Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Interim / Quarterly Report 2021

Oct 19, 2021

2196_rns_2021-10-19_26276e47-ce19-428c-922d-4c72f49e6cde.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Hagar hf.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar
1. mars til 31. ágúst 2021

Hagar hf.
Hagasmára 1
201 Kópavogur
Kt. 670203-2120


Efnisyfirlit

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra 3
Könnunaráritun óháðs endurskoðanda 5
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu 6
Efnahagsreikningur 7
Eiginfjáryfirlit 8
Sjóðstreymisyfirlit 9
Skýringar 10

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2021


Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Hagar hf. („félagið“) er verslunarfyrirtæki með starfsemi á Íslandi en félagið er leiðandi á íslenskum matvöru-, sérvöru- og eldsneytismarkaði. Í lok tímabilsins starfrækti félagið 38 matvöruverslanir, 26 Olís þjónustustöðvar, 43 ÓB-stöðvar, eina birgðaverslun, eina sérvöruverslun, tvö vöruhús og tvær framleiðslustöðvar. Kjarnastarfsemi Haga er á sviði matvöru og tengdra vöruhúsa, auk eldsneytissölu.

Árshlutareikningur Haga hf. fyrir tímabilið 1. mars til 31. ágúst 2021 er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34. Árshlutareikningurinn samanstendur af samandregnum samstæðureikningi Haga hf. og dótturfélaga þess, sem vísað er til sem samstæðunnar.

Rekstur tímabilsins og fjárhagsleg staða

Samkvæmt rekstrarreikningi og yfirliti um heildarafkomu var hagnaður af rekstri samstæðunnar að fjárhæð 2.436 millj. kr. Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar 64.350 millj. kr. Eigið fé í lok tímabilsins nam 26.161 millj. kr. og var eiginfjárhlutfall 40,7%.

Afkomuspá stjórnenda gerir ráð fyrir að EBITDA afkoma samstæðu Haga fyrir rekstrarárið 2021/22 verði á bilinu 9.300-9.800 millj. kr. Fjárhagsleg staða samstæðu Haga hf. er sterk og er félagið vel í stakk búið að takast á við ögrandi aðstæður í íslensku efnahagslífi. Fjármögnun samstæðunnar er að mestu tryggð til langs tíma og er aðgangur tryggður að skammtímafjármögnun í formi lánalína að fjárhæð 4,5 ma.kr. og USD 12,5 millj.

Í samræmi við samþykkt aðalfundar þann 3. júní 2021 var tilkynnt þann 6. júli 2021 að gengið hefði verið frá samningum um kauprétti sem ná til tiltekinna lykilstarfsmanna félagsins. Alls voru veittir 11.806.246 hlutir eða um 1,0% hlutafjár í félaginu, þar af 6.800.398 til framkvæmdastjórnar. Áfallinn og gjaldfærður kostnaður vegna kaupréttarsamninganna á tímabilinu er 12,1 millj. kr. Nánari upplýsingar má finna í skýringu 20.

Áhrif COVID-19 faraldursins á afkomu og stöðu samstæðunnar

Hagar og dótturfélög þess hafa undanfarin misseri fundið fyrir áhrifum COVID-19 heimsfaraldursins og hefur starfsemin lítast af aðgerðum til að takmarka afleiðingar faraldursins og tryggja öryggi starfsfólks, viðskiptavina og annarra samstarfsaðila samstæðunnar. Áhrif faraldursins hafa verið jákvæð á dagvöruhluta samstæðunnar þar sem velta og afkoma hafa heldur aukist. Áhrif á eldsneytishluta samstæðunnar hafa hins vegar verið frekar neikvæð rekstrarlega, þá sér í lagi á fyrsta ársfjörðungi síðasta rekstrarárs, en velta og afkoma er nú farin að nálgast eðlilegra árferði. Nánari upplýsingar má finna í skýringu 16.

Sala á Reykjavíkur Apóteki ehf. og rekstri Útilífs

Í mars og apríl 2021 var skrifað undir samninga um sölu á 90% eignarhlut félagsins í Reykjavíkur Apóteki ehf., sem og sölu á eignum tengdum rekstri Reykjavíkur Apóteks í Skeifunni 11. Afhending á eignum tengdum rekstri í Skeifunni 11 fór fram þann 21. maí sl. og afhending á eignarhlut Haga hf. í Reykjavíkur Apóteki ehf. fór fram þann 18. júní sl. en viðmiðunardagur uppgjörs viðskiptanna var 31. maí 2021. Afkomuáhrif vegna sölunnar komu fram í rekstrarreikningi fyrsta ársfjörðungs.

Þann 31. mars 2021 var skrifað undir samning um sölu á rekstri og eignum tengdum smásöluversluninni Útilíf. Afhending fór fram þann 31. ágúst sl. og komu afkomuáhrif vegna sölunnar fram á öðrum ársfjörðungi. Nánari upplýsingar um breytingar á samstæðunni má finna í skýringu 17.

Samningar Haga og Olís við Reykjavíkurborg

Þann 25. júní 2021 skrifuðu Hagar og Olís undir samkomulag við Reykjavíkurborg vegna fækkunar eldsneytisstöðva innan borgarmarkanna, sem og framtiðaruppbyggingar Haga á lóðum í Mjóddinni. Nánari upplýsingar má finna í skýringu 18.

Hagar undirrita viljayfirlýsingu um uppbyggingu fasteignapróunarfélags

Í lok september sl. undirrituðu Hagar hf., Reginn hf., Klasi ehf. og KLS eignarhaldsfélag ehf. viljayfirlýsingu um uppbyggingu og rekstur öflugs fasteignapróunarfélags. Viljayfirlýsingin var gerð í tengslum við fyrirhuguð kaup Haga og Regins á nýju hlutafé í fasteignapróunarfélaginu Klasa. Nánari upplýsingar má finna í skýringu 19.

Samandregnin árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2021


Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra, frh.:

Hlutafé og hluthafar

Skráð hlutafé félagsins nam í lok tímabilsins 1.154 millj. kr. Hver hlutur er ein króna að nafnverði. Allir hlutir eru í sama flokki og njóta sömu réttinda. Félagið á enga eigin hluti í lok tímabils.

Hluthafar voru 784 í byrjun rekstrarársins og 852 í lok ágúst.

Pann 3. júní 2021 sambykkti aðalfundur félagsins að greiddur yrði arður til hluthafa vegna síðastliðins árs sem nemur 1,27 krónum á hlut eða 1.466 millj. kr. Arðurinn var greiddur pann 16. júní sl. Aðalfundur sambykkti einnig að lækka hlutafé félagsins til ógildingar á eigin hlutum að nafnverði 26,4 millj. kr. Lækkunin kom til framkvæmda pann 5. júli 2021 og lækkaði hlutafé Haga því úr 1.181 millj. kr. að nafnverði í 1.154 millj. kr. að nafnverði.

Yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra gefur samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar glögga mynd af rekstrarafkomu samstæðunnar fyrir tímabilið 1. mars til 31. ágúst 2021, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu hennar pann 31. ágúst 2021 og breytingum á handbæru fé á tímabilinu, í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IAS 34, eins og hann hefur verið staðfestur af Evrópusambandinu.

Jafnframt er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn og skýrsla stjórnar og forstjóra geymi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri samstæðunnar, stöðu hennar, og lýsi helstu áhættupáttum og óvissu sem samstæðan býr við.

Stjórn og forstjóri Haga hf. hafa í dag farið yfir árshlutareikning samstæðunnar fyrir tímabilið 1. mars til 31. ágúst 2021 og staðfesta hann með undirritun sinni.

Kópavogi, 19. október 2021

Stjórn:

Davíð Harðarson, formaður

Eiríkur S. Jóhannsson, varaformaður

Eva Bryndís Helgadóttir, meðstjórnandi

Jensína Kristín Böðvarsdóttir, meðstjórnandi

Katrín Olga Jóhannesdóttir, meðstjórnandi

Forstjóri:

Finnur Oddsson

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2021


Kőnnunaráritun óháðs endurskoðanda

Til stjórnar og hluthafa Haga hf.

Inngangur

Við höfum kannað meðfylgjandi samandreginn árshlutareikning samstæðu Haga hf. fyrir tímabilið 1. mars til 31. ágúst 2021. Samandregni árshlutareikningurinn hefur að geyma skýrslu og yfirlýsingu stjórnar og forstjóra, rekstrarreikning og yfirlit um heildarafkomu, efnahagsreikning, eiginfjáryfirlit, sjóðstreymisyflit, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar. Stjórnendur eru ábyrgir fyrir gerð og framsetningu samandregna árshlutareikningsins í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 34, eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu. Ábyrgð okkar felst í þeirri ályktun sem af kőnnun okkar leiðir.

Umfang kőnnunar

Kőnnun okkar var unnin í samræmi við alþjóðlegan staðal ISRE 2410, sem fjallar um kőnnun óháðs endurskoðanda á árshlutareikningum. Slík kőnnun felur í sér fyrirspurnir, einkum til starfsmanna sem eru ábyrgir fyrir fjármálum og reikningsskilum félagsins ásamt greiningum á hinum ýmsu liðum reikningsskilanna og öðrum kőnnunaraðgerðum. Kőnnun felur ekki í sér jafn viðtækar aðgerðir og endurskoðun sem unnin er í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla og er því ekki víst að við fáum vitneskju um öll mikilvæg atriði sem gætu komið í ljós við endurskoðun. Þar af leiðandi látum við ekki í ljós álit um endurskoðun.

Ályktun

Við kőnnun okkar kom ekkert fram sem bendir til annars en að meðfylgjandi samandreginn árshlutareikningur sé í öllum meginatriðum gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 34, eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu.

Reykjavík, 19. október 2021

PricewaterhouseCoopers ehf.

Bryndís Björk Guðjónsdóttir

Vignir Rafn Gíslason

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2021


Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu

  1. mars til 31. ágúst 2021
Skýr. Annar ársfjórðungur Fyrri árshelmingur
2021 2020 2021 2020
1.6.-31.8. * 1.6.-31.8. * 1.3.-31.8. 1.3.-31.8.
Vörusala 34.885 30.924 66.919 59.165
Kostnaðarverð seldra vara (27.501) (23.657) (52.686) (46.069)
Framlegð 7.384 7.267 14.233 13.096
Aðrar rekstrartekjur 125 85 229 183
Hagnaður af sölu félaga 17 269 0 349 0
Laun og launatengd gjöld (3.182) (3.064) (6.432) (6.340)
Annar rekstrarkostnaður (1.333) (1.269) (2.838) (2.623)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir 3.263 3.019 5.541 4.316
Afskriftir 7 (897) (1.068) (1.902) (2.092)
Rekstrarhagnaður 2.366 1.951 3.639 2.224
Fjármunatekjur 7 16 14 33
Fjármagnsgjöld (348) (435) (745) (883)
Hrein fjármagnsgjöld 8 (341) (419) (731) (850)
Áhrif hlutdeildarfélaga 90 95 121 125
Hagnaður fyrir tekjuskatt 2.115 1.627 3.029 1.499
Tekjuskattur (406) (306) (593) (274)
Heildarhagnaður tímabilsins 1.709 1.321 2.436 1.225
Skipting hagnaðar:
Hluthafar móðurfélags 1.709 1.322 2.426 1.228
Hlutdeild minnihluta 0 (1) 10 (3)
1.709 1.321 2.436 1.225
Hagnaður á hlut:
Grunnhagnaður á hlut 1,48 1,12 2,11 1,04
Þynntur hagnaður á hlut 1,47 1,12 2,10 1,04
Starfsþáttayfirlit, skýring 22

Skýringar á blaðsíðum 10 til 16 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárs hlutareikningnum.

  • Ekki kannað

Samandreginn árs hlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2021

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Efnahagsreikningur 31. ágúst 2021

Skýr. 31.8.2021 28.2.2021
Eignir
Rekstrarfjármunir 23.030 23.444
Fjárfestingarfasteignir 4.410 4.326
Öefnislegar eignir 10.618 10.547
Leigueignir 15 8.684 8.255
Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum 1.354 1.202
Eignarhlutir í öðrum félögum 41 41
Skuldabréfaeign 18 1
Fastafjármunir samtals 48.155 47.816
Vörubirgðir 9 9.817 8.791
Viðskiptakrófur og aðrar skammtímakrófur 10 4.901 3.219
Viðskiptakrófur - greiðslukortakrófur 10 526 1.434
Handbært fé 951 388
Veltufjármunir samtals 16.195 13.832
Eignir samtals 64.350 61.648
Eigið fé
Hlutafé 1.154 1.154
Yfirverðsreikningur hlutafjár 2.132 2.132
Lögbundinn varasjóður 289 289
Bundnir eiginfjárreikningar 3.320 4.433
Óráðstafað eigið fé 19.266 17.181
Samtals 26.161 25.189
Hlutdeild minnihluta 0 (2)
Eigið fé samtals 26.161 25.187
Skuldir
Vaxtaberandi langtímaskuldir 11 9.286 9.368
Leiguskuldir 15 7.393 7.010
Tekjuskattsskuldbinding 2.687 2.214
Langtímaskuldir samtals 19.366 18.592
Vaxtaberandi skammtímaskuldir 11 2.950 2.957
Skuldir við lánastofinanir 11 0 601
Tekjuskattur til greiðslu 730 471
Leiguskuldir 15 1.963 2.019
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 12 13.180 11.821
Skammtímaskuldir samtals 18.823 17.869
Skuldir samtals 38.189 36.461
Eigið fé og skuldir samtals 64.350 61.648

Aðrar upplýsingar, skýringar 13-14,16,18-19,21

Skýringar á blaðsiðum 10 til 16 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárshlutareikningnum.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2021

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Eiginfjáryfirlit

1. mars til 31. ágúst 2021

Skýr. Hlutafé Yfirverðs-reikningur hlutafjár Lög-bundinn varasjóður Bundinn hlutdeildar-reikningur Bundinn eiginfjár-reikningur Óráðstafað eigið fé Samtals Hlutdeild minnih luta Eigið fé samtals
Breytingar á eigin fé 1. mars til 31. ágúst 2021
Eigið fé 1. mars 2021 1.154 2.132 289 4.433 0 17.181 25.189 ( 2 ) 25.187
Heildarhagnaður tímabilsins 2.426 2.426 10 2.436
Flutt af bundnum hlutdeildarreikningi ( 1.125 ) 1.125 0 0
Áfallinn kostnaður vegna kaupréttarsamninga 20 12 12 12
Hlutdeild minnih luta við sölu á dótturfélagi 0 ( 8 ) ( 8 )
Greiddur arður, 1,27 kr. á hlut ( 1.466 ) ( 1.466 ) ( 1.466 )
Eigið fé 31. ágúst 2021 1.154 2.132 289 3.308 12 19.266 26.161 0 26.161
Breytingar á eigin fé 1. mars til 31. ágúst 2020
Eigið fé 1. mars 2020 1.189 4.017 297 5.947 0 13.136 24.586 1 24.587
Endurkaup á eigin bréfum ( 8 ) ( 412 ) ( 420 ) ( 420 )
Heildarhagnaður tímabilsins 1.228 1.228 ( 3 ) 1.225
Breyting á varasjóð ( 2 ) 2 0 0
Flutt af bundnum hlutdeildarreikningi ( 2.988 ) 2.988 0 0
Eigið fé 31. ágúst 2020 1.181 3.605 295 2.959 0 17.354 25.394 ( 2 ) 25.392

Pann 3. júní 2021 sambýkkti aðalfundur félagsins að greiddur yrði arður til hluthafa sem nemur 1,27 krónum á hlut. Arðurinn var greiddur pann 16. júní sl. Aðalfundur sambýkkti einnig að lækka hlutafé félagsins til ógildingar á eigin hlutum að nafnverði 26,4 millj. kr. og er skráð hlutafé eftir lækkun því 1.154 millj. kr.

Skýringar á blaðsíðum 10 til 16 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðúárshlutareikningnum.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2021

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Sjóðstreymisyfirlit

1. mars til 31. ágúst 2021

Skýr. Annar ársfjörðungur Fyrri árshelmingur
2021
1.6.-31.8. 2020
1.6.-31.8. 2021
1.3.-31.8. 2020
1.3.-31.8.
Rekstrarhreyfingar
Hagnaður tímabilsins 1.709 1.321 2.436 1.225
Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi:
Sólutap (-hagnaður) rektarfjármuna 5 ( 2) ( 131) ( 1)
Afskriftir 7 897 1.068 1.902 2.092
Hrein fjármagnsgjöld 8 341 419 731 850
Áhrif hlutdeildarfélaga ( 90) ( 95) ( 121) ( 125)
Tekjuskattur 406 306 593 274
Aðrir liðir 12 0 12 0
Veltufé frá rekstri 3.280 3.017 5.422 4.315
Breytingar á rektartengdum eignum ( 1.322) ( 367) ( 1.974) ( 501)
Breytingar á rektartengdum skuldum 558 ( 1.324) 2.028 747
Handbært fé frá rekstri fyrir vexti og tekuskatt 2.516 1.326 5.476 4.561
Innheimtar vaxtatekjur 7 16 14 17
Greidd vaxtagjöld ( 323) ( 315) ( 600) ( 617)
Greiddur tekjuskattur ( 150) ( 85) ( 333) ( 358)
Handbært fé frá rekstri 2.050 942 4.557 3.603
Fjárfestingarhreyfingar
Fjárfesting í fasteignum ( 9) ( 1.054) ( 58) ( 1.341)
Fjárfesting í fjárfestingarfasteignum ( 41) 2 ( 74) ( 11)
Fjárfesting í áhöldum og innréttingum ( 365) ( 258) ( 854) ( 855)
Fjárfesting í óefnislegum eignum ( 29) ( 4) ( 44) ( 10)
Sóluverð áhalda og innréttinga 60 11 84 39
Skuldabréfaeign, breyting 0 21 ( 17) 38
Seldur eignarhlutur í dótturfélagi 0 0 141 0
Fjárfesting í hlutdeildarfélögum ( 156) 0 ( 156) 0
Móttekinn arður 124 0 124 0
Fjárfestingarhreyfingar ( 416) ( 1.282) ( 854) ( 2.140)
Fjármögnunarhreyfingar
Afborganir langtímalána ( 124) ( 111) ( 238) ( 227)
Breyting á lánalínu 0 ( 1.688) ( 601) ( 1.273)
Greiddur arður ( 1.466) 0 ( 1.466) 0
Keypt eigin bréf 0 0 0 ( 420)
Leiguskuld afborganir 15 ( 424) ( 447) ( 835) ( 886)
Fjármögnunarhreyfingar ( 2.014) ( 2.246) ( 3.140) ( 2.806)
(Lækkun) hækkun á handbæru fé ( 380) ( 2.586) 563 ( 1.343)
Handbært fé í upphafi tímabils 1.331 3.475 388 2.232
Handbært fé í lok tímabils 951 889 951 889

Skýringar á blaðsíðum 10 til 16 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárs hlutareikningnum.

  • Ekki kannað

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2021

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

1. Félagið

Hagar hf. („félagið“) er íslensk hlutafélag og er lögheimili þess að Hagasmára 1, Kópavogi. Samstæðuárshlutareikningur félagsins fyrir tímabilið 1. mars 2021 til 31. ágúst 2021 hefur að geyma samstæðu árshlutareikning félagsins og dótturfélaga þess, sem vísað er til í heild sinni sem „samstæðunnar“ og til einstakra félaga sem „samstæðufélaga“. Aðalstarfsemi félagsins er rekstur smásöluverslana og sala á eldsneyti. Yfirlit yfir félög í samstæðunni má finna í skýringu 13.

2. Grundvöllur reikningsskilanna

Yfirlýsing um að alþjóðlegum reikningsskilastöðlum sé fylgt

Samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastæðal um árshlutareikninga IAS 34 eins og hann hefur verið staðfestur af Evrópusambandinu. Samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning samstæðunnar fyrir rekstrarárið sem endaði þann 28. febrúar 2021.

Stjórn félagsins staðfesti árshlutareikninginn þann 19. október 2021.

3. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir

Við gerð árshlutareikningsins er beitt sömu reikningsskilaaðferðum og beitt var við gerð ársreiknings samstæðunnar fyrir árið sem lauk í febrúar 2021. Hægt er að nálgast ársreikninginn á vef félagsins, www.hagar.is.

Árshlutareikningurinn er gerður í íslenskum krónum, sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins, og eru fjárhæðir birtar í milljónum króna.

4. Mat og ákvarðanir

Gerð samstæðuárshlutareiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastæða krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaaðferða og birtar fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að vera frábrugðnar þessu mati.

5. Starfsþáttayfirlit

Starfsþættir samstæðunnar eru tveir, verslanir og vöruhús annars vegar og Olís hins vegar. Starfsemi verslana og vöruhúsa er nær eingöngu í smásölurekstri matvöru á Íslandi. Stjórnendur hafa hingað til metið smásöluverslun eftir mismunandi tegundum verslana og landsvæðum og líta svo á að hún byggist á sambærilegum efnahagslegum einkennum, vörum, viðskiptavinum og birgjum. Heildsölurekstur matvöru og smásölurekstur sérvöru er óverulegur og undir þeim tekju-, hagnaðar- og eignamörkum sem hafa ber til viðmiðunar við gerð starfsþáttayfirlits. Starfsemi Olís er að stærstum hluta í sölu eldsneytis og þjónustu sem því tengist.

Starfsþáttayfirlitið má finna í skýringu 22.

6. Viðskiptavild

Engar vísbendingar voru um virðisrýrnun viðskiptavildar þann 31. ágúst 2021 og vegna þess var virðisrýrnunarpróf ekki framkvæmt.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2021
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

  1. Afskriftir
Afskriftir greinast pannig: 2021 2020
1.3.-31.8. 1.3-31.8.
Afskriftir rekstrarfjármuna 1.055 1.139
Afskriftir fjärfestingarfasteigna 47 47
Afskriftir leigueigna 733 896
Afskriftir öefnislegra eigna 67 10
Afskriftir samtals 1.902 2.092
  1. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld greinast pannig: 2021 2020
1.3-31.8. 1.3-31.8.
Vaxtatekjur af innstæðum og kröfum 14 33
Fjármunatekjur samtals 14 33
Vaxtagjöld og verðbætur ( 494) ( 536)
Vaxtagjöld leiguskuldar ( 234) ( 263)
Gengistap ( 17) ( 84)
Fjármagnsgjöld samtals ( 745) ( 883)
Hrein fjármagnsgjöld ( 731) ( 850)
  1. Vörubirgðir
Vörubirgðir greinast pannig: 31.8.2021 28.2.2021
Matvara 4.733 4.255
Sérvara 2.005 2.068
Eldsneyti 2.717 2.003
Vörur í flutningi 362 465
Vörubirgðir samtals 9.817 8.791
Niðurfærsla birgða í lok tímabils 285 184
  1. Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur greinast pannig: 31.8.2021 28.2.2021
Viðskiptakröfur 4.698 2.993
Niðurfærsla viðskiptakrafna ( 236) ( 188)
Aðrar skammtímakröfur 485 433
Niðurfærsla annarra skammtímakrafna ( 53) ( 53)
Afleiðusamningar 7 34
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 4.901 3.219
Greiðslukortakröfur 526 1.434
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur samtals 5.427 4.653

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2021

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

  1. Vaxtaberandi skuldir
Vaxtaberandi skuldir greinast pannig: Vegið meðaltal vaxta Eftirstöövar Eftirstöövar
31.8.2021 28.2.2021 31.8.2021 28.2.2021
Skuldir í ISK, överðtryggðar 3,18% 2,87% 6.689 6.831
Skuldir í ISK, verðtryggðar 2,80% 2,80% 5.547 5.494
Lánalína 0,00% 1,84% 0 601
Vaxtaberandi skuldir, þ.m.t. næsta árs afborgun ... 12.236 12.926
Næsta árs afborganir vaxtaberandi skulda ( 2.950 ) ( 3.558 )
Langtímaskuldir samtals 9.286 9.368
Afborganir langtímalána greinast pannig á næstu ár:
Afborganir innan árs 2.950 3.558
Afborganir eftir 1 til 2 ár 463 461
Afborganir eftir 2 til 3 ár 461 464
Afborganir eftir 3 til 4 ár 455 454
Afborganir eftir 4 til 5 ár 458 454
Afborganir síðar 7.449 7.535
Samtals 12.236 12.926

Gangvirði fjáreigna og fjárskulda er jafnt bókfærðu virði þeirra.

Överðtryggður skuldabréfællokkur, HAGA181021, að upphæð 2.500 millj. kr. hefur verið endurfjármagnaður með útgáfu á nýjum överðtryggðum skuldabréfællokki til 3ja ára, HAGA181024. Útgáfudagur skuldabréfa í hinum nýja flokki var 18. október 2021, sama dag og HAGA181021 var á gjaldaga. Samstæðan hefur auk þess aðgang að skammtímafiármöanun í formi lánalína að fjárhæð 4.5 ma.kr. og USD 12.5 milli.

  1. Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir

31.8.2021 28.2.2021

Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir greinast pannig:

Viðskiptaskuldir 10.731 8.825

Aðrar skammtímaskuldir 2.442 2.996

Afleiðusamningar 7 0

Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir samtals 13.180 11.821

  1. Félög í samstæðu

Dótturfélög í samstæðu Haga hf. voru sex í lok tímabilsins. Dótturfélögin eru eftirfarandi:

Staðsetning Eignarhlutur
31.8.2021 28.2.2021
Hagar verslanir ehf. Ísland 100% 100%
Olíuverzlun Íslands ehf. (Olís) Ísland 100% 100%
Bananar ehf. Ísland 100% 100%
Noron ehf. Ísland 100% 100%
FKV ehf. (áður Ferskar kjötvörur ehf.) Ísland 100% 100%
Mjöll Frigg ehf. Ísland 100% 100%
Reykjavíkur Apótek ehf. Ísland 0% 90%

Mjöll Frigg ehf. er dótturfélag Olís. Engin starfsemi er í FKV ehf. Eignarhlutur Haga hf. í Reykjavíkur Apóteki ehf. hefur verið seldur en viðmiðunardagur viðskiptanna var 31. maí 2021 og fór afhending fram þann 18. júni sl.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2021

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

14. Kennitölur

Helstu kennitölur samstæðunnar eru eftirfarandi:

2021 2020
Rekstur: 1.3.-31.8. 1.3-31.8.
Hagnaðarhlutfall (rekstrarhagnaður fyrir afskriftir / vörusölu) 8,3% 7,3%
Launahlutfall (laun og launatengd gjöld / vörusölu) 9,6% 10,7%
Kostnaðarhlutfall (annar rekstrarkostnaður / vörusölu) 4,2% 4,4%
Veltuhraði birgða (kostnaðarverð seldra vara / meðalbirgðastaða) 11,0 11,1
Innheimtutími viðskiptakrafna í dögum 11,4 11,1
Efnahagur: 31.8.2021 28.2.2021
Veltufjárhlutfall (veltufjármunir / skammtímaskuldir) 0,86 0,77
Lausafjárhlutfall ((veltufjármunir-birgðir) / skammtímaskuldir) 0,34 0,28
Skuldsetning (nettó vaxtaberandi skuldir / rekstrarhagnaður fyrir afskriftir) 2,06 2,43
Eiginfjárhlutfall (eigið fé / heildareignir) 40,7% 40,9%
Innra virði hlutafjár (eigið fé / hlutafé) 22,67 21,83

15. Leigueignir og leiguskuldir

Leigueignir og leiguskuldir samstæðunnar sem leigutaka eru eingöngu vegna húsnæðis. Leigueignir og leiguskuldir vegna lóðaleigusamninga eru ekki færðar. Við útreikning fjárhæða leigueigna og leiguskulda var lagt mat á leigutíma og vexti á nýju lánsfé enda var ekki unnt að ákvarða innbyggða vexti í leigusamningum með áreiðanlegum hætti. Vegnir meðalvextir voru ákvarðaðir 5,45%. Við mat á leigutíma er horft til samningstíma, að teknu tilliti til áforma stjórnenda.

Leigueignir greinast þannig frá upphafi til loka tímabilsins: 31.8.2021 28.2.2021
Leigueignir í upphafi tímabils 8.255 9.435
Nýir samningar á tímabilinu 0 55
Verðbætur á tímabilinu 211 347
Afskriftir tímabilsins (733) (1.761)
Aðrar breytingar samninga á tímabilinu 951 220
Kaupleigusamningar, breytingar á tímabilinu 0 (41)
Leigueignir í lok tímabils 8.684 8.255
Leiguskuldir greinast þannig frá upphafi til loka tímabilsins: 31.8.2021 28.2.2021
Leiguskuldir í upphafi tímabils 9.029 10.167
Nýir samningar á tímabilinu 0 55
Afborgunarþáttur leigugreiðslna (835) (1.753)
Verðbætur á tímabilinu 211 347
Aðrar breytingar samninga á tímabilinu 951 220
Kaupleigusamningar 0 (7)
Leiguskuldir í lok tímabils 9.356 9.029
Afborganir leiguskulda greinast þannig á næstu ár: 31.8.2021 28.2.2021
Afborganir innan árs 1.963 2.019
Afborganir síðar 7.393 7.010
Samtals 9.356 9.029

Heildarleigugreiðslur sem tengjast þeim leigusamningum sem færðir eru samkvæmt leigustaðli IFRS 16 námu 1.070 millj. kr. (2020/21: 1.147 millj. kr.).

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2021

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

16. Áhrif COVID-19 heimsfaraldursins

Hagar og dótturfélög þess hafa undanfarin misseri fundið fyrir áhrifum COVID-19 heimsfaraldursins og hefur starfsemin litast af aðgerðum til að takmarka afleiðingar faraldursins og tryggja öryggi starfsfólks, viðskiptavina og annarra samstarfsaðila samstæðunnar. Áhrif faraldursins hafa verið jákvæð á dagvöruhluta samstæðunnar þar sem velta og afkoma hafa heldur aukist. Áhrif á eldsneytishluta samstæðunnar hafa hins vegar verið frekar neikvæð rekstrarlega, þá sér í lagi á fyrsta ársfjörðungi síðasta rekstrarárs, en velta og afkoma er nú farin að nálgast eðlilegra árferði.

Í ljósi aðstæðna þá gekk rekstur á fyrsta ársfjörðungi 2021/22 vel. Samanburður við fyrsta ársfjörðung síðasta rekstrarárs var hagstæður þar sem sá ársfjörðungur varð fyrir höggi þegar gengisfall íslensku krónunnar og lækkun á heimsmarkaðsverði á olíu höfðu mikil áhrif á afkomu Olís og Haga. Rekstrarniðurstaða annars ársfjörðungs var umfram áætanir og nokkuð betri en á síðasta ári sem m.a. má rekja til sölu eigna tengt rekstri Útilífs. Áhrif COVID-19 faraldursins fara minnkandi á rekstur samstæðunnar nú þegar Íslendingar eru farnir að ferðast á ný og fleiri erlendir ferðamenn koma til landsins. Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið gerir ráð fyrir að EBITDA afkoma samstæðunnar verði 9.300-9.800 millj. kr.

Fjárhagsleg staða samstæðu Haga hf. er sterk og er félagið vel í stakk búið að takast á við ögrandi aðstæður í íslensku efnahagslífi. Fjármögnun samstæðunnar er að mestu tryggð til langs tíma og er aðgangur tryggður að skammtímafjármögnun í formi lánalína að fjárhæð 4,5 ma.kr. og USD 12,5 millj.

17. Breytingar á samstæðunni

Í mars og apríl 2021 var skrifað undir samninga um sölu á 90% eignarhlut félagsins í Reykjavíkur Apóteki ehf., sem og sölu á eignum tengdum rekstri Reykjavíkur Apóteks í Skeifunni 11. Afhending á eignum tengdum rekstri í Skeifunni 11 fór fram þann 21. maí sl. og afhending á eignarhlut Haga hf. í Reykjavíkur Apóteki ehf. fór fram þann 18. júní sl. en viðmiðunardagur uppgjörs viðskiptanna var 31. maí 2021. Afkomuáhrif vegna sölunnar komu fram í rekstrarreikningi fyrsta ársfjörðungs, samtals að fjárhæð 76 millj. kr.

Þann 31. mars 2021 var skrifað undir samning um sölu á rekstri og eignum tengdum smásöluversluninni Útilíf. Afhending fór fram þann 31. ágúst sl. og komu afkomuáhrif vegna sölunnar fram á öðrum ársfjörðungi, samtals að fjárhæð 273 millj. kr.

Í maí 2021 náðu Hagar hf. og eigendur Djús ehf. samkomulagi um kaup Haga hf. á 49% hlut í Djús ehf., sem á og rekur veitingastaði undir merkjum Lemon. Kaupin voru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins en fyrirvaranum var aflétt þann 2. júlí sl. Áhrif kaupanna koma því fram, í formi hlutdeildartekna, frá og með 2. júlí 2021.

18. Samningar Haga og Olís við Reykjavíkurborg

Þann 25. júní 2021 skrifuðu Hagar og Olís undir samkomulag við Reykjavíkurborg vegna fækkunar eldsneytisstöðva innan borgarmarkanna, sem og framtíðaruppbyggingar Haga á lóðum í Mjóddinni. Nánar tiltekíð er um að ræða rammasamkomulag vegna fyrirhugaðra breytinga á aðstöðu eldsneytisstöðva Olís og ÓB og samkomulag vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á lóðunum að Álfabakka 7, Álfheimum 49, Egilsgötu 5 og Stekkjarbakka 4-6. Samningarnir hafa í fór með sér fækkun á eldsneytisdælum og þjónustustöðvum hjá Olís og ÓB á næstu fimm árum en samkomulagið inniheldur einnig ýmis atriði varðandi framtíðar uppbyggingu Haga, m.a. nýir lóðaleigusamningar og leyfi fyrir matvöruverslun í Stekkjarbakka.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2021
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

19. Atburðir eftir lok reikningsskiladags

Í lok september sl. undirrituðu Hagar hf., Reginn hf., Klasi ehf. og KLS eignarhaldsfélag ehf. viljayfirlýsingu um uppbýggingu og rekstur öflugs fasteignapróunarfélags. Viljayfirlýsingin var gerð í tengslum við fyrirhuguð kaup Haga og Regins á nýju hlutafé í fasteignapróunarfélaginu Klasa. Samkvæmt viljayfirlýsingunni er áætlað að eignarhlutur hvers eiganda um sig, þ.e. Haga, Regins og KLS eignarhaldsfélags, núverandi eiganda Klasa, verði um 1/3 af útgefnu hlutafé.

Hagar og Reginn munu greiða fyrir eignarhlut sinn með þróunareignum. Á meðal eigna Haga sem um ræðir má nefna þróunarreit í Mjódd, þ.e. Álfabakka 7 og Stekkjarbakka 4-6, og á atvinnusvæði Sundahafnar, þ.e. Klettagarða 27. Samhliða fyrirhugaðri fjárfestingu Haga og Regins í fasteignapróunarfélaginu Klasa mun Klasa verða skipt upp þannig að eldri verkefni Klasa, sem ekki teljast til þróunarverkefna, færast í annað félag sem stendur utan fyrirhugaðra viðskipta. Áætluð verðmæti undirliggjandi fjárfestingareigna Klasa eftir fyrirhuguð viðskipti verða um 15 ma.kr. og gert er ráð fyrir að eiginfjárhlutfallið í upphafi verði um 70%.

Fyrirhuguð viðskipti eru gerð m.a. með fyrirvörum um niðurstöður áreiðanleikakönnunar og um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

20. Uthlutun kauprétt

Í samræmi við samþykkt aðalfundar þann 3. júní 2021 var þann 6. júlí sl. gengið frá samningum um kauprétti sem ná til tiltekinna lykilstarfsmanna félagsins. Alls voru veittir 11.806.246 hlutir eða um 1,0% hlutafjár í félaginu, þar af 6.800.398 til framkvæmdastjórnar.

Nýtingarverð kaupréttanna er 60,4 kr. á hlut, þ.e. dagslokagengi hluta í Högum eins og það var skráð á Nasdaq Iceland degi fyrir úthlutun á aðalfundi þann 3. júní 2021. Nýtingarverð skal leiðrétt, til lækkunar, fyrir framtíðar arðgreiðslum og leiðrétt, til hækkunar, með 3% árlegum vöxtum ofan á áhættulausa vexti frá úthlutunardegi og fram að fyrsta mögulega nýtingardegi fyrir hvert nýtingartímabil. Ávinnsludagur er þremur árum frá úthlutun og hefst þá nýtingartímabil. Unnt verður að nýta 1/3 af kaupréttum á 1. tímabili, 1/3 á 2. tímabili og svo 1/3 á 3. tímabili en hvert tímabil spannar eitt ár.

Heildarkostnaður félagsins, skv. reiknilikani Black&Scholes vegna kaupréttarsamninganna er áætlaður um 81,8 millj. kr. á ávinnslutímanum en þar af er gjaldfærður áfallinn kostnaður vegna þeirra 12,1 millj. kr. á tímabilinu.

21. Tengdir aðilar

Tengdir aðilar félagsins eru stórir hluthafar í félaginu, hlutdeildarfélög þess, lykilstjórnendur og stjórnarmenn. Viðskipti á milli félagsins og dótturfélaga þess, sem eru skilgreind sem tengdir aðilar, hafa verið færð út í samstæðureikningsskilum og eru ekki hluti af þessari skýringu.

Viðskipti við tengda aðila

Viðskipti við tengda aðila greinast þannig: 2021 2020
1.3.-31.8. 1.3.-31.8.
Seldar vörur og þjónusta 74 55
Keyptar vörur og þjónusta 775 685
Viðskiptakröfur í lok tímabils 1 1
Viðskiptaskuldir í lok tímabils 126 94

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2021
Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar, frh.:

  1. Starfspåttayfirlit
Fyrri árshelmingur 2021/22 Verslanir og vöruhús Olíuverzlun Islands ehf. Jöfnunar-færslur Samtals
Vörusala 47.486 20.465 ( 1.032) 66.919
Aðrar rekstrartekjur 648 36 ( 106) 578
Heildartekjur starfspátta 48.134 20.501 ( 1.138) 67.497
Heildarrekstrargjöld starfspátta (43.656) (19.438) 1.138 (61.956)
EBITDA starfspátta 4.478 1.063 0 5.541
Afskriftir starfspátta ( 1.480) ( 422) 0 (1.902)
Áhrif hlutdeildarfélaga 5 116 0 121
Rekstrarafkoma starfspátta 3.003 757 0 3.760
Hrein fjármagnsgjöld ( 616) ( 115) 0 ( 731)
Tekjuskattur ( 593)
Hagnaður tímabilsins 2.436
31. ágúst 2021
Eignir starfspátta 45.182 19.168 0 64.350
Eignir samtals 64.350
Skuldir starfspátta 28.259 9.930 0 38.189
Skuldir samtals 38.189
Fjárfestingar starfspátta (nettó) ( 805) ( 141) 0 ( 946)
Fyrri árshelmingur 2020/21 Verslanir og vöruhús Olíuverzlun Islands ehf. Jöfnunar-færslur Samtals
Vörusala 43.362 15.973 ( 170) 59.165
Aðrar rekstrartekjur 165 68 ( 50) 183
Heildartekjur starfspátta 43.527 16.041 ( 220) 59.348
Heildarrekstrargjöld starfspátta (39.812) (15.440) 220 (55.032)
EBITDA starfspátta 3.715 601 0 4.316
Afskriftir starfspátta ( 1.555) ( 537) 0 (2.092)
Áhrif hlutdeildarfélaga 0 125 0 125
Rekstrarafkoma starfspátta 2.160 189 0 2.349
Hrein fjármagnsgjöld ( 678) ( 172) 0 ( 850)
Tekjuskattur ( 274)
Hagnaður tímabilsins 1.225
31. ágúst 2020
Eignir starfspátta 44.066 18.180 0 62.246
Eignir samtals 62.246
Skuldir starfspátta 27.374 9.478 0 36.852
Skuldir samtals 36.852
Fjárfestingar starfspátta (nettó) ( 1.893) ( 285) 0 ( 2.178)

Samandreginn árslutareikningur samstæðu Haga hf. 31. ágúst 2021

Fjárhæðir eru í milljónum króna