AI assistant
Hagar — Annual Report 2016
May 31, 2016
2196_rns_2016-05-31_660dfe75-d3a8-4871-8fd6-550665ae9233.PDF
Annual Report
Open in viewerOpens in your device viewer
ARSSKYRSLA 2015-2016

hagar
hagar
HELSTU LYKILTÖLUR
| REKSTUR | 2015/16 | 2014/15 | 2013/14 | 2012/13 | 2011/12 |
|---|---|---|---|---|---|
| Vörusala | 78.366 | 77.143 | 76.158 | 71.771 | 68.495 |
| Framlegð | 19.109 | 18.504 | 18.471 | 17.286 | 16.105 |
| EBITDAR | 8.886 | 8.777 | 8.970 | 7.963 | 7.133 |
| EBITDA | 5.659 | 5.616 | 5.862 | 4.963 | 4.183 |
| EBIT | 4.547 | 4.942 | 5.208 | 4.275 | 3.030 |
| Heildarafkoma ársins | 3.596 | 3.838 | 3.953 | 2.958 | 2.344 |
EFNAHAGUR
| Eignir samtals | 29.705 | 27.609 | 26.605 | 25.714 | 23.405 |
|---|---|---|---|---|---|
| Eigið fé samtals | 16.368 | 14.764 | 12.098 | 8.731 | 6.221 |
| Skuldir samtals | 13.337 | 12.845 | 14.507 | 16.983 | 17.184 |
| Nettó vaxtaberandi skuldir | 701 | 1.640 | 2.680 | 5.995 | 8.424 |
SJÓDSTREYMI
| Handbært fé frá rektri | 5.754 | 4.349 | 4.708 | 3.888 | 3.428 |
|---|---|---|---|---|---|
| Fjárfestingarhreýfingar | (2.548) | (2.136) | (799) | (922) | (862) |
| Fjármögnunarhreýfingar | (2.744) | (3.008) | (2.713) | (2.168) | (1.504) |
| Hækkun (lækkun) á handbæru fé | 462 | (795) | 1.196 | 798 | 1.061 |
| Handbært fé í árslok | 3.810 | 3.348 | 4.143 | 2.947 | 2.149 |
ADRAR LYKILTÖLUR
| Sölvöxtur | 1,6% | 1,3% | 6,1% | 4,8% | 2,7% |
|---|---|---|---|---|---|
| Framlegð í % | 24,4% | 24,0% | 24,3% | 24,1% | 23,5% |
| Launahlutfall | 9,1% | 8,7% | 8,5% | 8,7% | 9,1% |
| Kostnaðarhlutfall | 8,3% | 8,2% | 8,2% | 8,7% | 8,4% |
| EBITDA vöxtur | 0,8% | -4,2% | 18,1% | 18,6% | -4,6% |
| EBITDAR hlutfall | 11,3% | 11,4% | 11,8% | 11,1% | 10,4% |
| EBITDA hlutfall | 7,2% | 7,3% | 7,7% | 6,9% | 6,1% |
| Biðtími birgða í dögum (DIO) | 28,4 | 29,0 | 31,0 | 31,2 | 28,4 |
| Biðtími krafna í dögum (DSO) | 18,1 | 19,1 | 18,8 | 19,7 | 19,0 |
| Biðtími skulda í dögum (DPO) | 26,1 | 25,6 | 26,5 | 26,5 | 25,7 |
| Veltuhraði fjármuna í dögum (CCC) | 20,4 | 22,4 | 23,4 | 24,4 | 21,7 |
| Nettó vaxtaberandi skuldir / EBITDA | 0,1 | 0,3 | 0,5 | 1,2 | 2,0 |
| Eiginfjárhlutfall | 55,1% | 53,5% | 45,5% | 34,0% | 26,6% |
| Arðsemi eigin fjár | 23,1% | 28,6% | 38,0% | 39,6% | 47,7% |
| Innra virði hlutafjár | 13,97 | 12,60 | 10,33 | 7,45 | 5,31 |
| Fjöldi verslana | 57 | 56 | 56 | 59 | 62 |
| Fjöldi stöðugilda | 1.195 | 1.160 | 1.182 | 1.208 | 1.189 |
HAGAR HF.
ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
VÖRUSALA

miltjönir kröna
HAGAR HF.
ÅRSSKYRSLA 2015-2016
EFNISYFIRLIT
Helstu lykiltólur ... 3
Ávarp stjórnarformanns ... 7
Ávarp forstjóra ... 8
Um Haga hf. ... 10
Starfsemin ... 10
Árið sem var að liða og framtíðarhorfur ... 10
Hagar í tólum ... 11
Matvöruverslanir ... 12
Bónus ... 12
Hagkaup ... 12
Vöruhús ... 13
Aðfóng ... 13
Bananar ... 13
Ferskar kjötvörur ... 13
Hýsing ... 13
Sérvöruverslanir ... 14
Útilíf ... 14
Debenhams ... 14
Zara ... 14
Aðrar tískuvöruverslanir ... 15
Stærstu verkefni ársins ... 16
Hluthafaupplysingar ... 17
Stjórnarháttayfirlysing ... 20
Framkvæmd starfskjarastefnu 2014-15 ... 29
Tillaga að starfskjarastefnu Haga ... 29
Arðgreiðslustefna Haga ... 30
Hagar hf. – Ársreikningur samstæðunnar ... 33
HAGAR HF.
ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
EIGID FÉ






HAGAR HF.
ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
ÁVARP STJÓRNARFORMANNS
Ágætu hluthafar,
Stóðugleiki heldur áfram að einkenna rekstur Haga hf. Ársuppgjórið er svipað niðurstöðu ársins á undan og í samræmi við áætlun sem er góður árangur í ljósi talsvert erfíðra aðstæðna á fyrri hluta rekstrarársins. Deilur á vinnumarkaði og verkföll voru þá áberandi sem leiddu í einhverjum tilfellum til vóruskorts. Nyír kjarasamningar höfðu svo óhjákvæmilega áhrif á kostnaðargrunninn. Stjórnendum félagsins tókst vel að vinna úr stöðunni og án þess að teljandi áhrif hafi komið fram í vóruverði.
Veltuaukning milli ára var 1,6% og nam vórusala tæplega 78,4 milljörðum króna. Framlegð jókst lítillega á milli ára, var 24,4% en 24,0% árið á undan. Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var svipaður og árið á undan, rúmlega 5,6 milljarðar króna, eða 7,2%. Hagnaður eftir skatta var tæplega 3,6 milljarðar sem er lækkun um 6,3% frá fyrra ári. Verðmætaskópum fyrir hluthafa félagsins og viðskiptavini á síkvikum samkeppnismarkaði heldur áfram.
Félagið er stórt á markaði og stjórnendur og starfsfólk eru vel meðvituð um þær áskoranir sem því fylgir. Vaxtartækifæri fyrir félag af þessari stærðargráðu eru takmörkuð á Íslandi en mikil vinna fer í að viðhalda þessari stöðu. Það eru þó hugsanleg tækifæri til að auka eigin innflutning á matvóru og eins höf félagið nýlega eigin innflutning á áfengi sem byrjað er að selja í Vinbúðunum. Þar vinnur félagið eftir vel skilgreindum markmiðum og býður upp á góða vóru á hagstæðu verði.
Í samanburðarkönnunum kemur í ljós að framleiðni á Íslandi er lág miðað við nágrannalöndin. Þó svo að staðan hjá félaginu sé almennt góð þá vinna stjórnendur félagsins stöðugt að umbótum. Unnið hefur verið markvisst að því að fækka fermetrum, þá sérstaklega hjá Hagkaupi, þegar leigusamningar losna. Þá hefur Bónus opnað minni verslanir, eins og við Skipholt í Reykjavík, sem býða upp á flest það sem stærri verslanir gera en eru þó ekki með eins breitt vóruurval. Þessar verslanir hafa fengið góðar viðtökur.
Stefnumótum er mikilvægt verkefni stjórnar og þá er eftirfylgni ekki síður mikilvæg. Áherslan í stefnumótunarvinnunni undanfarið hefur annars vegar snúið að Hagkaupi og hins vegar að Útilif og öðrum sérvóruverslunum félagsins með nyjum áherslum í vóruframsetningu og innleiðingu nyjustu tækni. Markmiðið er skýrt, að auka og bæta þjónustu við viðskiptavini og bæta reksturinn eins og kostur er. Glæsileg og betrumbætt verslun Hagkaups í Smáralind með nyjum áherslum og útfærslu verður opnuð fyrir jól.
Stjórn leggur áherslu á vandaða ákværðanatöku. Góð breidd í þekkingu og bakgrunni stjórnarmanna stuðlar að því. Í sumum tilfellum þarf stjórn endurtekið að taka ákværðanir í svipuðum málum. Þá skiptir máli að læra af fyrri ákvörðunum og hvernig forsendur hafa þróast og breyst. Aðrar ákværðanir eru einstakar í eði sínu og þá er mikilvægt að nægjanlegar upplýsingar séu tiltækar. Í öllum tilfellum reynir á þekkingu, reynslu og innsæi stjórnenda og stjórnarmanna.
Félagið heldur áfram að skila til hluthafa, beint eða óbeint, þeim verðmætum sem skapast í rekstrinum á hverju ári, umfram nauðsynlegar fjárfestingar í rekstrarfjármunum. Arðgreiðslustefna félagsins kveður á um að arðgreiðslur nemi yfir 50% af hagnaði. Stjórninn hefur svo samþykkt að auka sveigjanleika varandi fjármagnsskipan með möguleika á kaupum á eigin hlutabréfum. Þó svo að tækifæri til að kaupa vel staðsettar fasteignir séu ekki á hverju strái vinnur félagið markvisst að því að bæta þeim við þegar tækifæri gefast og festi kaup á þremur fasteignum á liðnu ári.
Stöðugt er verið að styrkja félagið til að mæta áskorunum á síkvikum markaði. Félagið er fjárhagslega sterkt og vel í stakk búið til að takast á við aukna samkeppni. Skuldir eru í lágmarki, eiginfjárstaða sterk og lausafjárstaða góð. Um leið skilar félagið góðri arðsemi á eigin fé.
Stjórn félagsins mun leggja til við aðalfund þann 3. júni nk. að greiddur verði arður til hluthafa sem nemur 1,7 krónu á hlut, eða tæpar 1.992 milljónir króna, sem er 56,7% af hagnaði rekstrarársins.
Það fylgir því mikil ábyrgð að vera stór á markaði og hafa 90% af þjóðinni í viðskiptum. Við sinnum þessari ábyrgð af kostgæfni og er alltaf jafn gleðilegt þegar landsmenn sýna ánægju sína með félagið í verki. Bónus var valið vinsælasta fyrirtæki landsins í kónnun Frjálsrar verslunar þriðja árið í röð og var þetta í 14. skipti sem Bónus hlytur þessa nafnbót.
Allri gengisstyrkingu og tollalækkunum hefur verið skilað til viðskiptavina í gegnum vóruverð og þarf ekki annað en að skoða reikninga félagsins til að sannfærast um það. Ríkissjóði var gert að endurgreiða félaginu ólogmæta gjaldtöku ríkisins af innfluttum landbúnaðarvórum og hefur félagið byrjað að skila þessari endurgreiðslu til viðskiptavina með lækkun vóruverð sem samsvarar þessum ólogmætu gjöldum. Langtimasamband við viðskiptavini sem byggir á trausti er lykilatriði fyrir félagið.
Fyrir hönd stjórnar vil ég þakka stjórnendum og starfsfólki fyrir fråbæran árangur í störfum sínum fyrir félagið.
Kristín Friðgeirsdóttir,
stjórnarformaður Haga hf.

Kristín Friðgeirsdóttir, stjórnarformaður Haga
HAGAR HF.
ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
ÁVARP FORSTJÓRA
Segja má að síðasta rekstrarár félagsins hafi að nokkru leyti verið tvískipt. Upphaf ársins einkenndist af óróa á vinnumarkaði og óvissu. Verkfóll gerðu það að verkum að um tíma fengu verslanir félagsins ekki vörur, m.a. kjúklinga og nautakjót. Afkoma fyrsta ársfjörðungs var því undir væntingum. Kostnaðarauki félagsins varð nokkur í kjólfarið á því að kjarasamningar tókust. Síðari hluti ársins einkenndist meira af stöðugleika, þar sem aukinn kaupmáttur og litil verðbölga höfðu jákvæð áhrif á rekstrar félagsins. Í upphafi árs 2016 var samið um frekari launahækkanir, en kostnaðarauki vegna þeirra kemur fram í reikningum félagsins tvo síðustu mánuði rekstrarársins. Niðurstaða ársins í heild er góð þegar horft er til framangreindra þátta. Hagnaður rekstrarársins fyrir skatta nam 4.498 milljónum króna, samanborið við 4.795 milljónir króna árið áður. Hagnaður eftir skatta nam 3.596 milljónum króna á rekstrarárinu, sem jafngildir um 4,6% af veltu, en hagnaður eftir skatta á fyrra ári var 3.838 milljónir.
Aðstæður á síðasta ári voru um margt óvenjulegar, þar sem íslenska krónan styrktist, verðbölga var litil í sögulegu samhengi og í raun verðhjörðun í ákveðnum vöruflokkum. Þensla var á vinnumarkaði og húsnæðismarkaði, sem skapar kostnaðarauka. Við þessar aðstæður skiptir miklu máli að félaginu takist að verja tekjur sínar og framlegð á sama tíma og aðhalds er gætt í kostnaði.
Finnur Árnason,
forstjóri Haga
Fjárfestingar á rekstrarárinu námu 2.548 milljónum króna en þar af fjárfesti félagið 1.371 milljón króna í fasteignaverkefnum. Bananar, sem fögnuðu 60 ára afmæli á liðnu ári, fluttu starfsemi sína í nýtt vöruhús við Korngarða í Reykjavík í febrúar sl., en vöruhús í er stærsta fjárfestingaverkefni sem félagið hefur ráðist í á undanförnum árum. Á rekstrarárinu voru opnaðar þrjár nýjar og glæsilegar Bónus-verslanir, í Skipholti í ágúst, við Túngötu í Reykjanesbæ í október og nú í febrúar í Vestmannaeyjum. Félagið fjárfesti í fasteignunum í Skipholti og við Túngötu og festi auk þess kaup á fasteigninni undir verslun Bónus að Smiðjuvöllum á Akranesi í gegnum Gargon ehf.
Bónus var á árinu valið vinsælasta fyrirtæki landsins í fjórtánda sinn. Ekkert fyrirtæki hefur jafnoft hlotið þessa viðurkenningu. Sem fyrr byggja vinsældir Bónus á þeirri skýru stefnu að bjóða lægsta vöruverð á landinu alla daga og sama verð um land allt.
Á árinu tókust samningar um nýjan leigusamning fyrir Hagkaup í Smáralind. Verslunin mun minnka um 4.800 fermetra og verður eftir breytingar um 5.600 fermetrar. Gert er ráð fyrir opnun eftir breytingar í nóvember nk. Þá var leigusamningur Debenhams í Smáralind framlengdur til maíloka 2017, en óvissa er um frekari framlengingu.
Unnið var markvisst að undirbúningi innflutnings og sölu áfengis. Nýlega fór Euroshopper-björ og ítólsk léttvin í sölu í verslunum ÁTVR. Salan hefur gengið vel og fleiri vörutegundir eru í farvatninu. Frumvarp um sölu á áfengi í dagvöruverslunum hefur
enn ekki orðið að lögum, en það er trú stjórnenda félagsins að nú sé ekki spurning um hvort, heldur hvenær slíkt frumvarp verður samþykkt á Alþingi.
Fataverslun hér á landi hefur dregist saman undanfarin ár. Í lok síðasta árs sýndu kannanir að nánast önnur hver flík væri keypt erlendis. Verslun Karen Millen í Smáralind var lokað á rekstrarárinu og ákveðið hefur verið að loka verslun Evans í Smáralind í júní. Um áramötin var felldur niður svokallaður tvöfaldur tollur af fatnaði. Stjórnvöld stigu þar jákvætt skref til að bæta samkeppnishæfni íslenskrar verslunar. Það er þó mat stjórnenda að færa þurfi fatnað og skó í neðra þrep virðis-aukaskatts til þess að verslun flytjist í auknum mæli til landsins.
Á fjórða ársfjörðungi féllu tvö dömsmál sem Hagar voru aðili að. Annars vegar voru Hagar dæmdir í Héraðsdómi Reykjaness til að greiða Norvik hf. skaðabætur vegna svonefnds mjólkurverðstriðs á árunum 2005-2006. Færð var skuldbinding að fjárhæð 413 milljónir króna vegna þessa en Hagar munu áfrýja málinu til Hæstarétta. Hins vegar féll dómur í Hæstarétta þar sem íslenska rikinu var gert að endurgreiða Högum ólogmæta gjaldtóku af innfluttum landbúnaðarvörum. Upphæðin er ekki tekjufærð og verður ekki þar sem sú afstaða Haga hefur legið fyrir að fjármununum verður skilað aftur að fullu til viðskiptavina í formi lægra vöruverðs. Högum voru dæmdar 245 milljónir króna, auk vaxta, en eftir döminn gerði félagið kröfu á íslenska ríkið um greiðslu 338 milljónar króna til viðbótar, auk vaxta. Hluti þess hefur fengist greiddur, eða 217 milljónir króna, en ágreiningur er um eftirstöðvarnar.
Í tilefni af góðu uppgjóri félagsins mun Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónus, afhenda styrk til Umhyggju, félags til stuðnings langveikum börnum, að upphæð 2 milljónir króna, til BUGL, barna- og unglingageðdeildar Landspitalans, að upphæð 2 milljónir króna og til fræðslu- og bataseturins Vinjar, sem Rauði krossinn rekur, að upphæð 1 milljón króna. Gunnar Ingi Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hagkaups, mun sömuleiðis afhenda styrki til Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra vegna Reykjadals, að upphæð 2 milljónir króna, Sjónarhóls, félags fyrir sérstök börn til betra lífs, að upphæð 2 milljónir króna og Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna, að upphæð 1 milljón króna. Auk framangreindra málefná styrkja fyrirtæki Haga árlega fjölmörg æskulyðs-, góðgerðar- og mannúðarmál.
Ljóst er að á næstu mánuðum mun samkeppni á markaði aukast og rekstrarumhverfið taka breytingum. Starfsfólk félagsins leggur nú sem fyrr áherslu á að þjóna viðskiptavinum sínum eins vel og kostur er og mæta þeim væntingum sem til verslana félagsins eru gerðar.
Á hverju ári minni ég á að velgengni félagsins er ekki sjálfgefin. Það er rík ástæða til að þakka okkar frábæra starfsfólki fyrir þeirra framlag. Þann rekstrarárangur sem náðist á síðasta ári vil ég sérstaklega þakka samstarfsfólki mínu og meðstjórnendum. Auk þess þakka ég viðskiptavinum það mikla traust sem þeir sýna okkur dag eftir dag og ár eftir ár með daglegum viðskiptum við fyrirtækin okkar.
Finnur Árnason,
forstjóri Haga hf.
HAGAR HF.
ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
SKULDSETNING

Nettó vaxtaberandi skuldir




milljonir kröna

HAGAR HF.
ÅRSSKYRSLA 2015-2016
UM HAGA
Hagar er leiðandi verslunarfyrirtæki á íslenskum matvöru- og sérvorumarkaði en félagið var stofnað í núverandi mynd árið 2003. Í lok rekstrarársins starfrækti félagið 57 verslanir innan sex smásölufyrirtækja og fjögur vöruhús. Þá voru starfsmenn félagsins 2.327 talsins í 1.195 stöðugildum. Kjarnastarfsemi Haga er á sviði matvöru og tengdra vöruhúsa en auk þess reka Hagar nokkrar sérvoruverslanir.
Fyrirtæki Haga eru öll 100% í eigu félagsins en þau eru starfrækt í fjörum dótturfélögum. Fyrirtækin eru rekin sem sjálfstæðar rekstrareiningar og hafa þess vegna ólík rekstrarform og ólíka menningu. Hlutverk Haga er að veita fyrirtækjum sínum aðhald í rekstri og finna sameiginlega fleti sem leitt geta til hagræðingar í kostnaði og aukið tekjumöguleika fyrirtækjanna og um leið samkeppnisstyrk þeirra. Hlutverk Haga er enn fremur að skapa virði fyrir hluthafa sína með arðsömum rekstri.
Hlutabréf Haga voru skráð á aðallista NASDAQ OMX Iceland þann 16. desember 2011 með auðkenninu HAGA. Skráð hlutafé félagsins er 1.171.502.190 hlutir. Hver hlutur er 1 króna að nafnverði. Fjöldi hluthafa í lok febrúar 2016 var 960 og tveir hluthafar áttu þá stærri hlut en 10%. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Kópavogi.
STARFSEMIN
Hagar hafa það að markmiði að starfrækja og þróa leiðandi vörumerki á smásölumarkaði sem standast væntingar viðskiptavina sinna og hafa burði til að vaxa. Markmiðið er einnig að halda einfalldeika í starfsemi allra rekstrareininga sem og að reka hverja einingu sem sjálfstætt og arðbært fyrirtæki með öllum eiginleikum hefðbundins fyrirtækis. Markmið Haga er enn fremur að hámarka virði hverrar rekstrareiningar með aukinni þekkingu á viðskiptum og smásölu.
Innan allra rekstrareininga Haga eru sömu megingildin höfð að leiðarljósi í rekstri og þjónustu. Í þeim er falið grundvallarviðhorf fyrirtækisins til þjónustu við viðskiptavini, framgöngu starfsmanna og ábyrgðar þeirra í starfi.
Hagar eiga tvær af stærstu smásölukeðjum landsins sem reknar eru undir vörumerkjum Bónus og Hagkaups. Bæði eru þetta rótgróin fyrirtæki sem náð hafa sterkri markaðsstöðu á lóngum tíma. Hagar reka einnig fjögur vöruhús sem sinna stöðhlutverki við matvöruverslanirnar, m.a. með innkaupum, birgðahaldi og dreifingu. Vöruhúsin eru Aðfóng, Bananar, Ferskar kjötvörur og Hýsing. Hagar starfrækja auk þess sérvorusvið innan Hagkaups sem og nokkrar sérvoruverslanir með þekktum lífstils- og tiskuvörumerkjum. Sérvoruverslanirnar eru Útilif, Zara, Debenhams, Topshop, Dorothy Perkins, Evans, Karen Millen og Warehouse.
ÁRID SEM VAR AD LÍDA OG FRAMTÍDARHORFUR
Nettó fjárfestingar rekstrarársins námu 2.548 milljónum króna en þar af fjárfesti félagið fyrir 1.371 milljón króna í fasteignaverkefnum. Vinnu lauk við byggingu nýs vöruhúss Banana við Korngarða í Reykjavík og flutti fyrirtækið starfsemi sína í febrúar sl. Auk þess fjárfesti félagið í tveimur fasteignum, við Skipholt í Reykjavík og Túngötu í Reykjanesbæ, þar sem Bónus hefur opnað verslanir. Þá festi félagið kaup á fasteigninni við Smiðjuvelli 32 á Akranesi, þar sem Bónus hefur verslun, í gegnum Gargon ehf.
Á rekstrarárinu voru opnaðar þrjár nýjar Bónus-verslanir. Í ágúst opnaði Bónus verslun í Skipholti og í október við Túngötu í Reykjanesbæ. Það var svo í byrjun febrúar sem Bónus-verslun var opnuð í Vestmannaeyjum en þar leigir Bónus húsnæði undir starfsemi sína. Verslanirnar eru allar glæsilegar og hafa fengið fråbærar móttökur.
Framkvæmdir eru hafnar við minnkun verslunar Hagkaups í Smáralind en í desember sl. skrifaði fyrirtækið undir nýjan leigusamning um 5.600 m² rými til 10 ára. Gert er ráð fyrir að ný og glæsileg verslun verði opnuð í byrjun növember nk. Samið hefur verið til skamms tíma fyrir Debenhams og mun núverandi samningur því renna út í mai 2017.

HAGAR HF.
ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
Verslun Karen Millen var lokað í Smáralind í lok febrúar sl. Tekin hefur verið ákvörðun um lokun verslunar Evans í Smáralind í lok júni.
Þann 21. janúar sl. var kveðinn upp dómur í Hæstarétti í máli Haga gegn íslenska ríkinu. Högum voru dæmdar 245 milljónir króna auk vaxta vegna ólógmætrar gjaldtóku ríkissjóðs af innfluttum landbúnaðarvörum. Eftir dóminn gerði félagjóð krófu á íslenska ríkið um greiðslu 338 milljónar króna til viðbótar, auk vaxta. Hluti þeirrar krófu hefur fengist greiddur, eða 217 milljónir króna, en ágreiningur er um eftirstóðvarnar. Afstaða Haga til þess hvernig fjármununum skyldi varíð hefur ávallt legjóð fyrir; þeim verður skilað til viðskiptavina félagsins í gegnum lægra vöruverð. Bónus og Hagkaup hafa nú þegar boðið innfluttan heilan kjúkling og kjúklingabringur á niðurgreiddu verði og mun félagjó áfram bjóða vörur á lægra verði en ella þar til öllum framangreindum fjármunum hefur verið skilað til viðskiptavina.
Í mars féll úrskurður í dómsmáli í Héraðsdómi Reykjaness þar sem Hagar voru dæmdir til að greiða Norvik hf. skaðabætur vegna tjóns af völdum svonefnds mjólkurverðstríðs á árunum 2005-2006. Skaðabæturnar nema 218,7 milljónum króna, auk vaxta og málskostnaðar. Málinu verður áfrýjað til Hæstaréttar.
HAGAR Í TÖLUM
Rekstrarárið sem var að liða stóðst áætlanir félagsins og var mjög sambærilegt uppgjörinu árið á undan. Fyrsti ársfjörðungur rekstrarársins einkenndist þó af áhrifum verkfalla og kostnaðarauka vegna kjarasamninga. Annar ársfjörðungur var nokkuð betri og jökst hagnaður milli ára umfram áætlanir félagsins. Þriðji og fjörði ársfjörðungur einkenndust af stóðugleika.

Vörusala rekstrarársins nam 78.366 milljónum króna sem er 1,6% veltuaukning milli ára. Til samanburðar var hækkun 12 mánaða meðaltalsvísitölu neysluverðs 1,86% milli rekstrarára en hækkun vísitölunnar án húsnæðis var 0,35%. Framlegðarhlutfallið hækkaði úr 24,0% í 24,4% en hækkun framlegðar í krónum milli ára er 605 milljónir króna. Rekstrarkostnaður hækkar hins vegar um 639 milljónir króna milli rekstrarára, eða um 4,9%. Rekstrarkostnaður hækkar því um 34 milljónir króna umfram framlegðaraukningu á rekstrarárinu. Laun hækkuðu um 7,2% milli ára og annar rekstrarkostnaður um 2,5%. Kostnaðarhlutfallið í heild hækkar úr 16,9% í 17,4%.
Afkoma rekstrarársins fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) nam 5.659 milljónum króna en það jafngildir 7,2% EBITDA-hlutfalli. Á rekstrarárinu 2014/15 nam EBITDA 5.616 milljónum króna og EBITDA-hlutfallið var 7,3%.
Á rekstrarárinu voru gjaldfærðar 413 milljónir króna vegna skaðabóta, vaxta og málskostnaðar sem Hagar hafa verið dæmdir til að greiða Norvik hf. vegna tjóns af völdum svonefnds mjólkurverðstríðs á árunum 2005-2006.
Afskriftir hækka um 3,7% milli ára en heildarafskriftir ársins námu 699 milljónum króna. Fjármagnsliðir lækka um 67% milli ára eða um 98 milljónir króna.
Hagnaður félagsins fyrir skatta var 4.498 milljónir króna og tekjuskattur ársins 902 milljónir króna. Hagnaður tímabilsins eftir skatta er því 3.596 milljónir króna sem er 6,3% lækkun frá fyrra ári.
| 2015/16 | 2014/15 | Mismunur | |
|---|---|---|---|
| 1.3-29.2 | 1.3-28.2 | í % | |
| Vörusala | 78.366 | 77.143 | 1,6% |
| KSV | (59.257) | (58.639) | 1,1% |
| Heildarframlegð | 19.109 | 18.504 | 3,3% |
| Framlegð í % | 24,4% | 24,0% | 0,4% |
| Aðrar tekjur | 206 | 129 | 59,5% |
| Laun og launatengd gjöld | (7.162) | (6.680) | 7,2% |
| Launahlutfall | 9,1% | 8,7% | 0,5% |
| Annar rekstrarkostnaður | (6.494) | (6.337) | 2,5% |
| Kostnaðarhlutfall | 8,3% | 8,2% | 0,1% |
| EBITDA | 5.659 | 5.616 | 0,8% |
| EBITDA% | 7,2% | 7,3% | -0,1% |
| Skaðabætur | (413) | - | - |
| Afskriftir | (699) | (674) | 3,7% |
| EBIT | 4.547 | 4.942 | -8,0% |
| Fjármunatekjur (-gjöld) | (49) | (147) | -66,7% |
| Hagnaður fyrir skatta | 4.498 | 4.795 | -6,2% |
| Tekjuskattur | (902) | (957) | -5,7% |
| Hagnaður tímabilsins | 3.596 | 3.838 | -6,3% |
HAGAR HF. ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
Heildareignir félagsins í lok rekstrarársins námu 29.705 milljónum króna. Fastafjármunir voru 16.684 milljónir króna og veltufjármunir 13.021 milljón króna en þar af eru birgðir 4.756 milljónir króna.
Eigið fé félagsins í lok rekstrarársins var 16.368 milljónir króna og eiginfjárhlutfall 55,1%. Á sama tíma árið á undan var eiginfjárhlutfall félagsins 53,5%. Heildarskuldir félagsins voru 13.337 milljónir króna og þar af langtímaskuldir 4.257 milljónir króna. Nettó vaxtaberandi skuldir félagsins í lok rekstrarársins voru 701 milljón króna en það jafngildir skuldsetningu 0,1 x EBITDA. Til samanburðar voru nettó vaxtaberandi
skuldir 1.640 milljónir króna í lok rekstrarársins 2014/15. Á rekstrarárinu voru greiddar afborganir að fjárhæð 752 milljónir króna inn á langtímalán félagsins.
Handbært fé hækkaði um 462 milljónir króna á rekstrarárinu. Handbært fé frá rekstri var 5.754 milljónir króna, fjárfestingarhreýfingar 2.548 milljónir króna og fjármögnunarhreýfingar 2.744 milljónir króna. Greiddur var arður á árinu að upphæð 1.992 milljónir króna.
Nánari upplysingar um helstu lykiltölur er að finna á bls. 3.
MATVÖRUVERSLANIR
Hagar eiga tvær af stærstu smásölukeðjum landsins, sem reknar eru undir vörumerkjum Bónus og Hagkaups. Bæði eru þetta rótgróin fyrirtæki sem náð hafa sterkri markaðsstöðu á lóngum tíma.
BÓNUS
Allt frá stofnun árið 1989 hefur markmið Bónus sem lágvöruverðsverslunar verið að tryggja neytendum um land allt lægsta mögulega vöruverð. Lykillinn að því hefur verið lágur rekstrarkostnaður, íburður í lágmarki, styttri opnunartími en gengur og gerist, takmarkað vörúruval sem spannar þó allar þarfir heimilisins, stöðugt kostnaðaraðhald og mikill veltuhraði. Sama vöruverð er í verslunum Bónus um land allt sem reynst hefur afar dýrmaett gagnvart neytendum.
Bónus vann að mörgum stórum verkefnum á rekstrarárinu en þar ber helst að nefna opnun þriggja nýrra verslana. Í ágúst opnaði Bónus verslun í Skipholti, aðra í Reykjanesbæ í október og síðast en ekki síst var opnuð verslun nú í febrúar í Vestmannaeyjum. Einnig hefur verið unnið að endurnýjun og endurbótum á eldri verslunum þar sem ferskvörukælar hafa m.a. verið stækkaðir.
Umhverfismál eru ávallt ofarlega í huga stjörnenda Bónus en góður árangur hefur náðst í flokkun og meðferð sorps undanfarin ár. Er stefnan sett á enn betri árangur á nýju rekstrarári.
Stefna Bónus á greinilega upp á pallborðið hjá landsmönnum. Því til staðfestingar var Bónus valið vinsælasta fyrirtæki landsins árið 2016 í könnun Frjálsrar verslunar, þriðja árið í röð, en alls hefur Bónus hlotnast sá heiður fjörtán sinnum.
Bónus rekur 32 verslanir, 20 á höfuðborgarsvæðinu og 12 á

stærstu þéttbýlisstöðum á landsbyggðinni. Stöðugildin eru 394 en fjöldi starfsmanna er 940.
Framkvæmdastjörn
Bónus skipa:
Guðmundur
Marteinsson, framkvæmdastjóri, Erla Magnúsdóttir, fjármálastjóri, og Guðlaugur Gauti Þorgilsson, rekstrarstjóri.
HAGKAUP
Hagkaup er smásöluverslun sem leggur megináherslu á góða þjónustu og að bjóða íslenskum neytendum breitt vörúruval. Það á við um allar daglegar þarfir heimilisins í matvöru, fatnaði, snyrtivöru, heimilisvöru og tómstundavöru þannig að viðskiptavinir geti gert öll sín innkaup í einni ferð. Hagkaup var stofnað árið 1959 og var fyrsti stórmarkaðurinn opnaður í Skeifunni árið 1970.
Á rekstrarárinu hélt áfram uppbygging á sölu á eldgrilluðum kjúklingi í verslunum Hagkaups. Víðskiptavinir hafa tekið þessari nýjung vel enda er kjúklingurinn einstaklega ferskur og safaríkur.
Þá hélt áfram vinna við innleiðingu fyrirtækisins á nýju upplysingakerfi en áætlað er að það verði komið í fulla notkun fyrir næstu jól. Með nýju kerfi skapast ný tækifæri fyrir Hagkaup til betri áherslna í rekstri.
Unnið er að uppfærslu á bakaríum í verslununum í Skeifu og Smáralind en þar munu steinofnar vera í forgrunni. Steinbökuð brauð komu í verslanir á árinu sem var að liða og hefur móttaka þeirra farið fram úr björtustu vonum.
Á árinu lauk einnig undirbúningsvinnu við hönnun nýrrar Hagkaupsverslunar í Smáralind sem verður opnuð í növembernk. Verslunin verður hin glæsilegasta þar sem lögð verður áhersla á ferskvöru í nýrri umgjörð með fjölda nýjunga.
Hagkaup rekur 11 verslanir, þar af sjö á höfuðborgarsvæðinu, og er sama verð í þeim öllum. Hagkaup rekur einnig Störkaup, sem er birgðaverslun fyrir fyrirtæki, mötuneyti, skip, veitingastaði og söluturna. Fjórar verslanir eru opnar allan sölarhringinn.
Í árslok voru starfsmenn fyrirtækisins 838 í 415 stöðugildum.
Framkvæmdastjörn Hagkaups skipa: Gunnar Ingi Sigurðsson,
framkvæmdastjóri, Anna Jóna Aðalsteinsdóttir, fjármálastjóri, Sigurður Hansen, rekstrarstjóri verslana, og Brynjar Helgi Ingólfsson, rekstrarstjóri innkaupa- og markaðssvið.

HAGAR HF. ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
VØRUHÚS
ADFÖNG
Þegar Hagkaup og Bónus ákváðu að koma á fót sameiginlegu innkaupafyrirtæki árið 1993 var fyrirtækið Aðfóng stofnað en fékk það nafn fimm árum síðar. Aðfóng er vöruhús sem sinnir innkaupum, birgðahaldi og dreifingu á almennum þurrvörum sem og kæli- og frystivörum fyrir verslanir Bónus og Hagkaups, auk vöruþróunar eigin merkja í samstarfi við matvörukeðjurnar. Þar ber hæst vörumerkin Himneskt og Heima.
Aðfóng er eitt stærsta og tæknivæddasta vöruhús landsins og þar er lögð mikil áhersla á stærðarhagkvæmni. Nýjasta tækni er nýtt við rekstur vöruhússins hvar sem því verður við komið. Vöruhús Aðfanga er því sem næst pappírslaust og öflug tölvukerfi halda utan um feril vara frá upphafi til enda.
Innkaup Aðfanga felast annars vegar í viðskiptum við innlenda birgja og hins vegar innflutningi eigin vörumerkja. Á rekstrarárinu bættust nokkrir nýir og öflugir erlendir birgjar við flóru na en stefnt er að áframhaldandi vexti í eigin innflutningi fyrirtækisins á næstu árum.
Á rekstrarárinu hóf Aðfóng vinnu við innflutning á áfengi fyrir verslanir ÁTVR. Stefnt er að áframhaldandi uppbýggingu í vöruflokknum á næstu árum en fyrsta varan, Euroshopper-björ, fór í sölu hjá Vinbúðunum þann 1. april sl. Í mai bættust svo við nokkrar tegundir léttvins.
Hjá Aðfóngum starfa 99 manns í um 80 stöðugildum og búa starfsmenn fyrirtækisins yfir langri og dýrmætri reynslu.

Framkvæmdastjörn
Aðfanga skipa:
Lárus Óskarsson,
framkvæmdastjörn,
Hafdís Rósa
Sæmundsdóttir,
fjármálastjörn, og Einar
Þórisson, innkaupastjörn.
BANANAR
Bananar fögnuðu 60 ára afmæli á liðnu ári en fyrirtækið var stofnað 18. júní 1955 og er elsta fyrirtækið í samstæðu Haga. Bananar er stærsti dreifingaraðili á fersku grænmeti og ávöxtum á Íslandi og jafnframt eitt stærsta innflutningsfyrirtæki landsins. Fyrirtækið býður upp á mikið úrval af bæði íslensku og erlendu grænmeti og ávöxtum allan ársins hring og dreifir þeim til viðskiptavina sinna sex daga vikunnar, þar af til beggja matvörukeðja Haga.
Viðskiptavinir Banana eru hátt í 900 talsins. Í gegnum fyrirtækið fara árlega 25 þúsund tonn eða um 80 kiló á hvern landsmann. Bananar hafa viðskiptasambönd út um allan heim og beina því viðskiptum sínum beint til þeirra landa þar sem gæði ávaxta og grænmetis er best hverju sinni.
Bananar fluttu starfsemi sína í nýtt vöruhús við Korngarða 1 í
Reykjavík í febrúar sl. Framundan er því vinna við að nýta þá möguleika sem nýtt vöruhús hefur upp á að bjóða.
Langur starfsaldur er í fyrirtækinu og hefur því skapast mikil reynsla og þekking á viðskiptum með grænmeti og ávexti. Starfsmenn Banana eru 80 talsins í 80 stöðugildum.

Framkvæmdastjörn
Banana skipa: Kjartan
Már Friðsteinsson,
framkvæmdastjörn,
Guðbjörg Helgadóttir,
fjármálastjörn, og Órvar
Karlsson, sölustjörn.
FERSKAR KJÖTVÖRUR
Hjá Ferskum kjötvörum er unnið ferskt kjöt úr nauti, lambi og grís. Kjötvinnslan er við Síðumúla í Reykjavík en einnig reka Ferskar kjötvörur kjöt- og fiskborð í verslunum Hagkaups í Garðabæ og Kringlu. Fagmenn sjá um að öll meðhöndlun sé rétt og örugg og fer öll vinnsla í gegnum nákvæmt rekjanleikakerfi. Ferskar kjötvörur var stofnað 1993 en Hagar keyptu fyrirtækið árið 2005.
Ferskar kjötvörur sjá verslunum Hagkaups og Bónus fyrir kjöt, en selur einnig til fjölmargra veitingahúsa og annarra aðila. Fyrirtækið á 27 vörumerki og eru þau helstu Íslandsnaut, Íslandslamb, Íslandsgrís, Nautaveisla og Nautaat.
Rúmlega 60 manns
starfa hjá Ferskum
kjötvörum í 50
stöðugildum.
Framkvæmdastjörn
Ferskra kjötvara skipa:
Ingibjörn Sigurbergsson,
framkvæmdastjörn, og
Guðbjörg Helgadóttir, fjármálastjörn.

HÝSING
Hýsing er vöruhús fyrir sérvoru og sérhæfir sig í lagerhaldi, afgreiðslu, vörumerkingum, tollafgreiðslu og öðru sem nauðsynlegt er til að gera vöru tilbúna til sölu í verslun. Hýsing er frábrugðið öðrum félögum innan samstæðu Haga að því leyti að fyrirtækið selur ekki vörur. Tekjur Hýsingar byggjast á tvennu, geymslutekjum og seldum handtökum, en ótal handtök eru við allar vörur áður en þær komast í sölu. Það þarf að umpakka, verð- og strikamerkja, setja á herðatré, öryggismerkja, innihaldsmerkja og ýmislegt fleira. Vöruhús Hýsingar við Skútuvog í Reykjavík er eitt hið fullkomnasta sinnar tegundar hér á landi.
Hagkaup er stærsti viðskiptavinur Hýsingar en sérvoruverslanir
HAGAR HF.
ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
Haga og fleiri fyrirtæki nýta sér þjónustuna. Þá hefur viðbót við tólvukerfi Hýsingar gert fyrirtækinu kleift að þjónusta einnig smærri fyrirtæki en áður.
Umhverfismál eru í hávegum hófð hjá Hýsingu en umhverfisvænar rekstrarvörur eru ávallt valdar umfram aðrar vörur. Hlutfall flokkaðs úrgangs til endurvinnslu er 90% en auk umhverfislegs ávinnings eru förgunargjöld lægri en ella vegna þessa. Flokkun fyrirtækisins á pappir til endurvinnslu kom í veg fyrir að 339 tonn af koltvöxiði færu út í andrúmsloftið en það svarar næstum til ársnotkunar 83 fólksbila.
Starfsmenn Hýsingar eru 34 talsins af sex þjóðernum. Flestir koma frá Pöllandi eða 43% og Íslendingar eru um 40%. Aðrir koma frá Ítaliu, Portúgal, Litháen og Vietnam.
Framkvæmdastjórn
Hýsingar skipa:
Guðmundur
Oddgeirsson,
framkvæmdastjóri,
Þórdis Arnardóttir,
rekstrarstjóri, og
Ólína Guðlaugsdóttir,
deildarstjóri.

SÉRVÖRUVERSLANIR
Hagar reka nokkrar sérvoruverslanir með þekktum lífstils- og tiskuvörumerkjum, auk sérvoruhluta Hagkaups. Flestar þeirra eru reknar með sérleyfissamningi og eru í verslunarmiðstöðvum Kringlu og Smáralindar. Markmið allra verslananna er að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu og mæta þörfum þeirra og óskum í hvívetna. Mikil áhersla er því lögð á þjálfun starfsfólks, oft í nánu samstarfi við alþjóðlegu verslunarkeðjurnar sem þær tengjast.
Stjórnendur á sérvorusviði eru: Þrúður Maren Einarsdóttir, fjármálastjóri sérvorusviðs, Ingibjörg Sverrisdóttir, rekstrarstjóri Zara, Hórður Magnússon, rekstrarstjóri Útilífs, Kristín Erla Boland, rekstrarstjóri Debenhams, og Elisabet Inga Marteinsdóttir, rekstrarstjóri tiskuvöruverslana.
ÚTILÍF
Útilíf er öflugt og rótgróið smásólufyrirtæki með íþrótta- og útivistarvörur. Útilífsverslanirnar eru þrjár og allar starfræktar á höfuðborgarsvæðinu, í Kringlunni, Smáralind og Glæsibæ þar sem sú fyrsta var opnuð. Að auki sér Útilíf um rekstrar útsölumarkaðar á Korputorgi. Fyrirtækið var stofnað árið 1974.
Verslanir Útilífs skiptast í íþróttavörudeild, barnadeild, skódeild, útivistardeild, sunddeild, skíða- og snjöbrettadeild, veiðideild

og hjóadeild. Mikil áhersla er lögð á vandað vörurval og bestu mögulegu gæði, en einnig vörur í ýmsum verðflokkum þannig að allir finni eitthvað við sitt hæfi. Útilíf vill veita viðskiptavinum sínum
afburðagöða þjónustu og kapkostar því að í öllum deildum starfi sérfræðingar á viðkomandi sviði.
Á liðnu ári var unnið að breytingum og nútímavæðingu í útliti verslana. Sérdeild fyrir Nike var opnuð í Smáralind og herradeild Nike var opnuð í Kringlu. Útliti allra vegginnréttinga var breytt en einnig var útlit skódeilda tekið í gegni.
Starfsmenn Útilífs eru 77 í 37 stöðugildum.
DEBENHAMS
Debenhams er eina deildaskipta sérvoruverslunin á Íslandi en hún var opnuð í Smáralind árið 2001. Verslunin býður fjölbreytt úrval af dömu- og herrafatnaði, barnafatnaði, undirfótum, skóm, fylgihlutum, heimilisvöru og snyrtivöru. Í versluninni er bæði að finna eigin vörumerki Debenhams og önnur merki.
Á rekstrarárinu var lögð
mikil vinna í að tryggja
rétt vörurval í réttu
magni fyrir íslenskan
markað. Vel tókst til
og mun sú vinna halda
áfram næstu misserin.

Auk þess verður lögð áhersla á aukna þjónustu og betri framstillingar til að viðskiptavinurinn fái allar þarfir sínar uppfylltar.
Hjá Debenhams starfa 60 manns í 34 stöðugildum.
ZARA
Zara er ein stærsta tiskuverslunarkeðja heims og selur fatnað og fylgihluti fyrir dömur, herra og börn. Fyrirtækið leggur mikla áherslu á hönnun eftir nýjustu tiskustraumum, hraða vöruveltu, hagkvæma aðfangakeðju og sanngjarnt verð. Tvær Zara-verslanir eru á Íslandi, önnur í Smáralind sem var opnuð árið 2001 og hin í Kringlu, og hafa þær að mörgu leyti ólikan karakter. Í Kringlu er meiri áhersla lögð á hversdagsfatnað en í Smáralind á beinan tiskufatnað. Grunnurinn að velgengni vörumerkisins Zara felst í því að greina óskir viðskiptavina og bregðast hratt við þeim. Varan er hönnuð í takt við stefnur og strauma í tiskuheiminum og ráða viðtökur viðskiptavina frekari framleiðslu og vöruþrúun. Nákvæmar upplýsingar eru því afar mikilvægar.
Á liðnu ári hóf Zara á Íslandi innleiðingu á RFID (e. Radio
HAGAR HF.
ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
Frequency Identification) sem er rafrænt upplysingakerfi i verslunarstarfsemi. Pessi tækninýjung stydur við stefnuna um að þekkja óskir viðskiptavina og bregðast hratt við þeim. Með innleiðingu á RFID-kerfinu má bæta þjónustuna með vörurvalí sem samræmist sem best væntingum markaðarins, auka gæði við áfyllingu í verslun og bæta upplysingagjóft til viðskiptavina.
Í upphafi rekstrarársins náðust samningar við Inditex og lækkaði verð á öllum vörum verslunarinnar í kjólfarið að meðaltali um 14%. Verðlækkunin mæltist verulega vel fyrir hjá viðskiptavinum.
Starfsmenn Zara eru 65 í 34 stöðugildum.
ADRAR TÍSKUVÖRUVERSLANIR
Hagar eiga sjö tiskuvöruverslanir sem reknar eru undir mismunandi vörumerkjum en öll eru þau rekin með sérleyfis-samningi. Vörumerkin eru fjölbreyt sem gerir fyrirtækinu kleift að ná til ólikra viðskiptavina með mismunandi þarfir. Í árslok voru 56 starfsmenn í 24 stöðugildum hjá tiskuvöruverslunum félagsins.
TOPSHOP
Topshop er leiðandi merki í tiskuheiminum og eru verslanirnar um 450 talsins um allan heim. Tvær verslanir eru á Íslandi, í
Kringlunni og Smáralind, og bjóða þær upp á mikið úrval af hátisku-fatnaði. Bauð verslunin í Kringlunni m.a. upp á glæsilega fatalínu í samstarfi við Adidas á árinu. Topshop hefur

lagt áherslu á samstarf við þekkta einstaklinga og kom fatalína Kendall og Kylie Jenner í verslanir á árinu og gekk hún vel.
DOROTHY PERKINS
Dorothy Perkins er eitt af stærstu tiskuvörumerkjunum í Bretlandi en þar í landi eru um 600 verslanir starfræktar. Dorothy Perkins er einnig þekkt alþjóðlega en yfir 120 verslanir eru á heimsvísu og ein af þeim er í Smáralind. Þar er breitt úrval af fatnaði og fylgihlutum á viðráðanlegu verði fyrir tiskumeðvitaðar konur.
EVANS
Evans er breskt merki og hefur um árabil verið leiðandi í sölú á fatnaði í stærðum 14-32. Evans-verslunin í Smáralind býður upp á gott úrval af fatnaði fyrir konur á öllum aldri. Lögð er áhersla á persónulega þjónustu og notalegt andrúmsloft þar sem konur í stærð 14+ finna vandaðan fatnað fyrir öll tækifæri. Verslun Evans í Smáralind verður lokað í sumar.
WAREHOUSE
Fyrsta Warehouse-verslunin var opnuð árið 1976 í Bretlandi. Ein slík verslun er í Kringlunni og einnig er Warehouse-deild í Debenhams í Smáralind. Uppteknar nútimakonur sem vílja fylgja tiskunni finna þar mikið úrval fatnaðar og fylgihluta. Mikill metnaður er lagður í að mæta þörfum hvers og eins viðskiptavinar.
KAREN MILLEN
Verslanir Karen Millen eru staðsettar um allan heim og eru þekktar fyrir hágæðafatnað fyrir vandláta viðskiptavini. Ein verslun er á Íslandi, í Kringlunni, en verslun fyrirtækisins í Smáralind var lokað í febrúar sl. Mikil áhersla er lögð á hönnun hvers einasta smáatriðis og úrvalsefni. Starfsfólk Karen Millen á Íslandi fær mikla þjálfun til að geta veitt afburðagóða þjónustu.

HAGAR HF. ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
STÆRSTU VERKEFNI ÅRSINS
NÝTT VÕRUHÚS BANANA
Í desember 2013 tilkynntu Hagar að tekin hefði verið ákvörðun um byggingu nýs vöruhúss Banana við Korngarða 1 í Reykjavík. Húsnæði Banana var þá komið til ára sinna og orðið áhentugt fyrir núverandi starfsemi sem og vaxtarmöguleika fyrirtækisins. Strax hófst hönnun við hið nýja vöruhús og hljóðaði kostnaðaráætlun upp á rúman 1,5 milljarð króna.
Framkvæmdir við byggingu hússins hófust í lok árs 2014 og var þá ljóst að þungi fjárfestingarinnar myndi tilheyra rekstrarárinu 2015/16 sem nú var að liða. Framkvæmdir gengu vel og var kostnaður á áætlun.
Starfsemi Banana fluttist í nýja húsnæðið í febrúar 2016 en vöruhúsið er tæpir 5.500 m² að stærð. Öll aðstaða hjá Banönum hefur því tekið miklum og jákvæðum breytingum og veitir húsnæðið fyrirtækinu marga nýja möguleika í starfsemi sinni til framtíðar.
ÞRJÁR NÝJAR BÓNUS-VERSLANIR
Bónus opnaði þrjár nýjar verslanir á rekstrarárinu sem var að liða. Sú fyrsta var opnuð við Skipholt í Reykjavík þann 15. ágúst en Hagar höfðu fest kaup á hluta af fasteigninni við Skipholt 11-13. Húsnæðið er rúmir 1.000 m² að stærð og er verslunin hin glæsilegasta.
Þann 10. október opnaði Bónus verslun við Túngötu í Reykjanesbæ en Hagar festu einnig kaup á þeirri fasteign. Verslunin er í rúmlega 600 m² húsnæði en vöruúrvalið spannar
allar söluhæstu vörur fyrirtækisins. Vöruúrvalið er um 60% af því sem í boði er í stærri verslunum fyrirtækisins.
Síðast en ekki síst opnaði Bónus verslun í Vestmannaeyjum þann 6. febrúar sl. og eru þá verslanir fyrirtækisins orðnar 32 um land allt. Verslunin er um 1.200 m² að stærð og hefur fengið fråbærar viðtökur hjá Eyjamönnum.
INNLEIDING Á RFID HJÁ ZARA
Í október 2015 höf Zara innleiðingu á RFID (e. Radio Frequency Identification) og var fyrst til þess á Íslandi. Þetta kerfi felur í sér byltingu í upplýsingaflæði fyrirtækisins. RFID notar rafsegulsvið til að þekkja og rekja rafræn auðkenni sem geymt er í þjófavörn vörunnar. Þetta gerir starfsfólki kleift að sinna móttóku vörusendingar með meiri hraða, skilvirkni og nákvæmni en áður. Sérsmiðaðar handtölvur lesa rafrænu auðkennin og móttaka vörusendingar er í raun án snertingar. Áfyllingar eru áreiðanlegri og hraðari auk þess sem vörutalningar verða fljótlegri og nákvæmari. Öll birgðastjörnun verður öruggari og síðast en ekki síst er hægt að þjónusta viðskiptavininn mun betur en áður. Starfsmaður getur t.d. með einföldum hætti fundið út hvort vara sé til í búðinni með notkun myndavélar í gegnum iPod.
Tækninýjungin einfaldar svörun við hröðum breytingum eftirspurnar markaðarins og viðbrögðum við tískustraumum. Með innleiðingu á RFID hefur aðfangakeðjan orðið skilvirkari, þjónustan betri og vöruúrvalið í samræmi við óskir markaðarins.

HAGAR HF. ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
HLUTHAFAUPPLYSINGAR
HLUTABRÉFIN
Viðskipti með hlutabréf Haga á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hófust þann 16. desember 2011. Útgefið hlutafé í Högum nemur 1.171.502.190 krónum og er hver hlutur 1 króna að nafnverði. Félagið á engin bréf í sjálfu sér. Auðkenni félagsins er HAGA.
Í lok rekstrarársins, þann 29. febrúar 2016, stóð hlutabréfaverð Haga í 46,9 kr. á hlut, samanborið við 44,1 kr. á hlut í lok febrúar 2015, og hækkuðu bréf félagsins því um 6,3% á síðastliðnu rekstrarári. Verð í lok skráningardags þann 16. desember 2011 var 15,95 kr. á hlut.
HLUTHAFAR
Samkvæmt hlutaskrá félagsins voru hluthafar 960 talsins í lok rekstrarársins, samanborið við 1.124 á sama tíma í fyrra. Stærsti einstaki hluthafinn er Gildi – lífeyrissjóður með 11,36% hlut. Lífeyrissjóðir starfsmanna ríkisins eiga óbeint 12,19% í félaginu en þeir samanstanda af A-, B- og S-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóði hjúkrunarfræðinga. 20 stærstu hluthafar félagsins eiga samtals 75,12% hlut en sömu hluthafar áttu samtals 73,41% í lok síðasta árs. 20 stærstu hluthafernir í lok rekstrarársins 2014/15 áttu 74,42% hlut.
ÞRÓUN HLUTABRÉFAVERDS
fró 16. desember 2011

Listann má sjá hér að neðan:
Ekki urðu stórar breytingar á hluthafehóp félagsins á rekstrarárinu sem var að liða. Mesta breytingin milli ára er hjá Júpiter rekstrarfélagi hf. (Júpiter – Innlend hlutabréf) en það
| Hluthafi | fjöldi hluta 29.02.2016 | % | fjöldi hluta 28.02.2015 | % | |
|---|---|---|---|---|---|
| 1 | Gildi – lífeyrissjóður | 133.064.721 | 11,36% | 133.312.721 | 11,38% |
| 2 | Stefnir – ÍS 15 | 111.956.848 | 9,56% | 97.716.485 | 8,34% |
| 3 | Lífeyrissj. starfsmanna ríkisins – A-deild | 100.100.000 | 8,54% | 102.510.000 | 8,75% |
| 4 | Lífeyrissjóður verslunarmanna | 95.851.852 | 8,18% | 95.851.852 | 8,18% |
| 5 | Stapi lífeyrissjóður | 61.719.634 | 5,27% | 50.869.634 | 4,34% |
| 6 | Festa – lífeyrissjóður | 39.812.839 | 3,40% | 39.550.127 | 3,38% |
| 7 | Lífeyrissj. starfsmanna ríkisins – B-deild | 36.465.000 | 3,11% | 43.069.500 | 3,68% |
| 8 | Sameinaði lífeyrissjóðurinn | 31.197.423 | 2,66% | 25.965.746 | 2,22% |
| 9 | Stafir lífeyrissjóður | 28.766.554 | 2,46% | 26.390.641 | 2,25% |
| 10 | Arion banki hf. | 27.522.100 | 2,35% | 38.607.172 | 3,30% |
| 11 | Söfnunarsjóður lífeyrísréttinda | 27.440.975 | 2,34% | 14.837.965 | 1,27% |
| 12 | Íslandsbanki hf. | 26.155.708 | 2,23% | 12.022.949 | 1,03% |
| 13 | Landsbréf – Úrvalsbréf | 23.760.936 | 2,03% | 18.144.210 | 1,55% |
| 14 | IS Hlutabréfasjóðurinn | 23.674.867 | 2,02% | 32.847.906 | 2,80% |
| 15 | Júpiter – Innlend hlutabréf | 22.846.432 | 1,95% | 38.673.307 | 3,30% |
| 16 | Vátryggingafélag Íslands hf. | 20.524.650 | 1,75% | 11.611.111 | 0,99% |
| 17 | Virðing safnreikningur | 19.078.473 | 1,63% | 19.724.639 | 1,68% |
| 18 | Fagfjárfestasjóðurinn IHF | 18.729.426 | 1,60% | 10.182.971 | 0,87% |
| 19 | Kvika banki hf. | 15.858.799 | 1,35% | 16.992.323 | 1,45% |
| 20 | Stefnir – ÍS 5 | 15.616.074 | 1,33% | 31.053.252 | 2,65% |
| 20 stærstu hluthafar samtals | 880.143.311 | 75,12% | 859.934.511 | 73,41% | |
| 940 aðrir hluthafar samtals | 291.358.879 | 24,87% | 311.567.679 | 26,59% | |
| Virkir hlutir samtals | 1.171.502.190 | 100,00% | 1.171.502.190 | 100,00% | |
| Hagar hf. – eigin bréf | 0 | 0,00% | 0 | 0,00% | |
| Útgefnir hlutir samtals | 1.171.502.190 | 100,00% | 1.171.502.190 | 100,00% |
HAGAR HF.
ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
minnkaði hlut sinn um 15,8 milljónir og á nú 1,95% í félaginu en átti 3,3% fyrir ári. Stefnir – ÍS 5 minnkaði einnig hlut sinn, eða um 15,4 milljónir, og á nú 1,33% í félaginu. Stefnir – ÍS 15 og Íslandsbanki juku báðir nokkuð við sinn hlut, um 14,2 milljónir hluta hvor aðili.
Eins og áður segir voru hluthafar í árslok 960 talsins en þeim má skipta í nokkra flokka. 730 einstaklingar eiga hlut í félaginu, samtals um 6,3% af heildarhlutafé, en á sama tíma á fyrra ári voru 884 einstaklingar hluthafar í félaginu með um 7,5%. 36 lífeyrissjóðir eiga 52,9% hlut í félaginu en á fyrra ári áttu 47 lífeyrissjóðir 53,0% hlut í því. Aðrir fjárfestar eru 194 talsins og eiga 40,8% hlut. Á fyrra ári voru aðrir fjárfestar 193 talsins með 39,5% hlut.
| Flokkur | Fjöldi hluta | % | Fj. hluthafa | % |
|---|---|---|---|---|
| Einstaklingar | 73.929.653 | 6,3% | 730 | 76,0% |
| Aðrir fjárfestar | 478.268.959 | 40,8% | 194 | 20,2% |
| Lífeyrissjóðir | 619.303.578 | 52,9% | 36 | 3,8% |
| Eigin bréf | 0 | 0,0% | 0 | 0,0% |
| Hlutafé samtals | 1.171.502.190 | 100,0% | 960 | 100,0% |
Í næstu töflu hér á eftir má sjá dreifingu hluta í félaginu í árslok. Flestir hluthafar, 515 talsins, eiga 10.000-99.999 hluti eða 1,7% hlutafjár. 19 hluthafar eiga 47,7% hlutafjár og 3 stærstu hluthafarnir, með yfir 100.000.000 hluti, eiga 29,5% í félaginu.
| Fj. hluta | Fj. hluthafa | % | Fj. hluta | % |
|---|---|---|---|---|
| 1-9.999 | 148 | 15,4% | 756.515 | 0,1% |
| 10.000-99.999 | 515 | 53,6% | 19.621.279 | 1,7% |
| 100.000-499.999 | 181 | 18,9% | 33.240.476 | 2,8% |
| 500.000-999.999 | 36 | 3,8% | 23.335.382 | 2,0% |
| 1.000.000-4.999.999 | 44 | 4,6% | 88.490.747 | 7,6% |
| 5.000.000-9.999.999 | 14 | 1,5% | 102.165.040 | 8,7% |
| 10.000.000-99.999.999 | 19 | 2,0% | 558.771.282 | 47,7% |
| >100.000.000 | 3 | 0,3% | 345.121.569 | 29,5% |
| 960 | 100% | 1.171.502.190 | 100% |
ADALFUNDUR
Aðalfundur Haga hf. árið 2016 verður haldinn þann 3. júni nk. og hefst hann kl. 09:00. Fundurinn verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík. Dagskrá fundarins og tillógur stjórnar hafa þegar verið auglýstar en niðurstöður fundarins verða birtar í Kauphöll og á vefsíðu félagsins strax að honum loknum.
ARDGREIDSLUSTEFNA
Stjórn Haga hefur mótáð arðgreiðslustefnu félagsins en hana má sjá í heild sinni á bls. 30.
Stjórn Haga mun leggja til við aðalfund félagsins að greiddur verði arður til hluthafa vegna reikningsársins 2015/16 sem nemur 1,7 krónu á hlut, eins og fram kemur í ársreikningi félagsins. Heildararðgreiðslan mun því nema um 1.992 milljónum króna, eða 56,7% af hagnaði nýliðins rekstrarárs.
FJÁRHAGSDAGATAL
Eftirfarandi fjárhagsdagatal fyrir rekstrarárið 1. mars 2016 til 28. febrúar 2017 hefur verið samþykkt af stjórn félagsins:
| Timabil | Birtingardagur |
|---|---|
| 1. ársfjörðungur | 29.06.2016 |
| 2. ársfjörðungur | 27.10.2016 |
| 3. ársfjörðungur | 12.01.2017 |
| 4. ársfjörðungur | 15.05.2017 |
| Aðalfundur 2017 | 07.06.2017 |

Próun hlutabréfaverðs
HAGAR HF.
ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
EBIDTA






milljönir kröna
HAGAR HF.
ÅRSSKYRSLA 2015-2016
STJÓRNARHÁTTAYFIRLYSING HAGA HF.
HLUTAFÉLAGID HAGAR HF.
Stjórnarhættir Haga hf. eru markaðir af lögum nr. 2/1995 um hlutafélög, sambykktum félagsins og starfsreglum stjórnar. Í sambykktum er kveðið á um tilgang félagsins í kafla 1, hlutafé í kafla 2, hluthafafundi í kafla 3, um stjórn og forstjóra í kafla 4 og 5 og um reikningshald og endurskoðun í kafla 6. Gildandi starfsreglur, sem voru sambykktar af stjórn 15. apríl 2016, eru settar skv. 5. mgr. 70. gr. laga um hlutafélög og eru sambykktum félagsins til fyllingar, samanber grein 4.20 í sambykktum. Gildandi síðareglur, sem taka til allra starfsmanna Haga hf. og dótturfélaga þess, hafa einnig áhrif á stjórnarhætti félagsins, en þær voru sambykktar af stjórn Haga hf. þann 29. apríl 2015. Gildandi starfskjarastefna Haga hf. var staðfest á aðalfundi þess 4. júní 2015, en hún nær til allra helstu þátta í starfs- og launakjórum stjórnarmanna félagsins, forstjóra og annarra æðstu stjórnenda samstæðunnar. Endurskoðuð starfskjarastefna verður lögð fyrir næsta aðalfund félagsins þann 3. júní 2016.
Stjórn Haga hf. telur stjórnarhætti félagsins vera í samræmi við leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja, 5. útgáfu 2015, gefnum út af Viðskiptaráði Íslands, NASDAQ OMX Iceland hf. og Samtókum atvinnulifsins að öllu leyti nema hvað varðar neðangreinda þætti:
- Stjórn félagsins hefur ekki skipað tilnefningarnefnd. Stjórn hefur hingað til sinnt þeim verkefnum sem tilnefningarnefnd myndi annars sinna, fyrir utan að tilnefna menn til stjórnarsetu. Er það mat stjórnar að það fyrirkomulag hafi gefist vel. Stjórn er þó með það til skoðunar hvort rétt sé að skipað tilnefningarnefnd og hvaða útfærsla væri þá ákjósanleg.
Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja, 4. útgáfu 2012, má finna á vefsíðu Viðskiptaráðs Íslands, www.vi.is.
Hagar hf. birta reglur og annað efni sem leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja gera ráð fyrir að félög birti á vefsíðu sinni á sérstöku svæði fyrir fjárfesta á vef félagsins, www.hagar.is. Þar má meðal annars finna starfsreglur stjórnar, starfskjarastefnu og arðgreiðslustefnu. Yfirlýsing þessi er einnig aðgengileg á vef félagsins auk þess sem hún er birt í styttri útgáfu í skýrslu stjórnar í ársreikningi og í sérstökum kafla í ársskýrslu félagsins.
Æðsta vald í málefnum félagsins er í höndum hluthafa þess, sem hittast á hluthafafundum að minnsta kosti einu sinni á ári. Hlutabréf félagsins eru rafræn og skráð hjá Nasdaq verðbréfamiðstöð, sem jafnframt hýsir hlutaskrána. Hlutaskráin er aðgengileg hluthófum á skrifstofu félagsins. Fundargerðir hluthafafunda, sem haldnir hafa verið eftir að hlutir félagsins voru teknir til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland, eru aðgengilegar á vefsíðu félagsins innan sjö daga frá hluthafafundi.
Gildi, síðareglur, jafnréttisstefna og samfélagsleg ábyrgð
Hagar hf. og dótturfélög deila sjö gildum sem höfð eru að leiðarljósi í starfseminni. Gildin lúta að þjónustu við viðskiptavini, hegðun starfsmanna og ábyrgð þeirra í starfi. Þessi gildi eru talin upp hér að neðan.
Stjórn Haga hf. hefur sett félaginu og dótturfélögum síðareglur sem sambykktar voru á stjórnarfundi 29. apríl 2015. Síðareglurnar eru aðgengilegar á vef félagsins, www.hagar.is.
Þann 15. maí 2014 sambykkti stjórn félagsins jafnréttisstefnu
| Ábyrgð | Það veltur á okkur fyrst og fremst með hvaða hugarfari við göngum til verka og hvaða árangri við náum. |
|---|---|
| Við erum dugleg | Við vinnum vel og hlífum okkur ekki, af því að við vitum að pannig tekst okkur að bæta hag viðskiptavina okkar. |
| Heiðarleiki | Við gerum alltaf rétt og segjum alltaf satt, af því að við viljum ekki bregðast því trausti sem samstarfsmenn og viðskiptavinir sýna okkur. |
| Hreinskilni | Við liggjum ekki á skoðun okkar og okkur þykir sjálfsagt og eðlilegt að segja það sem okkur finnst. |
| Ekkert bruðl | Við berum virðingu fyrir þeim verðmætum sem okkur er treyst fyrir. |
| Enginn leikmaður er mikilvægari en liðið | Samvinna stuðlar að betri heildarárangri. |
| Gerum betur í dag en í gær | Við gerum betur í dag en í gær og erum stöðugt að leita að nýjum leiðum til að skila meiri árangri í starfi, bæta verslanir okkar og þjóna viðskiptavinum. |
HAGAR HF.
ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
Haga hf. en markmið jafnréttisstefnunnar er að stuðla að jafnri stöðu kynjanna innan fyrirtækisins og jöfnum tækifærum einstaklinga á sem flestum sviðum. Jafnréttisstefnuna má sjá í heild sinni á vef félagsins, www.hagar.is.
Hagar hafa alla tíð lagt mikinn metnað í að sinna vel samfélagslegum skyldum, bæði gagnvart starfsfólki sínu, viðskiptavinum, samstarfsaðilum og öðrum hagsmunaaðilum. Hagar er stórt félag og því mikilvægt að vanda sig vel því ábyrgð þess nær til alls samfélagsins og umhverfisins. Félagið vill láta gott af sér leiða og hefur lagt samfélaginu lið með ýmsum hætti í gegnum tíðina. Hagar eru aðilar að Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð.
Stjórn
Stjórn félagsins fer með æðsta vald í málefnum félagsins á milli hluthafafunda og ber meginábyrgð á rektri þess. Stjórn var kjörin á aðalfundi 4. júní 2015. Stjórnina skipa Kristín Friðgeirsdóttir (formaður), Erna Gísladóttir, Salvör Nordal, Sigurður Arnar Sigurðsson (varaformaður) og Stefán Árni Auðólfsson. Stjórnarmenn hafa lagt fram persónulegar upplýsingar svo sem um trúnaðarstörf fyrir aðra aðila, stjórnarsetu í öðrum félögum og möguleg hagsmunatengsl til að auðvelda mat á hæfi þeirra. Allir stjórnarmenn teljast vera óháðir félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthófum þess. Samsetning stjórnar uppfyllir skilyrði hlutafélagalaga um kynjakvóta sem tóku gildi 1. september 2013. Nánari upplýsingar um stjórn félagsins eru aftar í yfirlysingu þessari.
Stjórn félagsins hefur sett sér sérstakar starfsreglur sem eru yfirfarnar árlega og voru gildandi starfsreglur samþykktar af stjórn 15. apríl 2016. Í starfsreglunum er meðal annars kveðið á um stórf stjórnarinnar, ábyrgð hennar og verkaskiptingu. Sérstaklega er fjallað um skyldur formanns stjórnar í reglunum, en þar er hvorki getið um að stjórn útbúi sérstaka starfslysingu fyrir formann né aðra stjórnarmenn. Samkvæmt starfsreglunum kýs stjórn sér formann og varaformann á fyrsta fundi. Ekki er kjörö til annarra embætta. Samkvæmt starfsreglunum ber stjórn að hittast a.m.k. einu sinni á ári án formanns til að meta frammistóðu hans. Henni ber einnig að meta árlega sín eigin stórf, stórf forstjóra og undirnefnda. Stjórn hefur metið stórf sín, stórf formanns og forstjóra fyrir starfsárið 2015-2016. Árangursmat stjórnar (sjálfsmatíð) verður lagt til grundvallar til að bæta stórf stjórnar enn frekar á komandi starfsári en eftirfarandi atriði voru tekin til umræðu við gerð árangursmatsins: Hlutverk og ábyrgðarsvið stjórnar, verklag stjórnar, upplýsingag jóf og stjórnarfundir. Við mat á stórfum formanns og forstjóra var stjórn sammála um að stórf þeirra væru til fyrirmyndar og í samræmi við þau lög og reglur sem fyrir liggja. Hvorki stjórnarmenn né forstjóri mega taka þátt í ákvörðunum þar sem þeir sjálfir hafa verulegra hagsmuna að gæta.
Stjórnarfundir eru að jafnaði haldnir á aðalskrifstofu Haga hf., mánaðarlega hið minnsta. Í nokkrum tilfellum árlega er stjórnarfundur haldinn hjá dótturfélagi innan samstæðunnar. Árlega er samþykkt fundaáætlun ár fram í tímann. Fundina sitja, auk stjórnarmanna, forstjóri og fjármálastjóri félagsins. Einfaldur meirihluti stjórnarmanna ræður kjör í stjórnarfundum. Séu atkvæði jófn skal atkvæði formanns ráða. Fundargerðir stjórnarfunda ritar fjármálastjóri. Fundargerðir eru sendar stjórnarmönnum með tólvupósti innan nokkurra daga frá fundi og eru þær staðfestar á næsta stjórnarfundi á eftir. Starfsárið 2015-2016 voru haldnir 14 stjórnarfundir og var meirihluti stjórnar mættur í öllum tilfellum. Auk þess voru haldnir 2 vinnufundir stjórnar. Hluti stjórnarmanna var í nokkrum tilvikum viðstaddur fund í gegnum fjarskiptabúnað.
Fyrirkomulag samskipta hluthafa og stjórnar
Bein samskipti hluthafa við stjórn skulu vera við formann stjórnar. Stjórn félagsins skal upplýst um tillögur, spurningar eða athugasemdir hluthafa utan hluthafafunda til stjórnar og stjórn félagsins skal hafa yfirumsjón með viðbrögðum félagsins við þeim. Hluthafar geta komið tillögum, fyrirspurnum og athugasemdum á framfæri við stjórn félagsins í gegnum netfangið stjó[email protected]. Allir stjórnarmenn munu sjálfkrafa fá afrit af tólvupóstum sem berast á netfang stjórnar.
Undirnefndir stjórnar
Stjórn Haga hf. hefur skipað tvær undirnefndir stjórnar, endurskoðunarnefnd og starfskjaranefnd. Nefndarmenn eru þrír í hvorri nefnd og þurfa a.m.k. tveir þeirra að vera óháðir félaginu og stjórnendum þess.
Hlutverk endurskoðunarnefndar er m.a. að hafa eftirlit með vinnuferli við gerð reikningsskila. Nefndinni ber að fara yfir fjárhagslegar upplýsingar og fyrirkomulag upplýsingag jafar stjórnenda til stjórnar félagsins. Endurskoðunarnefnd skal staðreyna að þær upplýsingar sem stjórn í fær um rektur og stóðu félagsins séu áreiðanlegar og gefi sem gleggsta mynd af stóðu þess á hverjum tíma. Endurskoðunarnefnd skal enn fremur yfirfara stjórnarháttayfirlysingu þessa. Endurskoðunarnefnd skal skila skýrslu um stórf sín til stjórnar árlega.
Starfskjaranefnd annast það hlutverk stjórnar að undirbúa tillögu að starfskjarastefnu félagsins, tillögu til hluthafafundar um starfskjór stjórnarmanna og framkvæmd starfssamninga við forstjóra og aðra þá starfsmenn er heyra undir stjórn félagsins. Starfskjaranefnd skal skila skýrslu um stórf sín til stjórnar árlega.
Endurskoðunarnefndina skipa nú Erna Gísladóttir, stjórnarmaður í Högum hf., Salvör Nordal, stjórnarmaður í Högum hf., og Sigrún K. Sigurjónsdóttir, viðskiptafræðingur og sérfræðingur í reikningshaldi og fjármálum, sem er formaður nefndarinnar. Starfskjaranefnd skipa nú Kristín Friðgeirsdóttir, stjórnarformaður í Högum hf., Stefán Árni Auðólfsson, stjórnarmaður í Högum hf. og Sigurður Arnar Sigurðsson, stjórnarmaður í Högum hf. Kristín er formaður nefndarinnar. Nefndarmenn endurskoðunarnefndar og starfskjaranefndar eru allir óháðir endurskoðendum Haga hf., daglegum stjórnendum félagsins og stórum hluthófum þess.
Undirnefndir stjórnar hafa sett sér starfsreglur sem skulu yfirfarnar árlega og samþykktar af stjórn. Núgildandi starfsreglur endurskoðunarnefndar voru samþykktar á stjórnarfundi félagsins þann 15. apríl 2016. Núgildandi starfsreglur starfskjaranefndar voru einnig samþykktar á stjórnarfundi félagsins þann 15. apríl 2016.
Starfsárið 2015-2016 hélt endurskoðunarnefnd sex fundi og mættu allir nefndarmenn á alla fundina. Starfskjaranefnd hélt
HAGAR HF. ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
VELTUHRADI FJÄRMUNA





HAGAR HF
ÅRSSKYRSLA 2015-2016
tíu fundi og mættu allir nefndarmenn á alla fundina eða tóku þátt í gegnum fjarskiptabúnað, nema á tvo fundi þar sem einn nefndarmaður var fjarverandi.
Starfsreglur undirnefnda stjórnar eru aðgengilegar á vef félagsins, www.hagar.is.
Forstjóri
Forstjóri er ráðinn af stjórn og ber ábyrgð á daglegum rekstri félagsins í samræmi við stefnu og fyrirmæli stjórnar, lög, sambykktir félagsins og starfsreglur stjórnar. Starfslýsing forstjóra kemur fram í ráðningarsamningi hans.
Forstjóri skal sjá um að bókhald félagsins sé fært í samræmi við lög og venjur og fjárreiður þess séu með tryggum hætti. Forstjóri kemur fram fyrir hónd félagsins í öllum málum sem varða venjulegan rekstur.
Forstjóri Haga hf. er Finnur Árnason. Staðgengill forstjóra er Guðrún Eva Gunnarsdóttir, fjármálastjóri Haga hf. Nánari upplýsingar um forstjóra eru aftar í yfirlýsingu þessari.
Innra eftirlit og áhættustýring
Félagið kappkostar að hafa fullnægjandi innra eftirlit á hinum ýmsu sviðum. Innra eftirlit Haga hf. felst í eftirliti með starfsemi félagsins í því skyni að fyrirbyggja og greina hugsanleg mistök og sviksemi birgja, starfsmanna og
viðskiptavina félagsins. Félagið hefur lagt áherslu á að efla eftirlit og auka öryggisráðstafanir. Hjá Högum hf. er m.a. í þessu skyni starfrækt sérstök öryggisdeild sem hefur á að skipa sérhæfðu starfsfólki í eftirliti með öllu sem viðkemur rekstri verslana félagsins. Einnig er starfandi á aðalskrifstofu Haga hf. starfsmaður sem hefur innra eftirlit að sínu aðalstarfi og heyrir hann undir fjármálastjóra félagsins. Hlutverk hans og öryggisdeildar Haga hf. er að hafa eftirlit með því að viðeigandi verklagsreglum sé fylgt í daglegum rekstri félagsins. Í því skyni er m.a. beitt sérhæfðum upplýsingakerfum. Stjórn Haga hf. hefur falið endurskoðunarnefnd að hafa vakandi auga með fyrirkomulagi og virkni innra eftirlits.
Ytri endurskoðun
Endurskoðendur félagsins eru kosnir til eins árs í senn á aðalfundi. Endurskoðendur félagsins eða aðilar þeim tengdir mega ekki eiga hlutabréf í því. Endurskoðendur skulu endurskoða bókhald félagsins á grundvelli alþjóðlegra reikningsskilastaðla. Þeir gera ýmsar kannanir á bókhaldi félagsins og hafa ávallt óhindraðan aðgang að bókhaldi og öllum gögnum félagsins. Stjórn félagsins fær árlega í hendur sérstaka endurskoðunarskýrslu frá endurskoðendum þess þar sem fram koma helstu athugasemdir þeirra við bókhaldið.
Endurskoðandi Haga hf. er KPMG ehf. og hefur Símon Á. Gunnarsson séð um endurskoðunina frá árinu 2011.
UPPLÝSINGAR UM STJÓRNARMENN, FORSTJÓRA OG HELSTU LYKILSTJÓRNENDUR
| Nofn | Kristín Friðgeirsdóttir |
|---|---|
| Fæðingardagur | 9. ágúst 1971. |
| Starfsstöð | Hagar hf., Hagasmári 1, 201 Kópavogur. |
| Menntun | Ph.D. í rekstrarverkfræði frá Stanford University 2002, M.Sc. í rekstrar- og fjármálaverkfræði frá Stanford University 1997, B.Sc. í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands 1995. |
| Fyrst kjörn | 11. mai 2011. |
| Stjórnarseta | Seta í stjórnum eftirtalinna félaga: Tryggingamiðstöðin hf., Distica hf., Háskólaráð Háskólans í Reykjavík ehf. |
| Kristín hefur ekki setið í stjórn annarra félaga síðustu fimm ár. | |
| Starfsreynsla | Kristín kennir við London Business School og stundar ráðgjöf, rannsóknir og kennslu á sviði ákværðanatöku, áhættustýringar, verðlagningar og tekjustýringar. Hún hefur starfað sem ráðgjafi hjá McKinsey, Intel, AMD, Yahoo og öðrum internet- og fjármálafyrirtækjum og kennir stjórnendum erlendra fyrirtækja ákværðanatöku, s.s. Mars, Lufthansa, Oman Oil og Lloyds. |
| Hlutabréfaeign | Hvorki Kristín né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. |

HAGAR HF.
ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
24
HAGAR HF.
ÅRSSKYRSLA 2015-2016
Nafn
Erna Gisladóttir
Fæðingardagur
5. mai 1968.
Starfsstöð
Hagar hf., Hagasmári 1, 201 Kópavogur.
Menntun
MBA frá IESE Barcelona 2004, B.Sc. í hagfræði frá Háskóla Íslands 1991.
Fyrst kjörin
1. mars 2010.
Stjórnarseta
Seta í stjórnum eftirtalinna félaga (og framkvæmdastjórn ef tekið fram): EGG ehf. (framkvæmdastjóri), EGG fasteignir ehf. (varamaður), Eldhúsvörur ehf. (stjórnarformaður), Hregg ehf. (varamaður), BL ehf. (framkvæmdastjórn), BLIH eignarhalld hf. (stjórnarformaður), SF 1 slhf. (stjórnarformaður), SF1 GP ehf. (stjórnarformaður), Sjövá-Almennar tryggingar hf. (stjórnarformaður).
Fyrrum seta í stjórnum annarra eftirtalinna félaga (og framkvæmdastjórn ef tekið fram) og stofnana á síðustu fimm árum: Betri bílar ehf. (stjórnarformaður), Ingvar Helgason ehf. (stjórnarformaður), THOR Data Center ehf., Bankaráð Seðlabanka Íslands, Saltco ehf., Sjövá-Almennar líftryggingar hf. (stjórnarformaður).
Starfsreynsla
Erna er forstjóri og eigandi BL ehf. Erna er ræðismaður Suður-Kóreu á Íslandi. Erna var forstjóri Bífreiða & landbúnaðarvéla hf. 2003-2008 og einn af eigendum þess félags, en hún var framkvæmdastjóri hjá B&L 1991-2003.
Hlutabréfaeign
Erna á engin hlutabréf í Högum hf. beint. Hún er fjárhagslega tengd Sjövá-Almennum tryggingum hf. sem eiga 6.888.889 hluti í Högum hf.

Nafn
Salvör Nordal
Fæðingardagur
21. nóvember 1962.
Starfsstöð
Hagar hf., Hagasmári 1, 201 Kópavogur.
Menntun
Ph.D. í heimspeki frá Háskólanum í Calgary 2014, M.Phil í Social Justice frá Háskólanum í Stirling 1992, B.A. í heimspeki frá Háskóla Íslands 1989.
Fyrst kjörin
5. júní 2014.
Stjórnarseta
Seta í stjórnum eftirtalinna félaga (og framkvæmdastjórn ef tekið fram): Hugljómun ehf. (varamaður og framkvæmdastjórn).
Fyrrum seta í stjórnum annarra eftirtalinna félaga (og framkvæmdastjórn ef tekið fram) á síðustu fimm árum: Salvör sat í stjórn Samtaka fjárfesta, nú Samtök sparífjáreigenda, á árunum 2007-2008 og aftur 2010-2012.
Starfsreynsla
Salvör er forstöðumaður Síðfræðistofnunar Háskóla Íslands og hefur sinnt því starfi frá árinu 2001. Salvör hefur starfað sem háskólakennari frá árinu 1998, var í vinnuhópi um síðferði og starfshætti í tengslum við Rannsóknarnefnd Alþingis um fall bankanna, formaður Stjórnlagaráðs 2011, framkvæmdastjóri Íslenska dansflokksins 1989-1994 og framkvæmdastjóri Listahátiðar 1986. Auk þess hefur Salvör setið í Fjölmiðlane find frá árinu 2011 og sinnt margs konar fjölmiðla- og trúnaðarstörfum. Salvör situr í stjórn sjóðs Samtaka sparífjáreigenda fyrir hönd samtakanna.
Hlutabréfaeign
Hvorki Salvör né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf.

Nofn Sigurður Arnar Sigurðsson
Fæðingardagur 9. janúar 1964.
Starfsstöð Hagar hf., Hagasmári 1, 201 Kópavogur.
Menntun Cand. oecon. frá Háskóla Íslands 1991.
Fyrst kjörinn 5. júní 2014.
Stjórnarseta Seta í stjórnum eftirtalinna félaga (og framkvæmdastjórn ef tekið fram): CIBUS ehf. (framkvæmdastjórn), Framsýn ehf. (framkvæmdastjórn), Metex ehf.
Fyrrum seta í stjórnum eftirtalinna félaga á síðustu fimm árum: Steinull hf. (stjórnarformaður).
Starfsreynsla Sigurður Arnar er forstjóri eigin fyrirtækis sem sinnir ráðgjafa- og fjárfestingastarfsemi. Sigurður Arnar var áður forstjóri Húsamiðjunnar 2010-2013, forstjóri Kaupáss 2004-2006, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Byko 2000-2004 og framkvæmdastjóri Elko 1997-2000. Á árunum 1993-1996 var Sigurður Arnar eigandi og framkvæmdastjóri fyrirtækis í matvælaiðnaði og 1990-1993 starfaði hann við endurskoðun hjá Arthur Andersen og KPMG ehf.
Hlutabréfaeign Hvorki Sigurður Arnar né aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf.

Nofn Stefán Árni Auðólfsson
Fæðingardagur 21. júli 1972.
Starfsstöð Hagar hf., Hagasmári 1, 201 Kópavogur.
Menntun Lögfræðingur (Cand. jur) frá Háskóla Íslands 1999 og framhalds-menntun (LL.M.) frá Háskólánum í Kent í Bretlandi 2003. Réttindi sem héraðsdómslögmaður 2000 og próf í verðbréfaviðskiptum 2007.
Fyrst kjörinn 7. júní 2013.
Stjórnarseta Seta í stjórnum eftirtalinna félaga: Eik fasteignafélag hf. (stjórnarformaður), Hváll ehf. (stjórnarformaður), Egla hf., Síminn hf., Cambridge Plaza Venture Company ehf., Cambridge Plaza Port Company ehf., Campbridge Plaza Hotel Company ehf., BioStem Iceland ehf.
Fyrrum seta í stjórnum annarra eftirtalinna félaga á síðustu fimm árum: GGX ehf. (varamaður), Kogn ehf., Rekstrarfélag Eikar ehf. (stjórnarformaður), EF1 hf. (stjórnarformaður), Skeifan 8 ehf., Ingólfsstræti 1a ehf., Suðurlandsbraut 20 ehf., Klapparstígur 27 ehf., Skjárinn ehf.
Starfsreynsla Stefán Árni starfar sem lögmaður hjá Lögmönnum Bárugötu slf. Stefán Árni hefur áður sinnt störfum hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins 2005-2011, á nefndasviði Alþingis 2003-2005, á Fortis lögmannsstofu 1999-2005 og Eignamiðlun ehf. fyrir það.
Hlutabréfaeign Hvorki Stefán Árni né aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf.

HAGAR HF.
ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
Hér að neðan er að finna helstu upplýsingar um forstjóra og aðra lykilstjórnendur Haga hf.
HAGAR HF.
ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
| Nafn | Finnur Árnason | |
|---|---|---|
| Fæðingardagur | 12. september 1961. | |
| Starfsstöð | Hagar hf., Hagasmári 1, 201 Kópavogur. | |
| Menntun | MBA frá University of Hartford 1987, | |
| Cand. oecon. frá Háskóla Íslands 1985. | ||
| Stjórnarseta | Seta í stjórnum eftirtalinna félaga (og framkvæmdastjórn ef tekið fram): | |
| Eignarhaldsfélagið Dagar ehf., Ferskar kjötvörur ehf. (stjórnarformaður), | ||
| Hagar verslanir ehf. (framkvæmdastjóri), Íshöfn ehf., Noron ehf. | ||
| (stjórnarformaður), M50 ehf., Gargon ehf. (varamaður). | ||
| Fyrrum seta í stjórnum annarra eftirtalinna félaga og samtaka á síðustu | ||
| fimm árum: Háskólinn á Bifröst ses., P/F SMS, DBH Ísland ehf. | ||
| (stjórnarformaður), Sólhöfn ehf. (stjórnarformaður), Smáralind ehf., | ||
| Samtök atvinnulífsins, Samtök verslunar og þjónustu. | ||
| Starfsreynsla | Finnur hefur verið forstjóri Haga frá árinu 2005. Hann var | |
| framkvæmdastjóri Hagkaups árin 2000-2005 og framkvæmdastjóri | ||
| Nýkaups 1998-2000. Finnur var sölu- og markaðsstjóri Sláturfélags | ||
| Suðurlands 1989-1998 og framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Góðs | ||
| fólks 1987-1989. | ||
| Hlutabréfaeign | Finnur á 4.163.557 hluti í Högum hf. Aðilar honum fjárhagslega tengdir | |
| eiga 1.235.172 hluti. | ||
| Nafn | Guðrún Eva Gunnarsdóttir | |
| Fæðingardagur | 9. september 1978. | |
| Starfsstöð | Hagar hf., Hagasmári 1, 201 Kópavogur. | |
| Menntun | B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskólánum í Reykjavík 2002. | |
| Stjórnarseta | Stjórnarmaður í Noron ehf. og Ferskum kjötvörum ehf. Varamaður | |
| í stjórn Eignarhaldsfélagsins Daga ehf. (og framkvæmdastjórn), | ||
| Haga verslana ehf., Íshafnar ehf. (og framkvæmdastjórn) og | ||
| Record Records ehf. | ||
| Fyrrum seta í stjórnum annarra félaga á síðustu fimm árum: | ||
| DBH Ísland ehf., Sólhöfn ehf. | ||
| Starfsreynsla | Guðrún Eva var ráðin fjármálastjóri Haga í maí 2010. Þá hafði | |
| hún gegnt starfi fjármálastjóra Hagkaups frá árinu 2007 og starfi | ||
| fjármálastjóra Banana og Ferskra kjótvara 2006-2007. Fram að þeim | ||
| tíma starfaði hún á aðalskrifstofu Haga 2005-2006, en í fjárhagsdeild | ||
| 10-11 og sérvörusviði Haga (áður Baugs) 2001-2005. | ||
| Hlutabréfaeign | Hvorki Guðrún Eva né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í | |
| Högum hf. |
HAGAR HF.
ÅRSSKYRSLA 2015-2016
Nafn
Guðmundur Marteinsson
Fæðingardagur
18. apríl 1965.
Starfsstöð
Bónus, Skútvogur 13, 104 Reykjavík.
Menntun
Stúdent frá Verslunarskóla Íslands 1986 og vélstjóri frá Vélskóla Íslands 1991.
Stjórnarseta
Stjórnarmadur í Ferskum kjötvörum ehf.
Guðmundur hefur ekki setið í stjórn annarra félaga síðustu fimm ár.
Starfsreynsla
Guðmundur hóf störf hjá Bónus árið 1992 og hefur gengið þar í öll störf. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra árið 1998.
Hlutabréfaeign
Guðmundur á 1.008.513 hluti í Högum hf. Aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga 1.285.172 hluti.

Nafn
Gunnar Ingi Sigurðsson
Fæðingardagur
12. september 1967.
Starfsstöð
Hagkaup, Holtagarðar, Holtavegur, 104 Reykjavík.
Menntun
B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst 2005.
Stjórnarseta
Fyrrum seta í stjórnum annarra félaga á síðustu fimm árum: Ferskar kjötvörur ehf.
Starfsreynsla
Gunnar Ingi var ráðinn framkvæmdastjóri Hagkaups 2005, en var rekstrarstjóri Hagkaups 1998-2005 og framkvæmdastjóri Bónusbirgða 1997-1998. Hann var sölustjóri Nóa-Síríus 1993-1997.
Hlutabréfaeign
Gunnar Ingi á 1.217.586 hluti í Högum hf.

Nafn
Kjartan Már Friðsteinsson
Fæðingardagur
4. mars 1951.
Starfsstöð
Bananar ehf., Súðarvogur 2e, 104 Reykjavík.
Menntun
Cand. oecon. frá Háskóla Íslands 1977.
Stjórnarseta
Ekki fyrir hendi síðustu fimm ár.
Starfsreynsla
Kjartan hefur verið framkvæmdastjóri Banana frá árinu 1995. Hann var framkvæmdastjóri hjá Ásgeiri Sigurðssyni hf. 1983-1995 og skrifstofustjóri hjá Gunnari Eggertssyni hf. 1977-1983.
Hlutabréfaeign
Kjartan á 185.171 hluti í Högum hf.

Nafn
Lárus Óskarsson
Fæðingardagur
4. desember 1960.
Starfsstöð
Aðfóng, Skútvogur 7, 104 Reykjavík.
Stjórnarseta
Ekki fyrir hendi síðustu fimm ár.
Starfsreynsla
Lárus hefur verið framkvæmdastjóri Aðfanga frá árinu 1998. Fram að því var hann innkaupa- og markaðsstjóri matvöru hjá Hagkaup frá 1993, en hafði áður sinnt innkaupum og rekstri ávaxta- og grænmetislagers Hagkaups frá 1991 og innkaupum matvöru og sérvöru fyrir Hagkaup frá 1988. Hann annaðist rekstur vöruhúss og dreifingar sem og innkaup hjá Sláturfélagi Suðurlands 1980-1988.
Hlutabréfaeign
Hvorki Lárus né aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf.

Félagið hefur ekki gert kaupréttarsamninga við stjórnendur eða annað starfsfólk. Enginn stjórnenda hefur hagsmunatengsl við helstu viðskiptaæðila, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa Haga hf.
27
28
HAGAR HF.
ÅRSSKYRSLA 2015-2016
Starfskjarastefna
Tilgangur starfskjarastefnu Haga hf. er að félagið og dótturfélög þess séu samkeppnishæf um starfsfólk. Starfskjarastefnan er einn liður í að tryggja langtímahagsmuni eigenda félagsins, starfsfólks og annarra hagsmunaaðila.
Stjórnarmönnum er greidd fóst, mánaðarleg þóknun. Upphæð hennar er nú kr. 250.000 á mánuði. Laun formanns stjórnar eru tvöföld sú fjárhæð. Þóknun til stjórnarmanna er ákveðin á aðalfundi ár hvert.
Starfskjór forstjóra eru tilgreind í skriflegum ráðningarsamningi við hann. Þar koma fram helstu skyldur hans og ábyrgðarsvið, fóst laun, árangurstengdar greiðslur, lífeyrisréttindi, orlof og önnur hlunnindi.
Starfskjór annarra æðstu stjórnenda eru á sama hátt tilgreind í skriflegum ráðningarsamningum.
Starfskjarastefnan skal tekin til endurskoðunar ár hvert og borin undir aðalfund félagsins til samþykktar eða synjunar. Þá skal gera grein fyrir starfskjórum æðstu stjórnenda og stjórnarmanna félagsins auk þess að skýra frá framkvæmd starfskjarastefnunnar.
Gera skal grein fyrir launum og óðrum starfskjórum stjórnar og æðstu stjórnenda í ársskýrslu félagsins.
Helstu úrskurðir og dómar tengdir Högum hf.
Undanfarin ár hafa ýmsir úrskurðir og dómar fallið er varða Haga hf., eins og eðlilegt er hjá stórum félögum. Nokkur mál eru í gangi í dag, bæði hjá dómstólum og eftirlits- og úrskurðaráðilum, er varða félagið. Ekkert þeirra er talið geta haft mikil áhrif á rekstrarafkomu félagsins.
Kópavogi, 15. apríl 2016
Kristín Friðgeirsdóttir
Erna Gísladóttir
Salvör Nordal
Sigurður Arnar Sigurðsson
Stefán Árni Auðólfsson

Hý verslun Bónus í Vestmannasýjum
FRAMKVÆMD STARFSKJARASTEFNU 2015-2016
Starfskjaranefnd hefur gætt að framkvæmd gildandi starfskjarastefnu félagsins, sem samþykkt var á aðalfundi félagsins 2015. Starfskjarastefnan er leiðbeinandi fyrir stjórn félagsins. Stjórnarmenn hafa fengið greidd laun fyrir stjórnarsetu í samræmi við ákvörðun hluthafafundar, og fóst mánaðarleg þóknun hefur verið ákveðin fyrir storf nefndarmanna í undirnefndum stjórnar, endurskoðunarnefnd og starfskjaranefnd. Launakjór stjórnenda félagsins eru ákveðin í skriflegum samningum, bæði hvað varðar fóst og breytileg kjór. Sundurliðaðar upplýsingar hafa verið veittar um laun forstjóra og annarra lykilstjórnenda í
ársskýrslu. Kjór annarra starfsmanna byggja á skriflegum ráðningarsamningum eða eru grundvölluð á ákvæðum kjarasamninga eins og venja er fyrir á vinnumarkaði. Stjórn félagsins hefur ekki gert samninga við starfsmenn eða sett reglur um kauprétti á hlutabréfum í félaginu á starfsárinu. Jafnréttissjónarmiðum er fylgt eftir með framkvæmd jafnréttisstefnu Haga. Það er mat nefndarinnar að greiðslur launa og annarra kjara til stjórnar og starfsmanna séu í samræmi við starfskjarastefnuna og hafa engin frávik verið bókuð sem upplýsa ber hluthafafund um.
TILLAGA AÐ STARFSKJARASTEFNU HAGA HF.
Um stefnu félagsins varðandi laun og aðrar greiðslur til stjórnarmanna, forstjóra og annarra æðstu stjórnenda félagsins, sbr. 79. gr. a. laga nr. 2/1995.
1. Markmið
Það skal haft að markmiði við gerð samninga um starfskjór, að félagið sé samkeppnishæft um starfsfólk og stjórnendur. Til að svo megi verða skal félagið bjóða samkeppnishæf laun við það sem tíðkast hjá sambærilegum fyrirtækjum. Nauðsynlegt er að hlúa vel að kjörum stjórnenda félagsins svo að félagið njóti starfskrafta þeirra og hæfileika sem allra best og þannig að hagur þeirra og félagsins fari saman. Við ákvörðun um starfskjór skal horft til ábyrgðar og árangurs og gætt að viðurkenndum jafnréttissjónarmiðum. Starfskjarastefnan er liður í að tryggja langtímahagsmuni eigenda félagsins, stjórnenda og annarra hagsmunaaðila með skipulegum, einföldum og gagnsæjum hætti. Félagið hefur ekki sett sér markmið eða stefnu um launagreiðslur til stjórnenda í formi hlutabréfaréttinda. Komi til þess að slik markmið eða stefna verði mötuð skal gera tillögu um þau í starfskjarastefnu og leggja fyrir hluthafafund til samþykktar áður en þau koma til framkvæmda. Félaginu er hvorki heimilt að veita stjórnarmönnum, forstjóra eða öðrum stjórnendum félagsins lán né gangast í ábyrgð fyrir þá. Undir þetta falla þó ekki venjulega viðskiptalán sem geta almennt talist hefðbundin í rekstri félags.
2. Starfskjaranefnd
Stjórn félagsins skal skipa starfskjaranefnd sem skipuð er þremur mönnum. Hlutverk starfskjaranefndar er að vera leiðbeinandi fyrir félagsstjórn og framkvæmdastjórn um starfskjór æðstu stjórnenda félagsins og ráðgefandi um starfskjarastefnu. Nefndin skal jafnframt fylgjast með því að starfskjór æðstu stjórnenda séu innan ramma starfskjarastefnu félagsins.
3. Starfskjór stjórnar
Stjórnarmönnum skal greidd fóst mánaðarleg þóknun í samræmi við ákvörðun aðalfundar ár hvert, sbr. 79. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995. Stjórnin gerir tillögu um þóknunina fyrir komandi starfsár og skal í þeim efnum taka mið af þeim tíma
sem stjórnarmenn verja til starfans, þeirri ábyrgð sem á þeim hvílir og afkomu félagsins. Félagið skal tryggja að á hverjum tíma sé í gildi starfsábyrgðartrygging er gildi fyrir stjórnarmenn og æðstu stjórnendur vegna starfa þeirra fyrir félagið. Þá skal tillaga um laun stjórnarmanna vegna starfa í undirnefndum einnig lögð fyrir aðalfund félagsins.
4. Starfskjór forstjóra
Gera skal skriflegan ráðningarsamning við forstjóra félagsins og skulu kjór hans vera samkeppnishæf. Fjárhæð grunnlauna og annarra greiðslna til forstjóra skal taka mið af ábyrgðarskyldum, menntun, reynslu og fyrri storfum. Til-greina skal önnur starfskjór í ráðningarsamningnum, svo sem greiðslur í lífeyrissjóð, orlof, hlunnindi og uppsagnarfrest. Heimilt er að semja við forstjóra um upphafsgreiðslu vegna ráðningar hans að félaginu. Þá er heimilt að greiða forstjóra launagreiðslur sem tengjast árangri í rekstri hvers árs, en slíkar greiðslur skulu ákveðnar út frá skýrum viðmiðum og taka mið af heildarhagsmunum félagsins til langs tíma. Þess skal sérstaklega gætt að þessar greiðslur hvetji til árangurs í samræmi við rekstrarmarkmið félagsins og samræmist góðum viðskiptaháttum. Við gerð ráðningarsamnings við forstjóra skal haft að leiðarljósi að ekki komi til frekari greiðslna við starfslok en fram koma í ráðningarsamning. Heimilt er þó við sérstök skilyrði að mati stjórnar að gera sérstakan starfslokasamning við starfslok forstjóra.
5. Starfskjór annarra æðstu stjórnenda
Forstjóri ræður og semur við aðra æðstu stjórnendur og forstjóra dótturfélaga þar sem við á, og skal við gerð ráðningarsamninga taka mið af viðmiðum laga og stefnu félagsins. Heimilt er að semja um að umbuna æðstu stjórnendum til viðbótar grunnlaunum í formi árangurstengdra greiðslna, lífeyrissamninga og starfslokasamninga. Við ákvörðun um hvort veita skuli æðstu stjórnendum umbun til viðbótar grunnlaunum skal taka mið af stöðu, ábyrgð, frammistöðu og framtíðarmöguleikum viðkomandi stjórnanda innan félagsins. Þá skal einnig taka mið af afkomu félagsins og samningar um umbun skulu vera í samræmi við hana.
HAGAR HF.
ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
30
HAGAR HF.
ÅRSSKYRSLAG 2015-2016
6. Sambykkt starfskjarastefnu og fleira
Starfskjarastefna félagsins skal tekin til afgreiðslu á aðalfundi þess og skal hún tekin til endurskoðunar ár hvert og borin undir aðalfund til sambykktar eða synjunar. Starfskjarastefna félagsins er leiðbeinandi fyrir félagið og stjórn þess. Stjórn félagsins skal færa í fundargerðarbók stjórnar sérstaklega öll veruleg fråvik frá starfskjarastefnunni og skulu þau fråvik studd greinargóðum rökum. Gera skal grein fyrir frávikum á næsta aðalfundi félagsins.
Stjórnins skal upplýsa viðsemjendur sína um það hvað felist í starfskjarastefnunni, þar á meðal að hvaða leyti hún sé bindandi. Gera skal árlega grein fyrir launum og öðrum starfskjórum stjórnar og æðstu stjórnenda í ársskýrslu félagsins, áættuðum kostnaði vegna þess og skýra frá framkvæmd áður sambykktrar starfskjarastefnu.
Starfskjarastefna þessi var sambykkt af stjórn félagsins þann 15. apríl 2016. Starfskjarastefnan er endurskoðuð einu sinni á ári og verður lögð fyrir aðalfund félagsins þann 3. júní 2016 til sambykktar eða synjunar. Starfskjarastefnan er öbreytt frá fyrra ári.
ARÐGREIÐSLUSTEFNA HAGA HF.
Eftirfarandi arðgreiðslustefna var sambykkt af stjórn félagsins þann 15. apríl 2016.
Stjórn Haga hf. hefur markað félaginu þá stefnu að lögð skuli áhersla á að félagið skili til hluthafa sinna, beint eða óbeint, þeim verðmætum sem skapast í rekstrinum á hverju ári, umfram nauðsynlegar fjárfestingar í rekstrarfjármunum. Í því skyni stefnir félagið að reglubundnum arðgreiðslum og kaupum á eigin bréfum, skv. formlegri endurkaupaætlun, í þeim tilgangi að lækka hlutafé félagsins, sé svigrúm til þess. Á
undanförnum árum hefur félagið greitt niður skuldir, en stjórn telur ekki frekari þörf á niðurgreiðslu skulda umfram ákvæði lánssamninga.
Stefnt er að því að Hagar hf. greiði hluthófum sínum árlegan arð, sem nemi að lágmarki 50% hagnaðar næstliðins rekstrarárs. Að auki mun félagið, ef tækifæri gefast, kaupa eigin bréf og kaupa fasteignir á hagstæðu verði sem nýtast félaginu í starfsemi sinni. Ef fjárfest er í fasteignum er stefnt að því að eiginfjárframlag félagsins verði að lágmarki 30% af kaupverði.

NÝTING REKSTRARFJÁRMUNA

Bíðtimi birgða




dagar

HAGAR HF.
ÁRSSKÝRSLA 2015-2016

HAGAR HF.
ÅRSSKYRSLA 2015-2016
HAGAR HF. ÅRSREIKNINGUR SAMSTÆDUNNAR 29. FEBRÚAR 2016
EFNISYFIRLIT
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra ... 34
Áritun óháðs endurskoðanda ... 37
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu ... 39
Efnahagsreikningur ... 40
Eiginfjáryfirlit ... 41
Sjóðstreymisyflit ... 42
Skýringar ... 43
Fylgiskjal: Ársfjörðungayfirlit ... 58
HAGAR HF. ÅRSREIKNINGUR SAMSTÆDUNNAR 33
SKÝRSLA OG YFIRLÝSING STJÓRNAR OG FORSTJÓRA
Hagar hf. er verslunarfyrtæki með starfsemi á Íslandi.
Ársreikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu. Ársreikningur 29. febrúar 2016 samanstendur af samstæðuársreikningi Haga hf. og dótturfélaga þess, sem vísað er til sem „samstæðunnar“.
Rekstur
Samkvæmt rekstrarreikningi og yfirliti yfir heildarafkomu var hagnaður af rekstri samstæðunnar að fjárhæð 3.596 millj. kr. Eigið fé í lok reikningsársins nam 16.368 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
Hlutafé og samþykktir
Skráð hlutafé félagsins nam í lok reikningsárs 1.172 millj. kr. Hver hlutur er ein króna að nafnverði. Allir hlutir eru í sama flokki og njóta sömu réttinda.
Hluthafar voru 1.124 í byrjun rekstrarársins og 960 í lok þess. Tíu stærstu hluthafar eru eftirfarandi:
| 29.2.2016 | 28.2.2015 | |
|---|---|---|
| Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) | 12,19% | 13,07% |
| Gildi – lífeyrissjóður | 11,36% | 11,38% |
| Stefnir – ÍS 15 | 9,56% | 8,34% |
| Lífeyrissjóður verslunarmanna | 8,18% | 8,18% |
| Stapi lífeyrissjóður | 5,27% | 4,34% |
| Festa – lífeyrissjóður | 3,40% | 3,38% |
| Sameinaði lífeyrissjóðurinn | 2,66% | 2,22% |
| Stafir lífeyrissjóður | 2,46% | 2,25% |
| Arion banki hf. | 2,35% | 3,30% |
| Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda | 2,34% | 1,27% |
Stjórn félagsins mun leggja til á aðalfundi félagsins að greiddur verði 1,70 kr. arður á hlut til hluthafa á árinu 2016, samtals 1.992 millj. kr. Vísað er í ársreikning um breytingar á eigin fé.
Stjórn félagsins er skipuð fimm einstaklingum. Þeir aðilar sem hyggjast bjóða sig fram til stjórnarsetu þurfa að tilkynna það fimm dögum fyrir aðalfund. Eingöngu má breyta samþykktum félagsins á lögmætum hluthafafundi. Breytingatillögur þurfa einnig að koma skýrt fram við boðun hluthafafunda. Til þess að breytingar taki gildi þurfa þær að hljóta 2/3 hluta greiddra atkvæða, svo og 2/3 hluta þeirra atkvæða sem farið er með á fundinum.
Stjórnarhættir
Stjórnarhættir Haga hf. mótast af lögum nr. 2/1995 um hlutafélög, samþykktum félagsins og starfsreglum stjórnar. Hagar hf. fylgja, með einni undantekningu, leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja, útgáfu 5, gefnum út af Viðskiptaráði Íslands, NASDAQ OMX Iceland hf. og Samtökum atvinnulifsins árið 2015. Stjórninn hefur ekki skipað tilnefningarnefnd en stjórn hefur hingað til sinnt þeim verkefnum sem tilnefningarnefnd myndi annars sinna, fyrir utan að tilnefna menn til stjórnarsetu. Er það mat stjórnar að það fyrirkomulag hafi gefist vel. Stjórn er þó með það til skoðunar hvort rétt sé að skipa tilnefningarnefnd og hvaða útfærsla væri þá ákjósanleg.
Undantekningar og útskýringar má sjá í ítarlegri yfirlýsingu um stjórnarhætti félagsins, sem er útbúin í samræmi við leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja og er aðgengileg á vefsíðu félagsins, www.hagar.is. Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja má nálgast á heimasiðu Viðskiptaráðs Íslands, www.vi.is.
Í tengslum við gerð ársreiknings hefur félagið komið á innra eftirliti og stýrir áhættu með viðeigandi starfaaðgreiningu og vel skilgreindum ábyrgðarsviðum. Stjórn félagsins fær einnig reglulega skýrslur um fjárhagslega áhættu félagsins sem og skýrslur um einstakar deildir til að fylgjast með árangri. Ferlar eru til staðar til að tryggja eftirlit með tekjuskráningu, rekstrarkostnaði og öðrum þáttum sem hafa áhrif á ársreikning félagsins. Enn fremur hefur endurskoðunarnefnd vakandi auga með fyrirkomulagi og virkni innra eftirlits. Frekari upplýsingar um áhættustýringu félagsins er að finna í skýringu 22.
Stjórn félagsins skipa fimm stjórnarmenn. Kristín Friðgeirsdóttir er stjórnarformaður, Sigurður Arnar Sigurðsson er varaformaður og aðrir stjórnarmenn eru Erna Gísladóttir, Salvór Nordal og Stefán Árni Auðólfsson. Stjórnarmenn hafa viðtæka reynslu úr atvinnulifinu og fjölbreytta menntun að baki. Allir stjórnarmenn teljast vera óháðir félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthófum þess. Ítarlegar upplýsingar um stjórnarmenn má finna á heimasiðu félagsins, www.hagar.is.
Stjórn félagsins hefur sett sér sérstakar starfsreglur sem eru yfírfarar árlega. Starfsreglur stjórnar eru aðgengillegar á vefsíðu félagsins, www.hagar.is, þar sem verkefni stjórnar eru sett fram. Stjórnarfundir voru haldnir að minnsta kosti mánaðarlega á rekstrarárinu 2015/16. Fundina sitja
HAGAR HF. ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
auk stjörnarmanna forstjóri og fjármálastjóri félagsins. Einfaldur meirihluti stjörnarmanna ræður afgreiðslu mála á stjórnarfundum. Stjörn metur árlega eigin störf.
Lykilstjórnendur Haga hf. eru Finnur Árnason forstjóri, Guðrún Eva Gunnarsdóttir fjármálastjóri, Guðmundur Marteinsson framkvæmdastjóri Bónus, Gunnar Ingi Sigurðsson framkvæmdastjóri Hagkaups, Kjartan Már Fríðsteinsson framkvæmdastjóri Banana og Lárus Óskarsson framkvæmdastjóri Aðfanga.
Stjórn Haga hf. hefur kosíð endurskoðunarnefnd og starfskjaranefnd. Hlutverk endurskoðunarnefndar er að fara yfir fjárhagslegar upplýsingar og fyrirkomulag upplýsingagjafar frá stjórnendum. Endurskoðunarnefndina skipa nú Erna Gisladóttir, Salvór Nordal og Sigrún K. Sigurjónsdóttir. Nefndarmenn eru allir óháðir endurskoðendum Haga hf., daglegum stjórnendum félagsins og stórum hluthófum þess. Endurskoðunarnefnd skal staðreyna að þær upplýsingar sem stjórninn fær um rekstur og stóðu félagsins séu áreiðanlegar og gefi glögga mynd af stóðu þess á hverjum tíma. Hlutverk starfskjaranefndar er að undirbúa tillögu að starfskjarastefnu félagsins, tillögu til hluthafafundar um starfskjór stjórnarmanna og framkvæmd starfssamninga við forstjóra og aðra þá starfsmenn er heyra undir stjórn félagsins. Starfskjaranefnd skipa Kristín Friðgeirsdóttir, Sigurður Arnar Sigurðsson og Stefán Árni Auðólfsson. Allir nefndarmenn eru óháðir daglegum stjórnendum félagsins og stórum hluthófum þess.

Yfirlýsing stjórnar og forstjóra
Samkvæmt bestu vitneskju er það álit okkar að samstæðuársreikningur félagsins gefi glögga mynd af rekstrarafkomu samstæðunnar fyrir reikningsárið sem lauk 29. febrúar 2016, eignum, skuldum og fjárhagsstóðu hennar þann 29. febrúar 2016 og breytingum á handbæru fé á reikningsárinu, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu.
Jafnframt er það álit okkar að samstæðuársreikningurinn og skýrsla stjórnar og forstjóra geymi glöggt yfirlit um þrúun og árangur í rekstri samstæðunnar, stóðu hennar, og lýsi helstu áhættupáttum og óvissu sem samstæðan býr við.
Stjórn og forstjóri Haga hf. hafa í dag farið yfir samstæðuársreikning félagsins fyrir reikningsárið 1. mars 2015 til 29. febrúar 2016 og staðfesta hann með undirritun sinni. Stjórn og forstjóri leggja til við aðalfund félagsins að samþykkja samstæðuársreikninginn.
Kópavogi, 12. mái 2016
Stjórn:
Kristín Friðgeirsdóttir
Erna Gisladóttir
Salvár Nordal
Sigurður Arnar Sigurðsson
Stefán Árni Auðólfsson
Forstjóri:
Finnur Árnason
HAGAR HF.
ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
HAGAR HF.
ÅRSSKYRSLA 2015-2016
ÁRITUN ÓHÁDS ENDURSKOÐANDA
Til stjórnar og hluthafa Haga hf.
Við höfum endurskoðað meðfylgjandi samstæðuársreikning Haga hf. fyrir reikningsárið 1. mars 2015 til 29. febrúar 2016. Ársreikningurinn hefur að geyma rekstrarreikning og yfirlit um heildarafkomu, efnahagsreikning, eiginfjáryfirlit, sjóðstreymisyfirlit, upplýsingar um mikilvægar reikningsskila-aðferðir og aðrar skýringar.
Ábyrgð stjórnar og forstjóra á ársreikningnum
Stjórn og forstjóri eru ábyrg fyrir gerð og glöggri framsetningu ársreikningsins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla, eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu. Stjórn og forstjóri eru einnig ábyrg fyrir því innra eftirliti sem þau telja nauðsynlegt til að gera þeim kleift að setja fram ársreikning sem er án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.
Ábyrgð endurskoðanda
Ábyrgð okkar felst í því áliti sem við látum í ljós á ársreikningnum á grundvelli endurskoðunarinnar. Endurskoðað var í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Samkvæmt þeim ber okkur að fara eftir settum síðareglum og skipuleggja og haga endurskoðuninni þannig að nægjanleg vissa fáist um hvort ársreikningurinn sé án verulegra annmarka.
Endurskoðun felur í sér aðgerðir til staðfestingar á fjárhæðum og öðrum upplýsingum í ársreikningnum. Val endurskoðunaraðgerða byggist á faglegu mati endurskoðandans, þar með talið á þeirri hættu að verulegir annmarkar séu á ársreikningnum, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka. Við áhættumatið er tekið tillit til þess innra eftirlits sem varðar gerð og glögga framsetningu ársreiknings, til þess að skipuleggja viðeigandi endurskoðunaraðgerðir, en ekki til þess að gefa álit á virkni innra eftirlits félagsins. Endurskoðun felur einnig í sér mat á því hvort reikningsskilaaðferðir og matsaðferðir sem stjórnendur nota við gerð ársreikningsins séu viðeigandi sem og mat á framsetningu hans í heild.
Við teljum að við endurskoðunina höfum við aflað nægilegra og viðeigandi gagna til að byggja álit okkar á.
Álit
Það er álit okkar að samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu samstæðunnar á reikningsárinu 1. mars 2015 til 29. febrúar 2016, fjárhagsstöðu hennar 29. febrúar 2016 og breytingu á handbæru fé á reikningsárinu, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um ársreikninga skráðra félaga.
Staðfesting vegna skýrslu stjórnar og forstjóra
Í samræmi við ákvæði 2. mgr. 104 gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga staðfestum við samkvæmt okkar bestu vitund að í skýrslu stjórnar og forstjóra sem fylgir ársreikningi þessum eru veittar þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga og koma ekki fram í skýringum.
Reykjavík, 12. mái 2016
KPMG ehf.
Simon Á. Gunnarsson
Margret G. Flóvenz
HAGAR HF. ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
HAGAR HF.
ÅRSSKYRSLA 2015-2016
REKSTRARREIKNINGUR OG
YFIRLIT UM HEILDARAFKOMU
1. MARS 2015 TIL 29. FEBRÚAR 2016
| Skýring | M ISK | M ISK | |
|---|---|---|---|
| 2015/16 | 2014/15 | ||
| Vörusala | 78.366 | 77.143 | |
| Kostnadarverð seldra vara | (59.257) | (58.639) | |
| Framlegð | 19.109 | 18.504 | |
| Aðrar rekstrartekjur | 5 | 206 | 129 |
| Laun og launatengd gjöld | 6 | (7.162) | (6.680) |
| Annar rekstrarkostnaður | 7 | (6.494) | (6.337) |
| Rekstrarhagnaður fyrir skaðabætur og afskriftir | 5.659 | 5.616 | |
| Skaðabætur | 20 | (413) | 0 |
| Afskriftir | 8 | (699) | (674) |
| Rekstrarhagnaður | 4.547 | 4.942 | |
| Fjármunatekjur | 296 | 248 | |
| Fjármagnsgjöld | (345) | (395) | |
| Hrein fjármagnsgjöld | 9 | (49) | (147) |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 4.498 | 4.795 | |
| Tekjuskattur | 10 | (902) | (957) |
| Heildarhagnaður ársins | 3.596 | 3.838 | |
| Hagnaður á hlut: | |||
| Grunnhagnaður og þynntur hagnaður á hlut. | 17 | 3,07 | 3,27 |
Skýringar á blaðsiðum 43 til 57 eru öaðskiljanlegur hluti samstæðúársreikningsins.
HAGAR HF.
ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
EFNAHAGSREIKNINGUR
29. FEBRÚAR 2016
| M ISK | M ISK | ||
|---|---|---|---|
| Skýring | 29.02.2016 | 28.02.2015 | |
| Eignir | |||
| Rekstrarfjármunir | 11 | 8.956 | 6.770 |
| Óefnislegar eignir | 12 | 7.728 | 7.750 |
| Fastafjármunir samtals | 16.684 | 14.520 | |
| Vörubirgðir | 13 | 4.756 | 4.606 |
| Viðskiptakrófur og aðrar skammtímakrófur | 14 | 660 | 864 |
| Viðskiptakrófur – greiðslukortakrófur | 14 | 3.795 | 4.271 |
| Handbært fé | 15 | 3.810 | 3.348 |
| Veltufjármunir samtals | 13.021 | 13.089 | |
| Eignir samtals | 29.705 | 27.609 | |
| Eigið fé | |||
| Hlutafé | 16 | 1.172 | 1.172 |
| Yfirverðsreikningur hlutafjár | 16 | 1.272 | 1.272 |
| Óráðstafað eigið fé | 13.924 | 12.320 | |
| Eigið fé samtals | 16.368 | 14.764 | |
| Skuldir | |||
| Vaxtaberandi langtímaskuldir | 18 | 3.748 | 4.239 |
| Skuldbindingar vegna leigusamninga | 21 | 0 | 25 |
| Tekjuskattsskuldbinding | 10 | 509 | 527 |
| Langtímaskuldir samtals | 4.257 | 4.791 | |
| Vaxtaberandi skammtímaskuldir | 18 | 763 | 749 |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir | 19 | 7.018 | 6.375 |
| Tekjuskattur til greiðslu | 10 | 874 | 880 |
| Skuldbindingar | 20 | 425 | 50 |
| Skammtímaskuldir samtals | 9.080 | 8.054 | |
| Skuldir samtals | 13.337 | 12.845 | |
| Eigið fé og skuldir samtals | 29.705 | 27.609 |
Skýringar á blaðsiðum 43 til 57 eru öaðskiljanlegur hluti samstæðuársreikningsins.
HAGAR HF.
ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
EIGINFJÁRYFIRLIT
1. MARS 2015 TIL 29. FEBRÚAR 2016
| M ISK | M ISK | M ISK | M ISK | |
|---|---|---|---|---|
| Hlutafé | Yfirverðs-reikningur hlutafjár | Óráðstafað eigið fé | Samtals | |
| Breytingar á eigin fé 2014/15 | ||||
| Eigið fé 1. mars 2014 | 1.172 | 1.272 | 9.654 | 12.098 |
| Heildarhagnaður ársins | 3.838 | 3.838 | ||
| Greiddur arður, 1,0 kr. á hlut | (1.172) | (1.172) | ||
| Eigið fé 28. febrúar 2015 | 1.172 | 1.272 | 12.320 | 14.764 |
| Breytingar á eigin fé 2015/16 | ||||
| Eigið fé 1. mars 2015 | 1.172 | 1.272 | 12.320 | 14.764 |
| Heildarhagnaður ársins | 3.596 | 3.596 | ||
| Greiddur arður, 1,7 kr. á hlut | (1.992) | (1.992) | ||
| Eigið fé 29. febrúar 2016 | 1.172 | 1.272 | 13.924 | 16.368 |
Skýringar á blaðsiðum 43 til 57 eru óaðskiljanlegur hluti samstæðúrsreikningsins.
HAGAR HF.
ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
SJÖDSTREYMISYFIRLIT
1. MARS 2015 TIL 29. FEBRUAR 2016
| M ISK | M ISK | ||
|---|---|---|---|
| Skýring | 2015/16 | 2014/15 | |
| Rekstrarhreyfingar | |||
| Hagnaður ársins | 3.596 | 3.838 | |
| Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi: | |||
| Söluhagnaður rekstrarfjármuna | (9) | (8) | |
| Skuldbindingar vegna leigusamninga | (43) | (43) | |
| Afskriftir | 8 | 699 | 674 |
| Hrein fjármagnsgjöld | 9 | 49 | 147 |
| Tekjuskattur | 10 | 902 | 957 |
| Veltufé frá rekstri | 5.194 | 5.565 | |
| Breytingar á rekstrartengdum eignum | 532 | (347) | |
| Breytingar á rekstrartengdum skuldum | 1.009 | 274 | |
| Handbært fé fyrir vexti og tekjuskatt | 6.735 | 5.492 | |
| Innheimtar vaxtatekjur | 295 | 255 | |
| Greidd vaxtagjöld | (339) | (400) | |
| Greiddur tekjuskattur | (937) | (998) | |
| Handbært fé frá rekstri | 5.754 | 4.349 | |
| Fjárfestingarhreyfingar | |||
| Fjárfesting í fasteignum | 11 | (1.371) | (1.365) |
| Fjárfesting í áhöldum og innréttingum | 11 | (1.207) | (783) |
| Fjárfesting í óefnislegum eignum | 12 | (5) | (13) |
| Söluverð áhalda og innréttinga | 35 | 25 | |
| Fjárfestingarhreyfingar | (2.548) | (2.136) | |
| Fjármögnunarhreyfingar | |||
| Afborganir langtímalána | (752) | (6.859) | |
| Tekin ný langtímalán | 0 | 5.023 | |
| Greiddur arður | (1.992) | (1.172) | |
| Fjármögnunarhreyfingar | (2.744) | (3.008) | |
| Hækkun (lækkun) á handbæru fé | 462 | (795) | |
| Handbært fé í upphafi árs | 3.348 | 4.143 | |
| Handbært fé í lok árs | 3.810 | 3.348 | |
| Fjárfestingar og fjármögnunarhreyfingar án greiðsluáhrifa | |||
| Fjárfesting í fasteignum | (305) | 0 | |
| Yfirteknar skuldir við kaup á félagi | 305 | 0 |
Skýringar á blaðsiðum 43 til 57 eru óaðskiljanlegur hluti samstæðúrsreikningsins.
HAGAR HF.
ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
SKYRINGAR
- Félagið
Hagar hf. („félagið“) er íslensk hlutafélag og er lögheimili þess að Hagasmára 1, Kópavogi. Samstæðuársreikningur félagsins fyrir reikningsárið 1. mars 2015 til 29. febrúar 2016 hefur að geyma ársreikning félagsins og dótturfélaga þess, sem vísað er til í heild sinni sem „samstæðunnar“ og til einstakra félaga sem „samstæðufélaga“. Aðalstarfsemi félagsins er rekstur smásöluverslana.
- Grundvöllur reikningsskilanna
a. Yfirlýsing um að alþjóðlegum reikningsskilastöðlum sé fylgt
Ársreikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu.
Stjórn félagsins staðfesti ársreikninginn 12. mái 2016.
b. Grundvöllur matsaðferða
Samstæðuársreikningurinn er gerður á grundvelli kostnaðarverðs.
c. Starfrækslu- og framsetningargjaldmiðill
Samstæðuársreikningurinn er birtur í íslenskum krónum sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins. Allar fjárhæðir eru birtar í milljónum króna.
d. Mat og ákvarðanir
Gerð samstæðuársreiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaaðferða og birtar fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að vera frábrugðnar þessu mati.
Mat og forsendur þess eru í stöðugri endurskoðun. Breytingar á reikningshaldslegu mati eru færðar á því tímabili sem breytingin á sér stað og þeim framtíðartímabilum sem breytingarnar hafa áhrif á.
Upplysingar um mikilvæg atriði, þar sem óvissa í mati og mikilvægi ákvarðana um reikningsskilaaðferðir hafa mest áhrif á skráðar fjárhæðir í reikningsskilunum, er að finna í eftirfarandi skýringum:
- skýring 12 – mat á endurheimtanlegum fjárhæðum fjárskapandi eininga
-
skýring 20 – skuldbindingar og óvissa
-
Mikilvægar reikningsskilaaðferðir
Reikningsskilaaðferðum sem er lýst hér á eftir hefur verið beitt með samræmdum hætti fyrir öll tímabil sem koma fram í ársreikningnum og af öllum félögum í samstæðunni.
a. Grundvöllur samstæðu
(i) Dótturfélög
Dótturfélög eru þau félög þar sem samstæðan fer með yfirráð. Yfirráð grundvallast af því hvort fjárfestir hefur ákvörðunarvald yfir fjárfestingunni, ber áhættu eða hefur réttinn til að njóta breytilegs ávinnings vegna þátttöku í fjárfestingunni og getur með ákvörðunarvaldi haft áhrif á ávinning sinn af fjárfestingunni. Reikningsskil dótturfélaga eru innifalin í samstæðuársreikningnum frá því að yfirráð nást og þar til þeim lýkur.
(ii) Viðskipti felld út við gerð samstæðureiknings
Viðskipti milli félaga innan samstæðunnar, stöður milli þeirra og óinnleystar tekjur og gjöld sem myndast hafa í viðskiptum milli félaganna eru felld út við gerð ársreiknings samstæðunnar.
Allar fjárhæðir eru í milljónum króna
HAGAR HF. ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
b. Erlendir gjaldmiðlar
(i) Viðskipti í erlendum gjaldmiðlum
Viðskipti í erlendum gjaldmiðlum eru færð í starfrækslugjaldmiðli á gengi viðskiptadags. Peningalegar eignir og skuldir í erlendum gjaldmiðlum eru færðar miðað við gengi á uppgjörsdegi. Aðrar eignir og skuldir, sem metnar eru á gangvirði í erlendri mynt, eru færðar á því gengi sem var í gildi þegar gangvirði þeirra var ákvarðað.
Gengismunur vegna viðskipta í erlendum gjaldmiðlum er færður í rekstrarreikning. Gengismunur á innkaupum á vörum til endursölu eru bökfærð í „kostnaðarverð seldra vara“.
c. Fjármálagerningar
(i) Fjáreignir
Viðskiptakröfur og aðrar kröfur eru fjáreignir með föstum eða ákvarðanalegum greiðslum sem eru ekki skráðar á virkum markaði. Slíkar eignir eru í upphafi færðar á gangvirði að viðbættum öllum tengdum viðskiptakostnaði. Eftir upphaflega skráningu eru lán og kröfur færðar á afskrifuðu kostnaðarverði miðað við virka vexti, að frádreginni virðisrýrnun þegar við á.
Peningamarkaðsinnlán, sjöður og óbundnar bankainnstæður teljast til handbærs fjár.
(ii) Fjárskuldir
Fjárskuldir eru í upphafi færðar á gangvirði að viðbættum öllum tengdum viðskiptakostnaði. Eftir upphaflega skráningu eru lán og kröfur færðar á afskrifuðu kostnaðarverði miðað við virka vexti.
Fjáreignum og fjárskuldum er jafnað saman og nettó fjárhæð sýnd í efnahagsreikningi þegar lagalegur réttur er til staðar um jöfnun og fyrirhugað er að gera upp með jöfnun fjáreigna og fjárskulda eða innleysa eignina og greiða skuldina á sama tíma.
(iii) Almennt hlutafé
Hlutafé er flokkað sem eigið fé. Beinn kostnaður við útgáfu hlutafjár og kaupréttarsamninga er færður til lækkunar á eigin fé, að frádregnum skattaáhrifum.
(iv) Kaup á eigin hlutum
Þegar hlutir sem flokkaðir eru sem eigið fé eru keyptir er fjárhæð kaupverðsins, að meðtöldum beinum kostnaði að frádregnum skattaáhrifum, færð sem lækkun á eigin fé. Kaup á eigin bréfum eru færð sem eigin hlutir og þeir færðir til lækkunar á heildar eigin fé. Þegar eigin hlutir eru seldir eða gefnir út aftur er fjárhæð söluverðsins færð til hækkunar á eigin fé. Hagnaði eða tapi sem fellur til við sölna er bætt við eða dregið frá yfirverðsreikningi hlutafjár.
d. Rekstrarfjármunir
(i) Færsla og mat
Rekstrarfjármunir eru færðir á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun.
Kostnaðarverð samanstendur af beinum kostnaði sem fellur til við kaupin. Keyptur hugbúnaður sem er nauðsynlegur til að unnt sé að nýta vélbúnað er eignfærður sem hluti af þeim tækjabúnaði.
Þegar rekstrarfjármunir eru samsettir úr einingum með ólíkan nýtingartíma eru einingarnar aðgreindar og afskrifaðar miðað við nýtingartímann.
Hagnaður eða tap af sölu rekstrarfjármuna er munurinn á söluverði og bökfærðu verði eignarinnar og er færður í rekstrarreikning meðal annarra tekna.
(ii) Kostnaður sem fellur til síðar
Kostnaður við að endurnýja einstaka hluta rekstrarfjármuna er færður til eignar ef líklegt er talið að ávinningur sem felst í eigninni muni renna til félagsins og hægt er að meta kostnaðinn á áreiðanlegan hátt. Allur annar kostnaður er gjaldfærður í rekstrarreikningi þegar til hans er stofnað.
Allar fjárhæðir eru í milljónum króna
HAGAR HF. ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
(iii) Afskriftir
Afskriftir eru reiknaðar línulega miðað við áætlaðan nýtingartíma einstakra hluta rekstrarfjármuna og færðar í rekstrarreikning. Leigðar eignir eru afskrifaðar á leigutíma eða nýtingartíma eignanna, hvoru sem styttra reynist, nema líklegt sé að samstæðan muni eignast eignina í lok leigutíma. Land er ekki afskrifað.
Áætlaður nýtingartími greinist þannig:
Fasteignir ... 20-50 ár
Innréttingar, tölvubúnaður og áhöld ... 3-14 ár
Afskriftaraðferðir, nýtingartími og niðurlagsverð eru endurmetin á hverjum uppgjörsdegi.
e. Óefnislegar eignir
(i) Viðskiptavild
Viðskiptavild verður til við kaup á dótturfélögum og er færð á meðal óefnislegra eigna.
Viðskiptavild er mismunur á kostnaði við yfirtóku félags og gangvirði yfirtekinna eigna, skulda og óvissra skulda.
Síðara mat
Viðskiptavild er færð á kostnaðarverði að frádreginni uppsafnaðri virðisrýrnun.
(ii) Aðrar óefnislegar eignir
Aðrar óefnislegar eignir með takmarkaðan líftíma eru færðar á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun.
(iii) Kostnaður sem fellur til síðar
Kostnaður sem fellur til síðar er aðeins eignfærður ef hann eykur væntan framtíðarávinning þeirrar eignar sem hann tengist. Allur annar kostnaður, að meðtöldum þeim sem myndar viðskiptavild og vörumerki innan fyrirtækisins, er gjaldfærður í rekstrarreikningi þegar hann fellur til.
(iv) Afskriftir
Afskriftir óefnislegra eigna, annarra en viðskiptavildar, eru færðar línulega í rekstrarreikning miðað við áætlaðan nýtingartíma þeirra. Áætlaður nýtingartími greinist þannig:
Hugbúnaður ... 5-12 ár
Leiguréttindi ... 10-15 ár
f. Birgðir
Birgðir eru metnar á kostnaðarverði eða hreinu sóluvirði, hvoru sem lægra reynist. Kostnaðarverð birgða byggir á reglunni fyrst inn – fyrst út og innifelur kostnað sem fellur til við að afla birgðanna og koma þeim á þann stað og í það ástand sem þær eru í á uppgjörsdegi.
Hreint söluverð er áætlað söluverð í venjulegum viðskiptum að frádregnum áætluðum kostnaði við að selja vöru.
g. Virðisrýrnun
(i) Fjáreignir (þar á meðal kröfur)
Á hverjum uppgjörsdegi er kannað hvort til staðar sé hlutlæg vísbending um virðisrýrnun fjáreigna sem ekki eru færðar á gangvirði. Fjáreign telst vera virðisrýrð ef hlutlægar vísbendingar eru um að einn eða fleiri atburðir sem átt hafa sér stað benda til þess að vænt framtíðarsjöðstremi eignarinnar verði lægra en áður var talið.
Virðisrýrnun fjáreigna sem færðar eru á afskrifuðu kostnaðarverði er mismunur á bókéfærðu verði þeirra annars vegar og núvirtu væntu framtíðarsjöðstremi, miðað við upphaflæga virka vexti, hins vegar.
Einstaka mikilvægar fjáreignir eru prófaðar sérstaklega með tilliti til virðisrýrnunar. Aðrar fjáreignir eru flokkaðar saman eftir lánsáhættueinkennum og hver flokkur metinn sérstaklega með tilliti til virðisrýrnunar.
Allar fjárhæðir eru í milljónum króna
HAGAR HF. ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
Virðisrýrnun fjáreigna er færð til gjalda í rekstrarreikningi.
Virðisrýrnun er bakfærð ef hægt er að tengja hækkun á endurheimtanlegri fjárhæð á hlutlægan hátt atburði sem átti sér stað eftir að virðisrýrnun var færð. Bakfærsla fjáreigna sem færðar eru á afskrifuðu kostnaðarverði er færð í rekstrarreikning.
(ii) Aðrar eignir
Bókfært verð annarra eigna samstæðunnar en peningalegra eigna, að undanskildum birgðum og skatteign, er yfirfarið á hverjum uppgjörsdegi til að meta hvort vísbending sé um virðisrýrnun. Ef eitthvað bendir til þess er endurheimtanleg fjárhæð eignarinnar áættuð. Virðisrýrnunarprófanir eru gerðar á hverjum uppgjörsdegi á viðskiptavild og óefnislegum eignum sem hafa óskilgreindan nýtingartíma eða hafa ekki verið teknar í notkun á uppgjörsdegi.
Endurheimtanleg fjárhæð eignar eða fjárskapandi einingar er hreint gangvirði þeirra eða nýtingarvirði, hvort sem hærra reynist. Nýtingarvirði er áætlað framtíðarsjóðstreymi, sem er núvirt með vöxtum fyrir skatta, þar sem vextirnir endurspegla mat markaðarins á tímavirði peninga hverju sinni og þá áhættu sem fylgir eigninni. Fjárskapandi eining er minnsti aðgreinanlegi hópur eigna sem myndar sjóðstreymi sem er að mestu leyti óháð öðrum eignum eða hópum eigna. Við framkvæmd virðisrýrnunarprófs þá er viðskiptavild sem verður til við samruna færð á fjárskapandi einingar sem vænst er að muni hagnast af samlegðaráhrifum samrunans.
Virðisrýrnun er gjaldfærð þegar bókfært verð eignar eða fjárskapandi einingar er hærra en endurheimtanleg fjárhæð hennar. Fjárskapandi eining er minnsti aðgreinanlegi hópur eigna sem myndar sjóðstreymi sem er að mestu leyti óháð öðrum eignum eða hópi eigna. Virðisrýrnun fjárskapandi eininga er fyrst færð til lækkunar á tilheyrandi viðskiptavild, en síðan til hlutfallslegrar lækkunar á bókfærðu verði annarra eigna sem tilheyra einingunni. Virðisrýrnun er gjaldfærð í rekstrarreikningi.
Virðisrýrnun viðskiptavildar er ekki bakfærð. Virðisrýrnun annarra eigna er yfirfarin á hverjum uppgjörsdegi til að meta hvort vísbending er um að dregið hafi úr virðisrýrnun eignarinnar. Virðisrýrnun annarra eigna er bakfærð ef breyting hefur átt sér stað á mati sem notað var við útreikning á endurheimtanlegri fjárhæð. Virðisrýrnun er einungis bakfærð að því marki sem nemur áður færðri virðisrýrnun, að frádregnum afskriftum sem hefðu verið færðar ef engin virðisrýrnun hefði orðið.
h. Hlunnindi starfsmanna
Framlög í iðgjaldatengda lífeyrissjóði
Samstæðan greiðir föst iðgjöld vegna starfsmanna sinna til sjálfstæðra iðgjaldatengdra lífeyrissjóða. Samstæðan ber enga ábyrgð á skuldbindingum sjóðanna. Iðgjöldin eru gjaldfærð í rekstrarreikningi meðal launa og launatengdra gjalda eftir því sem þau falla til.
i. Skuldbindingar
Skuldbinding er færð þegar samstæðunni ber lagaleg eða ættuð skylda vegna liðinna atburða og líklegt er að kostnaður, sem hægt er að meta með áreiðanlegum hætti, lendi á henni við að gera upp skuldbindinguna. Skuldbindingar eru metnar með því að núvirða áætlað framtíðarsjóðstreymi með vöxtum fyrir tekjuskatt sem sýna núverandi markaðsmat tímavirðis peninga og áhættuna sem tengist skuldbindingunni.
j. Tekjur
Seldar vörur
Tekjur af sölu á vörum eru metnar á gangvirði greiðslunnar sem er móttekin eða er innheimtanleg, að frádregnum afsláttum og endurgreiðslum. Tekjur eru færðar í rekstrarreikning þegar verulegur hluti áhættu og ávinnings af eignarhaldi flyst til kaupanda, líklegt er að endurgjaldið verði innheimt og unnt er að meta kostnað vegna sölunnar og möguleg skil á vörum og fjárhæð teknanna með áreiðanlegum hætti.
Veitt þjónusta / aðrar tekjur
Tekjur af veittri þjónustu eru færðar í rekstrarreikning samkvæmt samningi þegar þjónustan hefur verið veitt.
Allar fjárhæðir eru í milljónum króna
HAGAR HF. ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
k. Leigugreiðslur
Greiðslur vegna rekstrarleigusamninga eru færðar línulega í rekstrarreikning á leigutímanum. Leiguhvatar eru færðir í rekstrarreikning sem óaðskiljanlegur hluti heildarleigugjalda á leigutímabilinu. Leiguhvatar vegna rekstrarleigusamninga eru tekjufærðir línulega í rekstrarreikning á leigutímabilinu.
l. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld
Fjármunatekjur samanstanda af vaxtatekjum af fjárfestingum og gengishagnaði af erlendum gjaldmiðlum. Vaxtatekjur eru færðar eftir því sem þær falla til miðað við virka vexti.
Fjármagnsgjöld samanstanda af vaxtakostnaði af lántökum, bakfærslu núvirðingar á skuldbindingum, virðisrýrnun fjáreigna og gengistapi af erlendum gjaldmiðlum. Lántökukostnaður er færður í rekstrarreikning miðað við virka vexti.
Hagnaði og tapi vegna gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla er jafnað saman og fært sem annað hvort fjármunatekjur eða fjármagnsgjöld sem fer eftir hvort gengismunahreyfingar skila sér í hagnaði eða tapi.
m. Tekjuskattur
Tekjuskattur samanstendur af tekjuskatti til greiðslu og frestuðum tekjuskatti. Tekjuskattur er færður í rekstrarreikning nema þegar hann tengist liðum sem eru færðir beint á eigið fé, en þá er tekjuskatturinn færður á eigið fé.
Tekjuskattur til greiðslu er tekjuskattur sem áætlað er að komi til greiðslu á næsta ári vegna skattskylds hagnaðar ársins, miðað við gildandi skatthlutfall á uppgjörsdegi, auk leiðréttinga á tekjuskatti til greiðslu vegna fyrri ára.
Frestaður tekjuskattur er færður með notkun efnahagsreikningsaðferðarinnar vegna tímabundins mismunar á bókéfærðu verði eigna og skulda í ársreikningnum annars vegar og skattverði þeirra hins vegar. Frestaður tekjuskattur er ekki færður vegna skattalegs tímabundins mismunar sem er tilkominn vegna upphaflegar skráningar á viðskiptavild.
Útreikningur á frestuðum skatti byggir á því skatthlutfalli sem vænst er að verði í gildi þegar tímabundinn mismunur kemur til með að snúast við, miðað við gildandi lög á uppgjörsdegi. Skatteign og tekjuskattsskuldbindingu er jafnað saman þegar til staðar er lagalegur réttur til að jafna saman tekjuskatti til greiðslu og skatteign.
Skatteign er einungis færð að því marki sem líklegt er talið að skattskyldur hagnaður verði til ráðstöfunar í framtíðinni sem unnt verður að nýta eignina á móti. Skatteignin er metin á hverjum uppgjörsdegi og lækkuð að því marki sem talið er líklegt að hún nýtist ekki.
n. Hagnaður á hlut
Í ársreikningnum er sýndur grunnhagnaður á hlut og þynntur hagnaður á hlut fyrir almenna hluti í félaginu. Hagnaður á hlut er reiknaður með því að deila hagnaði ársins, sem úthlutað er til hluthafa félagsins, með vegnu meðaltali útistandandi hlutafjár yfir árið. Þynntur hagnaður á hlut er ákværðaður með því að leiðréttá fjölda virkra hluta fyrir mögulegri þynningu vegna hluta sem gæti þurft að gefa út.
o. Starfsþáttayfirlit
Samstæðan birtir hvorki starfsþáttayfirlit eftir sviðum né landssvæðum þar sem starfsemi hennar er einungis í rekstri smásöluverslana á Íslandi.
p. Nýir reikningsskilastaðlar og túlkanir sem hafa ekki verið innleiddar
Samstæðan hefur tekið upp alla nýja alþjóðlega reikningsskilastaðla, breytingar á þeim og túlkanir sem Evrópusambandið hefur staðfest og tóku gildi 1. janúar 2015. Upptaka nýrra staðla á árinu hefur engin áhrif á samstæðuársreikning félagsins.
- Ákvörðun gangvirðis
Nokkrar reikningsskilaðferðir og skýringar krefjast þess að gangvirði sé ákværðað, bæði fyrir fjáreignir og fjárskuldir og aðrar eignir og skuldir. Gangvirði hefur verið ákværðað vegna mats og/eða skýringa samkvæmt eftirfarandi aðferðum. Þar sem við á eru frekari upplýsingar um forsendur gangvirðis eigna eða skulda í skýringum um viðkomandi eignir eða skuldir.
Allar fjárhæðir eru í milljónum króna
HAGAR HF. ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
48
HAGAR HF.
ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
a. Rekstrarfjármunir
Gangvirði rekstrarfjármuna, sem yfirteknir eru við samruna, miðast við markaðsvirði þeirra. Markaðsvirði fasteigna er sú fjárhæð sem unnt er að fá við sölu í viðskiptum milli ótengdra, viljugra og upplýstra aðila. Gangvirði tækja og innréttinga byggist á markaðsverði sambærilegra eigna.
b. Óefnislegar eignir
Gangvirði óefnislegra eigna er byggt á núvirtu væntu framtíðarsjóðstreymi tengdu notkun þeirra.
c. Birgðir
Gangvirði birgða sem yfirteknar eru við samruna er ákvarðað út frá væntu söluvirði í eðlilegum viðskiptum að frátöldum sölukostnaði og eðlilegri álagningu við að selja birgðirnar.
d. Víðskiptakröfur og aðrar kröfur
Gangvirði viðskiptakrafna og annarra krafna er metið sem núvirði af væntu sjóðstreymi, núvirt miðað við markaðsvexti á uppgjörsdegi.
e. Fjárskuldir sem ekki teljast afleiður
Gangvirði fjárskulda, sem einungis er ákvarðað vegna skýringa, er reiknað núvirði framtíðarflæðis höfuðstóls og vaxta og er afvaxtað með markaðsvöxtum á uppgjörsdegi.
- Aðrar rekstrartekjur
Aðrar rekstrartekjur greinast þannig:
| 2015/16 | 2014/15 | |
|---|---|---|
| Seld þjónusta | 201 | 123 |
| Umboðstekjur | 5 | 6 |
| Aðrar rekstrartekjur samtals | 206 | 129 |
- Laun og launatengd gjöld
Laun og launatengd gjöld greinast þannig:
| Laun | 6.018 | 5.605 |
|---|---|---|
| Mótframlag í lífeyrissjóð | 531 | 499 |
| Önnur launatengd gjöld | 613 | 576 |
| Laun og launatengd gjöld samtals | 7.162 | 6.680 |
| Stöðugildi að meðaltali | 1.195 | 1.160 |
| --- | --- | --- |
| Fjöldi starfsmanna í árslok | 2.327 | 2.199 |
- Annar rekstrarkostnaður
Annar rekstrarkostnaður greinist þannig:
| Leigugreiðslur | 3.227 | 3.161 |
|---|---|---|
| Ýmis annar rekstrarkostnaður | 3.267 | 3.176 |
| Annar rekstrarkostnaður samtals | 6.494 | 6.337 |
- Afskriftir
Afskriftir greinast þannig:
| Afskrift rekstrarfjármuna, sjá skýringu 11 | 672 | 637 |
|---|---|---|
| Afskrift óefnislegra eigna, sjá skýringu 12 | 27 | 37 |
| Afskriftir samtals | 699 | 674 |
Allar fjárhæðir eru í milljónum króna
9. Fjårmunatekjur og fjårmagnsgjöld
| Fjårmunatekjur og fjårmagnsgjöld greinast pannig: | 2015/16 | 2014/15 |
|---|---|---|
| Vaxtatekjur af innstæðum og kröfum. | 296 | 248 |
| Vaxtagjöld og verðbætur. | (345) | (395) |
| Hrein fjårmagnsgjöld. | (49) | (147) |
10. Tekjuskattur
| Tekjuskattur í rekstrarreikningi greinist pannig: | ||
|---|---|---|
| Tekjuskattur til greiðslu | 954 | 940 |
| Breyting tekuskattsskuldbindingar | (52) | 17 |
| Tekjuskattur færður í rekstrarreikning | 902 | 957 |
| Virkur tekjuskattur greinist pannig: | ||
| --- | --- | --- |
| Hagnaður ársins | 3.596 | 3.838 |
| Tekjuskattur ársins | 902 | 957 |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 4.498 | 4.795 |
| Tekjuskattur miðað við gildandi skatthlutfall. | 20,0% | (900) |
| --- | --- | --- |
| Aðrir liðir | (0,0%) | (2) |
| Virkur tekjuskattur | 20,0% | (902) |
Breyting á timabundnum mismun 2015/16:
| Staða 28.2.2015 | Fært í rekstrar- reikning | Fjörfesting í félagi | Staða 29.2.2016 | |
|---|---|---|---|---|
| Rekstrarfjármunir | (428) | (73) | (39) | (540) |
| Óefnislegar eignir | (19) | 0 | 0 | (19) |
| Birgðir | (48) | 1 | 0 | (47) |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur | (49) | 7 | 0 | (42) |
| Yfirfæranlegt skattalegt tap | 0 | 0 | 5 | 5 |
| Skuldbindingar. | 17 | 117 | 0 | 134 |
| Tekjuskattsskuldbinding samtals | (527) | 52 | (34) | (509) |
Breyting á timabundnum mismun 2014/15:
| Staða 28.2.2014 | Fært í rekstrar- reikning | Fjörfesting í félagi | Staða 28.2.2015 | |
|---|---|---|---|---|
| Rekstrarfjármunir | (428) | 0 | 0 | (428) |
| Óefnislegar eignir | (19) | 0 | 0 | (19) |
| Birgðir | (48) | 0 | 0 | (48) |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur | (43) | (6) | 0 | (49) |
| Skuldbindingar. | 22 | (5) | 0 | 17 |
| Tekjuskattsskuldbinding samtals | (516) | (11) | 0 | (527) |
Tekjuskattur til greiðslu greinist pannig:
| 29.2.2016 | 28.2.2015 | |
|---|---|---|
| Tekjuskattur ársins til greiðslu | 954 | 940 |
| Fyrirframgreiddir skattar | (80) | (60) |
| Tekjuskattur ársins til greiðslu samtals | 874 | 880 |
Allar fjárhæðir eru í milljónum króna
HAGAR HF. ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
Yfirfæranlegt skattalegt tap
Yfirfæranlegt skattalegt tap nam i lok reikningsårs 53 millj. kr. (2014/15: 28 millj. kr.). Yfirfæranlegt skattalegt tap er nytanlegt i 10 år fra myndun þess og greinist eftirfarandi:
| 29.2.2016 | 28.2.2015 | |
|---|---|---|
| Tap årsins 2008, nýtanlegt fyrir lok års 2018 | 18 | 18 |
| Tap årsins 2009, nýtanlegt fyrir lok års 2019 | 10 | 10 |
| Tap årsins 2014, nýtanlegt fyrir lok års 2024 | 9 | 0 |
| Tap årsins 2015, nýtanlegt fyrir lok års 2025 | 16 | 0 |
| 53 | 28 | |
| Yfirfæranlegt skattalegt tap sem ekki er fært til eignar | (28) | (28) |
| Yfirfæranlegt skattalegt tap fært sem skatteign | 25 | 0 |
- Rekstrarfjármunir
| Rekstrarfjármunir greinast pannig: | Fasteignir | Åhöld og innréttingar | Samtals |
|---|---|---|---|
| Kostnadarverð | |||
| Staða 1.3.2014 | 1.687 | 10.266 | 11.953 |
| Viðbætur | 1.365 | 783 | 2.148 |
| Selt og aflagt | 0 | (27) | (27) |
| Staða 28.2.2015 | 3.052 | 11.022 | 14.074 |
| Staða 1.3.2015 | 3.052 | 11.022 | 14.074 |
| Viðbætur | 1.676 | 1.207 | 2.883 |
| Selt og aflagt | 0 | (35) | (35) |
| Staða 29.2.2016 | 4.728 | 12.194 | 16.922 |
| Afskriftir | |||
| Staða 1.3.2014 | 64 | 6.614 | 6.678 |
| Afskriftir | 31 | 606 | 637 |
| Selt og aflagt | 0 | (10) | (10) |
| Staða 28.2.2015 | 95 | 7.210 | 7.305 |
| Afskriftir | 62 | 610 | 672 |
| Selt og aflagt | 0 | (11) | (11) |
| Staða 29.2.2016 | 157 | 7.809 | 7.966 |
| Bókfært verð | |||
| Staða 1.3.2014 | 1.623 | 3.652 | 5.275 |
| Staða 28.2.2015 | 2.957 | 3.813 | 6.770 |
| Staða 29.2.2016 | 4.571 | 4.385 | 8.956 |
Fasteignamat og vátryggingaverð
Vátryggingaverð, fasteignamat og bókfært verð fasteigna og lóða í lok reikningsårs nam eftirfarandi fjárhæðum:
| 29.2.2016 | 28.2.2015 | |
|---|---|---|
| Fasteignamat | 2.862 | 1.565 |
| Vátryggingaverð fasteigna | 4.426 | 2.430 |
| Bókfært verð fasteigna | 4.571 | 2.957 |
| Vátryggingaverð innréttinga og áhalda | 7.195 | 7.247 |
| Bókfært verð innréttinga og áhalda | 4.385 | 3.813 |
Veðskuldir
Allir rekstrarfjármunir samstæðunnar eru veðsettir vegna vaxtaberandi skulda.
Allar fjárhæðir eru í milljánum króna
HAGAR HF. ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
- Öefnislegar eignir
Öefnislegar eignir greinast þannig:
| Viðskipta-vild | Hug-búnaður | Leigu-réttur | Samtals | |
|---|---|---|---|---|
| Kostnaðarverð | ||||
| Staða 1.3.2014 | 8.172 | 426 | 145 | 8.743 |
| Viðbætur | 0 | 13 | 0 | 13 |
| Staða 28.2.2015 | 8.172 | 439 | 145 | 8.756 |
| Viðbætur | 0 | 5 | 0 | 5 |
| Staða 29.2.2016 | 8.172 | 444 | 145 | 8.761 |
| Afskriftir og virðisrýrnun | ||||
| Staða 1.3.2014 | 563 | 286 | 120 | 969 |
| Afskriftir | 0 | 25 | 12 | 37 |
| Staða 28.2.2015 | 563 | 311 | 132 | 1.006 |
| Afskriftir | 0 | 14 | 13 | 27 |
| Staða 29.2.2016 | 563 | 325 | 145 | 1.033 |
| Bókfært verð | ||||
| Staða 1.3.2014 | 7.609 | 140 | 25 | 7.774 |
| Staða 28.2.2015 | 7.609 | 128 | 13 | 7.750 |
| Staða 29.2.2016 | 7.609 | 119 | 0 | 7.728 |
Virðisrýnunarpróf
Viðskiptavild sem verður til við yfirtökur er ekki afskrifuð heldur er gert virðisrýnunarpróf að minnsta kosti árlega til að kanna hvort til staðar sé vísbending um virðisrýrnun hennar. Viðskiptavild sem myndast við yfirtökur er útdeilt á flokk eigna sem eru skilgreindar sem fjárskapandi einingar af stjórnendum samstæðunnar.
Endurheimtanlegar fjárhæðir fyrir tekjuskapandi einingar eru byggðar á nýtingarvirði eða gangvirði að frádregnum kostnaði við sölu, hvoru sem hærra reynist. Endurheimtanlegar fjárhæðir byggjast á nýtingarvirði.
Áætlanir um fjárstreymi byggjast á rauntölum og 5 ára rekstraráætlun félagsins. Í fjárstreyminu er gert ráð fyrir að framtíðarnafnvöxtur verði á bilinu 2,0% til 3,2% á árunum 2016/17 til 2020/21 (2014/15: 3,0% til 4,5%). Áætlaður framtíðarnafnvöxtur að loknu 5 ára spätimabili er 3,0% (2014/15: 3,0%).
Ávöxtunarkrafa heildarfjármagns eftir tekjuskatt var 11,0% (2014/15: 11,1%). Við útreikning á ávöxtunarkröfu var stuðst við ávöxtunarkröfu sambærilegra félaga og miðað er við 17,7% (2014/15: 17,7%) skuldsetningu á markaðsvöxtunum 6,7% (2014/15: 7,0%). Ávöxtunarkrafan er reiknuð út frá fjármagnskostnaði samstæðunnar eftir tekjuskatt og er hún aðlöguð að mismunandi áhættupáttum einstakra fjárskapandi eininga.
Töluverð breyting í forsendum mun ekki leiða af sér virðisrýrnun.
- Birgðir
Birgðir greinast þannig:
| 29.2.2016 | 28.2.2015 | |
|---|---|---|
| Matvara | 3.213 | 3.024 |
| Sérvara | 1.242 | 1.394 |
| Vörur í flutningi | 301 | 188 |
| Vörubirgðir samtals | 4.756 | 4.606 |
| Niðurfærsla birgða í lok reikningsárs | 103 | 99 |
| Vátryggingaverð birgða | 5.626 | 5.284 |
Veðskuldir
Allir birgðir samstæðunnar eru veðsettar vegna vaxtaberandi skulda.
Allar fjárhæðir eru í milljónum króna
HAGAR HF. ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
52
HAGAR HF.
ÅRSSKYRSLA 2015-2016
14. Víðskiptakrófur og aðrar skammtímakrófur
| Víðskiptakrófur og aðrar skammtímakrófur greinast þannig: | 29.2.2016 | 28.2.2015 |
|---|---|---|
| Víðskiptakrófur | 442 | 522 |
| Aðrar skammtímakrófur | 104 | 218 |
| Fyrirframgreiddur kostnaður | 147 | 147 |
| Niðurfærsla víðskiptakrafna | (33) | (23) |
| Víðskiptakrófur og aðrar skammtímakrófur | 660 | 864 |
| Greiðslukortakrófur | 3.795 | 4.271 |
| Víðskiptakrófur og aðrar skammtímakrófur samtals | 4.455 | 5.135 |
Veðskuldir
Allar víðskiptakrófur samstæðunnar eru veðsettar vegna vaxtaberandi skulda.
15. Handbært fé
Handbært fé greinist þannig:
| Peningamarkaðsinnlán | 2.900 | 2.900 |
|---|---|---|
| Óbundnar bankainnstæður | 845 | 370 |
| Sjóður | 65 | 78 |
| Handbært fé samtals | 3.810 | 3.348 |
Veðskuldir
Allt handbært fé samstæðunnar er veðsett vegna vaxtaberandi skulda.
16. Eigið fé
Hlutafé – í milljónum hlutabréfa
| Útistandandi hlutir í ársbyrjun | 1.172 | 1.172 |
|---|---|---|
| Útistandandi hlutir í árslok | 1.172 | 1.172 |
Heildarhlutafé félagsins samkvæmt samþykktum þess nam 1.172 millj. kr. í lok reikningsársins. Eitt atkvæði fylgir hverjum einnar krónu hlut í félaginu. Eigendur hluta í félaginu eiga rétt til arðs í hlutfalli við eign sína við arðsúthlutun sem samþykkt er á aðalfundum félagsins.
Yfirverðsreikningur hlutafjár
Yfirverðsreikningur innborgaðs hlutafjár sýnir það sem hluthafar félagsins hafa greitt umfram nafnverð hlutafjár sem félagið hefur selt. Samkvæmt lögum um hlutafélög skal félagið binda 25% af nafnverði hlutafjár í varasjóði sem má ekki nota til að greiða hluthöfum arð.
Arðgreiðslur
Stjórn félagsins leggur til að 1,70 kr. á hlut verði greidd út sem arður til hluthafa á árinu 2016 (2015: 1,70 kr. á hlut).
17. Hagnaður á hlut
Grunnhagnaður á hlut miðar við hagnað sem ráðstafað er til hluthafa í móðurfélaginu og vegins meðalfjölda virkra hluta á árinu og sýnir hver hagnaðurinn er á hverja krónu hlutafjár. Þynntur hagnaður á hlut er hinn sami og grunnhagnaður á hlut, þar sem ekki hafa verið gefnir út kaupréttir til starfsmanna né annarra og félagið hefur ekki tekið lán sem er breytanlegt í hlutafé.
| 2015/16 | 2014/15 | |
|---|---|---|
| Hagnaður ársins til hluthafa móðurfélagsins | 3.596 | 3.838 |
Vegið meðaltal útistandandi hlutafjár:
| Útistandandi hlutir í upphafi og lok árs | 1.172 | 1.172 |
|---|---|---|
| Veginn meðalfjöldi útistandandi hluta | 1.172 | 1.172 |
Grunnhagnaður og þynntur hagnaður á hlut 3,07 3,27
Allar fjórhæðir eru í milljónum króna
- Vaxtaberandi skuldir
| Vaxtaberandi skuldir greinast pannig: | 29.2.2016 | 28.2.2015 |
|---|---|---|
| Langtimaskuldir | ||
| Veðtryggð bankalán | 3.605 | 4.077 |
| Fjármögnunarleigusamningar | 143 | 162 |
| Vaxtaberandi langtímaskuldir samtals | 3.748 | 4.239 |
| Skammtímaskuldir | ||
| Næsta árs afborganir veðtryggðra bankalána | 739 | 728 |
| Næsta árs afborganir fjármögnunarleigusamninga | 24 | 21 |
| Vaxtaberandi skammtímaskuldir samtals | 763 | 749 |
| Vaxtaberandi skuldir samtals | 4.511 | 4.988 |
| Skilmálar vaxtaberandi skulda eru eftirfarandi: | ||
| --- | --- | --- |
| Vegið meðaltal sexta | ||
| 29.2.2016 | 28.2.2015 | |
| Skuldir í ISK, överðtryggðar | 7,15% | 6,10% |
| Skuldir í ISK, verðtryggðar | 10,50% | 10,50% |
| Langtímaskuldir, þ.m.t. næsta árs afborgun | ||
| Næsta árs afborganir langtímaskulda | ||
| Langtímaskuldir samtals | ||
| Afborganir langtímalána greinast pannig á næstu ár: | 29.2.2016 | |
| Afborganir 2015/16 | - | |
| Afborganir 2016/17 | 763 | |
| Afborganir 2017/18 | 767 | |
| Afborganir 2018/19 | 771 | |
| Afborganir 2019/20 | 2.165 | |
| Afborganir 2020/21 | 45 | |
| Samtals | 4.511 |
Gangvirði fjáreigna og fjárskulda er jafnt bókfærðu virði þeirra.
- Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir greinast pannig:
| Viðskiptaskuldir | 4.979 | 4.811 |
|---|---|---|
| Aðrar skammtímaskuldir | 2.014 | 1.521 |
| Leiguhvatar, sjá skýringu 21 | 25 | 43 |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir samtals | 7.018 | 6.375 |
- Skuldbindingar og óvissa
Í lok febrúar 2016 nam skuldbinding félagsins 12 millj. kr. (2014/15: 50 millj. kr). Skuldbinding í lok febrúar 2016 er vegna íþyngjandi leigusamninga vegna húsnæðis sem ekki er í notkun hjá félaginu og einnig vegna húsnæðis sem er í áframleigu hjá félaginu.
Árið 2012 barst félaginu krafa frá samkeppnisaðila um greiðslu skaðabóta vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu sinni. Félagið hafnaði kröfunni og færði ekki skuldbindingu vegna þessa. Héraðsdómur Reykjaness hefur nú dæmt stefnanda í hag og þarf félagið að greiða 218,7 millj. kr. auk sexta og málskostnaðar. Félagið mun áfrýja dómnum til Hæstaréttar. Félagið hefur nú fært skuldbindingu vegna málsins að upphæð 413 millj. kr.
Allar fjárhæðir eru í milljónum króna
HAGAR HF. ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
54
HAGAR HF.
ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
21. Rekstrarleigusamningar
Leigusamningar sem leigutaki
| Leigugreíðslur vegna óuppsegjanlegra rekstrarleigusamninga greinast þannig: | 29.2.2016 | 28.2.2015 |
|---|---|---|
| Innan eins árs | 2.933 | 2.937 |
| Eftir eitt til fimm ár | 6.843 | 7.722 |
| Eftir meira en fimm ár | 2.062 | 2.441 |
| Rekstrarleigusamningar samtals | 11.838 | 13.100 |
Samstæðan leigir fasteignir undir starfsemi sína. Lengstu leigusamningarnir gilda til ársins 2025. Skuldbindingar samstæðunnar vegna leigusamninganna námu 11.838 millj. kr. í lok reikningsársins (2014/15: 13.100 millj. kr.). Flestir leigusamningar eru tengdir visitölu neysluverðs. Samstæðan hefur einnig gert rekstrarleigusamninga vegna leigu á áhöldum og tækjum.
Eftirstöðvar leiguhvata vegna rekstrarleigusamninga nema 25 millj. kr. (2014/15: 68 millj. kr.) og verða þeir tekjufærðir línulega á næsta ári.
Leigusamningar sem leigusali
Samstæðan leigir út fasteignir. Framtíðarleigugreíðslur leigusamninga eru að lágmarki sem hér segir:
| Innan eins árs | 83 | 79 |
|---|---|---|
| Eftir eitt til fimm ár | 325 | 282 |
| Eftir meira en fimm ár | 21 | 83 |
| Rekstrarleigusamningar samtals | 429 | 444 |
22. Stýring fjármálalegrar áhættu
a. Yfirlit
Eftirfarandi áhætta fylgir fjármálagerningum félagsins:
- Lánsáhætta
- Lausafjáráhætta
- Markaðsáhætta
Hér eru veittar upplýsingar um framangreinda áhættu, markmið, stefnu og aðferðir félagsins við að meta og draga úr áhættunni, auk upplýsinga um eiginfjárstýringu þess. Að auki eru veittar tölulegar upplýsingar viðar í ársreikningnum.
Stjórn félagsins ber ábyrgð á innleiðingu og eftirliti með fjármálalegri áhættu samstæðunnar.
Markmið samstæðunnar með áhættustýringu er að uppgótva og greina áhættu sem hún býr við, setja viðmið um áhættutöku og hafa eftirlit með henni. Áhættustýring samstæðunnar og aðferðir eru yfirfarnar reglulega til að greina breytingar á markaði og starfsemi samstæðunnar. Með starfsmannapjálfun og starfsreglum stefnir samstæðan að öguðu eftirliti þar sem allir starfsmenn eru meðvitaðir um hlutverk sitt og skyldur.
b. Lánsáhætta
Lánsáhætta er hættan á fjárhagslegu tapi félagsins ef viðskiptamaður eða mótaðili í fjármálagerningi getur ekki staðið við umsamdar skuldbindingar sínar. Lánsáhætta félagsins er einkum vegna viðskiptakrafna og verðbréfa.
Viðskiptakröfur og aðrar kröfur
Lánsáhætta samstæðunnar ræðst einkum af fjárhagsstöðu og starfsemi einstakra viðskiptamanna.
Félagið myndar niðurfærslu vegna áætlæðrar virðisrýrnunar viðskiptakrafna og annarra krafna. Niðurfærslan er í meginatriðum sérstök niðurfærsla vegna einstakra viðskiptamanna og sameiginleg niðurfærsla með tilliti til aldurs krafna, sem ekki hefur verið tengd einstökum viðskiptamönnum. Sameiginlega niðurfærslan er ákveðin með tilliti til innheimtusögu sambærilegra krafna.
Allar fjórhæðir eru í milljónum króna
I lok reikningsårsins var lånssåhætta félagsins overuleg.
Mögulegt tap vegna lånssåhættu
Mesta mögulega tap samstæðunnar vegna fjáreigna er bökfært verð þeirra, sem var eftirfarandi á reikningsskiladegi:
| Skýring | 29.2.2016 | 28.2.2015 | |
|---|---|---|---|
| Viðskiptakrófur og aðrar skammtímakrófur | 14 | 513 | 717 |
| Viðskiptakrófur – greiðslukortakrófur | 14 | 3.795 | 4.271 |
| Mesta mögulega tap vegna viðskiptakrafna | 4.308 | 4.988 | |
| Handbært fé | 15 | 3.810 | 3.348 |
| Mesta mögulega tap vegna fjáreigna | 8.118 | 8.336 |
Hreyfingar á niðurfærslu viðskiptakrafna greinast þannig: ……………………
| Staða í upphafi reikningsårs | 23 | 25 |
|---|---|---|
| Bökfært á árinu | 10 | (2) |
| Staða í lok reikningsårs | 33 | 23 |
c. Lausafjáráhætta
Lausafjáráhætta er hættan á því að samstæðan geti ekki staðið við fjárhagsskuldbindingar sínar eftir því sem þær gjaldfalla. Markmið samstæðunnar er að stýra lausafé þannig að tryggt sé að það hafi alltaf nægt laust fé til að mæta skuldbindingum sínum eftir því sem þær gjaldfalla og forðast þannig að skaða orðspor samstæðunnar.
Sammingsbundnar greiðslur vegna fjárskulda, þar með taldar væntanlegar vaxtagreiðslur, greinast þannig:
29. febrúar 2016
| Fjármálagerningar sem ekki eru afleiður | ||||||
|---|---|---|---|---|---|---|
| Bökfært verð | Sammings-bundið sjöðsflæði | Innan árs | Eftir 1-2 ár | Eftir 2-5 ár | Eftir meira en 5 ár | |
| Vaxtaberandi skuldir | 4.344 | 4.957 | 1.034 | 954 | 2.968 | 0 |
| Fjármögnunarleiga | 167 | 235 | 41 | 42 | 136 | 16 |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir | 7.018 | 7.018 | 7.018 | 0 | 0 | 0 |
| 11.529 | 12.210 | 8.093 | 996 | 3.104 | 16 |
28. febrúar 2015
Fjármálagerningar sem ekki eru afleiður
| Vaxtaberandi skuldir | 4.805 | 5.558 | 1.005 | 945 | 3.608 | 0 |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Fjármögnunarleiga | 183 | 280 | 40 | 42 | 134 | 64 |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir | 6.375 | 6.375 | 6.375 | 0 | 0 | 0 |
| 11.363 | 12.213 | 7.420 | 987 | 3.742 | 64 |
d. Markaðsáhætta
Markaðsáhætta er hættan á því að breytingar í markaðsverði erlendra gjaldmiðla og vaxta hafi áhrif á afkomu samstæðunnar eða virði fjármálagerninga. Markmið með stýringu markaðsáhættu er að stýra og takmarka áhættu við skilgreind mörk, jafnframt því sem ábati er hámarkaður.
(i) Gjaldmiðloáhætta
Samstæðan býr við gengisáhættu vegna innkaupa og lántöku í öðrum gjaldmiðli en íslenskum krónum (ISK). Þeir gjaldmiðlar sem einkum skapa gengisáhættu eru evra (EUR), bandaríkjáollar (USD) og breskt pund (GBP).
Tapshætta vegna gjaldmiðloáhættu
Mögulegt tap samstæðunnar vegna erlendra gjaldmiðla, byggt á nafnverðsfjárhæðum, er 385 millj. kr. í árslok (2014/15: 328 millj. kr.). 10% veiking íslensku krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum í febrúarlok 2016 hefði minnkað eigið fé og afkomu eftir tekjuskatt um 31 millj. kr. (2014/15: -26 millj. kr.).
(ii) Vaxtaáhætta
96,3% af lántökum félagsins eru með breytilegum vöxtum (2014/15: 96,3%).
Allar fjárhæðir eru í milljónum króna
HAGAR HF. ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
56
HAGAR HF.
ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
Vaxtaahætta
Vaxtaberandi peningalegar skuldir eru eftirfarandi í lok reikningsárs: 29.2.2016 28.2.2015
Fjármálagerningar með fóstum vóxtum
Fjárskuldir ……………………………………………………………… 167 183
Fjármálagerningar með breytilegum vóxtum
Fjárskuldir ……………………………………………………………… 4.344 4.805
Breyting á vóxtum skulda með breytilega vexti um 1% í lok reikningsárs myndi hækka (lækka) eigið fé og afkomu um 34 millj. kr. (2014/15: 38 millj. kr.) eftir tekjuskatt.
e. Eiginfjárstýring
Það er stefna stjórnar að eiginfjárstaða félagsins sé sterk til að viðhalda trausti fjárfesta, lánastofnana og annarra markaðsæðila ásamt því að stýðja við stöðugleika í framtíðarþróun starfseminnar.
Stefna stjórnar félagsins er að nýta umframsjóðstremi úr rekstri til að greiða arð, að lágmarki 50% hagnaðar næstliðins rekstrarárs, eða kaupa eigin hlutabréf. Félagið hefur á undanförnum árum greitt niður vaxtaberandi skuldir en stjórn telur ekki frekari þörf á niðurgreiðslu skulda umfram ákvæði lánssamninga. Að auki mun félagið, ef tækifæri gefast, kaupa fasteignir á hagstæðu verði sem nýtast félaginu í starfsemi sinni.
23. Gangvirði
Gangvirði fjáreigna og fjárskulda samanborið við bókfært verð eins og það er sett fram í efnahagsreikningi greinist þannig:
| 29. febrúar 2016 | 28. febrúar 2015 | |||
|---|---|---|---|---|
| Bókfært | Bókfært | |||
| verð | Gangvirði | verð | Gangvirði | |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur | 4.308 | 4.308 | 4.988 | 4.988 |
| Handbært fé | 3.810 | 3.810 | 3.348 | 3.348 |
| Vaxtaberandi skuldir | (4.511) | (4.511) | (4.988) | (4.988) |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir | (7.018) | (7.018) | (6.375) | (6.375) |
| (3.411) | (3.411) | (3.027) | (3.027) |
Fjallað er um forsendur við ákvörðun gangvirðis í skýringu 4.
24. Tengdir aðilar
Skilgreining tengdra aðila
Tengdir aðilar félagsins eru stjórnendur og stjórnarmenn. Viðskipti á milli félagsins og dötturfélaga þess, sem eru skilgreind sem tengdir aðilar, hafa verið færð út við samstæðureikningsskil og eru ekki hluti af þessari skýringu.
Viðskipti við tengda aðila
Laun og hlunnindi greidd til stjórnar og stjórnenda
Stjórnarlaun greidd fyrir rekstrarárið 2015/16 og eignahlutur í lok rekstrarárs
| Stjórnar- og nefndarlaun | Framlag í lífeyrissjóð | Eignahlutur í árslok* | |
|---|---|---|---|
| Kristín Friðgeirsdóttir, stjórnarformaður | 7,7 | 0,6 | 0,0 |
| Erna Gisladóttir, stjórnarmaður | 3,8 | 0,3 | 6,9 |
| Salvör Nordal, stjórnarmaður | 3,8 | 0,3 | 0,0 |
| Sigurður Arnar Sigurðsson, stjórnarmaður | 3,8 | 0,3 | 0,0 |
| Stefán Árni Auðólfsson, stjórnarmaður | 3,8 | 0,3 | 0,0 |
*Hlutir í beinni eigu stjórnenda eða aðila tengdum þeim.
Erna og Salvör eru nefndarmenn í endurskoðunarnefnd. Kristín, Sigurður Arnar og Stefán Árni eru nefndarmenn í starfskjaranefnd.
Allar fjárhæðir eru í milljónum króna
Laun og hlunnindi greidd til stjørnenda:
| Laun | Framlag i lifeyrissjöð | Bifreiða- hlunnindi | Árangurs- tengd laun | Eignahlutur i árslok* | |
|---|---|---|---|---|---|
| Finnur Árnason, forstjóri | 36,9 | 10,8 | 3,1 | 34,9 | 5,4 |
| Guðrún Eva Gunnarsdóttir, fjármálastjóri | 20,4 | 2,6 | 1,7 | 6,0 | 0,0 |
| Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri | 26,4 | 8,7 | 1,5 | 34,9 | 2,3 |
| Gunnar Ingi Sigurðsson, framkvæmdastjóri | 22,1 | 3,0 | 2,7 | 7,5 | 1,2 |
| Kjartan Már Friðsteinsson, framkvæmdastjóri | 22,6 | 2,4 | 2,0 | 10,0 | 0,2 |
| Lárus Óskarsson, framkvæmdastjóri | 21,2 | 2,4 | 2,4 | 4,0 | 0,0 |
Stjørnarlaun greidd fyrir rekstrarárið 2014/15 og eignahlutur í lok rekstrarárs
| Stjørnar- og nefndarlaun | Framlag i lifeyrissjöð | Eignahlutur i árslok* | |
|---|---|---|---|
| Kristín Friðgeirsdóttir, stjørnarformaður | 5,9 | 0,5 | 0,0 |
| Erna Gísladóttir, stjørnarmaður | 3,8 | 0,3 | 6,9 |
| Salvör Nordal, stjørnarmaður (frá júní 2014) | 2,8 | 0,2 | 0,0 |
| Sigurður Arnar Sigurðsson, stjørnarmaður (frá júní 2014) | 2,6 | 0,2 | 0,0 |
| Stefán Árni Auðólfsson, stjørnarmaður | 3,4 | 0,3 | 0,0 |
| Árni Hauksson, stjørnarformaður (til júní 2014) | 1,6 | 0,1 | 0,0 |
| Hallbjörn Karlsson, stjørnarmaður (til júní 2014) | 0,8 | 0,1 | 0,0 |
Erna og Salvör eru nefndarmenn í endurskoðunarnefnd. Kristín, Sigurður Arnar og Stefán Árni eru nefndarmenn í starfskjærnefnd.
Laun og hlunnindi greidd til stjørnenda:
| Laun | Framlag i lifeyrissjöð | Bifreiða- hlunnindi | Árangurs- tengd laun | Eignahlutur i árslok* | |
|---|---|---|---|---|---|
| Finnur Árnason, forstjóri | 35,3 | 10,6 | 3,2 | 35,0 | 5,4 |
| Guðrún Eva Gunnarsdóttir, fjármálastjóri | 19,6 | 2,6 | 1,3 | 6,0 | 0,0 |
| Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri | 27,0 | 8,7 | 1,5 | 35,0 | 2,3 |
| Gunnar Ingi Sigurðsson, framkvæmdastjóri | 21,9 | 3,2 | 2,9 | 7,5 | 1,2 |
| Kjartan Már Friðsteinsson, framkvæmdastjóri | 21,9 | 5,1 | 3,3 | 8,0 | 1,2 |
| Lárus Óskarsson, framkvæmdastjóri | 20,5 | 2,2 | 2,2 | 4,0 | 0,0 |
*Hlutir í beinni eigu stjørnenda eða aðila tengdum þeim.
- Félög í samstæðu
Dótturfélög félagsins í lok reikningsárs voru sjö. Dótturfélögin í samstæðuársreikningnum eru eftirfarandi:
| Staðsetning | Hlutur | ||
|---|---|---|---|
| 29.2.2016 | 28.2.2015 | ||
| Hagar verslanir ehf. | Ísland | 100% | 100% |
| Bananar ehf. | Ísland | 100% | 100% |
| Ferskar kjötvörur ehf. | Ísland | 100% | 100% |
| Noron ehf. | Ísland | 100% | 100% |
| Íshöfn ehf. | Ísland | 100% | 100% |
| Eignarhaldsfélagið Dagar ehf. | Ísland | 100% | 100% |
| Gargon ehf. | Ísland | 100% | 0% |
Á árinu var fjárfest í dótturfélaginu Gargon ehf. en félagið á fasteign sem samstæðan notar.
Hlutir móðurfélagsins í ofangreindum dótturfélögum fyrir utan eignarhlut í Gargon ehf. eru veðsettir vegna vaxtaberandi skulda.
- Kennitölur
Helstu kennitölur samstæðunnar eru eftirfarandi:
| Efnahagsreikningur: | 29.2.2016 | 28.2.2015 |
|---|---|---|
| Lausafjárhlutfall – veltufjármunir/skammtímaskuldir | 1,43 | 1,63 |
| Eiginfjárhlutfall – eigið fé/heildareignir | 55,1% | 53,5% |
| Innra virði hlutafjár | 13,97 | 12,60 |
Allar fjárhæðir eru í milljónum króna
HAGAR HF. ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
ÁRSFJÓRDUNGAYFIRLIT (ÓENDURSKOBAD)
| Rekstrarárið 2015/16 | 1. árs-fjórðungur | 2. árs-fjórðungur | 3. árs-fjórðungur | 4. árs-fjórðungur | Samtals |
|---|---|---|---|---|---|
| Vórusala | 18.668 | 19.722 | 18.787 | 21.189 | 78.366 |
| Kostnaðarverð seldra vara | (14.183) | (14.875) | (14.134) | (16.065) | (59.257) |
| Framlagð | 4.485 | 4.847 | 4.653 | 5.124 | 19.109 |
| Aðrar rekstrartekjur | 45 | 42 | 45 | 74 | 206 |
| Laun og launatengd gjöld | (1.697) | (1.667) | (1.788) | (2.010) | (7.162) |
| Annar rekstrakostnaður | (1.621) | (1.566) | (1.637) | (1.670) | (6.494) |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir | 1.212 | 1.656 | 1.273 | 1.518 | 5.659 |
| Skaðabætur | 0 | 0 | 0 | (413) | (413) |
| Afskriftir | (171) | (162) | (175) | (191) | (699) |
| Rekstrarhagnaður | 1.041 | 1.494 | 1.098 | 914 | 4.547 |
| Fjármunatekjur | 48 | 59 | 60 | 129 | 296 |
| Fjármagnsgjöld | (75) | (85) | (101) | (84) | (345) |
| Hrein fjármagnsgjöld | (27) | (26) | (41) | 45 | (49) |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 1.014 | 1.468 | 1.057 | 959 | 4.498 |
| Tekjuskattur | (203) | (293) | (212) | (194) | (902) |
| Heildarhagnaður ársins | 811 | 1.175 | 845 | 765 | 3.596 |
Rekstrarárið 2014/15
| Vórusala | 18.885 | 19.478 | 18.400 | 20.380 | 77.143 |
|---|---|---|---|---|---|
| Kostnaðarverð seldra vara | (14.311) | (14.787) | (13.978) | (15.563) | (58.639) |
| Framlagð | 4.574 | 4.691 | 4.422 | 4.817 | 18.504 |
| Aðrar rekstrartekjur | 27 | 30 | 25 | 47 | 129 |
| Laun og launatengd gjöld | (1.646) | (1.568) | (1.674) | (1.792) | (6.680) |
| Annar rekstrakostnaður | (1.550) | (1.515) | (1.630) | (1.642) | (6.337) |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir | 1.405 | 1.638 | 1.143 | 1.430 | 5.616 |
| Afskriftir | (166) | (168) | (167) | (173) | (674) |
| Rekstrarhagnaður | 1.239 | 1.470 | 976 | 1.257 | 4.942 |
| Fjármunatekjur | 86 | 53 | 58 | 51 | 248 |
| Fjármagnsgjöld | (151) | (80) | (91) | (73) | (395) |
| Hrein fjármagnsgjöld | (65) | (27) | (33) | (22) | (147) |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 1.174 | 1.443 | 943 | 1.235 | 4.795 |
| Tekjuskattur | (235) | (288) | (189) | (245) | (957) |
| Heildarhagnaður ársins | 939 | 1.155 | 754 | 990 | 3.838 |
Allar fjórhæðir eru í milljónum króna
HAGAR HF. ÁRSSKÝRSLA 2015-2016
hagar
Hönnun: GunNil ehf.
Ljilomyrdin: Lärva förf Ingsson
Prentvis: Oddi hf.
hagar
HAGASMÁRA 1
201 KÖPAVOGUR
SÍMI 530 5500
WWW.HAGAR.IS