Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar AGM Information 2016

May 20, 2016

2196_rns_2016-05-20_f9e12f90-c12d-4dd1-9e1e-16e463bbacff.html

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Aðalfundur Haga hf. 3.júní 2016

Aðalfundur Haga hf. 3.júní 2016

Endanleg dagskrá og tillögur.

Samkvæmt samþykktum Haga hf. skal tveimur vikum fyrir aðalfund birta dagskrá,
endanlegar tillögur, svo og ársreikning, skýrslu stjórnar og skýrslu
endurskoðenda, auk tillagna félagsstjórnar um starfskjarastefnu.

Dagskrá og tillögur vegna aðalfundar 2016 eru óbreyttar frá fyrri tilkynningu
félagsins þann 12. maí sl. Rangt skjal með starfskjarastefnu Haga fór með
þeirri tilkynningu en rétt skjal er nú komið inn. Starfskjarastefnan helst
óbreytt frá fyrra ári eins og áður hefur komið fram.

Hluthöfum er þó bent á að óski þeir eftir að fá mál sett á dagskrá eða leggja
fram ályktunartillögur á fundinum þarf að beina því skriflega og í endanlegu
formi til félagsstjórnar eigi síðar en 10 dögum fyrir fund (þriðjudaginn 24.
maí nk.) á netfangið [email protected], eins og kveðið er á um í 1. og 2.
mgr. 86. gr. hlutafélagalaga, sbr. lög nr. 2/1995. Kann endurskoðuð dagskrá að
birtast þann dag.

Hluthöfum er einnig bent á að hægt er að tilkynna um framboð til stjórnar
skriflega skemmst 5 dögum fyrir aðalfund. Upplýsingar um frambjóðendur til
stjórnar verða tilkynntar eigi síðar en 2 dögum fyrir fund.

                            Stjórn Haga hf.

Viðhengi: