AI assistant
Hagar — Board/Management Information 2019
Aug 19, 2019
2196_rns_2019-08-19_f4431bea-1a50-466c-b32f-e7b45c8b0d1e.pdf
Board/Management Information
Open in viewerOpens in your device viewer
hagar
Fréttatilkynning:
Hagar hf. - Skipulagsbreytingar
Á stjórnarfundi Haga hf. í dag 19. ágúst, voru samþykktar breytingar á skipulagi félagsins. Markmið breytinganna er að einfalda skipulag og gera boðleiðir og ábyrgð skýrari. Einnig að nýta styrk heildarinnar og að ná fram auknu hagræði.
Markvisst er unnið að aukinni samhæfingu hjá fyrirtækinu í heild í kjölfar kaupa Haga á Olíuverzlun Íslands, þannig að stærðarhagkvæmni nýtist á sem flestum sviðum og að félagið geti þjónað viðskiptavinum sínum á besta mögulegan hátt. Með þessum skipulagsbreytingum er starfsemi vöruhúsa færð undir einn hatt, þar með talin vöruhúsastarfsemi Olís. Með breytingunum fæst umtalsvert hagræði. Í þessum skipulagsbreytingum eru stoðsvið vöruhúsa sameinuð auk stoðsviða sérverslana og Olís. Þá mun Olís leggja áherslu á breiðari þjónustu við fyrirtækjamarkað.
Hagar hafa skilað fullmótuðum tillögum til Reykjavíkurborgar í samræmi við stefnu borgarinnar um fækkun bensinstöðva. Tillögurnar gera ráð fyrir verslunarhúsnæði, íbúðarhúsnæði og bensíndælum á þeim lóðum sem félagið hefur sett í forgang. Unnið er að stefnumótun um verslanir Olís.
Í kjölfar breytinganna verða fimm meginstoðir innan Haga, en þær eru Bónus, Olís, Vöruhús, Bananar og sérverslanir. Skipulagsbreytingarnar munu raungerast á næstu víkum.
Guðmundur Marteinsson er framkvæmdastjóri Bónus, Jón Ólafur Halldórsson er framkvæmdastjóri Olís, Kjartan Már Friðsteinsson er framkvæmdastjóri Banana og Lárus Óskarsson er framkvæmdastjóri Vöruhúsa. Innan Vöruhúsa verða Aðfóng, Hýsing og Ferskar kjötvörur. Sigurður Reynaldsson verður framkvæmdastjóri sérverslana. Innan sérverslana verða Hagkaup, Útilíf, Zara og Reykjavíkur Apótek, en kaup Reykjavíkur Apóteks eru enn með fyrirvara og til skoðunar hjá Samkeppniseftirlitinu.
Á aðalskrifstofu félagsins verður Steingrímur H. Pétursson framkvæmdastjóri fjármála og viðskiptaþróunar. Guðrún Eva Gunnarsdóttir verður framkvæmdastjóri samstæðu og rekstrar. Þá er gert ráð fyrir ráðningu í tvær nýjar stöður. Annars vegar í stöðu leiðtoga upplýsingatækni og stafrænnar þjónustu og hins vegar í stöðu samskiptastjóra. Forstjóri er Finnur Árnason.

Skipurit Haga hf.