AI assistant
Hagar — Audit Report / Information 2022
Apr 29, 2022
2196_rns_2022-04-29_b79634c0-46e3-4d31-9ebb-53b879acbe99.pdf
Audit Report / Information
Open in viewerOpens in your device viewer
KPMG
KPMG ehf.
Borgartún 27
105 Reykjavík
Sími 545 6000
Fax 545 6001
Vefsida www.kpmg.is
Umboðsmenn kröfuhafa og
Hagar hf.
Hagasmára 1,
201 Kópavogur
Reykjavík, 29. apríl 2022.
Staðfesting á skýrslu um fjárhagslegar og sérstakar kvaðir í tengslum við ársreikning vegna skuldabréfaflokks HAGA181024.
Vísað er til veðhafa- og veðgæslusamkomulagsins, dags. 18. október 2021, og samnings við staðfestingaraðila. Hugtök sem skilgreind eru í veðhafa- og veðgæslusamkomulaginu og samningi við staðfestingaraðila skulu hafa sömu merkingu og þeim er þar gefin.
Vísað er til skýrslu útgefanda um fjárhagslegar- og sérstakar kvaðir, dags. 28. apríl 2022.
Staðfestingaraðili hefur farið yfir skýrslu útgefanda um fjárhagslegar- og sérstakar kvaðir, verðmat sem liggur til grundvallar og aðrar upplýsingar sem skýrslan byggir á. Að lokinni sjálfstæðri yfirferð eru niðurstöður staðfestingaraðila eftirfarandi:
Þann 28. febrúar 2022 voru viðkomandi fjárhagslegar- og sérstakar kvaðir eftirfarandi:
1. Vaxtaþekja
EBITDA 12 mánaða tímabils, frá 1.3.2021 - 28.2.2022, nam 10.518 m.kr. Á sama tímabili námu vaxtagjöld 1.479 m.kr. Vaxtaþekja tímabilsins telst því vera 10.518/1.479 eða 7,1. Fjárhagslegar kvaðir í flokknum HAGA181024 eru að vaxtaþekja sé eigi lægri en 2.
2. Eiginfjárhlutfall
Eigið fé Haga þann 28.2.2022 nam 26.726 m.kr. Heildareignir skv. efnahagsreikningi sama dag nam 65.192 m.kr. Eiginfjárhlutfall Haga þann 28.2.2022 er því 41% Fjárhagslegar kvaðir í flokknum HAGA181024 eru að eiginfjárhlutfall sé að lágmarki 25%.
Yfirferð staðfestingaraðila á fjárhagslegum- og sérstökum kvöðum samræmist mati útgefanda og skýrsla um fjárhagslegar og sérstakar kvaðir því staðfest.
Fyrir hönd staðfestingaraðila
KPMG ehf.
Helga Haðardóttir
KPMG ehf., íslenski aðlinn að KPMG International Cooperative("KPMG International"), svissnesku samvinnufálagi
Reykjavik
Akranes
Akureyri
Borgarnes
Dalvik
Egilsstaðir
Hafnarfjörður
Hella
Höfn
Reyðarfjörður
Reykjanesbær
Sauðárkrókur
Selfoss
Skagaströnd
Stykkishölmur
Vestmannaeyjar
KPMG