Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Audit Report / Information 2021

May 12, 2021

2196_rns_2021-05-12_fdcbdf76-e0f0-4ec8-bdc2-3984f4901eb8.pdf

Audit Report / Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

KPMG

KPMG ehf.
Borgartún 27
105 Reykjavík

Sími 545 6000
Fax 545 6001
Vefsida www.kpmg.is

Umboðsmenn kröfuhafa og

Hagar hf.
Hagasmára 1,
201 Kópavogur

Reykjavík, 12. maí 2021.

Staðfesting á skýrslu um fjárhagslegar og sérstakar kvaðir í tengslum við ársreikning vegna skuldabréfaflokks HAGA181021.

Vísað er til veðhafa- og veðgæslusamkomulagsins, dags. 16. október 2019, og samnings við staðfestingaraðila. Hugtök sem skilgreind eru í veðhafa- og veðgæslusamkomulaginu og samningi við staðfestingaraðila skulu hafa sömu merkingu og þeim er þar gefin.

Vísað er til skýrslu útgefanda um fjárhagslegar- og sérstakar kvaðir, dags. 10. maí 2021.

Staðfestingaraðili hefur farið yfir skýrslu útgefanda um fjárhagslegar- og sérstakar kvaðir, verðmat sem liggur til grundvallar og aðrar upplýsingar sem skýrslan byggir á. Að lokinni sjálfstæðri yfirferð eru niðurstöður staðfestingaraðila eftirfarandi:

Þann 28. febrúar 2021 voru viðkomandi fjárhagslegar- og sérstakar kvaðir eftirfarandi:

1. Vaxtaþekja

EBITDA 12 mánaða tímabils, frá 1.3.2020 - 28.2.2021, nam 8.805 m.kr. Á sama tímabili námu vaxtagjöld 1.457 m.kr. Vaxtaþekja tímabilsins telst því vera 8.805/1.457 eða 6,0. Fjárhagslegar kvaðir í flokknum HAGA181021 eru að vaxtaþekja sé eigi lægri en 2.

2. Eiginfjárhlutfall

Eigið fé Haga þann 28.2.2021 nam 25.187 m.kr. Heildareignir skv. efnahagsreikningi sama dag nam 61.648 m.kr. Eiginfjárhlutfall Haga þann 28.2.2021 er því 40,9%. Fjárhagslegar kvaðir í flokknum HAGA181021 eru að eiginfjárhlutfall sé að lágmarki 25%.

Yfirferð staðfestingaraðila á fjárhagslegum- og sérstökum kvöðum samræmist mati útgefanda og skýrsla um fjárhagslegar og sérstakar kvaðir því staðfest.

Fyrir hönd staðfestingaraðila

KPMG ehf.
Helga Haktardóttir

KPMG ehf., Islenski aðlinn að KPMG International Cooperative("KPMG International"), svissnesku samvinnufólagi

Reykjavík
Akranes
Akureyri
Borgarnes
Dálvík
Egilsstaðir

Hafnarfjörður
Hella
Höfn
Reyðarfjörður
Reykjavetsbær

Sauðárkrókur
Selfoss
Skagaströnd
Styékishólmur
Vestmannaeyjar