Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Earnings Release 2016

Jan 12, 2016

2196_rns_2016-01-12_baaf10fd-f15d-4381-bc3e-0b32b02c5d01.pdf

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

hagar

Fréttatilkynning:

Hagar hf. árslutauppgjør Q3 // mars 2015 – november 2015

Árslutareikningur Haga hf. fyrir þriðja ársfjörðung 2015/16 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 12. janúar 2016. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars 2015 til 30. nóvember 2015. Árslutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Reikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður.

Helstu upplýsingar

  • Hagnaður tímabilsins nam 2.831 millj. kr. eða 5,0% af veltu.
  • Vörusala tímabilsins nam 57.177 millj. kr.
  • Framlegð tímabilsins var 24,5%.
  • Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 4.141 millj. kr.
  • Heildareignir samstæðunnar námu 29.728 millj. kr. í lok tímabilsins.
  • Handbært fé félagsins nam 2.727 millj. kr. í lok tímabilsins.
  • Eigið fé félagsins nam 15.604 millj. kr. í lok tímabilsins.
  • Eiginfjárhlutfall var 52,5% í lok tímabilsins.

Söluaukning félagsins var 0,7% á tímabilinu

Vörusala tímabilsins nam 57.177 milljónum króna, samanborið við 56.763 milljónir króna árið áður. Söluaukning félagsins var 0,7%. Hækkun 9 mánaða meðaltals vísitölu neysluverðs milli rekstrarára var 1,77% en hækkun vísitölunnar án húsnæðis var 0,28%. Afnám vorugjalda um áramótin 2014/15 hefur áhrif á söluvöxt. Framlegð félagsins var 13.985 milljónir króna, samanborið við 13.687 milljónir króna árið áður eða 24,5% framlegð samanborið við 24,1% á fyrra ári. Framlegð hækkar um 298 milljónir króna milli ára. Hins vegar hækkar rekstrarkostnaður í heild um 393 milljónir króna eða 4,1% milli ára. Rekstrarkostnaður hækkar því um 95 milljónir króna umfram framlegðaraukningu á tímabilinu og kostnaðarhlutfallið hækkar úr 16,9% í 17,4%.

Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) nam 4.141 milljónum króna, samanborið við 4.186 milljónir króna árið áður. EBITDA framlegð var 7,2%, samanborið við 7,4% árið áður.

Hagnaður tímabilsins fyrir skatta nam 3.539 milljónum króna, samanborið við 3.560 milljónir króna árið áður. Hagnaður eftir skatta nam 2.831 milljónum króna á tímabilinu, sem jafngildir 5,0% af veltu en hagnaður eftir skatta á fyrra ári var 2.848 milljónir.

Heildareignir samstæðunnar í lok tímabilsins námu 29.728 milljónum króna. Fastafjármunir voru 15.960 milljónir króna og veltufjármunir 13.768 milljónir króna. Þar af eru birgðir 6.332 milljónir króna en birgðir voru 6.100 milljónir króna ári áður.


Eigið fé félagsins var 15.604 milljónir króna í lok tímabilsins og eiginfjárhlutfall 52,5%. Heildarskuldir samstæðunnar voru 14.124 milljónir króna, þar af voru langtímaskuldir 4.916 milljón króna.

Handbært fé frá rekstri á tímabilinu nam 3.871 milljónum króna, samanborið við 3.055 milljónir króna á fyrra ári. Fjárfestingarhreyfingar tímabilsins voru 1.938 milljónir króna, þar af 1.012 milljónir króna vegna fasteignaverkefna. Fjármögnunarhreyfingar tímabilsins voru 2.554 milljónir króna og þar af voru 1.992 milljónir króna vegna arðgreiðslu í júní sl. Handbært fé í lok tímabilsins var 2.727 milljónir króna, samanborið við 3.010 milljónir króna árið áður.

Staðan og framtíðarhorfur

Þriðji ársfjörðungur Haga, sem lauk 30. nóvember sl., var góður og umfram áætlanir félagsins en hagnaður jókst um 15,3% milli ára. Drög að uppgjóri desembermánaðar lítur vel út og er niðurstaðan betri en á fyrra ári. Janúarútsölur fara hægt af stað en áætlanir félagsins gera ráð fyrir sambærilegum horfum og á fyrra ári fyrir þá mánuði sem eftir lifa rekstrarársins.

Framkvæmdir við byggingu nýs vöruhúss Banana er á áætlun og mun félagið flytja starfsemi sína í hið nýja húsnæði fyrir lok rekstrarársins.

Í byrjun desember skrifáði félagið undir kaupsamning um allt hlutafé í Gargon ehf. Eina eign Gargon er fasteignin Smiðjuvöllum 32 Akranesi, þar sem verslun Bónus er til húsa.

Í lok desember skrifáði Hagkaup undir nýjan leigusamning við Smáralind. Verslunin verður um 5.600 m² og er samningurinn til 10 ára. Ekki hefur náðst samningur um framtíð Debenhams í verslunarmiðstöðinni en áfram er unnið í þeim málum. Samningurinn rennur út í lok árs 2016.

Fjárhagsdagatal 2015/16

  1. ársfjörðungur (1. mars – 29. feb): 12. maí 2016
    Aðalfundur 3. júní 2016

Nánari upplýsingar veitir Finnur Árnason, forstjóri félagsins, í síma 530-5500.

2


Árshlutareikningur Haga hf. Q3 // mars 2015 – november 2015

Lykiltölur í millj. kr. – samstæða

Rekstrarreikningur

Q3 2015/16 Q3 2014/15 2015/16 2014/15
01.09-30.11 01.09-30.11 01.03-30.11 01.03-30.11
Vörusala 18.787 18.400 57.177 56.763
KSV (14.134) (13.978) (43.192) (43.076)
Heildarframlegð 4.653 4.422 13.985 13.687
Aðrar tekjur 45 25 132 82
Laun og launatengd gjöld (1.788) (1.674) (5.152) (4.888)
Annar rekstrarkostnaður (1.637) (1.630) (4.824) (4.695)
EBITDA 1.273 1.143 4.141 4.186
Afskriftir (175) (167) (508) (501)
EBIT 1.098 976 3.633 3.685
Hrein fjármagnsgjöld (41) (33) (94) (125)
Hagnaður fyrir skotta 1.057 943 3.539 3.560
Tekjuskattur (212) (189) (708) (712)
Hagnaður tímabilsins 845 754 2.831 2.848

Efnahagsreikningur

30.11.2015 28.02.2015
Eignir
Fastafjármunir 15.960 14.520
Veltufjármunir 13.768 13.089
Eignir samtals 29.728 27.609
Eigið fé og skuldir
Hlutafé 1.172 1.172
Annað eigið fé 14.432 13.592
Eigið fé samtals 15.604 14.764
Langtímaskuldir 4.916 4.791
Vaxtaberandi skammtímaskuldir 752 749
Aðrar skammtímaskuldir 8.456 7.305
Skuldir samtals 14.124 12.845
Eigið fé og skuldir samtals 29.728 27.609

Sjóðstrey mi

Q3 2015/16 Q3 2014/15 2015/16 2014/15
01.09-30.11 01.09-30.11 01.03-30.11 01.03-30.11
Handbært fé frá rekstri 1.056 289 3.871 3.055
Fjárfestingarhreyfingar (619) (225) (1.938) (625)
Fjármögnunarhreyfingar (188) (100) (2.554) (3.563)
Hækkun (lækkun) á handbæru fé 249 (36) (621) (1.133)
Handbært fé í byrjun tímabils 2.478 3.046 3.348 4.143
Handbært fé í lok tímabils 2.727 3.010 2.727 3.010

Breytingar á eigin fé

Hlutafé Yfirverðs-reikningur Óráðstafað eigið fé Samtals
Eigið fé 1. mars 2015 1.172 1.272 12.320 14.764
Greiddur arður (1.992) (1.992)
Hagnaður tímabilsins 2.831 2.831
Eigið fé 30. november 2015 1.172 1.272 13.159 15.604