Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar AGM Information 2019

May 17, 2019

2196_rns_2019-05-16_9d29884a-87e9-4906-aae7-d930611ca80e.pdf

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

hagar

Adalfundur Haga hf. 7. júní 2019

Adalfundur Haga hf., kt. 670203-2120, verður haldinn föstudaginn 7. júní 2019 og hefst hann kl. 09:00 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík.

Dagskrá fundarins:

  1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina á liðnu starfsári.
  2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár, ásamt skýrslu endurskoðanda, lagður fram til samþykktar.
  3. Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar félagsins á reikningsárinu 2018/19.
  4. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og undirnefnda.
  5. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu.
  6. Tillaga um starfsreglur tilnefningarnefndar.
  7. Kosning tilnefningarnefndar.
  8. Kosning stjórnar félagsins og endurskoðanda.
  9. Ákvörðun um heimild stjórnar til kaupa á eigin bréfum.
  10. Tillaga um samkeppnisstefnu Haga hf.
  11. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin.

Ítarlegri upplýsingar um tillögur stjórnar, ársreikning og önnur gögn, ásamt upplýsingum um póstatkvæðagreiðslu, rétt hluthafa til að bera fram tillögur og framboð til stjórnar er að finna á vefsiðu félagsins,

http://www.hagar.is/fjarfestaupplysingar/adalfundur/

Stjórn félagsins vill einnig árétta að forsvarsmenn hluthafa sem sækja fundinn, þ.e. forsvarsmenn fyrirtækja, lífeyrissjóða, fjárfestingasjóða, einstaklinga og annarra hluthafa, ber að skila umboði við skráningu inn á fundinn. Einnig verða einstaklingar beðnir um að framvísa persónuskilríkjum.

Stjórn Haga hf.