Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar AGM Information 2019

May 17, 2019

2196_rns_2019-05-16_97b5322b-1b5b-402e-8724-2037a8d1f0f8.pdf

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

hagar

Framboð til stjórnar á aðalfundi Haga hf.

  1. júní 2019

Björgvin Halldór Björnsson (f. 1982)

Björgvin Halldór er menntaður lögfræðingur með meistaragráðu (LL.M) frá University of Miami og Lunds Universitet og BA og meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands. Björgvin Halldór starfar sem lögmaður og er einn eigenda Lögfræðistofu Reykjavíkur ehf. Hann hefur starfað sem lögmaður hjá Íslensku lögfræðistofunni, Lögmönnum Laugardal og Fjármálaeftirlitinu, að undanskildum námshléum, frá árinu 2009. Björgvin Halldór er hluthafi í Lögfræðistofu Reykjavíkur ehf. og situr í stjórn eigin félags, BHB Legal Services slf. Hvorki Björgvin Halldór né aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.

Davíð Harðarson (f. 1976)

Davíð hefur setið í stjórn Haga frá 6. júní 2018. Hann er með M.Sc.- gráðu í fjármálum frá University of Florida og Cand.Oecon gráðu í fjármálum frá Háskóla Íslands og próf í verðbréfaviðskiptum. Davíð starfar sem fjármálastjóri Nordic Visitor og sem framkvæmdastjóri Magma hótels og situr hann jafnframt í stjórnum þeirra félaga. Davíð var forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Nordic Visitor 2017, framkvæmdarstjóri rekstar hjá Tommi's Burger Joint 2016 og fjármálastjóri Elkem Ísland 2013-2016. Á árunum 2009-2013 starfaði hann sem verkefnastjóri á fjármálasviði Elkem Ísland. Frá árinu 2004 til 2009 starfaði hann sem framkvæmdastjóri á eignastýringarsviði Landsbanka Íslands og sem sjóðsstjóri á árunum 2000-2003. Davíð á 141.485 hluti í Högum hf. Engir aðilar fjárhagslega tengdir honum eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.

Eiríkur S. Jóhannsson (f. 1968)

Eiríkur var kjörin í stjórn Haga á hluthafafundi þann 18. janúar 2019. Eiríkur er með B.Sc.-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands 1991 og lagði stund á framhaldsnám í fjármálum og alþjóðahagfræði við Vanderbilt University 1992-1994. Eiríkur tók við sem forstjóri Slippsins Akureyri á árinu 2015. Áður var hann framkvæmdastjóri Steinvirkis hf., dótturfélags Glitnis banka frá 2008 og þar áður forstöðumaður og framkvæmdastjóri hjá Baugi Group hf. Á árunum 2004-2005 var Eiríkur forstjóri Og Vodafone hf. og Dagsbrúnar hf. Áður hefur Eiríkur starfað sem forstjóri Fjárfestingafélagsins Kaldbaks, Kaupfélags Eyfirðinga sem og verið svæðisstjóri Landsbanka Íslands. Eiríkur er stjórnarformaður Samherja hf og Samherja Holding ehf. auk félaga innan samstæða þeirra og annara smærri félaga. Hann á að baki setu í fjölda stjórna félaga, innanlands sem erlendis í skráðum sem og óskráðum félögum. Eiríkur á engin hlutabréf í Högum hf. beint. Hann er fjárhagslega tengdur Samherja hf. sem á 112.343.738 hluti í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta eða samkeppnisaðila Haga.


Erna Gísladóttir (f. 1968)

Erna var fyrst kjörin í stjórn Haga þann 1. mars 2010. Hún er með MBA-gráðu frá IESE í Barcelona og B.Sc.-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands. Erna er forstjóri og eigandi BL ehf. og er ræðismaður Suður Kóreu á Íslandi. Erna var forstjóri Bifreiða & landbúnaðarvéla hf. 2003-2008 og einn af eigendum þess félags, en hún var framkvæmdastjóri hjá B&L 1991-2003. Erna situr í stjórnum eftirtalinna félaga: Eldhúsvörur ehf., BLIH eignarhald hf., Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (varamaður), EGG ehf., BL ehf., EGG fasteignir ehf. (varamaður) og Hregg ehf. (varamaður). Erna á engin hlutabréf í Högum hf. beint. Hún er fjárhagslega tengd Sjóvá-Almennum tryggingum hf. sem eiga 6.888.889 hluti í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga.

Guðrún Ólafsdóttir (f. 1968)

Guðrún er með M.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, B.A. gráðu í mannfræði frá Háskóla Íslands og sveinspróf í húsgagnasmiði. Þá hefur hún lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Guðrún starfar sem gæðastjóri hjá VHE ehf. Hún hefur áður starfað m.a. í gæðamálum og ráðgjöf hjá Medis ehf. 2006-2017, við markaðsrannsókn hjá Útflutningsráði Íslands 2003 og í framleiðsludeild Flögu group 1999-2000. Guðrún situr ekki í stjórnum annarra félaga. Hvorki Guðrún né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.

Helgi Bjarnason (f. 1965)

Helgi er með MBA-gráðu frá New York University, viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands (Cand. Oecon.), auk þess sem hann hefur lokið löggildingarnámi til fasteigna-, fyrirtækja- og skipasölu. Helgi starfar við fjárfestingar og er framkvæmdastjóri í eigin fyrirtæki. Hann hefur áður starfað m.a. sem framkvæmdastjóri Jöfur ehf. 2007-2016, framkvæmdastjóri Draumahúsa ehf. 2003-2006 og hjá Öryggismiðstöð Íslands hf. 1999-2003. Helgi situr í stjórnum eigin félaga, Hrafnasól ehf. og Leigumiðlun ehf. Hvorki Helgi né aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.

Katrín Olga Jóhannesdóttir (f. 1962)

Katrín var kjörin í stjórn Haga á hluthafafundi þann 18. janúar 2019. Katrín Olga er með BS í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, Ms í viðskiptum frá Odense Universitet og bætti við sig námi Corporate Finance frá London Bus-iness School. Katrín Olga er formaður Viðskiptaráðs Íslands. Hún hefur gegnt margvíslegum stjórnunarsstörfum þar á meðal stjórnarformaður og meðeigandi hjá Já hf, framkvæmdastjóri Stjórnunarsviðs Skipta, framkvæmdastjóri Einstaklingsmarkaðs Símans, framkvæmdastjóri Markaðssviðs Símans og framkvæmdastjóri Navision Software Ísland. Katrín Olga hefur setið í stjórnum til margra ára, þar á meðal í stjórn Icelandair Group, Ölgerðarinnar og Advania. Hún situr nú í háskólaráði Háskólans í Reykjavík og í fjárfestingaráði Akurs fjárfestingasjóðs. Þá á hún sæti í Samráðsvettvangi um aukna hagsæld. Hvorki Katrín Olga né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum. Engin hagsmunategsl eru við helstu viðskipta- og eða samkeppnisaðila Haga.


Már Wolfgang Mixa (f. 1965)

Már er með Ph.D-gráðu í viðskiptafræðum frá Háskólánum í Reykjavík, M.Sc-gráðu í fjármálum fyrirtækja frá Háskóla Íslands, B.S. gráðu í fjármálum og B.A. gráðu í heimspeki frá University of Arizona. Einnig er hann með próf í verðbréfaviðskiptum. Már starfar sem lektor í fjármálum við Háskólann í Reykjavík, hann er í stjórn Simple time ehf. og Simple investments ehf. Á árunum 1996-2009 starfaði hann við ýmis fjármálafyrirtæki á Íslandi, meðal annars sem yfirmaður SPH verðbréfa og forstjóri Verðbréfapjónustu Sparisjóðsins. Einnig starfaði hann árin 2013-2014 hjá Rannsóknarnefnd Alþingis varðandi orsök og fall Sparisjóðanna þar sem hann hafði yfirumsjón með rannsóknum á fjárfestingum þeirra. Már á engin hlutabréf í Högum hf. beint. Aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga 30.000 hluti í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.

Stefán Árni Auðólfsson (f. 1972)

Stefán Árni var fyrst kjörinn í stjórn Haga þann 7. júní 2013. Hann er menntaður lögfræðingur (Cand. jur) frá Háskóla Íslands og er með framhaldsmenntun frá Háskólánum í Kent í Bretlandi. Stefán Árni er með réttindi sem héraðsdómslögmaður og próf í verðbréfaviðskiptum. Stefán Árni starfar á lögmannsstofunni LMB Mandat slf. Stefán Árni hefur áður sinnt störfum hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins 2005-2011, á nefndasviði Alþingis 2003-2005 og hjá Fortis lögmannsstofu 1999-2002. Stefán Árni situr í stjórnum eftirtalinna félaga: Gamli Byr eignarhaldsfélag ehf. og Hváll ehf. og varamaður í GGX ehf. Hvorki Stefán Árni né aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga.