AI assistant
Hagar — Audit Report / Information 2023
Oct 23, 2023
2196_rns_2023-10-23_557a0506-23c0-4840-9a79-d3ddacba02c5.pdf
Audit Report / Information
Open in viewerOpens in your device viewer
KPMG
KPMG ehf.
Borgartún 27
105 Reykjavík
Sími 545 6000
Fax 545 6001
Vefsida www.kpmg.is
Umboðsmaður kröfuhafa og
Hagar hf.
b.t. Finns Oddssonar
Hagasmára 1,
201 Kópavogur
Reykjavík, 23. október 2023
Staðfesting á skýrslu um fjárhagslegar kvaðir í tengslum við árshlutareikning vegna skuldabréfaflokks HAGA181024
Vísað er til veðhafa- og veðgæslusamkomulagsins, dags. 18. október 2021, og samnings við staðfestingaraðila. Hugtök sem skilgreind eru í veðhafa- og veðgæslusamkomulaginu og samningi við staðfestingaraðila skulu hafa sömu merkingu og þeim er þar gefin.
Vísað er til skýrslu útgefanda um fjárhagslegar- og sérstakar kvaðir, dags. 18. október 2023.
Staðfestingaraðili hefur farið yfir skýrslu útgefanda um fjárhagslegar- og sérstakar kvaðir, verðmat sem liggur til grundvallar og aðrar upplýsingar sem skýrslan byggir á. Að lokinni sjálfstæðri yfirferð eru niðurstöður staðfestingaraðila eftirfarandi:
Þann 31. ágúst 2023 voru viðkomandi fjárhagslegar- og sérstakar kvaðir eftirfarandi:
- Vaxtaþekja
EBITDA 12 mánaða tímabils frá 1. september 2022 – 31. ágúst 2023 nam 11.997 m.kr. Á sama tímabili námu vaxtagjöld 2.254 m.kr. Vaxtaþekja tímabilsins telst því vera 11.997/2.254 eða 5,3 en kvaðir í skuldabréfaflokki HAGA181024 eru að vaxtaþekja sé eigi lægri en 2.
- Eiginfjárhlutfall
Eigið fé Haga þann 31. ágúst 2023 nam 27.381 m.kr. Samtala efnahagsreiknings sama dag nam 75.487 m.kr. Eiginfjárhlutfall Haga 31. ágúst 2023 er því 27.381/75.487 eða 36,3%. Fjárhagslegar kvaðir í skuldabréfaflokki HAGA181024 eru að eiginfjárhlutfall sé eigi lægra en sem nemur 25%
Yfirferð staðfestingaraðila á fjárhagslegum- og sérstökum kvöðum samræmist mati útgefanda og skýrsla um fjárhagslegar og sérstakar kvaðir því staðfest.
Fyrir hönd staðfestingaraðila
KPMG ehf.
Helga Haðarstóttir
KPMG ehf., íslenski aðilinn að KPMG International Cooperative("KPMG International"), svissnesku samvinnufélagi
Reykjavik
Akranes
Akureyri
Borgarnes
Dalvik
Egilsstaðir
Hafnarfjörður
Hella
Höfn
Reyðarfjörður
Reykjanesbær
Sauðárkrókur
Selfoss
Skagaströnd
Stykkishölmur
Vestmannaeyjar