Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar AGM Information 2018

Jun 6, 2018

2196_rns_2018-06-06_c06ed7b9-f12a-4224-a4ff-3c2b9af27548.pdf

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Lagt fram a' adalfundi Haga hf.
6. juni 2018 og fremt til bøker
undi 6. dagskralt ved hylsjgial med pnd.
BOKUN
GILDI
Gildis-lifeyrissjóðs á aðalfundi Haga hf. 6.6.2018

Gildi-lifeyrissjóður óskar eftir því að eftirfarandi verði fært til bókar í fundargerð hluthafafundarins:

  1. Samkvæmt hluthafastfnu Gildis telur sjóðurinn rétt við ákvörðun launa forstjóra að líta til innri þátta félags, launadreifingar innan þess og launa sem ætla má að forstjóra bjóðist á þeim markaði sem félagið starfar á. Í þessu samhengi leggur sjóðurinn áherslu á heildarlaun. Ef félög ákveða að notast við árangurstengd launakerfi er eðlilegt að föst laun séu að sama skapi lægri, samanborið við félög þar sem slík árangurstengd kerfi eru ekki til staðar. Mikilvægt er í tilfelli Haga hf. að stjórn félagsins upplýsi nánar um það með hvaða hætti heildarlaun stjórnenda eru mótuð og við hvaða samanburð þau miða.

  2. Samkvæmt hluthafastfnu Gildis er lögð áhersla á að starfskjarastefnur greini hvernig þær styðji við langtímahagsmuni og sjálfbærni félaga og að sett séu fram skýr skilyrði og forsendur fyrir föstum og árangurstengdum launagreiðslum. Mikilvægt er í því samhengi að helstu mælikvarðar komi fram í stefnunni og að þeir séu viðeigandi og á grundvelli þátta sem stjórnendur geta haft áhrif á og/eða stýrt í störfum sínum. Jafnframt er gert ráð fyrir að greint sé frá því hversu háar árangurstengdar launagreiðslur geta orðið þannig að hámörk og takmörk komi fram í stefnunni sjálfri. Því er beint til stjórnar félagsins að taka starfskjarastefnuna til endurskoðunar með þessi atriði í huga með það að markmiði að lýsa með greinargóðum hætti því launakerfi sem notast er við innan félagsins. Mögulegar breytingar á starfsemi félagsins vegna fyrirhugaðs samruna þurfa ekki að standa þeirri vinnu í vegi.

  3. Mikilvægt er að stjórn félagsins rökstyðji hverju sinni starfskjör stjórnenda og fjárhæð þeirra, þ.m.t. breytilega launaliði og breytingar á milli ára ásamt sundurliðun á föstum og breytilegum greiðslum. Af þessum sökum er mikilvægt að gerð sé skýrsla um framkvæmd starfskjarastefnu og að hún sé birt með góðum fyrirvara fyrir aðalfund. Því er beint til stjórnar félagsins að sundurliða framvegis greiðslur til stjórnenda þannig að greiðslur samkvæmt árangurstengdu launakerfi komi fram og að skýrsla um framkvæmd starfskjarastefnu verði útbúin og hér eftir birt með góðum fyrirvara fyrir aðalfund félagsins.

Reykjavík, 6. júní 2018
Árni Guðmundsson framkvæmdastjóri

Lifeyrissjóður
[email protected]
515 4700
www.gildi.is