uppgjörstímabil Vikudagur Birtingardagur
3F – 1. september til 30. nóvember Miðvikudagur 12. janúar 2022
4F – 1. desember til 28. febrúar Fimmtudagur 28. apríl 2022
Aðalfundur 2022 Miðvikudagur 1. júní 2022

Fréttatilkynning þessi og uppgjörsgögn verða aðgengileg á ensku þann 21. október á https://www.hagar.is/en/

Press release and financial statements will be available in English on October 21st at https://www.hagar.is/en/

Nánari upplýsingar veita Finnur Oddsson, forstjóri félagsins ([email protected]) og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs ([email protected]), í síma 530-5500 eða tölvupósti.