Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Eimskipafélag Íslands Proxy Solicitation & Information Statement 2025

Jan 31, 2025

2194_rns_2025-01-31_37d58e7c-8fbd-46f2-8487-f4b15096c253.html

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

Tilkynning frá tilnefningarnefnd Eimskips

Tilkynning frá tilnefningarnefnd Eimskips

Tilnefningarnefnd er undirnefnd stjórnar og hefur það hlutverk að aðstoða og upplýsa stjórn vegna ferils við framboð til stjórnar og varastjórnar, sem og öflun framboða/tilnefninga til stjórnar, varastjórnar og undirnefnda hennar.

Aðalfundur Eimskips verður haldinn 27. mars 2025 og óskar tilnefningarnefnd eftir framboðum til stjórnar.

Tilkynning um framboð skal vera á sérstöku eyðublaði sem hægt er að nálgast á vefsvæði aðalfundar á fjárfestasíðu félagsins og skal skila á netfangið [email protected]

Frestur til að skila inn framboðum sem hljóta eiga umfjöllun tilnefningarnefndar er til klukkan 12:00 föstudaginn 14. febrúar 2025. Nefndin áskilur sér rétt eftir atvikum til að fjalla um framboð sem berast síðar.

Allir núverandi stjórnarmenn hyggjast gefa kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Aðalfundur kýs fimm í stjórn og tvo til vara, annar varamaðurinn lét af störfum á sl. ári og er því aðeins annað sæti varamanns skipað.

Tillaga nefndarinnar að tilnefningu frambjóðenda til stjórnarsetu verður kynnt tveimur vikum fyrir aðalfund, með tillögum stjórnar, eða 13. mars 2025.

Almennum framboðsfresti til stjórnar lýkur tíu sólarhringum fyrir aðalfund eða kl. 15:00 þann 17. mars nk. Starfsemi tilnefningarnefndar takmarkar ekki heimild frambjóðenda til að skila inn framboðum til stjórnar fram að því tímamarki.

Hluthöfum sem vilja eiga fund með tilnefningarnefndinni nú í aðdraganda aðalfundar 2025 er bent á að hafa samband sem fyrst gegnum tölvupóst.