Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Fly Play hf. M&A Activity 2008

Mar 31, 2008

6604_rns_2008-03-31_55b42a0c-33c4-48ab-b1fe-e17673df0fe6.html

M&A Activity

Open in viewer

Opens in your device viewer

Disclosure 257197

FL GROUP hf. - Fyrirtækjafréttir

FL Group selur hlut sinn í Finnair

FL Group hefur selt 12,69% eignarhlut í finnska flugfélaginu Finnair og er því ekki lengur meðal hluthafa í Finnair. Andvirði sölunnar er um 13,6 milljarðar ísl. króna. Jón Sigurðsson, forstjóri FL Group:"Sala hlutanna er í samræmi við stefnu FL Group að minnka vægi eignarhluta í skráðum félögum sem ekki falla undir kjarnafjárfestingar félagsins í fjármála, trygginga- og fasteignafélögum. Við leggjum nú mikla áherslu á stærstu eignarhluta FL Group í Glitni, Tryggingamiðstöðinni og Landic Property, auk fjölmargra fjárfestingaverkefna í óskráðum félögum í ýmsum greinum." Fjárhagsleg áhrif Salan hefur neikvæð áhrif á afkomu FL Group á fyrsta ársfjórðungi 2008 sem nemur um 1,7 milljörðum króna. Frekari upplýsingar veitir: Samskiptasvið FL Group Júlíus Þorfinnsson Sími: 591 4400 / 896 6612 Póstfang: [email protected] Um FL Group FL Group er alþjóðlegt fjárfestingafélag með kjarnafjárfestingarí bönkum, trygginga- og fasteignafélögum. Félagið fjárfestir einnig í óskráðum félögum sem falla vel að fjárfestingastefnu FL Group. Félagið stundar einnig markaðsviðskipti sem lúta að skammtíma fjárfestingum ásamt framkvæmd afleiðu- og verðbréfaviðskipta tengdum eignasafni félagsins. Höfuðstöðvar FL Group eru í Reykjavík en félagið er einnig með skrifstofur í Lundúnum en FL Group fjárfestir í félögum um allan heim. FL Group er skráð á OMX Nordic Exchange í Reykjavík (OMX: FL) og hluthafar félagsins eru rúmlega 4.000 talsins. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu FL Group, www.flgroup.is.