AI assistant
Festi — Interim / Quarterly Report 2021
Oct 28, 2021
2195_rns_2021-10-28_29a86cff-02e6-4667-ab93-1fa13eee553a.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
FESTI
- okt. 2021 – Afkomutilkynning Festi hf. á 3. ársfjórðungi 2021
Hagnaður 2.286 milljónir króna á 3. ársfjórðungi 2021
Helstu niðurstöður
- Framlegð af vöru- og þjónustusölu nam 6.875 millj. kr. samanborið við 5.785 millj. kr. á 3F 2020, sem samsvarar 18,8% hækkun milli ára.
- EBITDA nam 3.346 millj. kr. samanborið við 2.586 millj. kr. á 3F 2020, sem jafngildir 29,3% hækkun.
- Framlegð af vörusölu var 25,4% á 3F 2021 en framlegðin var 24,7% í sama fjórðungi árið áður.
- Kostnaður vegna COVID-19 var 14 millj. kr. á 3F 2021 en var 108 millj. kr. á sama fjórðungi árið áður.
- Eigið fé í lok 3F 2021 var 31.748 m.kr. og eiginfjárhlutfall 36,6% samanborið við 35,7% í lok árs 2020.
- Nettó vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga voru 25.423 millj. kr. í lok 3F 2021 samanborið við 29.986 millj. kr. í lok 2020 sem er lækkun um 4.563 millj. kr. á milli ára.
- EBITDA spá félagsins fyrir árið 2021 var hækkuð 29. september sl. um 600 millj. kr. og er nú 9.400 - 9.800 millj. kr.
| Milljónir króna | 3F 2021 | 3F 2020 | Breyt. | % Breyt. | 9M 2021 | 9M 2020 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrarreikningar | ||||||||
| Vöru- og þjónustusala | 27.064 | 23.455 | 3.609 | 15,4% | 72.308 | 62.875 | 9.433 | 15,0% |
| Framlegð af vöru- og þjónustusölu | 6.875 | 5.785 | 1.090 | 18,8% | 18.124 | 15.313 | 2.812 | 18,4% |
| Aðrar rekstrartekjur | 534 | 432 | 102 | 23,6% | 1.593 | 1.185 | 407 | 34,4% |
| EBITDA | 3.346 | 2.586 | 759 | 29,3% | 7.309 | 5.310 | 1.999 | 37,6% |
| EBIT | 3.026 | 1.786 | 1.240 | 69,4% | 5.505 | 3.293 | 2.211 | 67,2% |
| EBT | 2.848 | 1.435 | 1.413 | 98,5% | 4.449 | 2.136 | 2.313 | 108,3% |
| Hagnaður tímabilsins | 2.286 | 1.162 | 1.124 | 96,7% | 3.618 | 1.740 | 1.877 | 107,9% |
| Efnahagsreikningar | 30.9.2021 | 31.12.2020 | Breyt. | % Breyt. | ||||
| Birgðir | 8.863 | 7.668 | 1.194 | 15,6% | ||||
| Viðskiptakrófur | 5.887 | 4.924 | 964 | 19,6% | ||||
| Vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga | 29.668 | 32.549 | -2.881 | -8,9% | ||||
| Handbært fé | 4.245 | 2.563 | 1.682 | 65,6% | ||||
| Nettó vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga | 25.423 | 29.986 | -4.563 | -15,2% | ||||
| Sjóðstreymi | 3F 2021 | 3F 2020 | Breyt. | % Breyt. | 9M 2021 | 9M 2020 | Breyt. | % Breyt. |
| Handbært fé frá rektri | 4.022 | 2.453 | 1.568 | 63,9% | 7.404 | 4.369 | 3.035 | 69,5% |
| Fjárfestingarheyfingar | 372 | -998 | 1.370 | -137,3% | -96 | -2.435 | 2.339 | -96,1% |
| Fjármögnunarheyfingar | -3.287 | -756 | -2.531 | 334,7% | -5.647 | -2.345 | -3.302 | 140,8% |
| Handbært fé í lok tímabils | 4.245 | 4.991 | -746 | -14,9% | 4.245 | 4.991 | -746 | -14,9% |
| Lykiltölur | ||||||||
| Framlegð af vörusölu | 25,4% | 24,7% | 0,7% | 3,0% | 25,1% | 24,4% | 0,7% | 2,9% |
| EBITDA/framlegð | 48,7% | 44,7% | 4,0% | 8,8% | 40,3% | 34,7% | 5,6% | 16,3% |
| Eiginfjárhlutfall | 36,6% | 35,7% | 0,9% | 2,4% | 36,6% | 35,5% | 1,1% | 3,1% |
| Laun/framlegð | 40,0% | 42,8% | -2,8% | -6,4% | 47,4% | 49,6% | -2,2% | -4,4% |
| Fjárfestingar | 546 | 1.297 | -750 | -57,9% | 1.535 | 2.584 | -1.049 | -40,6% |
| Veltuhraði birgða | 8,5 | 8,3 | 0,2 | 2,4% | 8,0 | 8,1 | -0,1 | -1,2% |
FESTI
- okt. 2021 – Afkomutilkynning Festi hf. á 3. ársfjórðungi 2021
Rekstur þriðja ársfjórðungs 2021
Rekstur félagsins á þriðja ársfjórðungi gekk vel. Rekstur N1, Krónunnar og ELKO var umtalsvert betri en á sama fjórðungi árið áður og umfram væntingar stjórnenda. EBITDA félagsins nam 3.346 millj. kr. sem er 759 millj. kr. betri afkoma en í sama fjórðungi árið áður.
Tekjur
- Tekjur af vöru- og þjónustusölna námu 27.064 millj. kr. í 3F 2021 samanborið við 23.455 millj. kr. í 3F 2020, sem samsvarar 15,4% hækkun.
- Rekstrartekjur í dagvörusölna námu 13.482 millj. kr. sem er 8,0% aukning milli ára.
- Mikill viðsnúningur í eldsneytis- og rafmagnssölna. Tekjurnar voru 7.742 millj. kr. sem er 30,5% aukning á milli ára.
- Rekstrartekjur í raftækjasölna námu 3.816 millj. kr. sem er 14,4% aukning á milli ára.
- Rekstrartekjur í sölu annarra vara námu 2.024 millj. kr. sem er 18,4% aukning milli ára.
- Flokkun tiltekinna rekstrartekná og rekstrargjalda fyrir árið 2020 hefur verið breytt til að samræma flokkun innan samstæðunnar.
| Milljónir króna | 3F 2021 | 3F 2020 | Breyt. | % Breyt. | 9M 2021 | 9M 2020 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Vöru- og þjónustusala | ||||||||
| Dagvörur | 13.482 | 12.478 | 1.004 | 8,0% | 38.891 | 34.580 | 4.311 | 12,5% |
| Eldsneyti og rafmagn | 7.742 | 5.930 | 1.811 | 30,5% | 17.638 | 14.641 | 2.997 | 20,5% |
| Raftæki | 3.816 | 3.337 | 479 | 14,4% | 10.543 | 8.791 | 1.752 | 19,9% |
| Aðrar vörur og þjónusta | 2.024 | 1.710 | 314 | 18,4% | 5.235 | 4.863 | 372 | 7,7% |
| Samtals vöru- og þjónustusala | 27.064 | 23.455 | 3.609 | 15,4% | 72.308 | 62.875 | 9.433 | 15,0% |
| Aðrar rekstrartekjur | 534 | 432 | 102 | 23,6% | 1.593 | 1.185 | 407 | 34,4% |
| Tekjur samtals | 27.598 | 23.887 | 3.711 | 15,5% | 73.900 | 64.060 | 9.840 | 15,4% |
Tekjur nýrra verslana skýra 992 millj. kr. af aukningu milli ára. Tekjur af öðrum vörum og þjónustu hækkulu um 314 millj. kr. eða 18,4% milli ára.
| Milljónir króna | 3F 2021 | 3F 2020 | Breyt. | % Breyt. | 9M 2021 | 9M 2020 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Framlegð af vöru- og þjónustusölna | ||||||||
| Dagvörur | 3.373 | 2.964 | 409 | 13,8% | 9.367 | 8.076 | 1.292 | 16,0% |
| Eldsneyti og rafmagn | 1.818 | 1.470 | 349 | 23,7% | 3.983 | 3.203 | 781 | 24,4% |
| Raftæki | 948 | 746 | 202 | 27,0% | 2.720 | 2.138 | 582 | 27,2% |
| Aðrar vörur og þjónusta | 736 | 605 | 131 | 21,6% | 2.053 | 1.897 | 157 | 8,3% |
| Samtals framlegð af vöru- og þjónustusölna | 6.875 | 5.785 | 1.090 | 18,8% | 18.124 | 15.313 | 2.812 | 18,4% |
Framlegð af vöru- og þjónustusölna var 6.875 millj. kr. samanborið við 5.785 millj. kr. á þriðja ársfjórðungi 2020 sem er 18,8% hækkun milli ára. Framlegð af dagvörusölna var 3.373 millj. kr. sem er 13,8% aukning á milli ára. Framlegð af eldsneyti og rafmagni var 1.818 millj. kr. sem er um 23,7% millj. kr. aukning milli ára. Jákvæð áhrif vegna varnarsamninga eldsneytis nema 176 millj. kr. milli ára.
FESTI
- okt. 2021 – Afkomutilkynning Festi hf. á 3. ársfjórðungi 2021
Framlegð af raftækjasölu var 948 millj. kr. sem er 27,0% aukning og framlegð annarra vara og þjónustu var 736 millj. kr. sem er aukning um 21,6% milli ára.
Flokkun tiltekinna rekstrartekna og rekstrargjalda hefur verið breytt til að samræma flokkun milli félaganna í samstæðunni. Samanburðarfjárhæðum hefur verið breytt til samræmis við nýja flokkun en breytingin hefur engin áhrif á afkomu samstæðunnar, eignir, skuldir, eigið fé eða sjöðstreymi.
Rekstrarkostnaður
- Rekstrarkostnaður á 3F 2021 var 4.063 millj. kr. og hækkar um 433 millj. kr. frá 3F 2020 sem er 11,9% hækkun á milli ára.
- Launakostnaður hækkar um 277 millj. kr. milli fjórðunga eða 11,2%.
- Annar rekstrarkostnaður hækkar um 156 millj. kr. milli fjórðunga eða 13,5%.
| Milljónir króna | 3F 2021 | 3F 2020 | Breyt. | % Breyt. | 9M 2021 | 9M 2020 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrarkostnaður | ||||||||
| Laun og annar starfsmannakostnaður | 2.752 | 2.475 | 277 | 11,2% | 8.587 | 7.588 | 998 | 13,2% |
| Annar rekstrarkostnaður | ||||||||
| Rekstarkostnaður fasteigna | 397 | 382 | 15 | 4,0% | 1.123 | 1.161 | -39 | -3,3% |
| Viðhaldskostnaður | 224 | 152 | 71 | 46,9% | 655 | 508 | 147 | 28,9% |
| Sölu og markaðskostnaður | 302 | 222 | 81 | 36,4% | 889 | 700 | 188 | 26,8% |
| Samskiptakostnaður | 161 | 154 | 7 | 4,8% | 496 | 449 | 47 | 10,6% |
| Skrifstofu og stjórnarkostnaður | 73 | 81 | -8 | -9,6% | 275 | 354 | -79 | -22,2% |
| Vátrygginga og tjónakostnaður | 94 | 54 | 40 | 75,4% | 193 | 130 | 63 | 48,4% |
| Niðurfærsla krafna og tapaðar kröfur | 12 | 28 | -15 | -55,4% | 36 | 65 | -29 | -44,2% |
| Annar kostnaður | 47 | 84 | -36 | -43,6% | 154 | 232 | -78 | -33,5% |
| Samtals annar rekstrarkostnaður | 1.311 | 1.156 | 156 | 13,5% | 3.821 | 3.599 | 222 | 6,2% |
| Samtals rekstrarkostnaður | 4.063 | 3.631 | 433 | 11,9% | 12.408 | 11.187 | 1.220 | 10,9% |
Laun og annar starfsmannakostnaður í 3F 2021 nam 2.752 millj. kr. samanborið við 2.475 millj. kr. á 3F 2020 sem er 11,2% hækkun milli ára. Fjöldi stöðugilda jókst um 3,4% á milli ára og var 1.216 á fjórðungnum sem er fjölgun um 40 stöðugildi milli ára. Samningsbundnar launahækkanir komu inn í janúar 2021 og nemur hækkunin um 109 millj. kr. milli ára. Í neðangreindri töflu má sjá greiningu á hækkun launa og annars starfsmannakostnaðar í millj. kr. milli ára:
| Starfsmannakostnaður samtals 3F 2020 | 2.475 |
|---|---|
| Stöðugildi - breyting | 90 |
| Samningsbundnar launahækkanir | 109 |
| Orlofsskuldbinding | -22 |
| Annað | 99 |
| Starfsmannakostnaður samtals 3F 2021 | 2.752 |
Annar rekstrarkostnaður var 1.311 millj. kr. samanborið við 1.156 millj. kr. á 3F 2020, sem er hækkun um 156 millj. kr. eða 13,5% milli ára. Viðhaldskostnaður hækkar um 71 millj. kr. en ástæðan er að minna var af
FESTI
- okt. 2021 – Afkomutilkynning Festi hf. á 3. ársfjórðungi 2021
reglubundnu viðhaldi í fyrra á sama fjórðungi vegna áhrifa COVID. Sölu og markaðskostnaður eykst um 81 millj. kr. en sölutengdir kostnaðarliðir þar skýra um 58 millj. kr. af þeirri hækkun. Vátrygginga og tjónakostnaður hækkar um 40 millj. kr. milli ára en viðbótartjónakostnaður vegna eldsneytisleka á Hofsósi að fjárhæð 60 millj. kr. er færður inn í fjórðunginn.
Fjármagnsliðir
- Nettó fjármagnskostnaður var 178 millj. kr. samanborið við 351 millj. kr. á sama fjórðungi árið áður.
| Milljónir króna | 3F 2021 | 3F 2020 | Breyt. | % Breyt. | 9M 2021 | 9M 2020 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Fjármagnstekjur | 40 | 0 | 40 | 15119,6% | 89 | 181 | -92 | -50,8% |
| Fjármagnsgjöld | -385 | -520 | 135 | -26,0% | -1.437 | -1.576 | 138 | -8,8% |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 167 | 169 | -2 | -0,9% | 293 | 238 | 55 | 23,2% |
| Samtals | -178 | -351 | 174 | -49,4% | -1.056 | -1.157 | 102 | -8,8% |
Fjármagnsgjöld 385 millj. kr. samanborið við 520 millj. kr. á sama fjórðungi árið áður. Skuldbreyting var gerð þann 1. júli sl. á langtímalánum að eftirstöðvum um 8,7 milljarðar úr verðtryggðum yfir í óverðtryggt.
Efnahagur og fjárhagsleg staða
- Samtals eignir námu 86.764 millj. kr. í lok 3F 2021 og hafa hækkæð um 3.400 millj. kr. frá áramótum.
- Eiginfjárhlutfall félagsins var 36,6% í lok 3F 2021 samanborið við 35,7% í lok 4F 2020.
- Handbært fé 4.245 millj. kr. í lok 3F 2021 sem er hækkun um 1.682 millj. kr. frá áramótum.
| Milljónir króna | 30.9.2021 | 31.12.2020 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|
| Viðskiptavild | 14.668 | 14.668 | 0 | 0,0% |
| Aðrar óefnislegar eignir | 4.816 | 4.971 | -156 | -3,1% |
| Rekstrarfjármunir | 31.654 | 32.297 | -643 | -2,0% |
| Leigueignir | 5.587 | 5.420 | 167 | 3,1% |
| Fjárfestingarfasteignir | 7.500 | 7.467 | 33 | 0,4% |
| Birgðir | 8.863 | 7.668 | 1.194 | 15,6% |
| Viðskiptakröfur | 5.887 | 4.924 | 964 | 19,6% |
| Handbært fé | 4.245 | 2.563 | 1.682 | 65,6% |
| Vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga | 29.668 | 32.549 | -2.881 | -8,9% |
| Nettó vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga | 25.423 | 29.986 | -4.563 | -15,2% |
| Nettó vaxtaberandi skuldir | 31.253 | 35.596 | -4.343 | -12,2% |
| Eignfjárhlutfall | 36,6% | 35,7% | -0,9% | -2,5% |
| Veltuhraði vörubirgða | 8,5 | 8,3 | 0,2 | 2,4% |
FESTI
- okt. 2021 – Afkomutilkynning Festi hf. á 3. ársfjórðungi 2021
Viðskiptavild er 14.668 m.kr. og aðrar óefnislegar eignir 4.816 millj. kr. í lok 3F 2021. Rekstarfjármunir námu 31.654 millj. kr. og fjárfestingarfasteignir 7.500 millj. kr. í lok fjórðungsins. Birgðir félagsins að hækka í takt við árstiðasveiflu.
Nettó vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga voru samtals 25.423 milljónir króna sem er lækkun um 4.563 millj. kr. frá áramótum. Eiginfjárhlutfall félagsins var 36,6% í lok 3F 2021 samanborið við 35,7% í lok árs 2020. Lausafjárstaða félagsins er sterk og efnahagsreikningur félagsins einnig.
Sjóðstreymi og fjárfestingar
- Handbært fé frá rekstri á 3F 2021 var 4.022 millj. kr. samanborið við 2.453 millj. kr. á 3F 2020.
- Fjárfestingahreyfingar jákvæðar um 372 millj. kr., aukning um 1.370 millj. kr. milli ára.
- Fjármögnunarhreyfingar neikvæðar um 3.287 millj. kr., aukning um 2.531 millj. kr. milli ára.
| Milljónir króna | 3F 2021 | 3F 2020 | Breyt. | % Breyt. | 9M 2021 | 9M 2020 | Breyt. | % Breyt. |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Sjóðstreymi | ||||||||
| Handbært fé í byrjun timabils | 3.134 | 4.294 | -1.160 | -27,0% | 2.563 | 5.369 | -2.806 | -52,3% |
| Handbært fé frá rekstri | 4.022 | 2.453 | 1.568 | 63,9% | 7.404 | 4.369 | 3.035 | 69,5% |
| Fjárfestingarhreyfingar | 372 | -998 | 1.370 | -137,3% | -96 | -2.435 | 2.339 | -96,1% |
| Fjármögnunarhreyfingar | -3.287 | -756 | -2.531 | 334,7% | -5.647 | -2.345 | -3.302 | 140,8% |
| Gengismunur af handbæru fé | 4 | -3 | 7 | -250,5% | 21 | 33 | -12 | -36,5% |
| Breyting á handbæru fé | 1.111 | 696 | 415 | 59,5% | 1.682 | -378 | 2.060 | -545,0% |
| Handbært fé í lok timabils | 4.245 | 4.991 | -746 | -14,9% | 4.245 | 4.991 | -746 | -14,9% |
Handbært fé frá rekstri á 3F 2021 nam 4.022 millj. kr. sem er hækkun um 1.568 millj. kr. milli ára eða um 64%. Fjárfestingar á fjórðungnum námu 546 millj. kr. en sala eigna um 874 millj. kr. Eigin bréf voru keypt fyrir 390 millj. kr. og afborganir af vaxtaberandi lánum námu 2.787 millj. kr. á fjórðungnum. Handbært fé hækkaði um 1.111 millj. kr. á þriðja ársfjórðungi 2021.
Horfur í rekstri Festi hf. og EBITDA spá 2021
Í ljósi betri afkomu félagsins á þriðja ársfjórðungi 2021 og mati stjórnenda á horfum út árið þá var EBITDA spá félagsins hækkuð með tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland hf. þann 29. september sl. um 600 millj. kr. eða í 9.400 - 9.800 millj. kr. án tillits til áætlaðs söluhagnaðar fasteigna til Reita að fjárhæð 469 millj. kr. sem tilkynnt var um með tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland hf. þann 30. júni sl. Enn er unnið að afféttingu fyrirvara um kaupin.
Eftirfarandi þættir geta haft áhrif á rekstur félagsins
- Óvissa vegna áhrifa COVID-19
- Órói á heimsmarkaðsverði eldsneytis og gengi ISK
- Aukið atvinnuleysi og lægri hagvöxtur
- Hækkun á innfluttum vörum og hnökrar í aðfangakeðju á heimsmarkaði
Eiginfjárhlutfall félagsins er 36,6 % í lok fjórðungsins og félagið hefur sterka fjárhagsstöðu. Festi hefur skýra stefnu um fjármagnsskipan og mun t.d. við eignasölu koma fjármunum til hluthafa með kaupum á eigin bréfum, arðgreiðslum og/eða lækkun hlutafjár. Horfur í rekstrinum eru góðar og félagið er í vel stakk búið til að takast á við verkefnin framundan.
FESTI
- okt. 2021 – Afkomutilkynning Festi hf. á 3. ársfjórðungi 2021
Hluthafar
- Markaðsvirði félagsins í lok 3F 2021 nam 69,2 milljörðum króna.
- Hluthafar félagsins voru 979 í lok 3F 2021.
Kynningarfundur föstudaginn 29. október 2021
Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn föstudaginn 29. október 2021 í höfuðstöðvum Festi að Dalvegi 10 – 14 í Kópavogi 3. hæð. Eggert Þór Kristófersson, forstjóri, mun kynna uppgjörið og svara spurningum ásamt Magnúsi Kr. Ingasyni, fjármálastjóra.
Fundurinn hefst kl. 08:30. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasiðu
Festi: https://festi.is/r/fjarhagsupplysingar og í fréttakerfi Nasdaq OMX Iceland hf.
Fjárhagsdagatal
- Ársuppgjör 2021: 4. febrúar 2022
- Aðalfundur 2021: 2. mars 2022
Nánari upplýsingar veita Eggert Þór Kristófersson forstjóri, ([email protected]) og Magnús Kr. Ingason framkvæmdastjóri fjármálasviðs, ([email protected]).